Morgunblaðið - 05.09.2002, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 17
HJÓLSÖG 5704R
0 = 190 mm, 1200 W
TILBOÐSVERÐ
16.000.00
drífðu þig
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
0
8
0
2
/
L
JÓ
S
M
Y
N
D
:
B
R
IA
N
S
W
E
E
N
E
Y
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
Það er óviðjafnanleg upplifun að sjá og heyra
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Veislan er að hefjast og sala áskrifta stendur sem hæst.
Áskrift að grænu röðinni kostar frá 9.265 krónum sem er ekki mikið verð
fyrir fimm framúrskarandi tónleika: söngleikjatónlist, klassískar perlur, Vínar-
tónleika, óperutónleika og síðast en ekki síst sígilda tónlist ABBA.
Með Regnbogaskírteini getur þú valið ferna, sex eða átta tónleika
sem falla best að þínum smekk. Verð frá 8.950 krónum.
Hringdu núna í 545 2500 eða skoðaðu sinfonia.is og tryggðu þér sæti
í vetur. Ekki missa af veislunni.
REKTOR Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri, Magnús B. Jónsson,
ávarpaði nemendur, starfsfólk og
gesti og í setningarræðu hans kom
meðal annars fram að aðsókn að
Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri er mjög góð, aukning
er á nemendafjölda bæði í háskóla-
námi og bændadeild. Kennsla í há-
skóladeild hófst 26. ágúst og
kennsla í bændadeild 2. septem-
ber.
Í vetur verða 55 nemendur við
háskólanám við skólann og 44
nemendur í bændadeild auk tæp-
lega þrjátíu í fjarnámi. Í haust
hefja einnig tveir nemendur meist-
aranám (MSc) við LBH, en þeir
luku báðir BS-90 námi frá LBH
árið 2001. Nám þeirra er þannig
skipulagt að þeir munu dvelja er-
lendis næstu tvær annirnar og
taka námskeið sem tengjast verk-
efnum þeirra. Næsta vor koma
þeir til baka og hefja þá vinnu við
rannsóknaverkefni sín. Annar
fjallar um tækni við fóðrun mjólk-
urkúa, með hliðsjón af afurðasemi,
fóðurnýtingu, vinnu og velferð
gripanna. Hinn fjallar um sum-
arvöxt lamba, sérstaklega áhrif
mjólkur á vaxtarhraða. Næsta vet-
ur munu báðir bæta við sig sér-
hæfðum námskeiðum við LBH.
Talsverð
aukning
Alls stunda því um 130 nem-
endur nám við LBH í vetur. Þetta
er talsverð aukning frá fyrri árum,
því á fyrsta starfsári voru í upp-
hafi skólaársins 80 nemendur, þar
af 24 í fjarnámi. Árið 2000 voru
sambærilegar tölur 94, þar af 27 í
fjarnámi og árið 2001 103 nem-
endur, þar af 28 í fjarnámi.
Í lokaorðum sagði rektor meðal
annars: „Um leið og ég býð ykkur
velkomin til starfa vil ég minna
okkur öll á að árangur þess verk-
efnis, sem við í sameiningu erum
að leggja út í og uppskorinn verð-
ur að vori, mun að mestu ráðast af
hversu okkur tekst í sameiningu
og með samstöðu að leysa þau
málefni sem upp koma og að okkur
snúa á hverjum tíma.“
Góð að-
sókn að
Landbún-
aðarhá-
skólanum
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Skorradalur
Moggabúðin
Derhúfa, aðeins 800 kr.