Morgunblaðið - 13.06.2002, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
FORSETI Kína, Jiang Zemin, kemur
í opinbera heimsókn til Íslands síð-
degis í dag. Ráðgert er að Boeing 747-
þota hans lendi á Keflavíkurflugvelli
um kl. 17. Forsetinn heldur síðan af
landi brott að morgni sunnudags.
Dagskrá heimsóknar forsetans
hefst síðan fyrir hádegi á morgun,
föstudag, þegar hann á fund með
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Ís-
lands á Bessastöðum.
Síðdegis á morgun eiga Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra fund
með forseta Kína. Fer hann fram í
Þjóðmenningarhúsinu. Eftir þann
fund hefur kínverska sendinefndin
boðað til blaðamannafundar. Annað
kvöld verður hátíðarkvöldverður for-
seta Íslands í Perlunni til heiðurs Ji-
ang Zemin.
Á laugardag fer forseti Kína í skoð-
unarferð um hefðbundna ferða-
mannastaði á Suðurlandi. Gert er ráð
fyrir að ferðin standi allan daginn.
Engum farþega var meinað um
landvistarleyfi í Leifsstöð í gær, en
tugir manna voru stöðvaðir við inn-
ritun á áfangastöðum Flugleiða í
Bandaríkjunum í gærkvöldi og fyrra-
kvöld og í Evrópu í gær og þeim
greint frá því að þeir fengju ekki að
fljúga með vélum Flugleiða til Ís-
lands.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, hafa nafna-
listar verið notaðir til að hafa upp á
óæskilegum gestum á bókunarlistum.
Þjónustufólk Flugleiða erlendis hafi
greint viðkomandi frá því að ríkis-
stjórn Íslands hafi ákveðið að útlend-
ingar, sem ætluðu til Íslands í þeim
tilgangi að hafa í frammi mótmæli
vegna opinberrar heimsóknar forseta
Kína, fengju ekki að fara um borð í
viðkomandi vélar Flugleiða.
Mildilega tekið á málum
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að tekið hafi verið mjög mildi-
lega á málum meðlima Falun Gong.
Stjórnvöld hafi staðið frammi fyrir
þeim kostum að grípa til þeirra að-
gerða sem gert var eða aflýsa heim-
sókn forseta Kína til landsins. Að-
spurður segist hann ætla að ræða
ástand mannréttinda við Jiang Zemin
eins og hann hafi gert í heimsókn
sinni í Kína á sínum tíma.
Í gær undirrituðu lögreglan í
Reykjavík og fjórir talsmenn Falun
Gong yfirlýsingu um hvar Falun
Gong-iðkendur myndu gera æfingar
meðan á heimsókninni stendur. Í yf-
irlýsingunni er kveðið á um að þeir
safnist saman í Hallargarðinum við
Fríkirkjuveg, á Austurvelli og á Arn-
arhóli í Reykjavík 13. til 15. júní.
Fjöldamótmæli boðuð
Ungliðahreyfingar stjórnmála-
flokka, námsmannahreyfingar og
ýmsir óháðir áhugahópar hafa boðað
til fjöldamótmæla vegna komu Jiang
Zemins til Íslands. Mótmælin fara
fram á Austurvelli á morgun, föstu-
dag, og hefjast kl. 15.30. Í tilkynningu
frá samtökunum er fólk hvatt til að
koma með svarta borða og binda fyrir
munn sinn til að mótmæla skertu
tjáningarfrelsi og mannréttindabrot-
um í Kína.
Morgunblaðið/Jim Smart
Félagar úr Falun Gong-hreyfingunni gerðu æfingar sínar víðs vegar um Reykjavík í gær. Þessir voru á Austurvelli síðdegis.
Forseti Kína væntan-
legur síðdegis í dag
Fjöldi farþega var stöðvaður á
áfangastöðum Flugleiða erlendis
Heimsóknin/4/6/34
RJÚPNATALNINGAR á vegum
Náttúrufræðistofnunar Íslands nú í
vor sýndu fækkun eða kyrrstöðu
stofna miðað við árið á undan og í
frétt frá stofnuninni segir að
rjúpnastofnar séu nú í algjöru lág-
marki víðast hvar um landið.
Fram kemur að íslenski rjúpna-
stofninn sveiflist mikið og hafi yf-
irleitt liðið um tíu ár milli toppa.
Rannsóknir sýni að vetrarafföll
ráði stofnbreytingum, en munur á
stofnstærð milli hámarks- og lág-
marksára hafi verið þre- til tífald-
ur. Vortalningar á óðalsbundnum
körrum á sömu svæðum ár eftir ár
hafi verið notaðar sem mælikvarði
á stofnstærð. Þessar talningar hafi
sýnt að stofnbreytingar voru sam-
stiga um landið á 7. og 8. áratugn-
um en síðustu 15–20 árin hefur
samsvörunin ekki verið jafn góð og
áður var. Greinilegir toppar voru
árin 1966 og 1986 en eftir það há-
mark fækkaði ár frá ári og lágmark
varð á árunum 1991–1994, en nýtt
hámark varð árin 1997 til 1998.
Þéttleiki rjúpna í ár var langt
undir sögulegu lágmarki á sumum
svæðum, til dæmis á Norðaustur-
landi, en talið var á um 35 svæðum í
öllum landshlutum. Yfirleitt var um
fækkun að ræða á talningasvæð-
unum en á nokkrum svæðum stóð
stofninn í stað. Aðeins á Melrakka-
sléttu og í Þistilfirði á Norðaustur-
landi voru merki um að aukning
væri að hefjast á ný, en miðað við
það var árið 2001 lágmarksár á
þeim slóðum.
Morgunblaðið/Golli
Rjúpnastofnar
í algeru lágmarki
FRESTUR til að skila inn athuga-
semdum til Skipulagsstofnunar við
umhverfismatsskýrslu Landsvirkj-
unar um Norðlingaölduveitu í
Þjórsárverum rann út á miðnætti í
fyrrinótt. Að sögn Hólmfríðar Sig-
urðardóttur, sviðsstjóra á um-
hverfissviði Skipulagsstofnunar,
bárust 85 athugasemdir frá félaga-
samtökum og einstaklingum og
gæti þeim fjölgað ef bréf hafa ver-
ið póstlögð á þriðjudag. Stofnunin
hefur nú fjórar vikur til að skila
sínum úrskurði og er stefnt að því
þriðjudaginn 9. júlí næstkomandi,
svo fremi sem fyrir liggi allar um-
sagnir og svör Landsvirkjunar við
athugasemdum.
Fjöldi athugasemda nú er með
því mesta sem borist hefur Skipu-
lagsstofnun út af einni framkvæmd
en flest erindi bárust vegna Kára-
hnjúkavirkjunar á sínum tíma, eða
um 360. Þess má geta að 25 at-
hugasemdir bárust vegna álvers í
Reyðarfirði.
Athugasemdir bárust nú frá
hérlendum samtökum eins og
Landvernd, Umhverfissamtökum
Íslands, Náttúruverndarsamtökum
Íslands og Áhugahópi um verndun
Þjórsár, auk erinda frá fjölda ein-
staklinga.
Skerðing Þjórsárvera
aðallega gagnrýnd
Einnig bárust athugasemdir frá
erlendum umhverfisverndarsam-
tökum eins og Wildfowl & Wet-
lands Trust í Bretlandi og Birdlife
International. Ber öllum þessum
erindum saman í þá veru að mót-
mæla framkvæmdinni eins og
Landsvirkjun leggur hana upp í
sinni matsskýrslu. Einkum er það
skerðing Þjórsárvera sem er gagn-
rýnd og áhrif hennar á dýralíf og
náttúrufar á svæðinu.
Hólmfríður segir að yfirleitt sé
um vandaðar athugasemdir að
ræða sem sendendur hafa lagt
mikla vinnu í. Aðspurð hvort at-
hugasemdir frá öðrum löndum séu
ekki sjaldgæfar segir Hólmfríður
svo vera, slík erindi hafi þó borist
vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Hátt í 90 athugasemdir
voru gerðar við
Norðlingaölduveitu
Nokkur
erlend
samtök
sendu
mótmæli
VÍSITALA neysluverðs miðað við
verðlag í júníbyrjun 2002 var 222,8
stig og hækkaði um 0,45% frá fyrra
mánuði, samkvæmt frétt frá Hag-
stofu Íslands í gær. Vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis var 221,8 stig og
hækkaði um 0,50%. Markaðsaðilar
höfðu spáð því að vísitalan myndi
hækka á milli 0,2 og 0,5% og er
hækkunin nú því við efri mörk þess.
Finnur Ingólfsson, bankastjóri
Seðlabankans, segir að mæling vísi-
tölunnar nú sé örlítið hærri en búist
hafi verið við. Hækkun á matvöru
komi á óvart, þá hafi hækkun á flug-
fargjöldum ekki mikið verið í um-
ræðunni, en vitað hafi verið um
hækkun á verði bensíns. Þetta séu
þeir þrír liðir sem mestu máli skipti.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir að almennt sé jafnvægi í mæl-
ingunni að þessu sinni en þó veki sér-
staka athygli að verð á lyfjum sé enn
að hækka. Hækkunin á verði lyfja
frá því í nóvember á síðasta ári sé um
15%. „Fyrir liggur að ríkið dró úr
hlutdeild sinni um áramótin en eftir
stendur umtalsverð hækkun á lyfj-
um. Ég kalla eftir skýringum frá
þeim sem eru að höndla með lyf.“
Hækkun vísitölu
við efri mörk
Vísitalan hækkar/C1