Morgunblaðið - 30.06.2002, Side 6

Morgunblaðið - 30.06.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 16/6 – 22/6 ERLENT INNLENT  FLUGLEIÐIR hafa sagt upp 25 flugmönnum hjá fyrirtækinu auk þess sem 9 manns sem ráðnir voru tímabundið fá ekki framlengdan ráðning- arsamning.  BRYNJÓLFUR Bjarna- son forstjóri Granda var ráðinn nýr forstjóri Landssímans í vikunni. Var það ákveðið á stjórn- arfundi fyrirtækisins á mánudagskvöld.  ALLSTÓR hópur vít- isengla stefndi til lands- ins í sumar samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins en mun nú hafa hætt við förina. Lögreglan hef- ur sérstaka viðbragðs- áætlun vegna komu slíkra hópa til landsins og getur brugðist við með skömmum fyrirvara. Vítisenglarnir hugðuðst koma með Norrænu.  ÍSLAND er í 11. sæti á lista yfir þau ríki í heim- inum þar sem mest frjáls- ræði ríkir í efnahags- málum. Það hækkaði um sjö sæti á listanum frá 1995-2000 og fékk 7,7 í einkunn af 10.  NÝR sjúkdómur, kúf- fisksótt, var greindur við umfangsmikla rannsókn á starfsmönnum kúffisk- vinnslufyrirtækis á Norð- urlandi.  DRENGUR fæddist í aftursæti bíls í Súg- andafirði rétt fyrir miðnætti á mánudag. Faðirinn tók á móti barninu en foreldrarnir sem búa á Suðureyri voru á leið á sjúkrahúsið á Ísa- firði. Búnaðarbankinn gerir yfirtökutilboð í SPRON FIMM stofnfjáreigendur í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hafa gert til- boð í allt stofnfé bankans en Búnaðar- bankinn sér um fjármögnun. Ef tilboð- ið gengur eftir mun hann eignast meirihluta í SPRON og sameina spari- sjóðinn bankanum. Stjórn SPRON telur tilboðið ekki standast lög, vill bíða úrskurðar frá Fjármálaeftirlitinu og afboðaði því fyr- irhugaðan fund með stofnfjárfestum á föstudag. Samkvæmt tilboðinu fá stofn- fjáreigendur fjórfalt hærra verð fyrir bréf sín miðað við það sem tillaga stjórn- ar SPRON gerði ráð fyrir. Stofnfjáreig- endurnir fimm eru Gunnar A. Jóhanns- son, Ingimar Jóhannsson, Pétur H. Blöndal, Sveinn Valfells og Gunnlaugur M. Sigmundsson en þeir telja afboðun fundarins á föstudag vera ólöglega. Landspítali – háskóla- sjúkrahús 3,3% umfram fjárheimildir REKSTUR Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) fór 319 milljónir króna eða 3,3% umfram fjárheimildir fyrstu fimm mánuði ársins samkvæmt rekstraruppgjöri sjúkrahússins. Stjórn spítalans sendi í lok vikunnar tillögur um sparnaðaraðgerðir til ráðherra sem hún leggur til að gripið verði til. Meðal aðgerða eru að starfsmannakostnaður verði lækkaður, dregið verði úr yfir- vinnu, hert verði á ráðningareftirliti og verklag verði endurskoðað en tillög- urnar fela ekki uppsagnir starfsfólks. Samtök verslunarinnar – FÍS hafa sent forstjóra LSH, Magnúsi Péturssyni, bréf þar sem fram kemur að spítalinn og Sjúkrahúsaapótekið ehf. skuldi birgjum innan Samtaka verslunarinnar a.m.k. 520 milljónir króna án dráttar- vaxta. Magnús segir vandann tilkom- inn vegna ónógra fjárveitinga, raunút- gjöld spítalans hafi dregist saman. Bush hvetur til að Arafat fari frá GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti hvatti Palestínumenn á mánudaginn í ræðu um málefni Mið-Austurlanda, sem beðið hafði verið eftir með nokk- urri eftirvæntingu, til að velja sér nýja leiðtoga. Bush nefndi Yasser Arafat, forseta heimastjórnar Palestínu- manna, aldrei á nafn í ræðu sinni en ljóst var þó hvað hann átti við. „Friður þarfnast þess að ný og allt önnur for- ystusveit komi til sögunnar hjá Palest- ínumönnum – aðeins þannig getur sjálfstætt ríki orðið að veruleika,“ sagði Bush. „Ég hvet því palestínsku þjóðina til að velja sér nýja leiðtoga, leiðtoga sem ekki hafa spillt orðspori sínu með tengslum við hryðjuverk.“ Bush gerði lýðum ljóst að stuðning- ur Bandaríkjanna við stofnun Palest- ínuríkis og fjárhagsaðstoð væri háður umfangsmiklum umbótum á heima- stjórninni, sem m.a. fæli í sér að skipt yrði um forystusveit. Bókhaldssvik hjá WorldCom MIKIÐ verðfall varð á fjármálamörk- uðum á miðvikudaginn eftir að upplýst var um mikil bókhaldssvik hjá banda- ríska fjarskiptarisanum WorldCom og hugsanlegt gjaldþrot fyrirtækisins. George W. Bush, forseti Bandaríkj- anna, sagði um tíðindin, að þau væru „yfirgengilegt“ hneyksli og hét ná- kvæmri rannsókn á málinu. Óttast er, að þetta geti orðið stærra í sniðum en Enron-gjaldþrotið og ásamt öðru tafið fyrir auknum hagvexti í Bandaríkjun- um. Mikið verðfall varð á helstu fjár- málamörkuðum um allan heim þegar það fréttist, að WorldCom, sem starf- ar í 65 löndum og er með 85.000 starfs- menn, hefði vantalið útgjöldin á þessu ári og í fyrra um 334 milljarða ís- lenskra króna. Um leið var ljóst, að uppgefinn hagnaður á þessum tíma var aðeins blekking.  YASSER Arafat, leiðtogi Palestínumanna, mun bjóða sig fram í for- setakosningum sem Palestínumenn hafa boð- að í janúar, að því er ná- inn ráðgjafi Arafats sagði á miðvikudaginn, þótt George W. Bush Banda- ríkjaforseti hafi nýlega hvatt til þess að Palest- ínumenn kysu sér nýjan leiðtoga.  ÓTTAST er að a.m.k. tvö hundruð manns hafi farist og margir til við- bótar slasast þegar far- þegalest lenti í árekstri við flutningalest í Tansaníu á mánudaginn. Slysið átti sér stað 400 km vestur af höfuðborg Tansaníu, Dar es Salaam, í Dodoma-héraði. Lýsti ríkisútvarpið í Tansaníu slysinu sem því versta í sögu lestarsamgangna í landinu. Um eitt þúsund farþegar voru í lestinni er slysið átti sér stað.  LEIÐTOGAR átta helstu iðnríkja heims samþykktu á fimmtudag á öðrum og síðari degi fundar síns í Kanada að- gerðaáætlun um hjálp við Afríkuríki gegn fyrirheitum þeirra um óspillta stjórnarhætti og heilbrigða efnahags- stjórn. Einnig var ákveðið að verja miklu fé til að aðstoða Rússa við að eyða birgðum af kjarna- og efnavopnum. Að öðru leyti settu ástandið í Miðaust- urlöndum og efnahags- málin almennt mikinn svip á fundinn. Akralind 1, 201 Kópavogi, sími 564 0910. Útiarinn - Grill Verð 49.900 kr. Kynningarverð Verð 69.900 kr. Kynningarverð TVEIR mjólkurframleiðendur á samlagssvæði Norðurmjólkur fengu á dögunum viðurkenningu fyrir að hafa framleitt úrvalsmjólk í 10 ár samfleytt. Þetta voru Þór- dís Karlsdóttir og Leifur Guð- mundsson í Klauf í Eyjafjarð- arsveit og Hulda Kristjánsdóttir og Sveinbjörn Sigurðsson á Bú- völlum í Aðaldal. Þau fyrrnefndu hafa 160 þúsund lítra framleiðslurétt en á Búvöll- um er rétturinn 140 þúsund lítrar. Á báðum bæjum stunda bændurnir einnig kálfauppeldi. Fyrir tveimur árum var fjósinu í Klauf breytt í svonefnt lausa- göngufjós og sett upp mjaltagryfja og eru þau Þórdís og Leifur ánægð með breytinguna sem þá varð. Þau segja kröfur um framleiðslu úrvalsmjólkur alltaf að aukast og það megi lítið út af að bregða. Sýni eru tekin reglulega og ef eitthvað reynist í ólagi lætur mjólkureftir- litsmaðurinn vita. „Kannski er þetta líka heppni að einhverju leyti,“ sagði Leifur spurður um galdurinn á bak við það að framleiða úrvalsmjólk 10 ár í röð. Hann sagði mikilvægt að kýrnar væru heilbrigðar og hraustar og betra væri að farga þeim sem reyndust of frumuháar. „Það er lykilatriði að hafa hrausta gripi,“ sagði hann. Þá nefndi hann að miklu máli skipti að nota sem minnst af fúkkalyfjum og eins yrði að gæta þess að passa vel upp á mjaltavél- arnar og gæta fyllsta hreinlætis. Mörgum finnst þeir ekki geta farið frá Breytingar voru einnig gerðar á fjósinu á Búvöllum fyrir tveimur árum, en Sveinbjörn sagði að þau hefðu ákveðið að fara ekki út í lausagöngufjós. Það hefði verið spurning um að fara ekki út í of miklar skuldir. „Það hefur ríkt bjartsýni í greininni, enda hafa neytendur tekið afurðunum vel,“ sagði Sveinbjörn, en þvertók ekki fyrir að eitthvað hefði dregið úr bjartsýninni nú. „Þessi einyrkjastarfsemi sem kúabúskapur er samræmist ekki þeim lífsstíl sem flestar nútíma- fjölskyldur kjósa sér,“ sagði hann. Þau hjónin hafa rekið búið í 21 ár og hafa mest brugðið sér af bæ í fjóra sólarhringa í einu. „Það falla margir í þá gryfju, að finnast þeir aldrei geta farið frá. Kröfur til framleiðenda eru enda mjög mikl- ar og það er ekki auðvelt að fá fólk sem kann til verka og menn treysta til fulls því það má ekkert út af bregða,“ sagði Sveinbjörn. Hann gat þess að fram- leiðslueiningar væru sífellt að stækka og í kjölfarið væri erfiðara að hafa hlutina í lagi. „Þessi mikla stækkun búanna hefur í för með sér annars konar álag, umsjón- arálag, sem ekki er betra og þá hefur stækkun búanna leitt til þess að framleiðendur eru færri nú en áður og það kemur mjög niður á félagslífinu til sveita,“ sagði Svein- björn. Hann sagði viðmiðunarmörk varðandi framleiðslu úrvals- mjólkur orðin þröng, „þannig að við erum kannski heppin,“ sagði hann. Þar fyrir utan sagði hann reglusemi skipta afar miklu máli og að hafa góða yfirsýn yfir kýrn- ar. „Með því að mjólka nánast allt- af sjálf skapast minni hætta á slys- um og við gerum okkur far um að fylgjast vel með heilbrigði kúnna og sjáum alltaf um að hreinsa öll tæki sjálf,“ sagði Sveinbjörn. Hann sagði að ósjálfrátt hefðu þau fyllst metnaði vegna þess hve vel hefði tekist til með framleiðsl- una. „Og manni félli ekki vel ef eitthvað færi úrskeiðis,“ sagði hann. Hafa framleitt úrvalsmjólk í samfleytt áratug Morgunblaðið/Kristján Leifur Guðmundsson og Þórdís Karlsdóttir við mjaltir í Klauf. Hulda Kristjánsdóttir og Sveinbjörn Sigurðsson í fjósinu á Búvöllum. Hraustar kýr, hrein- læti og dá- lítil heppni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.