Morgunblaðið - 30.06.2002, Page 25

Morgunblaðið - 30.06.2002, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 25 Sérð þú kex á borði? Glæsilegir vinningar Komdu við í næstu verslun og taktu þátt í skemmtilegum leik TILBOÐ ÓSKAST í Honda Civic DX árgerð 2001 vél 1,8 l. (ekinn 7.700 mílur) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 2. júlí kl. 12-15. TORFÆRUBIFREIÐ Ennfremur óskast tilboð í Mercedes-Benz Unimog torfærubifreið m/ dieselvél. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Nú getur þú valið um eina eða tvær vikur á ótrúlegum kjörum á einn vinsælasta áfangastað Íslendinga í sólinni, Benidorm um leið og þú tryggir þér síðustu sætin í sólina í júlí. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 3 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Aðeins 21 sæti í boði Stökktu til Benidorm 10. júlí frá 29.865 Verð kr. 29.865 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar, 10. júlí, vikuferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 31.360. Verð kr. 39.950 M.v. 2 í íbúð, 10. júlí, vikuferð. Flug og gisting, skattar. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.950. Listasafn Sigurjóns Sýningu á verkum Sigurjóns Ólafssonar, „Konan – Maddama, kerling, fröken, frú…“ lýkur í dag. Sýningin er framlag safnsins til listahátíðar. Hafnarborg Sýningu á verkum japanska lista- mannsins Yoichi Onagi lýkur nú um helgina. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Sýningu lýkur ANDRÉS Magn- ússon opnar á morgun, mánu- daginn 1. júlí, sýningu á mál- verkum sínum í Brydebúð, Vík í Mýrdal. Andrés sótti námskeið í mál- aralist hjá Finni Jónssyni og Jó- hanni Briem auk þess sem hann nam í Myndlistarskóla Reykjavíkur hjá Jóhannesi Jóhannessyni. Andrés hefur haldið sýningar í Reykjavík, Vestmannaeyjum og á Akranesi. Sýningin í Brydebúð stendur til 31. júlí. Andrés í Brydebúð Andrés Magnússon UM þessar mundir stendur yfir í Kaffi Galleríi í Perlunni sýning á lokaverkefnum nemenda sem stund- uðu á vorönn nám á ljósmyndabraut við Iðnskólann í Reykjavík. Á sýningunni sýna sjö nemendur sem luku þessum áfanga eitt samsett verk í stærðinni 60x90 cm, sem unnin eru með stafrænni tækni og prentuð út á ljósmyndapappír. Verkefnið var styrkt af Orkuveitu Reykjavíkur og stendur sýningin út mánuðinn. Ljósmyndir nemenda NIÐURSTÖÐUR dómnefndar í samkeppni um listskreytingu í nýj- um höfðustöðvum Orkuveitu Reykjavíkur verða kynntar á morg- un, mánudag, í Perlunni. Þær tillögur sem bárust verða opnaðar klukkan 15 á 4. hæð Perl- unnar og til sýnis þar. Niðurstöður kynntar Í TENGSLUM við sýningu textíl- listamannsins Yoichi Onagi verður japönsk tesiðaathöfn í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnar- fjarðar, í dag, sunnudag, kl. 15. Í tilkynningu segir að á Murom- achi-tímabilinu í Japan (u.þ.b. 1400– 1550) komst ákveðið form á tedrykkju og varð hún smám saman að athöfn, þar sem lítill hópur fólks kemur sam- an og reynir að koma kyrrð og reglu á hugsanir sínar. Sá sem stjórnar at- höfninni, tesiðameistarinn, reynir að skapa ákveðið andrúmsloft með fal- legum teskálum og áhöldum, en mjög ákveðnar reglur gilda um öll áhöld sem notuð eru við athöfnina. Sama gildir um tilbúning og framreiðslu tesins sem kallast matcha. Telaufin eru gerð að dufti sem þeytt er saman við vatnið og talið lengja líf manna. Góður tesiðameistari verður að þekkja vel til allra listgreina er tengj- ast tesiðum. Hann verður að hafa inn- sýn í heimspeki, vera læs á forna texta og geta lagt út af þeim. Japanskir tesiðir í Hafnarborg SÝNING á vatnslitamyndum eftir Guðmundu Huldu Jóhannesdóttur stendur nú yfir á Café Mílanó, Faxafeni 11. Guðmunda er sjálfmenntuð í myndlist og er þetta í annað sinn sem hún heldur sýningu. Guð- munda var einn af stofnendum Ís- lenska dansflokksins og dansaði með honum í 18 ár auk þess sem hún tók þátt í fjölda leiksýninga. Sýning Guðmundu á Café Míl- anó stendur til 21. júlí. Guðmunda Hulda við eitt af verkum sínum á sýningunni. Málverk dansara á Café Mílanó Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. ÚT ER komin hjá Máli og menningu skáldsagan Líflæknirinn eftir Per Olov Enquist í þýðingu Höllu Kjart- ansdóttur. Bókin segir frá Johann Friedrich Struensee sem árið 1768 var ráðinn líflæknir Kristjáns sjöunda Danakon- ungs, en líflátinn fjórum áður síðar. Í fréttatilkynningu segir að bókin fjalli um eitt merkilegasta skeið nor- rænnar sögu, tímabil sem stundum er kallað Struensee-tíminn. Þýski lækn- irinn og hugsjónamaðurinn Struensee vann fljótlega fullan trúnað hins geð- sjúka konungs en jafnframt hjarta Kar- ólínu Matthildar, drottningarinnar ungu. Á valdatíma sínum innleiddi Struensee ýmsar róttækar breytingar á stjórn danska ríkisins í anda frönsku byltingarinnar – en tuttugu árum fyrr. Danski aðallinn brást hins vegar ókvæða við skyndilegum völdum Stru- ensees og harðvítug barátta fór fram við hirðina. Bókin er söguleg skáld- saga um ástir og afbrýði, þar sem raunverulegar persónur úr sögunni eru gæddar lífi og tilfinningum; saga um hugsjónir og hugmyndaleg átök, en kannski ekki síst um það hvernig menn fara með vald – og hvernig valdið leikur menn, segir í fréttatilkynningu. Per Olov Enquist er einn virtasti rit- höfundur Svíþjóðar og hlaut Bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1969. Hann er jafnframt þekkt leik- skáld og hefur skrifað kvikmynda- handrit, m.a. handritið að kvikmynd- inni Hamsun. Bókin er gefin út með styrk frá Norræna þýðingarsjóðnum (Nordbok), Þýðingarsjóði og Menningu 2000, menningaráætlun Evrópusam- bandsins. Bókin er 314 blaðsíður. Málverk á kápu gerði Antoine Pesne. Kápuhönnun gerði Bergdís Sigurð- ardóttir. Skáldsaga Menningarsamtök Norðlendinga, Menor, hafa í til- efni af tuttugu ára afmæli samtak- anna gefið út af- mælisrit undir heit- inu Slóðir mannanna, með inngangi eftir Ólaf Þ. Hallgrímsson, formann félagsins. Ritið hefur að geyma ljóð og smá- sögur sem unnið hafa til verðlauna í ljóða- og smásagnasamkeppni Menn- ingarsamtakanna og Dags á árunum 1990 til 2001. Meðal höfunda má nefna Sigmund Erni Rúnarsson rit- stjóra, Sigurð Ingólfsson kennara, Hjalta Finnsson bónda, Hallgerði Gísladóttur deildarstjóra þjóðhátta- deildar, Aðalstein Svan Sigurðsson myndlistarmann, Valgeir Skagfjörð leikstjóra, Rósu Jóhannsdóttur vís- indamann, Hjört Pálsson rithöfund, Njörð P. Njarðvík prófessor og Björn Ingólfsson skólastjóra. Slóðir mannanna er er 164 blaðsíð- ur og fæst í öllum helstu bókaversl- unum. Rit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.