Morgunblaðið - 05.09.2002, Síða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2002 15
MENNINGARHÁTÍÐIN Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ verður fjöl-
breyttari og stærri en áður. Hátíðin
hefst í dag og stendur yfir í fjóra
daga en sem fyrr er aðaldagskráin á
laugardeginum. Þá siglir víkinga-
skipið Íslendingur undir Bergið og
flugeldasýning lýsir upp Grófina þar
sem kvölddagskráin er.
Undirbúningsnefnd Ljósanætur
kynnti dagskrána á blaðamanna-
fundi í gær. Gefinn hefur verið út
bæklingur með atburðum og öðrum
gagnlegum upplýsingum fyrir gesti
og þær er einnig að finna á vef há-
tíðarinnar, www.ljosanott.is.
Sem dæmi um umfang hátíðarinn-
ar að þessu sinni má geta þess að á
dagskránni eru yfir 50 menningar-
og listviðburðir og um 20 hljóm-
sveitir koma fram. Þá stendur hátíð-
in yfir í fjóra daga, frá fimmtudegi
og fram á sunnudag, en hefur aðeins
staðið yfir í einn dag á fyrri Ljósa-
nóttum. Sumar myndlistarsýning-
arnar standa áfram, jafnvel út sept-
embermánuð. Segir Steinþór Jóns-
son, bæjarfulltrúi og formaður und-
irbúningsnefndar, að Ljósanótt sé
orðin ein af stærri menningarhátíð-
um landins.
Ljósanefndin leggur áherslu á að
á dagskránni séu atriði við hæfi
allra, meðal annars barnanna. Því er
margt í boði fyrir þau, auk sýninga
og tónlistaratriða, einnig íþróttir og
leikir, kvikmyndir, margs konar
uppákomur, götuleikarar og eld-
gleypar verða á ferðinni og dans-
leikir eru um allan bæ. Þá eru versl-
anir opnar lengur en venjulega og
ýmsar uppákomur í fyrirtækjum
bæjarins.
Bæjarstjórnarband
og Íslendingur
Dagskráin hefst í dag, fimmtu-
dag, með ýmsum atburðum frá
klukkan 13. Ljósanótt er síðan sett
formlega klukkan 15 með opnun
myndlistarsýningar í Svarta pakk-
húsinu við Hafnargötu í Keflavík.
Meðal atburða á föstudeginum má
nefna útitónleikana Afsakið hlé við
Hafnargötu. Aðstandendur tón-
leikanna gefa út safndisk með lögum
frá öllum listamönnunum sem fram
koma og gefa hann tónleikagestum.
Þá er Gunnar Þórðarson með tón-
leika í Stapa, tónleika sem hann
nefnir frá Hólmavík til Keflavíkur.
Aðalhátíðarhöldin eru á laugar-
deginum, eins og á fyrri Ljósanótt-
um. Fjölmörg atriði eru á dagskrá
víðsvegar um Reykjanesbæ allan
daginn. Hátíðin nær hápunkti með
kvölddagskrá á laugardagskvöldið
en hún verður á grasbakkanum við
minnismerki sjómanna við Hafnar-
götu. Þar má nefna að svokallað
Bæjarstjórnarband, sem skipað er
bæjarfulltrúum með Árna Sigfússon
bæjarstjóra í broddi fylkingar, leik-
ur nokkur lög. Síðan er bryggju-
söngur og víkingaskipið Íslendingur
siglir undir Bergið, kveikt er á lýs-
ingu Bergsins og að vanda lýkur
formlegri dagskrá kvöldsins með
flugeldasýningu rétt eftir klukkan
tíu. Áfram eru uppákomur og dans-
leikir fram á nótt.
Á sunnudeginum gefst fólki kost-
ur á að skoða Íslending í höfninni,
sýningar verða opnar og samkirkju-
leg stund trúfélaga verður í Kirkju-
lundi.
Búnir undir fleira fólk
Steinþór Jónsson segir erfitt að
áætlað hversu margir komi á Ljósa-
nótt að þessu sinni. Í fyrra var áætl-
að að upp undir 20 þúsund manns
hefðu tekið þátt í hátíðinni. Segir
Steinþór að dagskráin sé betri og
fjölbreyttari en áður og margt hafi
orðið til að kynna hana, meðal ann-
ars koma Íslendings til Reykjanes-
bæjar, samkeppnin um Ljósanætur-
lagið og vefur hátíðarinnar. Því
væru menn búnir undir að taka á
móti sama fjölda og síðast og jafnvel
fleirum.
En mikilvægast væri að hátíðin
færi vel fram og fólk nyti þess sem
fram væri boðið.
Valgerður Jónsdóttir menningar-
fulltrúi segir að undirbúningsnefnd-
in hafi gert allt sem í hennar valdi
stæði til að gera Ljósanótt sem
besta en það gæti ráðist af veðri
hvernig aðsóknin yrði. Steinþór læt-
ur þess getið að alltaf hafi verið gott
veður á Ljósanótt og veðurspáin
fyrir laugardaginn bendi til hins
sama.
Fjögurra sólarhringa menningarhátíð, Ljósanótt í Reykjanesbæ, hefst í dag
Yfir fimmtíu menningar-
og listviðburðir á dagskrá
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Halldór Jóhannesson, framkvæmdastjóri sönglagakeppni Ljósanætur, afhendir ljósanefnd fyrsta diskinn með
lögunum úr keppninni sem Halldór gefur út. Steinþór Jónsson tekur við disknum ásamt Stefáni Bjarkasyni,
Valgerði Guðmundsdóttur og Jóhanni D. Jónssyni úr nefndinni. Diskurinn verður til sölu á Ljósanótt.
Reykjanesbær
Leikritið Gesturinn eftir Eric-
Emmanuel Schmitt verður sýnt í
Frumleikhúsinu á laugardag. Þetta
er samstarfsverkefni Leikfélags
Reykjavíkur og leikhópsins Þíbilju.
Listamaður Reykjanesbæjar, Gunn-
ar Eyjólfsson, leikur aðalhlutverkið,
sjálfan Sigmund Freud. Með önnur
hlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson
sem leikur gestinn, Jóna Guðrún
Jónsdóttir leikur dótturina og Krist-
ján Franklín Magnús leikur nasist-
ann. Leikstjóri er Þór Tulinius.
Sýningin Ástin og lífið verður í
Bíósalnum í Duushúsum á laug-
ardag. Verkið er tileinkað ástinni og
lífinu og túlkað með ljósum, tónlist
og sögum. Þrír listamenn taka þátt í
uppsetningunni, Sigurborg Kr.
Hannesdóttir sagnakona, Birgir Sig-
urðsson ljósalistamaður og Tatu
Kantomaa tónlistamaður. Efni sýn-
ingarinnar er sótt á Suðurnesin og
m.a. má nefna að Rauðhöfði kemur
þar við sögu.
Í Austursal Duushúsa verður á
Ljósanótt opnuð sýning á vegum
Listasafns Reykjanesbæjar. Þar
sýnir myndlistarmaðurinn Einar
Garibaldi og kallar hann sýninguna
Blað 18 – Reykjanes. Einar hefur
sýnt víðs vegar um heim. Listasafn
Reykjanesbæjar hefur verið hús-
næðislaust til þessa en hefur nú
fengið inni í þessum sal í Duus-
húsum.
Upphafshópur myndlistarfélags
Baðstofunnar verður með sýningu
að Hafnargötu 34 í Keflavík á Ljósa-
nótt. Þetta eru 10 félagar sem byrj-
uðu á námskeiðum í málun á vegum
Baðstofunnar árið 1975 og eru
ennþá starfandi við list sína. Lista-
mennirnir heita: Ásta Árnadóttir,
Ásta Pálsdóttir, Guðmundur Mar-
íasson, Hreinn Guðmundsson, Jón
Ágúst, Sigmar Vilhelmsson, Sigríð-
ur M. Rósinkarsdóttir, Soffía Þor-
kelsdóttir, Steinar Geirdal og Þór-
unn Guðmundsdóttir.
Á útisviði við Hafnargötu verða
tónleikar á föstudagskvöldinu undir
heitinu Afsakið hlé. Þar koma fram
ýmsar popphljómsveitir af Suð-
urnesjum og Land og synir reka svo
lestina. Þarna spila meðal annars
Gálan, Rúni Júl, Fálkarnir og Rými.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir, ung
sópransönkona úr Keflavík, verður
með einsöngstónleika í Kirkjulundi á
föstudagskvöldinu. Tónleikana nefn-
ir hún Svartar rósir. Undirleikari
hennar er Lára Rafnsdóttir.
Meðal atriða Ljósanætur
HANDVERK og hönnun opnar
sýningu í Framsóknarhúsinu í
Keflavík í dag. Sýningin er lið-
ur í dagskrá Ljóasnætur.
Sýningin byggist á fimm sýn-
ingum sem Handverk og hönn-
un hélt í sýningarsal sínum í
Reykjavík á síðasta ári en hún
hefur áður verið sett upp á Ísa-
firði og í Ólafsvík.
Sýningin stendur til 15. sept-
ember og er opin alla daga frá
kl. 13 til 17. Á henni er fjöl-
breytt handverk og listiðnaður
eftir 25 aðila.
Handverk og
hönnun með
sýningu
Keflavík