Morgunblaðið - 26.09.2002, Síða 15

Morgunblaðið - 26.09.2002, Síða 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 15 www.merkur.is Skútuvogi 12a s. 594 6000 Hjóladagar Gerið góð kaup!                                  ! " #   $   # %       &   #  & MIKIÐ var um dýrðir á lokahófi knattspyrnumanna í Grindavík en það fór fram í félagsheimilinu Festi á laugardagskvöldið, að lokinni síð- ustu umferð úrvaldsdeildarinnar. Mikið var lagt í að hafa kvöldið sem eftirminnilegast, í mat, skemmtiatriðum og danshljómsveit, og skemmti fólk sér vel. Hápunktur kvöldsins var valið á besta knattspyrnumanni í meist- araflokki karla og kvenna. Hjá kon- unum var G. Sunna Gunnarsdóttir kjörin best og hjá körlunum var það Sinisa Kekic sem var hlutskarp- astur. Þá voru veittar viðurkenn- ingar fyrir mestu framfarir og markakóng. Hjá konunum þótti Brynhildur Tyrfingsdóttir sýna mestu framfarir og Karen Penglase var markahæst. Hjá körlunum var Alfreð Jóhannsson sá sem þótti sýna mestar framfarir og markakóngur- inn var að sjálfsögðu markakóngur Íslandsmótsins, Grétar Ólafur Hjart- arson. Sinisa Kekic og G. Sunna Gunnarsdóttir voru valin knatt- spyrnumenn ársins í Grindavík. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Sinisa Kekic talinn bestur Grindavík GRINDAVÍKURBÆR hefur ákveð- ið að taka tilboði verktakanna Heim- is og Þorgeirs í Kópavogi í gang- stéttir og lagnir í nýju hverfi, Lautarhverfi. Skipulagðar hafa verið lóðir fyrir 38 íbúðir í Lautarhverfi, við gamla leikskólann, í eldri hluta Grindavík- urbæjar. Gatnagerðin var boðin út og bárust sjö tilboð, á bilinu 25,5 milljónir til 37,7 milljóna. Þrír lægstu bjóðendurnir voru beðnir um að leggja fram upplýsing- ar um fjárhagsstöðu, starfsmenn, tækjabúnað og fyrri verk. Það gerðu einungis Heimir og Þorgeir sem áttu þriðja lægsta tilboðið, 30,1 milljón, sem er 800 þúsund kr. undir kostn- aðaráætlun ráðgjafa Grindavíkur- bæjar. Byggingafulltrúi bæjarins lagði til að tilboði þeirra yrði tekið og samþykkti bæjarráð það á fundi í vikunni. Framkvæmdir hefjast á næstunni og á þeim að ljúka fyrir vorið. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri reiknar með að eftirspurn verði eftir lóðum í Lautarhverfi því allar lóðir í bænum séu uppseldar og mikil eft- irspurn eftir húsnæði. Gatnagerð að hefjast í Lautar- hverfi Grindavík SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, skoðaði kap- ellu slökkviliðsins á Keflavíkur- flugvelli í gær þegar hún var á ferð um Suðurnes. Auk heimsókn- arinnar til slökkviliðsins kom ráð- herra við hjá sýslumanninum í Keflavík og skoðaði prestssetrið á Útskálum í Garði. Kapella slökkviliðsins þjónaði áður varnarliðsmönnum á Stokks- nesi og í ratsjárstöðinni Rockville á Miðnesheiði en var flutt í slökkvistöðina og endurnýjuð fyrir atbeina slökkviliðsmanna og var framlag þeirra og varnarliðsins til Kristnihátíðar árið 2000. Biskup Íslands vígði hana í desember það ár. Haraldur Stefánsson slökkviliðs- stjóri og Dean M. Kiyohara kaft- einn, yfirmaður flotastöðvar varn- arliðsins, tóku á móti Sólveigu Pétursdóttir í kapellunni og þökk- uðu henni stuðning við framtakið á sínum tíma. Í ávarpi lýsti Sólveig Pétursdóttir ánægju sinni með kapelluna og sagði að slökkviliðs- menn gætu verið stoltir af henni. Myndin var tekin þegar ráð- herra ritaði nafn sitt í minning- arbók um þá sem fórust í hryðju- verkaárásunum í Bandaríkjunum 11. september 2001, að við- stöddum Haraldi Stefánssyni slökkviliðsstjóra, sem sýndi henni kapellu slökkviliðsins. Kirkjumálaráðherra skoðar kapellu slökkviliðsins Keflavíkurflugvöllur Ljósmynd/Hilmar Bragi FJÖLSKYLDU- og félagsmálaráð Reykjanesbæjar hefur lagt til við bæjarstjórn að sótt verði um lán hjá Íbúðalánasjóði til að kaupa eða byggja 25 félagslegar leiguíbúðir á næsta ári. Er í samþykkt ráðsins vís- að til þriggja ára áætlunar ráðsins. Fram kom á fundi fjölskyldu- og félagsmálaráðs í vikunni að alls eru 76 einstaklingar á biðlista eftir fé- lagslegum leiguíbúðum í Reykja- nesbæ. Þar af eru 35 sem óska eftir einstaklingsíbúð, 39 sem óska eftir 2–3 herbergja íbúð og 2 á biðlista eft- ir stærri íbúð. Leggur ráðið til að byggt verði eitt 6–8 íbúða hús sér- staklega fyrir einhleypa öryrkja og að byggðar verði eða keyptar 10–12 tveggja til þriggja herbergja íbúðir. 76 á biðlista eftir fé- lagslegu leiguhúsnæði Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.