Morgunblaðið - 13.06.2002, Page 47

Morgunblaðið - 13.06.2002, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 47 ✝ Þórir HafbergStefánsson fæddist á Siglufirði 10. mars 1945. Hann lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 5. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Stefán Sigurður Guðmundsson, f. 28. júní 1906 á Ísafirði, márarameistari á Siglufirði, síðar í Reykjavík, d. 1. des. 1992 í Reykjavík, og Guðný Oddný Bier- ing Helgadóttir, f. 3. september 1918 í Grímsey, d. 11. janúar 1978, húsmóðir og starfsstúlka í Reykjavík. Systkini Þóris eru: Gréta Inger Bergmann, f. 6. febr- úar 1937, húsmóðir í Vogum á Vatnsleysuströnd, gift Runólfi Guðjónssyni framkvæmdastjóra í Reykjavík, Gréta á einn son. Guð- mundur Karl , f. 26. nóv. 1948 á Siglufirði, málari í Reykjavík, kvæntur 15. ágúst 1970 (skilin) Helgu Árnadóttur, f. 16. ágúst 1948. Guðmundur og Helga eiga tvær dætur. Sambýliskona Guð- mundar Karls er Kristín Björns- dóttir frá Ingunnarstöðum í Brynjudal. Sigrún Ragna, f. 23. júlí 1952 í Reykjavík, verkakona Reykjavík. Hafsteinn, f. 30. des. 1973, verkamaður á Akranesi. Barnsmóðir Silvía Margrét Val- geirsdóttir, barn þeirra: Helga María. Barnsmóðir Jóna Sigur- veig Guðmundsdóttir, barn þeirra: Guðmundur Þórir. Sam- býliskona Gréta Jóhannesdóttir, starfsmaður á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, barn þeirra: Jóhannes Valur. Þórir lauk skyldunámi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, hann vann um tíma hjá föður sín- um við málarastörf og hjá föð- urbróður sínum, einnig við mál- arastörf. Þórir og Elín hófu búskap sinn í Reykjavík, en eftir skamma dvöl fluttu þau til Grindavíkur og þaðan til Bíldu- dals. Frá Bíldudal fluttu þau til Akraness og bjuggu þar til ársins 1994. Þórir starfaði lengst af sem sjómaður á bátum, togurum og millilandaskipum. Hann rak einn- ig eigin trilluútgerð. Þórir hafði mikinn áhuga á matargerð og sótti námskeið í matargerð og vann hann sem matsveinn mestan þann tíma sem hann starfaði á sjónum. Þórir hafði skipstjórnar- réttindi að tíu tonnum (punga- próf). Fyrir fjórum árum veiktist Þórir alvarlega og varð hann að hætta störfum til sjós. Hann hafði aflað sér meiraprófsréttinda til aksturs og vann á meðan kraftar leyfðu við akstur strætisvagns hjá Almenningsvögnum. Útför Þóris fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. og húsmóðir, sam- býlismaður Jóhann Ólafsson. Sigrún og Jóhann eiga þrjá syni. Jóna Björk, f. 2. mars 1955 í Reykja- vík, stuðningsfulltrúi á sambýli fatlaðra í Reykjavík, gift 18. ágúst 1973 (skilin) Arthur Andaja Gal- ves, d. 7. september árið 2000. Jóna og Arthur eiga tvo syni. Þórir kvæntist 30. janúar 1965 (skilin) Elínu Árnadóttur, f. 28. ágúst 1942 á Kistufelli í Lund- arreykjadal, húsmóður og starfs- stúlku. Börn þeirra eru: Árni, f. 18. febrúar 1963, verkamaður í Reykjavík. Guðrún Helga, f. 16. desember 1964, búfræðingur og bóndi í Skeiðháholti á Skeiðum, gift Jóni Vilmundarsyni, f. 24. júní 1965, búfræðikandidat og bónda í Skeiðháholti. Börn þeirra: Tinna, Vilmundur, Elín Sigríður og Ingibjörg Sæunn. Stefán Þór, f. 23. maí 1966, vél- virki og vélstjóri, búsettur á Akranesi, barnsmóðir Ragnhild- ur Edda Jónsdóttir, barn þeirra: Kristófer Ernir. Kristján Haf- berg, f. 3. maí 1970, nemi í Tækniskólanum, búsettur í Faðir okkar Þórir Hafberg Stef- ánsson lést að kvöldi 5. júní á Land- spítalanum eftir erfið veikindi. Fyrir fjórum árum í haust greindist krabbamein í maga pabba, og fór hann fyrst í þriggja mánaða lyfja- meðferð í janúar sama vetur. Hann var skorinn upp í júlí sama ár og maginn fjarlægður. Pabbi var alla tíð hraustur, líka í veikindum sínum, hann þoldi lyfjameðferðina vel og skömmu eftir aðgerðina (sama sum- ar) fór hann norður að Hrauni í Sléttuhlíð, þar sem hann var í sveit mörg sumur í bernsku. Hann hélt ætíð mikilli tryggð við þann stað og fólkið þar. Pabbi þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og átti erfitt með að vera aðgerðarlaus. Hann var sjó- maður mestalla sína ævi, og oftast sem matsveinn. Pabbi gat ekki stundað sjómennsku eftir erfið veik- indin, og aflaði sér meiraprófsrétt- inda og keyrði strætisvagn meðan kraftar leyfðu. Í vetur fór hann að finna til í mjöðminni og í byrjun mars mjaðmagrindarbrotnaði hann. Upp úr því ágerðust veikindi hans hratt. Pabbi glímdi einnig við Bakkus kon- ung og var sú barátta hans erfið, sér- staklega seinni árin. Dag í senn, eitt andartak í einu. Þessi orð lýsa pabba vel, hann var kátur og þróttmikill og sjaldan með áhyggjur, sérstaklega af veraldlegum hlutum. Hann hafði stórt hjarta og mátti ekkert aumt sjá. Elsku pabbi, þú varst alltaf eirð- arlaus í hjarta þínu. Við vonum að þú finnir loks þann frið sem við höldum að þú hafir verið að leita að. Þótt teljum við árin er tíminn samt óráðin gáta og takmarkið óljóst; því munum við hlæja og gráta á meðan lífið lánar oss dálítinn frest; og dagarnir líkjast þeim dropa sem holaði steininn – Við dyljum af fágætri kostgæfni sárustu meinin, uns höfum við loksins í húsinu óboðinn gest. (Gunnar Egg. frá Leirárgörðum.) Árni, Guðrún Helga, Stefán, Kristján og Hafsteinn. Í dag kveð ég bróður minn, Þóri Hafberg, hinstu kveðju. Þú varst bú- inn að vera mikið veikur, það var erf- itt að horfa á þjáningar þínar og geta ekkert gert. Í hjarta mínu er sorg en einnig gleði, því að ég veit að nú ert þú á góðum stað, laus við þjáningar og erfiðleika. Ég þakka þér, elsku bróð- ir minn, allar góðar stundir sem við áttum saman. Guðrún, Addi, Kiddi, Stebbi og Haffi, innilegar samúðar kveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Hvíldu í friði, elsku bróðir. Þín systir Sigrún. ÞÓRIR HAFBERG STEFÁNSSON ✝ Trausti Guð-mundsson fædd- ist 20. nóvember 1919. Hann lést á heimili sínu 2. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðmundur Sæ- mundsson, f. 10. febrúar 1891, d. 1966, og Guðbjörg Sveinsdóttir, f. 12. september 1889, d. 1937. Systkini hans eru Sæmundur, f. 4. apríl 1914, d. 24. feb. 1985, Þóra, f. 24. feb. 1916, d. ágúst 1988, Fjóla, f. 20. okt. 1920, d. 29. feb. 2000, Víglundur, f. 16. feb. 1922, Gunnar, f. 16. júní 1924, Sólveig, f. 17. mars 1927, d. 10. feb. 1974, Rak- el, f. 8. mars 1930, Teitur, f. 31. maí 1931, og Ásta, f. 6. feb. 1934. Systkini samfeðra eru Guð- björg, f. 12. júní, 1942, Anna Hlín, f. 3. okt. 1944, Krist- ín, f. 25. mars 1946 og Olga, f. 31. ágúst, 1953. Trausti var ógift- ur og barnlaus. Útför Trausta fór fram frá Fossvogskapellu í kyrrþey að ósk hins látna. Fuglinn segir bí, bí, bí, bí, bí segir Stína. Kveldúlfur er kominn í kerlinguna mína. (Sveinbjörn Egilsson.) Þegar ég var stelpa var þetta vís- an okkar Trausta. Hann sagði mér ótal margar sögur og við sungum líka mikið saman. Trausti þreyttist aldrei á öllum hamaganginum og hossaði mér í takt við sönginn, þá var mikið hlegið. Ég á margar minning- arnar frá þessum tíma. Trausti átti gott með að umgangast börn og hændust þau fljótt að þessum hjarta- hlýja manni, hann var minna fyrir samskipti við fullorðna. Árin liðu, eftir því sem ég stækkaði hittumst við sjaldnar, þegar við hittumst læddi hann því að mér hvort ég hefði séð hann Kveldúlf. Ég kveð þig kæri frændi með fyrstu vísunni úr öðru kvæði sem við sungum saman. Á kaupmanninn rétt við búðar borðið svo brosfögur horfði Stína ég ætlaði bara að kaupa klæði í kjól á brúðuna mína. (Sig. Júl. Jóhannesson.) Margrét Hjörleifsdóttir (Gréta). TRAUSTI GUÐMUNDSSON Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.         ,     # 0  3 " 4 $&!1 ! <   4  /   4- '      <        4- '      !+    '  ' !"$$ *     '      . /     /  4- '   !"  ! !! " ,:"# "  % 7<  " " !! " 0 "# "  % 7 < "# "  '  !! " $""#) " % , $  # "  !! " #&" "" ! #&"  % # " #)# "  % /&  ! " !! " 7< )# "  % '" $" " !! " # )# "  !! " "4 # "  !! " 7< ) 4 % ( " (&" %$( " ( " (&" )          *? ' @ * A  ' ./   3  BC      '       6        . '   ,  !" !##$ " "" % #$ " !! " + " !! ") 5               7 7/#' 0 7D ":" E,  '  +& $("F 3 %$      0       !" !+$$ , " " ! !! " " " !: !! "   "" % 7 " !: !! " =%" !  " % 7< " !: !! " 0 (&" " !: % ;+:" !! " " !: ="" !: % "$ 7 !! " ( " (&" %$( " ( " (&" ) 0              #9**, . 8  "  G2        0       !+ !"$$  =" " !! " "$  " !: !! "  " " % 8 "" !: % " ! =" " !! "  "/ #"$$  % "   $ !! " ( " (&" %$( " ( " (&" ) (   *'7D ' .# + "   H        =     , !" !##$ $ '"% I$ %  !  , " # I$ !! "  I$ "D"  $"$ " % !:  <%! , " '  ! !! " $  <%!   ="  $" " !! " $""    <%! !:  $ " <%!) Sími 562 0200 Erfisdrykkjur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.