Morgunblaðið - 05.09.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.09.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þjónusta við ferðamenn á Suðurlandi Upplýsingamið- stöðvar í sókn UNDANFARIN árhefur starf upp-lýsingamiðstöðva víða um land glæðst og dafnað, ferðamönnum og heimamönnum til þæginda og hagsældar. Morgun- blaðið ræddi við Davíð Samúelsson, forstöðu- mann Upplýsingamið- stöðvar Suðurlands, sem spannar svæðið frá Hvera- gerði til Kirkjubæjar- klausturs með samstarfi við fjölda miðstöðva, um sumarið og stöðu upplýs- ingamála á Suðurlandi. – Hvernig hefur sumar- ið verið á Suðurlandi? „Sumarið á Suðurlandi hefur verið gott. Hlutfall ferðamanna skiptist í 80% erlendir ferðamenn 20% innlendir ferðamenn. Mikil aukn- ing er af komu Íslendinga sem nota þjónustu stöðvanna til þess að skipuleggja ferðalagið og sækja sér frekari upplýsingar um viðburði og afþreyingu á svæðinu. Í sumar byrjuðum við á að bjóða ferðamönnum sem heimsækja Hveragerði upp á gönguferðir um bæinn er þetta liður í því að auka afþreyingarmöguleika í bænum. Genginn er hringur sem tekur um klukkutíma með viðkomu m.a. í Garðyrkjuskólanum og á hvera- svæðinu. Farið er frá upplýsinga- miðstöðinni mánudaga, fimmtu- daga og laugardaga kl. 10. Vegna aukins áhuga höfum við einnig boðið upp á leiðsögn um dalina fyrir ofan Hveragerði en gera þarf ráðstafanir varðandi það með fyrirvara. Nánari upplýsingar má finna á síðunni www.sudur- land.net/info.“ – Geturðu nefnt nokkra við- burði sem þóttu takast vel? „Það er ávallt nóg um að vera á Suðurlandi. Fjölmargar bæjarhá- tíðir eru orðnar fastir liðir yfir sumartímann þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nú í ágúst voru til dæmis Blómstrandi dagar í Hveragerði, Töðugjöld á Hellu og Hafnardag- ar í Þorlákshöfn, og allar þessar hátíðir fóru vel fram í blíðskap- arveðri. Af nógu er að taka og það má kannski segja að viðburðir þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt hafi verið áberandi í sumar. Þar má nefna fjölda fjölskylduhá- tíða, almenningsíþróttadag Ung- mennafélags Selfoss og fjölmargt fleira. Engin leið er að geta hér allra þeirra atburða sem haldnir hafa verið í sumar.“ – Hafið þið orðið vör við fækkun ferðamanna? „Við höfum ekki orðið vör við áberandi fækkun ferðamanna, en að vísu voru þeir fremur fáir í upphafi sumars. Ferðamanna- straumurinn hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem liðið hefur á sumarið. Í heildina má segja að við hér á upplýsingamiðstöðvun- um á Suðurlandi höfum orðið vör við auknar gestakomur og tví- mælalaust fleiri gesti en í fyrra. Við á Suður- landi njótum þess að vera vel staðsett, að- eins smáspöl frá höfuð- borginni og hér er að finna margar einstakar náttúru- perlur. Mikill vöxtur er í ferða- þjónustunni á þessum slóðum; ný hótel, gistiheimili og smáhýsi hafa verið opnuð í sumar, þannig að óhætt er að segja að hér sé fram- boð á gistingu afar frambærilegt.“ – Hefur eitthvað annað breyst í ferðamannaflórunni? „Ferðatilhögun manna virðist vera að breytast, en það færist sí- fellt í vöxt að menn ferðist um á eigin vegum og þá kemur mikil- vægi upplýsingamiðstöðvanna klárlega í ljós. Til okkar getur ferðamaðurinn leitað og ekki að- eins fengið upplýsingar um svæð- ið sem hann er staddur á, heldur skipulagt ferð sína áfram um landið. Einnig getur hann gengið frá bókunum á gistingu, afþrey- ingu og ferðum á Suðurlandi sem og í öðrum landshlutum. Ýmis önnur þjónusta, svo sem Net, út- prentun á veðurspá og færð á veg- um er í boði hér hjá okkur.“ – Hvert er gildi upplýsingamið- stöðvanna? „Gildi upplýsingamiðstöðvanna hlýtur að vera mikið fyrir ferða- manninn. Hvar sem ferðamaður- inn er á Suðurlandi er aldrei langt í næstu upplýsingamiðstöð, og upplýsingamiðstöðvarnar á Suð- urlandi starfa náið saman til að tryggja að ferðamaðurinn geti alltaf fundið það sem hann leitar að með hjálp okkar. Upplýsinga- miðstöð Suðurlands hefur verið í fararbroddi hvað þetta varðar. Samstarfssamningur er á milli Upplýsingamiðstöðvar Suður- lands og upplýsingamiðstöðvanna á Selfossi, Hellu, í Vík og á Kirkju- bæjarklaustri, og það má kannski segja að hann geri okkur kleift að mynda eitt þétt upplýsinganet um Suðurland. Við veitum ekki aðeins ferðaupplýsingar, heldur sjáum einnig um að halda utan um og kynna viðburði á Suð- urlandi. Færum inn á Netið allt það sem er að gerast hverju sinni, og í sumarbyrjun gáfum við út glæsilegt viðburða- dagatal: Sumardagatal 2002 – við- burðir á Suðurlandi. Einnig má nefna að Upplýsingamiðstöð Suð- urlands vinnur náið með Ferða- málasamtökum Suðurlands að því að tengja og kynna ferðaþjónstu- aðila á Suðurlandi. Hlutverk Upp- lýsingamiðstöðvar Suðurlands er því margþætt og hefur það að markmiði að skila sem bestri þjónustu við ferðamanninn.“ Davíð Samúelsson  Davíð Samúelsson fæddist 7. febrúar 1966 í Neskaupstað. Rit- símaritari frá Póst- og símaskól- anum, stúdent frá Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ og hefur lokið 7. stigi í söng frá Söngskól- anum í Reykjavík. Lauk diplóma- gráðu í ferðamálafræðum frá Háskóla Íslands, útskrifast sem leiðsögumaður frá Leiðsögu- skóla Íslands um næstu áramót. Hefur starfað við ferðaþjónustu undanfarin ár, sem forstöðumað- ur Upplýsingamiðstöðvar Suður- lands, Hveragerði, frá opnun miðstöðvarinnar sumarið 2000. Davíð er giftur en barnlaus. Miðstöðvar vinna náið saman OPNAÐ hefur verið fyrir umferð um nýtt hringtorg á mótum Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar við Rauðavatn en í sérstöku mati sem gert var á slysastöð- um á höfuðborgarsvæðinu komu gatnamótin þarna verst út þegar tekið hafði verið tillit til umferðar og fjölda slysa undanfarin ár. Sigurður Helgason hjá Umferðarráði segist vera mjög ánægður með hringtorgið nýja. Hann segir að eft- ir að ákvörðun um að leggja hringtorg þarna hafi loks- ins verið tekin hafi þetta tekið stuttan tíma og mjög gleðilegt að torgið skuli nú vera komið í gagnið. Um- ferðaröryggi aukais til muna eftir breytinguna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt hringtorg við Rauðavatn SKIPULAGSSTOFNUN hefur fellt úrskurð um mat á umhverfisáhrifum vegna tvöföldunar Reykjanesbraut- ar um Hafnarfjörð frá Álftanesvegi að Ásbraut. Fallist er á framkvæmd- ina eins og henni er lýst í framlögð- um gögnum Vegagerðarinnar. Helstu umhverfisáhrifin eru talin vera á svonefnda hljóðvist í aðliggj- andi íbúðarhverfum við Reykjanes- braut en fallist er á mótvægisaðgerð- ir til að draga úr hljóðmengun. Hægt er að kæra úrskurðinn til umhverf- isráðherra og frestur til þess rennur út 9. október næstkomandi. Um er að ræða 3,6 km vegarkafla sem gert er ráð fyrir að tvöfalda í fjórum áföngum til ársins 2008 en kostnaður vegna framkvæmda við alla áfangana fjóra hefur verið áætl- aður 3,1 milljarður króna. Samkvæmt úrskurði Skipulags- stofnunar felst framkvæmdin í nið- urgreftri vegarins á kaflanum frá Álftanesvegi langleiðina að göngu- brú á móts við Álftaás, breytingum á legu í beygju við Kaplakrika, færslu brautarinnar suður fyrir kirkjugarð í Hafnarfirði, gerð mislægra gatna- móta við Álftanesveg, Fjarðarhraun, Lækjargötu/Hlíðarberg og Kaldár- selsveg, auk tenginga við aðliggjandi vegi og lagningar göngu- og hjóla- leiða. Einnig verða gerð hringtorg á gatnamótum Lækjargötu og Hring- brautar annars vegar og Kaldársels- vegar og Ásbrautar hins vegar. Í úrskurðinum er m.a. vísað í um- sögn Hafnarfjarðarbæjar þar sem fram kemur að í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar séu breyttar áherslur um úrlausnir í umferðarmálum á Reykjanesbraut, þ.á m. sé áhersla á nýjar útfærslur við gatnamót Reykjanesbrautar og Lækjargötu/ Hlíðarbergs auk gatnamóta við Reykjanesbraut og Fjarðarhraun. Fram kemur að viðræður séu hafnar við Vegagerðina um endurmat verk- áætlunar vegna fyrirhugaðrar fram- kvæmdar enda sé framkvæmdafé aðeins til fyrir litlum hluta fram- kvæmdarinnar. Skipulagsstofnun leggur áherslu á að mat á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðra framkvæmda byggist á því að útfærslan sé með þeim hætti sem kynnt er í framlögðum gögnum. Komi í ljós breyttar áherslur á fyr- irhugaðri framkvæmd í kjölfar sam- ráðs Vegagerðarinnar og Hafnar- fjarðarbæjar beri að fjalla um þær í samræmi við lög um umhverfismat. Tvöföldun Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð Skipulagsstofnun fellst á framkvæmdina TVEIR karlmenn sem handteknir voru á þriðjudag vegna gruns um að þeir hefðu hugsanlega hrint konu fram af svölum fjölbýlishúss við Yrsufell voru látnir lausir í gær að loknum yfirheyrslum. Lögreglan hefur gengið úr skugga um að slysið bar ekki að með saknæmum hætti. Fallið var sex metra hátt og lenti konan á stétt fyrir neðan svalirnar og hælbrotnaði og hlaut brot í hrygg. Hún skaddaðist þó ekki á mænu og er ekki talin í lífshættu. Yrsufellsmálið Mönnunum sleppt í gær ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.