Morgunblaðið - 13.06.2002, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 13.06.2002, Qupperneq 48
MINNINGAR 48 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Það mun hafa verið fyrir 20 árum að ég kynntist þér fyrst. Það atvikaðist þannig að skólasystir mín og vin- kona þín bauð okkur Ævari í mat og þér einnig, þetta voru líka fyrstu kynni ykkar Ævars. Þetta var in- dælt matarboð sem endaði, eins og flest góð matarboð, á að við fórum út á lífið. Margs er að minnast frá þess- um 20 árum. Margar frábærar stundir sem maður átti í nærveru þinni. Ferðir ykkar Ævars og barnanna norður í Vatnsdal, veiðitúr upp á heiði, heimsóknir austur að Núpa- koti og Skógum þegar þið bjugguð þar, að ógleymdri ferð til Ameríku og svo allar frábæru stundirnar í Fornastekk. Það sem stendur upp úr er hvað manni leið alltaf vel í ná- vist þinni, hressleikinn, kátínan var svo mikil að maður komst alltaf í gott skap í félagsskap þínum. Alltaf sást þú jákvæðu hliðarnar á öllu og öllum og alveg sama á hverju gekk, alltaf sagðir þú allt gott. Þetta eru frábærar minningar sem aldrei gleymast. Í janúar 2001 greindist þú með þann sjúkdóm sem bar þig ofurliði þrátt fyrir þína ótrúlegu baráttu. Við hringdum oft hvort í annað á þessum síðustu 17 mánuðum og ég fór nokkrum sinnum í heimsókn til þín og barnanna í Engjaselið. Alltaf varst þú jafn hress og endaði spjall okkar alltaf þannig að það varst þú sem hughreystir mig og hresstir mig eins og þér einni var lagið. Ég sá þig síðast í byrjun apríl síð- astliðins í Engjaselinu og spjölluðum við lengi saman um lífið og tilveruna. Þú varst ótrúlega jákvæð, bauðst mér í 40 ára afmælið þitt síðar í mán- uðinum en því miður komst ég ekki í það. Þegar að kveðjustund kom tókst þú utan um mig, kysstir mig á kinnina og sagðir: „Þú ert alltaf vel- kominn í kaffi hingað, Svenni minn.“ JÓHANNA RANNVEIG SKAFTADÓTTIR ✝ Jóhanna Rann-veig Skaftadóttir fæddist í Reykjavík 25. apríl 1962. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut aðfaranótt 5. júní síðastliðins og var hún jarðsungin frá Seljakirkju í Breið- holti 12. júní. Þín verður sárt saknað, kæra vinkona. Elsku Jóhanna, ég þakka þér fyrir þessi 20 ár og minningin um þig mun lifa í hjarta okkar allra sem þekkt- um þig. Nú sefur jörðin sumargræn, nú sér hún rætast hverja bæn og dregur andann djúpt og rótt um draumabláa júlínótt. Við ystu hafsbrún sefur sól og sofið er í hverjum hól í sefi blunda svanabörn og silungur í læk og tjörn. Á túni sefur bóndabær og bjarma á þil og glugga slær, við móðurbrjóstið börnin fá þá bestu gjöf sem lífið á. (Davíð Stef.) Elsku Lára Guðrún, Vigdís Hlíf, Jón Sigmar og aðrir ástvinir, megi góður guð styrkja ykkur og vernda á þessari erfiðu stundu. Sveinn Eggert Jónsson. Hvort sem við erum einmana, sjúk eða ráðvillt fáum við umborið það allt, ef við aðeins vitum að við eigum vini, jafnvel þótt þeir geti ekki hjálpað okkur. Það nægir að þeir eru til. Hvorki fjarlægð né tími, stríð, þjáning eða þögn megnar að slá fölskva á vinátt- una. Við þær aðstæður festir hún einmitt dýpstar rætur. Upp af þeim vex hún og blómstrar. Í dag kveð ég vinkonu mína, Jó- hönnu Rannveigu Skaftadóttur. Kynni okkar hófust í Sandgerði sumarið 1978, hún nýorðin sextán ára og ég að verða fimmtán. Jóhanna kom til að vinna og fara í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja í Keflavík. Við vor- um mjög samrýndar á þessum árum, skemmtum okkur vel og fórum meira að segja eina ferð til útlanda saman, sumarið 1982. Þessi ferð er einhver sú skemmtilegasta sem ég hef farið og var í mörg ár á eftir ver- ið að rifja upp ýmis skemmtileg at- vik sem upp komu í ferðinni. Alltaf var mikill samgangur okkar á milli og eftir að börnin okkar fæddust mættum við í öll afmæli hvor hjá annarri, hringdum á afmælum hvor annarrar. Jóhanna var vinmörg og hafði gaman af að taka á móti gest- um og var hún svo ánægð að taka á móti öllu fólkinu sínu þegar hún hélt upp á fertugsafmælið sitt hinn 27. apríl síðastliðinn. Jóhanna var tilfinningarík og næm en því kynntumst við sem þekktum hana best. Í sorg jafnt sem gleði var gott að eiga hana sem vin. Nú syrgja margir og sakna góðs vin- ar. Ég minnist hennar með þakklæti, hlýja hennar vermdi og gleðin gladdi meðan þess var nokkur kostur. Elsku Lára, Vigdís og Jón, ykkar missir er mestur. Þegar sárasta sorgin er liðin hjá sitja eftir ljúfar minningar um góða móður sem munu verma hjörtu ykkar um alla framtíð. Ég og fjölskylda mín vottum öll- um aðstandendum og vinum dýpstu samúð okkar. Næm, skynsöm, ljúf í lyndi, lífs meðan varstu hér, eftirlæti og yndi ætíð hafði ég af þér, í minni muntu mér; því mun ég þig með tárum þreyja af huga sárum, heim til þess héðan fer. (Hallgr. Pét.) Ágústa Guðmarsdóttir. Hinn 5. júní sl. vaknaði ég hress og kát og tilbúin að takast á við lífið og tilveruna af bjartsýni. Þessi til- finning mín varði þó stutt þar sem ég fékk hringingu um hádegisbilið og mér var tilkynnt að hún Jóhanna hefði látist um nóttina. Hver var Jóhanna? Í mínum huga var hún algjör valkyrja. Já, ég segi valkyrja því í rúmt eitt og hálft ár barðist hún við krabbamein ein með börnin sín þrjú. Í hvert skipti sem ég spurði hana hvernig hún hefði það svaraði hún alltaf: „Fínt, þetta er allt að koma.“ Bjartsýni hennar má rekja til óbil- andi ástar hennar á börnunum. Þeg- ar hún vissi að hverju stefndi var það fyrsta sem kom upp í huga hennar hvað börnunum þætti skemmtilegt að gera. Hún ákvað því að freista þess að fara til útlanda með þau. Fyrir hjálp góðra manna sá hún fram á að draumur hennar myndi rætast. Þó að Jóhanna fari ekki í ferðina er yndislegt til þess að vita að hún hafði eitthvað að hlakka til. Elsku Lára, Vigdís Hlíf og Jón Sigmar, missir ykkar er mikill og við fjölskyldan vottum ykkur og öðrum aðstandendum dýpstu samúð okkar og biðjum algóðan guð að styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Ásdís, Ási og Katrín. Í leikskólanum Arnarborg er fast- ur kjarni starfsmanna sem hefur unnið þar saman svo árum skiptir. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í þennan samheldna hóp og komið er að kveðjustund, elsku Jóhanna. Þú greindist með krabbamein í janúar 2001 og höfum við fylgst með fram- gangi sjúkdómsins upp frá því. Allar héldum við í vonina um endurkomu þína til starfa og trúðum því að kraftaverk myndi eiga sér stað. Þú varst duglegust allra í baráttu þinni og sýndir ótrúlegan styrk. Bjargföst trú þín á að þú myndir sigrast á sjúkdómnun hélt þér gangandi allt til hinstu stundar. Það sýnir best ákvörðun þín um að fara utan á sól- arströnd með börnin þín og var sú ferð áætluð 14. júní n.k. Í stað þess- arar ferðar ert þú farin í aðra ferð yfir á nýtt tilverustig, þar sem þú ert laus við líkamlegar þjáningar og er það huggun harmi gegn. Okkar elskulega Jóhanna. Þú varst allt í senn, frábær starfsfélagi, yndisleg við börnin, góð í mannleg- um samskiptum og síðast en ekki síst kær vinkona. Hlátur þinn og fal- legt brost með djúpum spékoppum gleymist aldrei og setningar eins og: ,,Stelpur mínar, þetta verður ekkert mál“, ,,þetta reddast“ og ,,þetta gæti nú verið verra“ lýsa þér svo und- urvel. Þú varst alltaf tilbúin að líta á björtu hliðarnar, þótt oft syrti í álinn og trúin á hið góða í öllum var þér einkar kær. Að leiðarlokum þökkum við þér fyrir allt sem þú gafst okkur með nærveru þinni, kærleik og vináttu. Við biðjum algóðan guð að vernda börnin þín og við vitum að úr fjar- lægð munt þú fylgjast með þeim vaxa úr grasi og vaka yfir þeim. Elsku Lára, Vigdís og Jón Sig- mar. Megi minningin um yndislega móður ylja ykkur um ókomna tíð og góður guð vaka yfir ykkur í leik og starfi í framtíðinni. Öðrum ættingj- um og venslafólki sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Far þú í friði, kæra vinkona. Starfsfólk í leikskólanum Arnarborg. Elsku Jóhanna mín, kallið er kom- ið. Það var fyrir um það bil 20 árum að ég kynntist þér. Við vorum saman í saumaklúbb í tíu ár en þá flutti ég aftur til Akureyrar. Alltaf héldum við góðu sambandi og þegar ég átti leið í borgina hittumst við gjarnan. Ég minnist þess tíma þegar ég kom til þín í nokkra daga að Skógum og við fórum með Láru Guðrúnu og Tedda í Seljavallalaug, það voru góð- ir dagar. Margar áttum við stund- irnar í kjallaranum í Fornastekk en svo flutti ég norður og samveru- stundunum fækkaði. Alltaf hringd- umst við þó á og fylgdumst vel hvor með annarri. Þú sást um að ég vissi hvað stelpurnar í saumaklúbbnum voru að gera og þegar ég kom í borg- ina hóaðir þú stundum í stelpurnar svo við myndum allar hittast. Í byrjun árs 2001 sagðir þú mér að þú hefðir fundið hnút í brjóstinu og upp frá því höfðum við meira sam- band og fylgdist ég vel með veik- indum þínum. Þú varst svo dugleg og bjartsýn og ætlaðir að vinna bug á veikindunum. Í öll þau skipti sem við töluðum saman og hittumst þá var alltaf stutt í bros og meira að segja sunnudaginn 2. júní, í næstsíð- asta skipti sem við töluðum saman, fórst þú að hlæja. Þetta finnst mér sýna sérstakan styrk og að þú varst alveg ótrúleg kona. Það var í byrjun maí að ég fékk símtal frá þér. Þú baðst mig að koma með þér og börnunum þínum til Portúgals 14. júní. Þá varst þú nýbú- in að fá þær hræðilegu fréttir að meinið væri búið að dreifa sér og þú vissir að þú ættir ekki langt eftir. Þig langaði til að fá að njóta þess að vera með börnunum þínum í Portú- gal og vildir hafa með þér hjúkrun- arfræðing. Ég ákvað fljótt að þetta ætlaði ég að gera á hverju sem dyndi. Í okkar síðustu símtölum spjöll- uðum við mikið um ferðina og þú sagðist vera búin að kaupa þér sum- arkjól og sólhatt. Síðasta kvöldið sem þú lifðir, elsku vinkona, töluðum við saman og þú varst svo veik. Þá sagðistu ætla að ná þér upp úr þessu, en ég held að þú hafir vitað betur. Ég ylja mér við það nú að þessir síðustu dagar sem þú lifðir voru þér og börnunum þínum léttbærari við þá tilhugsun að vera að fara í sólina eftir nokkra daga. Vertu blessuð, elsku Jóhanna, þú verður ávallt í huga mér. Elsku Lára Guðrún, Vigdís og Jón, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur og umvefja í þessari miklu sorg. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð vegna þessa ótímabæra frá- falls móður ykkar. Heba Theodórsdóttir. Elsku besta duglega Jóhanna mín. Ég bara get varla trúað því að þetta sé búið. Þetta átti ekki að ger- ast svona fljótt. Þrátt fyrir erfið veikindi var það alltaf númer eitt hjá þér að fá að vera með börnunum þín- um og því er það svo óendanlega óréttlátt að þið fenguð ekki að fara til útlanda saman. Elsku Lára Guðrún, síðustu vikur og dagar hafa verið ykkur erfiðir. Þegar ég talaði við ykkur mæðgur 4. júní sl. og mamma þín var orðin svona veik var samt svo gott að heyra hversu fallega þið töluðuð hvor um aðra og hversu stoltar þið voruð hvor af annarri. Jóhanna hafði yfir að búa ótrúlega góðri blöndu af góðum eiginleikum. Hún var umburðarlynd, þolinmóð, jákvæð og glettin. Og í gegnum allt hennar stríð var þetta ætíð hennar aðalsmerki. Í okkar síðasta samtali sagði Jó- hanna mér að það sem skipti mestu máli væri að Ævar og börnin væru vinir og að þeim liði vel saman. Þá væri hún glöð. Því veit ég að það mun gleðja hana að þið farið öll sam- an út. Og mamma ykkar mun fylgj- ast með ykkur með sínu glettna móðurlega stolti yfir þessum dug- legu börnum sínum. Elsku Lára Guðrún, Vigdís og Jón, hugur minn er hjá ykkur í þess- ari miklu sorg. Og ég bið algóðan Guð að vaka yfir ykkur um ókomna framtíð. Öðrum ættingjum votta ég samúð mína. Með djúpri virðingu og þökk kveð ég þig, kæra vinkona. Guð blessi þig. Þín vinkona Díana. Kæra systir mín, það er svo margs að minn- ast þegar maður hugs- ar um þig, allt frá bernsku og fram að síð- ustu baráttudögum þínum. Þú varst eina systirin í hópn- um og fékkst að njóta þess. Auga- steinn okkar og jafnframt kvöð fyrir ærslafulla drengi sem þurftu að passa litlu systur sína. Þegar ýmis- legt annað var á prjónunum hjá uppátektarsömum fjörkálfum sem sjaldan voru við eina fjölina felldir í UNNUR BJARKLIND ✝ Unnur Bjarklindfæddist í Reykja- vík 22. mars 1951. Hún lést á gjör- gæsludeild Landspít- ala við Hringbraut 16. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogs- kirkju 27. maí. ýmsum prakkarastrik- um. En þú áttir stað í hjarta okkar sem sem ekki varð slitinn burt, og seinna er við kom- umst á unglingsárin kom enn betur í ljós hve stóran part þú átt- ir í hjarta okkar þegar við „ofvernduðum“ þig. Þá var enginn nógu góður fyrir þig. En þú hafðir þitt sjálf- stæði og skoðanir og á réttum tíma fannst þú þinn lífsförunaut sem þú deildir með gleði og sorgum. Gaman var að fá að fylgjast með þér þegar þú varst að feta þig fyrstu sporin í þínum búskap og alltaf var jafn hlýlegt og gott að sækja þig heim. Yfirleitt varð ekki þverfótað fyrir ýmsum ferfætlingum eða fugl- um, en þú lést þér afar annt um bæði menn og málleysingja og vildir allt gera fyrir alla og engu skipti hver átti í hlut. Þó voru börnin og ekki síð- ur barnabörnin ofarlega í huga þín- um og fyrir þau lifðir þú og er þín sárlega saknað af þeim. Þú hafðir ríka réttlætiskennd og stóðst fast á þínu og áttum við stundum í snörp- um orðaskiptum er okkur greindi á um hin ýmsu málefni, en fordóma- lausari manneskju hef ég ekki þekkt. En alltaf var stutt í brosið og sátta- höndin var fúslega fram rétt ef um- ræðuefnið var orðið „of heitt“. „Æi, Bjössi minn, við skulum tala um eitt- hvað annað.“ Þannig var hún systir mín full af kærleika og umhyggju. Og alltaf tók hún á móti okkur fjöl- skyldunni með gleðibrosi og gest- risnar hendur reiddu fram meðlæti, kóngi bjóðandi. Slík var gleði hennar þegar hún hitti fjölskyldu sína og vini, ekkert var of gott fyrir okkur. Hún átti í erfiðri baráttu síðustu árin og tókst hún á við þá baráttu með bjartsýni og von í hjarta um bata, og var móðir hennar ekki síst hennar styrkur og hægri armur en hún stóð sem klettur við hlið hennar alla tímann, og var þó í mörgu öðru að snúast fyrir hana. Það er sárt að sjá eftir svo ungri konu sem með tilhlökkun tók á móti hverjum degi og hugsaði um fjöl- skylduna sína og alltaf var jafn gam- an að fá hana í heimsókn á sumar- daginn fyrsta, en þá reyndum við að fá hana heim í sumarkaffi. En nú er elsku systir mín farin og eftir sitjum við með hugann fullan af góðum minningum og hugsunum og ég vildi að við hefðum getað eytt meiri tíma saman. En samt skildir þú eftir hjá mér þá hugsun að lífið og vinir manns og fjölskylda er ekki jafn sjálfsagt og maður hefur haldið og vonandi verður það til þess að með sama kærleikshuga og þú, tak- ist mér að rækta frænda- og vina- garðinn minn meðan tími er til. Það er alls ekki sjálfsagt að hafa góða heilsu og góða vini og fjölskyldu og við ættum öll að reyna að hlúa að þeim sem okkur hefur áskotnast í líf- inu og gefa okkur tíma til að hugsa um þá sem brothætt postulínsker sem verður að umgangast af alúð og virðingu og kærleika. Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl- skyldu hennar sem var henni allt. Þinn bróðir Björn Bjarklind.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.