Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Marbert
sólarlínan er fyrir allar húðgerðir. Sólarlínan inniheldur
bæði UVA vörn sem ver húðina gegn skaðlegum geislum sólar sem fara
í dýpstu lög húðarinnar og UVB vörn sem verndar gegn sólargeislum
sem valda bruna í húðinni. Öll sólarlínan er rotvarnarefnalaus
(paraben free) en rotvarnarefni valda
mörgum ofnæmi.
Kynning og ráðgjöf í Kringlunni
fimtudag, föstudag og laugardag.
Falleg sumartaska að gjöf þegar keypt er
fyrir 2.500 kr. í sólarlínunni
Tilboðið gildir í öllum MARBERT verslunum
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 30. júní nú kr. áður kr. mælie.
Anton Berg marsipanbrauð, 40 g ............ 99 115 2.475 kg
Anton Berg kókósbrauð, 40 g ................. 99 115 2.475 kg
Anton Berg nöddeknas, 40 g .................. 99 115 2.475 kg
Emmess toppís ..................................... 149 172 2.130 kg
Coke 1 ltr og Maarud 100 g poki............. 299 360
Mars tvö st. saman ................................ 129 150 1.090 kg
Snickers tvö st. saman ........................... 129 150 1.075 kg
Bon Bon hlauppoki, 90 g ....................... 129 155 1.430 kg
11-11-búðirnar og KJARVAL
Gildir 13.–19. júní nú kr. áður kr. mælie.
Gourmet lærissneiðar ............................ 1.379 1.724 1.379 kg
Lorenz chips paprika, salt....................... 199 259 1.137 kg
Kjörís mjúkís ......................................... 589 768 294 ltr
Emmess skafís ...................................... 299 499 299 ltr
Mónu buffalóbitar.................................. 189 245 1.111 kg
Mónu rexbitar........................................ 169 229 845 kg
KRÓNAN
Gildir 13.–19. júní nú kr. áður kr. mælie.
Homblest blátt, 200 g............................ 99 121 495 kg
Ballerína kex, 180 g............................... 89 104 494 kg
Toffy crisp ............................................. 149 168 1.103 kg
Chantibic rjómi í brúsa........................... 99 209 482 ltr
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 13.–18. júní nú kr. áður kr. mælie.
Kea þurrkryddaðar lambalærisneiðar....... 1.368 1.710 1.368 kg
Kea þurrkr. lambaframhryggjarsneiðar ..... 1.197 1.496 1.197 kg
Goða pylsur, 10 st. ................................ 599 799 599 kg
SS rauðvínslegin bógsteik ...................... 933 1098 933 kg
Libbýs tómatsósa, 680 g ........................ 167 197 246 kg
Festival sinnep sætt, 450 g .................... 119 149 265 kg
Bahncke steiktur laukur box, 100 g ......... 49 69 490 kg
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Júní-tilboð nú kr áður kr. mælie.
Pepsi, 0,5 ltr ......................................... 99 149
Sóma MS hyrna .................................... 209 295
Prins Póló stórt ...................................... 50 80
SELECT-verslanir
Gildir 30. maí –26. júní nú kr. áður mælie.
Sportlunsj, 80 g .................................... 95 118
Galaxy minstrels, 115 g ......................... 155 195
Always dömubindi ................................. 325 422
Allsorts lakkrískonfekt, 300 g.................. 225 275
Pampers blautklútar .............................. 175 215
Prins Polo XXL ....................................... 75 nýtt
Lyons milk chocolate bars 7 st. pakkn. .... 135 nýtt
Lyons mint 7 stykkja pakkn..................... 135 nýtt
SPARVERSLUN, Bæjarlind
Gildir til 17. júní nú kr. áður mælie.
Jarðarber, 250 g box.............................. 99 239 396 kg
Hellema kremkex, 300 g 3 fyrir 1 ............ 149 447 149 st.
Lucky Charms, morgunkorn, 396 g.......... 269 369 679 kg
Svínakótilettur reyktar á grillið ................. 1.199 1.399 1.199 kg
Svínakótilettur marineraðar .................... 999 1.298 999 kg
Spar-pakn. nauta/lambahakk frosið ....... 598 nýtt 598 kg
Lambarif marineruð á grillið .................... 199 299 199 kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 13.–19. júní nú kr. áður kr. mælie
Rauðvíns úrb. svínakambur .................... 1.038 1.298 1.038 kg
Kryddlegnar lærissneiðar........................ 1.367 1.709 1.367 kg
SS pylsur og Lego, tómatsósa, sinnep og
remúlaði ...............................................
799 nýtt 799 pk.
BKI kaffi, 400 g ..................................... 239 298 597 kg
Heinz tómatsósa, 567 g......................... 119 147 202 kg
Freschetta pítsur ................................... 429 529 1.200 kg
Dúnmjúkur wc pappír, 6 rl. ..................... 249 299 41 st.
Fis eldhúsrúllur, 2 st. ............................. 139 198 69 st.
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Ís og jarðarber á tilboðsverði
ÁKVEÐIÐ hefur verið á fundi sér-
fræðinefndar um fæðubótarefni að
heimila koffín í fæðubótarefnum og
náttúruvörum. Í nefndinni sitja
fulltrúar frá Hollustuvernd ríkis-
ins, Manneldisráði Íslands, Land-
læknisembættinu og Lyfjastofnun.
Leyfilegur hámarksdagsskammtur
koffíns í þurrvöru, það er dufti,
hylkjum, töflum og svo framvegis
er 300 mg, segir Ingibjörg H. Hall-
dórsdóttir líffræðingur og mat-
vælafræðingur hjá Lyfjastofnun.
Átt er við samanlagt magn
hreins koffíns og koffíns í jurtum,
svo sem Guarana, Yerba maté, Ilex
paraguensis, Kola nut, Green tea
og Camellia sinensis. Óskað verður
eftir upplýsingum frá framleiðanda
um heildarmagn koffíns í vörum
sem sótt er um leyfi fyrir.
Viðvörun á umbúðum fari
dagskammtur yfir 150 mg
„Sé magn koffíns meira en 150
mg í dagsskammti er skylt að líma
svohljóðandi viðvörun á umbúðir:
Þessi vara er ekki ætluð þung-
uðum konum, konum með barn á
brjósti, börnum yngri en 18 ára,
eða einstaklingum sem viðkvæmir
eru fyrir neyslu koffíns,“ segir
Ingibjörg.
Hollustuvernd ríkisins hefur
heimild samkvæmt reglugerð um
aukefni í matvælum nr. 579/1993
með síðari breytingu nr. 767/1997
og nr. 773/1998 að leyfa koffín í
drykkjarvörum þannig að 135 mg í
lítra eru leyfð í tilbúnum gos-
drykkjum.
Ingibjörg segir að eðlilegt hafi
þótt að leiðrétta þetta ósamræmi
milli drykkja og þurrvöru hvað
varðar koffíninnihald og var miðað
við mörk sem sett hafa verið í
Danmörku. „Lauslega áætlað hef-
ur stofnunin hafnað leyfi til inn-
flutnings á 50–60 vörum síðastliðin
fimm ár og eingöngu vegna fyrr-
greindra jurta, aðallega Guarana,“
segir hún.
Um er að ræða töflur, hylki,
duft, tyggigúmmí, tyggitöflur,
freyðitöflur, elexír, te og úða og er
þessum vörum ætlað að auka fitu-
brennslu, skerpa minni og auka út-
hald, að hennar sögn.
Steinar B. Aðalbjörnsson nær-
ingarfræðingur situr í sérfræði-
nefnd um fæðubótarefni fyrir hönd
Hollustuverndar ríkisins. Segir
hann að þótt orkudrykkir með
koffíni hafi verið leyfðir til þessa
séu ekki til sam-evrópskar reglur
þar að lútandi. Hverju landi innan
Evrópu sé heimilt að setja sínar
reglur. Hann segir að Hollustu-
vernd veiti ekki leyfi fyrir innflutn-
ingi á orkudrykkjum með koffíni
þar sem frjálst flæði á vöru sé í
gildi innan ESB og á EES-svæð-
inu.
Innflytjendur hafi hins vegar
getað leitað umsagnar Hollustu-
verndar um vöruna til þess að
ganga úr skugga um að hún sé lög-
leg. Hafi Hollustuvernd ákveðið á
sínum tíma að hámarksmagn koff-
íns í orkudrykkjum væri 135 mg í
lítra og tekið mið af magni koffíns
í kóladrykkjum. Koffín er aðallega
notað til örvunar í orkudrykkjum
en sem bragðefni í kóladrykkjum
og er koffín í orkudrykkjum unnið
úr þykkni jurta sem greinir hér að
framan.
Til stendur að hækka leyfilegt
koffínmagn í hverjum lítra orku-
drykkjar úr 135 mg í 150 mg og
segir Steinar að hærra verði ekki
farið. Orkudrykkir með hærra
koffínmagni en 135 mg í lítra eru
leyfðir í sumum nágrannalöndum
okkar og segir Steinar að til standi
að hækka mörkin til þess að skapa
ekki hindranir í innflutningi.
Þess má að lokum geta að koff-
ínmagn í einum kaffibolla getur
verið 75–150 mg að Steinars sögn.
Hámarksskammtur koffíns
í þurrvöru er 300 mg
Koffín hefur verið leyft í
drykkjarvörum um skeið og er
nú leyfilegt í þurrvöru líka.
Morgunblaðið/Ásdís
SKORRI ehf. hefur fengið umboð
fyrir nýja gerð af kolagrillum úr áli
og á þremur hæðum sem sett voru
á markað hérlendis nú í byrjun
mánaðar.
Grillin komu á markað erlendis í
fyrra og kveðst Örn Johnson,
framkvæmdastjóri Skorra ehf.,
hafa rekist á þau á sumarbústaða-
sýningu í Noregi. Grillin eru frá
Rotal Barby Ltd. í Skotlandi og
segir Örn hönnunina þegar hafa
fengið fjölda verðlauna erlendis.
Örn kveðst þekktastur fyrir að
selja rafgeyma í bíla en færði sig út
í sölu á sólarrafhlöðum fyrir sum-
arbústaði fyrir 10–15 árum, þá gas-
ísskápum og gasvatnshiturum,
einnig fyrir sumarbústaði, og nú
síðast kolagrillum. Um er að ræða
tvær stærðir, stærra grillið sem
sést á meðfylgjandi mynd og minna
ferðagrill. Stærra grillið hentar
fyrir allt að 30 manna veislur og
fjölmennar fjölskyldur og hið
minna fyrir 2 til 6 manns, segir
Örn.
Kviknar ekki í matnum og
auðvelt að þrífa eftir notkun
Grillið er og á þremur hæðum,
sem fyrr segir, kolin neðst og þá
tvær aðskildar hæðir fyrir matinn.
„Með því að skipta grillinu í þrjár
hæðir er tryggt að ekki kviknar í
matnum, auk þess sem auðvelt er
að þrífa grillið eftir notkun. Ferða-
grillið er með teflon-húð og því
ennþá auðveldara í þrifum. Nýt-
ingin á hitanum er mjög góð því
ekkert súrefni kemst að matnum,
hann brúnast fallega en brennur
ekki. Hitinn helst allur inni í grill-
inu og reyndar hitnar lokið svo
mikið að hægt er að spæla á því
egg,“ segir hann ennfremur.
Örn segir um að ræða algerlega
nýja hönnun og kom fulltrúi skoska
fyrirtækisins til landsins fyrir
skömmu og sýndi gestum handtök-
in á sýningunni Sumarbústaðurinn
og garðurinn í Mosfellsbæ. Hægt
verður að festa ferðagrillið á kúlu á
dráttarkróki innan tíðar og segir
Örn að ferðagrillið, sem ekki er á
fótum, megi bæði leggja á borð og
gras án þess að það brenni und-
irlagið.
Þá er von á samskonar grilli með
gaskút á næstunni, fyrir stærra
grillið í lok ársins, og fyrir ferða-
grillið á næsta ári. Ferðagrillið
kostar 29.900 krónur og stærra
grillið 49.900 segir Örn að síðustu.
Hægt er að fá frekari upplýs-
ingar um grillið á rotalbarby.com
þar sem meðal annars er að finna
uppskriftir og myndir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Örn Johnson með nýja gerð af
kolagrilli á þremur hæðum.
Nýstárleg kolagrill
á þremur hæðum