Morgunblaðið - 13.06.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ENGUM farþega var meinað um landvistarleyfi í
Leifsstöð í gær, samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli, en að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða,
voru tugir manna stöðvaðir við innritun á áfanga-
stöðum félagsins í Bandaríkjunum í fyrrakvöld og
í gærkvöldi og í Evrópu í gær og þeim greint frá
því að þeir fengju ekki að fljúga með vélum Flug-
leiða til Íslands.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar hafa nafna-
listar verið notaðir til að hafa upp á óæskilegum
gestum á bókunarlistum. Þjónustufólk Flugleiða
erlendis hafi greint viðkomandi frá því að ríkis-
stjórn Íslands hafi ákveðið að útlendingar, sem
ætluðu til Íslands í þeim tilgangi að hafa í frammi
mótmæli vegna opinberrar heimsóknar forseta
Kína, fengju ekki að fara um borð í viðkomandi
vélar Flugleiða.
47 á listanum voru
bókaðir í sama flug
Í gærmorgun áttu 47 manns á lista dómsmála-
ráðuneytisins bókað flug með morgunvélinni frá
Kaupmannahöfn til Íslands. Þar af kom í ljós að
fimm einstaklingar tengdust ekki Falun Gong og
fengu að fara með vélinni. 16 manns var vísað frá í
fyrstu fyrir misskilning en haft var upp á þeim aft-
ur og átti að koma þeim með öðrum vélum til
landsins, samkvæmt upplýsingum Bjarna Sig-
tryggssonar, sendiráðunautar í sendiráði Íslands..
Bjarni segir að fólkinu hafi verið gefin sú skýr-
ing að nú þegar væri kominn sá fjöldi Falun Gong-
meðlima til Íslands sem lögregla teldi sig ráða við.
Íslenskur lögreglumaður er dönskum starfs-
bræðrum sínum innan handar en Bjarni segir að
danska lögreglan hafi verið mjög hjálpfús.
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður iðkenda Falun
Gong hér á landi, hefur í bréfi til fjögurra ráðu-
neyta og fleiri meðal annars krafist þess að Flug-
leiðir verði sviptar flugrekstrarleyfi til bráða-
birgða vegna stórfelldra lögbrota og fyrir að hafa
hlýtt ólögmætum fyrirmælum um að banna fólki,
sem hafi óæskilegar skoðanir að áliti dómsmála-
ráðuneytisins, að fara um borð í vélar Flugleiða
erlendis. Bréfið er stílað á forsætis-, dómsmála-,
utanríkis og samgönguráðuneytið, Flugmála-
stjórn, ríkissaksóknara, Flugleiðir og Persónu-
vernd, en mismunandi kröfur eru gerðar á hendur
hverjum og einum.
Í bréfinu segir að Flugleiðir hafi á ólögmætan
hátt farið eftir heimildarlausum og ólöglegum fyr-
irmælum frá dómsmálaráðuneytinu þess efnis að
synja fólki, sem hafi óæskilegar skoðanir að áliti
ráðuneytisins, um flutning til Íslands. Flugmála-
yfirvöld, samgönguráðuneyti og Flugmálastjórn
hafi, að því er best sé vitað, ekki haft afskipti af
málinu en þau hafi veitt Flugleiðum rekstrarleyfi.
Þessar athafnir séu með öllu án lagaheimilda og
brot á mannréttindum. „Þess er krafist að dóms-
málaráðuneyti og Flugleiðir hf. láti af ofsóknum
þessum og er áskilinn réttur til að gera þessa aðila
ábyrga að skaðabótarétti og refsirétti,“ segir í
bréfinu og ennfremur: „Þar sem sú ákvörðun, sem
dómsmálaráðuneyti tók að formi til, er einnig á
ábyrgð forsætis- og utanríkisráðuneytis, er einnig
áskilinn sami réttur gagnvart þeim. Áskilnaður á
jafnt við um félagið og stofnanirnar sjálfar og þær
persónur sem á þeim bera ábyrgð.
Gagnvart samgönguráðuneyti og Flugmála-
stjórn er gerð sú krafa að Flugleiðir hf. verði svipt
flugrekstrarleyfi til farþegaflugs til og frá Íslandi
til bráðabirgða vegna stórfelldra lögbrota og brota
á leyfisskilyrðum og fyrir að hafa hlýtt ólögmæt-
um fyrirmælum frá ráðuneyti sem fer ekki með
flugmál.“
Þær kröfur eru gerðar til ríkissaksóknara að
hann rannsaki þær skrár sem dómsmálaráðuneyt-
ið haldi um umbjóðendur lögmannsins, en þar sé
um að ræða brot gegn friðhelgi einkalífsins. Ríkis-
saksóknari kanni einnig brot á frelsisréttindum
þessa fólks.
Þess er krafist að Persónuvernd kanni hvort
greindar skrár eigi sér lagastoð og geri í því sam-
bandi viðeigandi ráðstafanir.
Mörgum farþegum vísað frá
afgreiðslu Flugleiða erlendis
Krefst þess að Flugleiðir
verði sviptar flugrekstr-
arleyfi til bráðabirgða
UM 60 manns, aðallega ungt fólk,
varðaði leiðina upp tröppur
stjórnarráðsins þegar ráðherrar
komu þangað á ríkisstjórnarfund
í gærmorgun.
Fólkið hafði bundið svarta
borða fyrir munn sér og stóð þög-
ult meðan ráðherrarnir gengu
framhjá. Þá mátti sjá að svartur
borði hafði verið bundinn fyrir
munn á flestum styttum bæjarins.
Mótmælin beinast gegn heim-
sókn og aðgerðum
Björn Thors kvikmyndagerðar-
maður hafði orð fyrir hópnum og
sagði hann að mótmælin beindust
bæði að heimsókn forseta Kína og
þeim aðgerðum sem íslensk
stjórnvöld hefðu staðið fyrir gegn
Falun Gong. Sagði hann að ungt
fólk á Íslandi skammaðist sín fyr-
ir íslensk stjórnvöld.
Þegar mótmælin stóðu yfir og á
meðan ráðherrar í ríkisstjórn
funduðu í Stjórnarráðinu gerðu
Falun Gong-iðkendur æfingar á
flötinni fyrir framan húsið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmæltu
með bund-
ið fyrir
munninn
LÖGREGLAN í Reykjavík og fjórir
talsmenn Falun Gong undirrituðu í
gær yfirlýsingu um hvar Falun
Gong-iðkendur myndu gera sínar
æfingar meðan á heimsókn forseta
Kína stendur.
John Nania, sem er aðaltalsmaður
Falun Gong-iðkenda hér á landi, seg-
ir niðurstöðuna í samræmi við óskir
Falun Gong-iðkenda og hann er full-
viss um að þeir muni í einu og öllu
fara eftir tilmælum lögreglu.
Í yfirlýsingunni er kveðið á um að
þeir safnist saman á þremur stöðum
í Reykjavík dagana 13.–15. júní frá
klukkan 10–19; í Hallargarðinum við
Fríkirkjuveg, á Austurvelli og á Arn-
arhóli. Í Hallargarðinum verða þeir
að gæta sérstaklega að því að valda
ekki truflun á umferð eða ónæði
vegna hávaða.
Vegna óska frá Reykjavíkurborg,
sem er að undirbúa 17. júní hátíð-
arhöld, verða ekki fleiri en 10 manns
í senn á Austurvelli og á Arnarhóli.
Þarf fólkið að halda sig fyrir utan ör-
yggissvæði lögreglu og valda ekki
hávaða á virkum dögum.
Nú væri á hinn bóginn unnið að
því að fá stjórnvöld til að aflétta
banni við komu Falun Gong-liða með
vélum Flugleiða til landsins. For-
svarsmenn hópsins hefðu óskað eftir
fundi með forsætisráðherra en verið
sagt að ekki gæti orðið af því.
„Við áttum fund með lögreglu á
þriðjudagskvöld þar sem við skrif-
uðum undir yfirlýsingu þar sem við
lýstum því yfir, eins og við höfum
alltaf gert, að við myndum fara í einu
og öllu eftir fyrirmælum lögreglu og
ekki fara inn fyrir öryggissvæði,“
sagði hann. Það væri örugglega
byggt á misskilningi að halda því
fram að talsmaður Falun Gong hefði
á sínum tíma lýst því yfir að ekki yrði
farið eftir tilmælum lögreglu. Það
hafi aldrei verið ætlunin að óhlýðn-
ast lögreglunni.
Friðsamir og eiga ætíð gott
samstarf við lögreglu
Aðspurður hvort hann teldi
öruggt að allir Falun Gong-liðarnir
myndu hegða sér í samræmi við
samkomulagið sem gert var við lög-
reglu sagðist Nania vera viss um
það. Þetta yrði rætt við alla þá Falun
Gong-iðkendur sem hingað væru
komnir en auk þess væru þeir alltaf
friðsamlegir og ættu ávallt gott sam-
starf við lögreglu.
Nania telur að um 100 Falun
Gong-iðkendur væru komnir til
landsins og bjóst hann við enn fleir-
um, líklega 30–40 í viðbót, en hann
sagðist ekki hafa nákvæmar upplýs-
ingar um heildarfjöldann. Spurður
um skipulagningu aðgerða sagði
John að Falun Gong væru ekki eig-
inleg samtök heldur hefði fólkið sam-
band með ýmsum hætti, s.s. með
tölvupósti, skilaboðum á heimasíðum
og símaráðstefnum.
Talsmenn Falun Gong og lögregl-
unnar semja um æfingasvæði
Verða á þrem-
ur stöðum í
miðborginni
NOKKRIR fylgjendur Falun Gong-
hreyfingarinnar, sem dvöldu í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar og Njarðvík-
urskóla á þriðjudag og sleppt var
seint á þriðjudagskvöld, lentu í því
að hafa ekkert húsaskjól þegar þeir
komu til Reykjavíkur. Búið var að af-
bóka gistirými margra í Reykjavík,
þar sem eigendur gistihúsanna sáu
sér ekki annað fært.
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
sagði aðspurð að atvik sem þetta
kæmi ferðaþjónustunni mjög illa,
sérstaklega vegna mikillar eftir-
spurnar eftir gistirými í Reykjavík
um þessar mundir. „Helgin fram
undan er mjög ásetin, og að sjálf-
sögðu hafa eigendur gistihúsa reynt
allt sem þeir geta til þess að nýta
rými sitt sem allra best,“ sagði Erna.
Ólafur Skúlason, eigandi Gistihúss
#101, sagðist hafa fengið símhring-
ingu frá konu, sem afpantaði her-
bergi sitt á þriðjudag, enda ekki fyr-
irséð að hún kæmist inn í landið.
Þrátt fyrir að henni hafi líklega verið
sleppt hafi hann ekkert í henni
heyrt. Síðan hefði hann átt von á
fjölda manns í gærmorgun og í
morgun, fimmtudag, með vélum frá
Bandaríkjunum. Farþegar hafi ekki
látið sjá sig og drægi hann þá álykt-
un að þeim hefði ekki verið hleypt
um borð í flugvélar.
Fjölda manns vantar herbergi
„Ég hef ekkert heyrt frá fólkinu í
Bandaríkjunum. Það hafði verið í
góðu sambandi við mig um síma áð-
ur, en nú skyndilega veit ég ekkert
um fólkið. Þau sögðust mörg vera
með bandarískt vegabréf og öll með
áritun sem þess þyrftu,“ sagði Ólaf-
ur. Að hans sögn hringdi sími hans
látlaust í gær vegna ferðafólks og
ráðstefnugesta, sem vantaði her-
bergi. „Ég hef þurft að neita fjölda
manns um herbergi vegna óvissunn-
ar sem þessu fylgir. Ég átta mig ekki
á því hvaða gestir eiga eftir að birt-
ast hér hjá mér.“
Fjöldi fylgjenda Falun Gong kemur ekki til landsins
Óvissa ríkir á hótelum og
gistiheimilum borgarinnar