Morgunblaðið - 29.05.2002, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002 25
LISTAHÁSKÓLI Íslands braut-
skráði 75 nemendur við hátíðlega
athöfn í Borgarleikhúsinu sl.
laugardag, og lauk þar með
þriðja starfsári skólans. Við
brautskráninguna flutti Hjálmar
H. Ragnarsson, rektor skólans,
ávarp þar sem hann ræddi þann
árangur sem náðst hefur í upp-
byggingu öflugs listaháskóla á Ís-
landi, og minnti á nauðsyn þess
að framtíðarlausn verði fundin í
húsnæðismálum skólans og að
rækt verði lögð við áframhald-
andi uppbyggingu kennaranáms
skólans.
Listaháskóli Íslands starfar í
fjórum deilum, myndlistardeild,
leiklistardeild, hönnunardeild og
tónlistardeild og sagði Hjálmar að
með stofnun tveggja síðarnefndu
deildanna sl. haust, hefði náðst
það markmið sem mennta-
málaráðherra fyrir hönd rík-
isstjórnar og stjórn skólans hefðu
sett sér með sérstakri yfirlýsingu
í mars 1999 um uppbyggingu
Listaháskólans í þremur meg-
ináföngum.
Benti Hjálmar jafnframt á að
margir hefðu á sínum tíma verið
efins um að markmiðin gætu
náðst innan þess tímaramma sem
settur var, en nú væri ljóst að
slíkar efasemir hafi verið með
öllu óþarfar. „Það, hvert okkur
hefur nú borið, er ekki síst að
þakka áræðni fyrrverandi
menntamálaráðherra við að
leggja út á hin djúpu mið og ein-
dreginn stuðningur hans við þá
metnaðarfullu stefnu sem stjórn
skólans hefur allt frá byrjun haft
að leiðarljósi. Vil ég nota hér
tækifærið til þess að þakka Birni
Bjarnasyni fyrir hollustu hans og
heilindi í garð skólans,“ sagði
Hjálmar.
Í ræðunni leit Hjálmar yfir
starfsemi vetrarins í hverri deild
og minnti á þann merka áfanga
sem náð verður á komandi hausti
þegar boðið verður upp á nám í
arkitektúr við sérstaka braut inn-
an hönnunardeildarinnar sem þá
fær nýtt nafn og verður kölluð
hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskóla Íslands. Þá vék
Hjálmar að mikilvægri nýbreytni
í starfi skólans með rekstri kenn-
aranáms, 30 eininga námi í
kennslufræðum fyrir listafólk sem
lokið hefur háskólanámi á sínu
sviði, sex nemendur hlutu dipl-
óma í kennslufræðum frá Listahá-
skóla Íslands á laugardaginn.
„Enn hefur þó ekki verið hægt að
staðfesta inntöku nýrra nemenda
þar sem rekstrargrundvöllur fyr-
ir námið hefur ekki verið end-
anlega tryggður. Það er álit okk-
ar stjórnenda Listaháskólans að
kennaranámið sé afar mikilvægt
fyrir framtíðaruppbyggingu list-
náms í landinu og leggjum við af-
ar mikla áherslu á að framtíð
þess sé tryggð,“ ítrekaði Hjálmar
og bætti því við að frammistaða
nemendanna og sú ánægja sem
ríkt hefur um námið sýni að það
sé á réttri leið.
Hjálmar vék að því í ræðu sinni
að aðsókn eftir námi við Listahá-
skólann hefði slegið öll met og
væri það til vitnis um að ungt
fólk í dag liti á listanám við
Listaháskóla Íslands sem eft-
irsóknarverðan kost. Engu að síð-
ur ríkti enn óvissa um framtíð-
arhúsnæðismál skólans, sem gerði
stjórnendum óhægt um vik með
að vinna markvisst að frekari
uppbyggingu og stefnumótun
skólans. „Fyrr en ákveðin lausn
liggur fyrir verður erfitt um vik
að útfæra þá stefnu okkar að út-
víkka starfsemina og taka nýjar
greinar inn. Unnið er að þarfa-
greiningu og stefnumótun til
næstu ára og með hliðjsón af
henni verður vonandi hægt að ná
skynsamlegri lausn.“
Í ræðu sinni þakkaði Hjálmar
þeim úrvalshópi lista- og fræði-
manna sem skipa 206 manna
kennaralið skólans, og ekki síst
nemendum skólans, þann þátt
sem þeir hafi átt í mótun hins
nýja háskólasamfélags á fyrstu
starfsárum þess, tímabils sem
Hjálmar vísaði til sem tíma vaxtar
og uppbygingar. „Ég hefi fullyrt
að stofnun Listaháskóla Íslands sé
metnaðarfyllsta verkefnið á sviði
listalífs í landinu á síðustu árum
og er það von mín að nemend-
urnir, jafnt sem kennarar og
starfsfólk, eigi eftir að minnast
þess með hlýhug síðar meir að
hafa verið þátttakendur í því
frumkvöðlastarfi,“ sagði Hjálmar.
Alls voru 75 nemendur úskrif-
aðir úr Listaháskóla Íslands, 43
útskrifuðust með BA gráðu frá
myndlistardeild, 18 með BA í
grafískri hönnun frá hönn-
unardeild, 8 með BFA gráðu frá
leiklistardeild, og 6 nemendur
hlutu diplóma í kennslufræðum.
Ljósmynd/Anna Fjóla GísladóttirÚtskriftarnemendur Listháskóla Íslands að lokinni útskrift í Borgarleikhúsinu.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, við brautskráningu
Brýnt að fá lausn í hús-
næðismálum skólans
TJARNARSKÓLI
Skóli fyrir 8. ,9. og 10. bekkinga.
Fámennir bekkir.
Bara einn bekkur í árgangi.
Einstaklingurinn í fyrirrúmi.
Heimanámstímar inni á stundaskrá.
Heimilislegt umhverfi.
Áhersla á góð samskipti.
Staðsetning í hjarta borgarinnar.
Innritun stendur
yfir.......
Lækjargötu 14b,
sími 562 4020,
tjarnar@ismennt.is,
www.tjarnarskoli.is.