Morgunblaðið - 13.06.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 59
DAGBÓK
Mörkinni 6, sími 588 5518
Fyrir 17. júní
Fallegar yfirhafnir í úrvali
20-50%
Opnum kl. 9
virka daga
laugardaga
frá kl. 10-15
afsláttur
Smart fyrir 17. júní
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Gallajakkar
Gallapils síð/stutt
Gallabuxur
20% afsláttur
4. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
11.758.170 kr.
2.351.634 kr.
235.163 kr.
23.516 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.300.844 kr.
1.860.169 kr.
186.017 kr.
18.602 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
8.917.208 kr.
1.783.442 kr.
178.344 kr.
17.834 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
1.504.180 kr.
150.418 kr.
15.042 kr.
Innlausnardagur 15. júní 2002.
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
98/1 1 1,50417982
98/2 1 1,50417982
01/1 1 1,15900719
01/2 1 1,15900719
Rafrænt
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert þolinmóður og gefur
fólki tíma til þess að átta sig
á fyrirætlunum þínum. Það
tryggir framkvæmdina.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki hugfallast, þótt
aðrir séu ekki strax með á
nótunum. Útskýrðu þitt mál
af kostgæfni og þá munu
hlutirnir fljótt snúast þér í
hag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fjölskyldan er þér mikils
virði og þú leggur mikið upp
úr uppruna þínum. Það gefur
þér öryggi og dug til að tak-
ast á við framtíðina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er á hreinu að þú verður
að taka á málum af fullri al-
vöru. Farðu samt varlega og
reyndu að særa engan í leið-
inni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert ekki ánægður með alla
hluti og skalt skoða þá í víð-
ara samhengi áður en þú
ákveður að láta til skarar
skríða. Hlustaðu líka á
drauma þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Finnist þér þú vera sam-
bandslaus og þreyttur er
kominn tími til að slaka á og
hlusta á líkamann. Treystu
öðrum til að vinna störf þín í
dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fylgdu engum að málum
fyrr en þú ert viss um að þín-
um hag sé borgið. Best er er
að hafa allan fyrirvara á hlut-
unum og leyfa þeim að sanna
sig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að skoða vandlega
hvaða tæki kemur þér að
bestu gagni til að auka fram-
leiðsluna. Sú fjárfesting mun
fljótt skila arði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að komast í smáfrí
til að endurnýja sjálfan þig
til sálar og líkama. Fáðu góð-
an vin til að slást í för með
þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur of lengi látið heilsu-
far þitt reka á reiðanum og
þarft nú að gera átak í þeim
málum. Láttu þau hafa for-
gang fram yfir önnur mál.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Frelsinu fylgir mikil ábyrgð,
sem þú axlar um leið og þér
er veitt frelsi og sjálfstæði í
starfi. Nú er tækifærið að
sýna hvað í þér býr.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er úr vöndu að ráða og
því skaltu fara þér hægt þeg-
ar þú veltir fyrir þér mögu-
leikunum til lausnar vandan-
um.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það þýðir ekkert að berja
höfðinu við steininn og ætla
að breyta hlutum sem eru
löngu liðin tíð. Byggðu þig
frekar upp fyrir framtíðina.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
HEILRÆÐAVÍSUR
Ungum er það allra bezt
að óttast guð, sinn herra.
Þeim mun vizkan veitast mest
og virðing aldrei þverra.
Hafðu hvorki háð né spott,
hugsa um ræðu mína,
elska guð og gerðu gott,
geym vel æru þína.
Foreldrum þínum þéna af dyggð,
það má gæfu veita.
Varast þeim að veita styggð,
viljirðu gott barn heita.
Hugsa um það helzt og fremst,
sem heiðurinn má næra.
Aldrei sá til æru kemst,
sem ekkert gott vill læra.
- - -
Hallgrímur Pétursson
UNDARLEG staða kemur
upp í sex tíglum suðurs, sem
býður upp á margar út-
færslur. Sagnhafi á tólf slagi,
en þó enga örugga leið til að
nálgast þá alla. Lítum á:
Norður
♠ KG983
♥ G10
♦ KDG
♣ÁKG
Suður
♠ Á5
♥ K8
♦ Á8763
♣D972
Vestur spilar út trompi og
sagnhafi byrjar á því að af-
trompa mótherjana með
mannspilunum í borði. Síðan
fer hann í spaðann, tekur
ÁK og trompar þann þriðja.
Í ljós kemur að vestur hefur
byrjað með drottningu
fjórðu. Sagnhafi fer því inn í
borð á laufás og trompar
spaða með síðasta tíglinum.
Tólfti slagurinn á spaðagosa
er nú frír, en hins vegar er
farið að hitna undir einum
laufslagnum sem færður var
til bókar í upphafi. Staðan er
þessi:
Norður
♠ G
♥ G10
♦ --
♣KG
Suður
♠ --
♥ K8
♦ --
♣D97
Báðir fylgja lit með smá-
spilum þegar blindum er
spilað inn á laufkóng. Hvern-
ig á nú að halda áfram?
Það kemur til greina að
henda laufi í spaðagosa og
reyna síðan við hjartaslag,
en það væri neyðarlegt að
tapa slemmunni þannig í 3-3
legu í laufi. Betra er að
henda hjartaáttu í spaða-
gosa og spila svo laufgosa og
sjá til. Ef austur á ekki fleiri
lauf, fær gosinn að eiga slag-
inn og síðan er hjarta spilað.
Vestur á aðeins eitt hjarta
eftir og sé það drottning eða
ás fær sagnhafi alltaf slag í
viðbót.
Ef austur fylgir lit í lauf-
gosann yfirdrepur sagnhafi
og vonast eftir 3-3 legu. En
eigi austur fjórlitinn er enn
sú von að hann sé kominn
niður á staka hjartadrottn-
ingu. Sagnhafi spilar hjarta-
kóng og vonar það besta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
14. júní, er sextugur Halldór
Snorrason, matreiðslu-
meistari, Hofslundi 11,
Garðabæ. Halldór og eigin-
kona hans, Sigurveig Sæ-
mundsdóttir, taka á móti
gestum á afmælisdaginn
milli kl. 17.30 og 21.00 í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli
við Kirkjulund í Garðabæ.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 13.
júní, er fimmtugur Bjart-
mar Guðlaugsson tónlistar-
maður, Öldugötu 44. Eigin-
kona hans er María Helena
Haraldsdóttir. Í tilefni
þessa taka þau á móti vinum
og vandamönnum á heimili
sínu eftir kl. 18 í dag.
Hlutaveltur
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6.
Bc4 e6 7. Be3 a6 8. Bb3 Dc7
9. De2 Be7 10. 0–0–0 0–0 11.
g4 Rd7 12. Hhg1 Rc5 13. Rf5
b5 14. Bd5 Bb7 15. g5 b4 16.
Dh5 Re5 17. f4 bxc3 18. fxe5
cxb2+ 19. Kb1 Rxe4 20. g6
Rc3+ 21. Kxb2 Rxd1+ 22.
Kc1 fxg6 23. Hxg6
Hxf5 24. Bxe6+
Kh8 25. Bxf5 dxe5
Staðan kom upp
á Stigamóti Hellis
sem lýkur í kvöld,
13. júní. Tafl-
mennskan í mótinu
hefur verið fjörug
og verða skák-
áhugamenn ekki
sviknir ef þeir
staldra við á skák-
stað. Sigurður Daði
Sigfússon (2.351)
hefur verið iðinn við
að halda uppi fjör-
inu og hafði hvítt
gegn Braga Þorfinnssyni
(2.355). 26. Dxh7+! Kxh7
27. Hh6+ Kg8 28. Be6+ og
svartur gafst upp enda mát
eftir 28 … Kf8 29. Hh8#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Morgunblaðið/Kristinn
Þessir duglegu drengir, Helgi Andrésson, Stefán Darri
Þórsson og Valtýr Már Hákonarson, héldu tombólu og söfn-
uðu þeir 7.325 kr. til styrktar Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna.
Og ég sem hélt að þú ætl-
aðir að kenna mér keilu.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík