Morgunblaðið - 26.09.2002, Page 19

Morgunblaðið - 26.09.2002, Page 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 19 Smáralind - Glæsibæ Simi 545 1550 og 545 1500 50% afsláttur af völdum sportfatna›i Tilbo› fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag Opi›: Smáralind mán. - föst. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 1 88 72 09 /2 00 2 Glæsibæ mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16 og ÓÞEKKTIR byssumenn réðust inn í hús í borginni Karachi í Pakistan í gær og myrtu þar sjö kristna menn og særðu einn til viðbótar. Fórnar- lömbin, sem voru Pakistanar, voru skotin í höfuðið en ítrekað hefur ver- ið ráðist á kristna menn í Pakistan frá því að Pervez Musharraf, forseti landsins, lýsti stuðningi við herför Bandaríkjanna gegn al-Qaeda- hryðjuverkasamtökunum og talib- anastjórn nágrannaríkisins Afgan- istan fyrir ári. „Þetta virðist hafa verið hryðju- verk,“ sagði Syed Kamal Shah, lög- reglustjóri í Sindh-héraði, en að sögn fulltrúa lögreglunnar réðust morð- ingjarnir inn í húsnæði góðgerðar- stofnunar í skrifstofubyggingu í Ka- rachi um kl. 9 í gærmorgun að staðartíma, eða kl. 3 í fyrrinótt að ísl. tíma. Bundu þeir starfsmenn stofnunar- innar fasta við stóla og röðuðu um- hverfis fundarborð. Þá kefluðu ódæðismennirnir fórnarlömb sín áð- ur en þeir skutu þau í höfuðið af stuttu færi. Eitt fórnarlambanna fannst í sömu stellingu inni á salerni. Líklega kunnugir á skrifstofunni Ekki komst upp um ódæðið fyrr en klukkustundu síðar þegar Rahim Bux Azad, einn af starfsmönnum stofnunarinnar, kom til vinnu. Er talið fullvíst að sex fórnarlambanna hafi dáið samstundis en einn dó ekki fyrr en á spítala. Áttundi maðurinn var alvarlega særður. Háttsettur lögreglumaður sagði ljóst að árásin hefði verið vel skipu- lögð. Ódæðismennirnir hefðu vitað hversu margir yrðu á skrifstofu góð- gerðarstofnunarinnar, sem berst fyrir rétti undirmálsfólks í Karachi, og hefðu þekkt þar til. Lawrence Saldanha, kaþólskur erkibiskup í Lahore-borg, kenndi öfgasinnuðum stuðningsmönnum talibana og al-Qaeda um ódæðið og fordæmdi þá fyrir að ráðast gegn góðgerðarstofnun eins og þessari. Sagði Saldanha, sem áður var stjórnarformaður stofnunarinnar, að þar hefði verið barist fyrir betri hag allra sem minna máttu sín í Karachi, engu máli hefði skipt hvort um krist- ið fólk eða múslimi væri að ræða. Morðingjunum hefði verið fullkunn- ugt um þetta. Reuters Ættingjar fólksins sem hryðjuverkamennirnir myrtu létu sorg sína í ljós í gær. Morð á kristnu fólki í Karachi Herskáir mús- limir grunaðir um verknaðinn Karachi. AFP. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins hefur lagt til við aðildarríki sambandsins að ekki verði farið út í það að svo stöddu að setja sérstaka tolla á innflutning stáls frá Bandaríkjunum. Áætlanir þar að lútandi höfðu verið uppi til að svara þeirri verndartollastefnu sem Bandaríkjastjórn ákvað fyrr á árinu. Heimildarmenn í Brussel sögðu að Pascal Lamy, sem fer með versl- unar- og viðskiptamál í fram- kvæmdastjórninni, hefði mælst til þess að aðildarríki ESB reyndu að draga úr neikvæðum áhrifum ákvarðana Bandaríkjastjórnar þar til eftir að Heimsviðskiptastofnunin (WTO) hefur úrskurðað í málinu í mars 2003, en ESB hefur kært ákvörðun Bandaríkjamanna þang- að. Samþykki aðildarríkin tilmæli Lamys er líklegt að utanríkisráð- herrar ESB staðfesti ákvörðun þar að lútandi á fundi nk. mánudag. ESB fresti tollum á stál Brussel. AFP. FRANSKIR og bandarískir her- menn komu í gær til bjargar 200 trúboðskennurum og nemendum, þ.á m. 100 bandarískum börnum, sem lokast höfðu inni í borginni Bo- uake á Fílabeinsströndinni er mannskæð uppreisn var gerð í landinu. Börnin eru á aldrinum fimm til átján ára, veifuðu banda- rískum fánum er hermennirnir fluttu þau á brott. Fólkið hafði ekki getað yfirgefið borgina síðan á fimmtudaginn í síðustu viku. Engan mun hafa sakað í hópnum, en skotbardagar hafa geisað í ná- grenninu. Bouake er næststærsta borgin á Fílabeinsströndinni, og í gær höfðu uppreisnarmenn mið- borgina á valdi sínu, en skólinn er í útjaðri hennar. Börn trúboða Flestir nemendurnir í skólanum eru börn trúboða í Vestur-Afríku, flest frá Bandaríkjunum en um tíu frá Kanada og Hollandi. Franskir embættismenn sögðu að starfsfólk skólans hefði ekki beðið um að nemendur og kennarar yrðu fluttir á brott, en frönsku hermennirnir gætu séð um slíkan brottflutning yrði þess óskað. Átökin í Bouake brutust út í kjöl- far uppreisnar óánægðra her- manna í þremur borgum á fimmtu- daginn. Stjórnarherinn braut uppreisnarmenn í höfuðborginni, Abidjan, á bak aftur og kostaði það tæplega 300 manns lífið og annar eins fjöldi særðist. En uppreisnar- menn héldu áfram Bouake og Kor- hogo, tveimur helstu borgunum í norðurhluta landsins, þar sem íbú- ar eru flestir múslimir. Ríkisstjórn Laurents Gbagbo for- seta segir uppreisnina vera bylting- artilraun og dagblað stjórnar- flokksins sagði að Blaise Bompa- ore, forseti nágrannaríkisins Burkina Faso, væri maðurinn á bak við byltingartilraunina. Mótmæli í Abidjan Mikil mótmæli brutust út í Abidj- an í gær og var ráðist á sendiráð Burkina Faso í borginni. Einnig var mótmælt fyrir utan franska sendi- ráðið, en þar hefur leiðtogi stjórn- arandstöðunnar leitað skjóls síðan uppreisnin hófst í síðustu viku. Flestir þeirra sem að mótmæl- unum stóðu voru ungir menn er höfðu orðið við tilmælum öfgasinn- aðra stjórnmálaleiðtoga er flutt voru í útvarpi. Bandaríkjastjórn sendi um 200 hermenn á vettvang í gær og Bretar hugðust einnig senda nokkurt lið. Skóla- börnum borgið Yamoussoukro, Bouake, Abidjan á Fílabeinsströndinni. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.