Morgunblaðið - 26.07.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
ÞAKRENNUR
Frábærar Plastmo
þakrennur með 20 ára
reynslu á Íslandi.
Til í gráu, brúnu, hvítu
og svörtu.
Heildsala - Smásala
TILKYNNING TIL LÖGBIRTINGAR
samkvæmt 107. (1). grein í Financial Services and Markets
Act 2000 (Lög um fjármálaþjónustur og -markaði)
WASA International (U.K.) Insurance Company Limited AGF
Insurance Limited
Tilfærsla almennra viðskipta
TILKYNNT ER HÉR MEÐ að WASA International (U.K.) Insurance Comp-
any Limited („WASA (UK)“) og AGF Insurance Limited („AGF“) hafa þann
18. júní 2002 sótt hjá Hæstarétti í Englandi og Wales um tilskipun, samkvæmt
107. (1). grein í Financial Services and Markets Act 2000, sem leyfir færslu til
WASA International Insurance Company Limited („WIIC“) (sem er sænskt
fyrirtæki) á öllum réttindum og skuldbindingum hvors um sig sem lúta að eftir-
farandi tryggingarskírteinum og endurtryggingarskírteinum.
● Öll tryggingarskírteini gefin út af WASA (UK) milli 1972 og 1977.
● Öll tryggingarskírteini gefin út af Sentry Underwriting Agencies Limited
(„SUAL“) fyrir hönd WASA (UK) milli 1978 og 1983 með sameiginlegum
stimpli ásamt Sentry (UK) Insurance Company Limited („Sentry (UK)“).
● Öll tryggingarskírteini gefin út af WASA (UK) milli 1984 og 1997 (að
undanskildum þeim viðskiptum sem hafa þegar verið færð yfir á Sirius
International Insurance Company publ í kjölfar framkvæmdar afsalsbréfs
þann 19. desember 2001).
● Öll tryggingarskírteini gefin út af SUAL fyrir hönd Sentry (UK) milli 1978
og 1983 með ofangreinda sameiginlega stimplinum ásamt WASA (UK), sem
AGF tók síðar við frá Sentry (UK) (sem nú nefnist City of Westminster
Insurance Company Limited) samkvæmt yfirfærslu á tryggingastofni þann 6.
ágúst 1987.
WASA (UK) var upprunalega skráð sem hlutafélag í júlí 1972 með nafninu
Consolidated European Reinsurance Company Limited og hefur síðan skipt
fjórum sinnum um nafn. Til óyggjandi skýringar teljast með í millifærslunni öll
vátryggingarskírteini sem gefin voru út á meðan WASA (UK) gekk undir nafn-
inu Consolidated European Reinsurance Company Limited (1972-75), Consoli-
dated European Insurance Company Limited (1975-78), Hanseco (U.K.) Insur-
ance Company Limited (1978-85) og John Hancock (U.K.) Insurance Company
Limited (1985-89), auk þeirra skírteina sem gefin hafa verið út af WASA (UK)
undir núverandi nafni (1989-97).
Hr. Fred Duncan hjá PricewaterhouseCoopers, Fellow of the Institute of
Actuaries, hefur útbúið tryggingafræðilegar skýrslur um millifærsluáætlanirnar
sem gerð er grein fyrir hér að ofan. Niðurstaða þessara skýrslna er sú að milli-
færslan eigi ekki eftir að hafa neinar neikvæðar afleiðingar á nokkurn skírteinis-
hafa. Nálgast má afrit af skýrslunum um áætlanirnar og greinargerðir um skil-
mála þeirra ásamt samantektum skýrslnanna hjá WASA International (U.K.)
Insurance Company Limited, 7th Floor, Tower Point, 44 North Road, Brighton
BN1 1YR (sími: + 44 (0)1273 626162).
Fyrirhugaðar millifærslur munu tryggja framhald fyrir hönd eða á móti WIIC á
sérhverjum málaferlum fyrir hönd eða á móti WASA (UK) og/eða AGF sem lúta
að þeim réttindum og skuldbindingum sem greint er frá að ofan. Allar tjónakröf-
ur, sem eru nú til meðhöndlunar hjá eða fyrir hönd WASA (UK) og/eða AGF,
myndu að áætlaðri millifærslu framgenginni verða til meðhöndlunar hjá eða fyrir
hönd WIIC. Tjónakröfur héðan í frá sem lúta að skírteinum sem hafa verið milli-
færð yrðu á sama hátt til meðhöndlunar hjá eða fyrir hönd WIIC.
Sérhver aðili (að meðtöldum starfsmönnum WASA (UK) eða AGF eða WIIC),
sem telur að framkvæmd áætlananna gætu haft neikvæðar afleiðingar fyrir sig,
á tilkall til áheyrnar fyrir Réttinum samkvæmt 110. (b). grein í Financial Serv-
ices and Markets Act 2000. Umsóknin verður tekin til meðferðar kl. 10.30 þann
23. október 2002 í Companies Court, Royal Courts of Justice, Strand, London
WC2A 2LL.
SANNKÖLLUÐ hátíðarstemning
ríkti í miðborg Reykjavíkur í gær-
morgun og fram eftir degi þegar
haldin var hin árlega karnivalhátíð
Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur. Þótt ekki hafi ríkt sú veð-
urblíða sem finna má á suðlægari
slóðum þar sem uppskeru- og
karnivalhátíðir eru í heiðri hafðar
virtust börnin ekki láta það á sig fá.
Gleðin hófst við Austurbæjar-
skóla um ellefuleytið í gærmorgun
þar sem saman voru komin um 300–
350 krakkar og leiðbeinendur af
leikjanámskeiðum sumarsins í alls
kyns búningum og ólíklegustu
gervum. Þaðan lagði gangan af
stað í lögreglufylgd niður Lauga-
veg og áleiðis í Hljómskálagarð.
Að sögn Haraldar Sigurðssonar,
verkefnisstjóra hjá ÍTR, var það á
ábyrgð hvers hóps fyrir sig að sjá
um búningagerð og andlitsmálun
og voru margir hópar sem auð-
kenndu sig og sína með því að klæð-
ast eins búningum. Í Hljóm-
skálagarði var komið fyrir sviði þar
sem galdrakarl sýndi listir sínar,
stýrt var fjöldasöng og Götuleik-
húsið kom fram svo fátt eitt sé
nefnt. Á staðnum voru einnig leik-
tæki sem krakkarnir nýttu sér
óspart og þá var grillað ofan í
mannskapinn.
Kynjaverur á árlegri karnivalhátíð ÍTR í Hljómskálagarðinum
Karnivalstemning
í miðborginni
Gott getur verið að eiga sér athvarf eins og þessi virðist hafa fundið sér.
Morgunblaðið/Sverrir
Marsbúar og aðrar geimverur létu sig ekki muna um að taka þátt í snú
snú með búálfum og öðrum kynjaverum í Hljómskálagarðinum í gær.
Reykjavík
UPPGREFTRI í tengslum við jarð-
vegsframvæmdir við sund- og
heilsumiðstöð sem ráðgert er að rísi
í Laugardalnum fer nú óðum að
ljúka. Að sögn Kristins J. Gísla-
sonar, verkfræðings hjá umhverfis-
og tæknisviði Reykjavíkurborgar,
er ráðgert að jarðvinnu ljúki um
næstu mánaðamót. Um mikið verk
er að ræða en alls verða fluttir á
brott rösklega 40 þúsund rúmmetr-
ar af jarðvegi. Stefnt er að því að í
miðstöðinni verði fullkomin æfinga-
og keppnissundlaug og heilsurækt-
arstöð en gangi áætlanir eftir verða
uppsteypun á húsinu og ytri frá-
gangur, þ.m.t. klæðningar á út-
veggjum, boðin út í september, að
sögn Kristins. Hann segir ráðgert
að lokið verði við gerð sundmið-
stöðvarinnar árið 2004.
Kristján Ögmundsson, forstöðu-
maður Laugardalshallar, segir að
eitthvað hafi borið á því að laug-
argestir kvarti undan umferð og
moldroki frá framkvæmdasvæðinu.
Hann bendir á að reynt sé að halda
jarðveginum blautum til að hefta
fok auk þess sem verktaki hafi
reynt að takmarka umferðarhraða
um svæðið.
Framkvæmdir við sund- og heilsumiðstöð í Laugardal
Morgunblaðið/Jim Smart
Jarðvinna
vel á veg
komin
Reykjavík
Borgin styrkir byggingu nýs skátaheimilis
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdir eru hafnar við nýtt skátaheimili í Hraunbæ.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
styrkja byggingu skátaheimilis og
þjónustumiðstöðvar við Hraunbæ í
Reykjavík.
Samkvæmt samningi milli borgar-
yfirvalda og Skátasambandsins um
styrk vegna framkvæmdarinnar
mun borgin greiða 20 milljónir til
verksins árlega frá 2003–2006, eða
80 milljónir alls, auk hluta Skáta-
sambandsins í gatnagerðargjöldum,
um 5 m.kr.
Framkvæmdir eru hafnar við
byggingu Skátaheimilisins og þjón-
ustumiðstöðvar við Hraunbæ og er
ráðgert að þeim ljúki 15. maí á næsta
ári, að sögn Guðmundar Björnsson-
ar, framkvæmdastjóra Skátasam-
bands Reykjavíkur.
Um er að ræða samvinnuverkefni
Bandalags íslenskra skáta og Skáta-
sambands Reykjavíkur og mun hús-
ið nýtast skátahreyfingunni auk þess
sem þar verður skátaheimili skátafé-
lagsins í hverfinu.
Að sögn Guðmundar er heildar-
kostnaður við byggingu hússins
áætlaður 145 m.kr.
Mun nýtast skátum í
hverfinu og á landsvísu
Hraunbær
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu munstrum