Morgunblaðið - 30.06.2002, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 2002 49
Golfdagur Æskulínunnar og GSÍ verður haldinn í Laugardalnum, sunnudaginn
30. júní, á túninu fyrir ofan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
Golfþrautir verða fyrir byrjendur sem lengra komna og hefjast kl. 13.00
Allir krakkar á aldrinum 6-11 ára geta tekið þátt í golfþrautunum.
Þátttakendur geta fengið lánaðar golfkylfur á staðnum.
Golf fyrir 6-11 ára
Glaðningur frá Æskulínunni
Frítt inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
Ís frá Kjörís
www.krakkabanki.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
4
9
4
8
Focus
(Í sjónmáli)
Drama
Bandaríkin, 2001. Bergvík VHS. (102
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn:
Neal Slavin. Aðalhlutverk: William H.
Macy, Laura Dern, David Paymer og
Meat Loaf.
ÞESSI kvikmynd er byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir hið fræga
bandaríska leikskáld Arthur Miller,
frá árinu 1945. Þar er fjallað á magn-
aðan hátt um undirliggjandi gyð-
ingahatur í bandarísku samfélagi á
tímum heimsstyrj-
aldarinnar síðari,
og varpað ljósi á
heimóttarskapinn,
fáviskuna og hjarð-
eðlið sem liggur
slíkum fordómum
til grundvallar.
Aðlögun skáld-
sögunnar yfir í
kvikmynd er fyrsta
leikstjórnarverkefni Neals Slavins,
en þar hefur hann fengið hinn ágæta
leikara William H. Macy til að leika
aðalpersónu sögunnar, hinn ofsótta
en um leið ofurvenjulega bókara
Lawrence Newman. Sagan er ögn
kafkaísk, og lýsir því hvernig New-
man, sem er dæmigerður góðborgari
í snyrtilegri götu í Brooklyn, verður
smám saman útskúfaður úr „venju-
legu“ samfélagi, vegna „gyðinglegs“
útlits síns. Þetta byrjar reyndar allt
saman þegar hann fær sér gleraugu
og verður of gáfumannalegur af
þeim sökum. Í þessari hæggengu en
þéttu dæmisögu er fylgst með sam-
skiptum Newmans og kærustu hans
Gertrude (sem er með mjög gyðing-
legt nafn) við kúgandi nágranna
sína. Velt er upp spurningum um þá
valkosti sem hinir ofsóttu standa
frammi fyrir og þannig fjallað um
myrkan þátt í bandarískri sögu með
algildum skírskotunum.
Í öðrum burðarhlutverkum í
myndinni eru leikarar a borð við
Lauru Dern, Meat Loaf og David
Paymer, sem leysa hlutverk sín vel
af hendi. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Hjarðeðli
og for-
dómar
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5