Morgunblaðið - 26.09.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 26.09.2002, Síða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 37 frá Auðnum í áratug. Samt þrjósk- aðist hann við meðan kraftar entust og ætlaði sér að ljúka Gunnars sögu. En heilsan brast of fljótt, einmitt þegar aðdráttum var lokið og sjálf byggingavinnan komin á góðan rek- spöl. Sá skaði verður ekki bættur, en vonandi verða þó aðrir til að hagnýta sér það mikla efni sem hann var bú- inn að draga saman. Þótt bók Sveins Skorra, Svipþing, sem kom út 1998, sé (ævi)söguleg er hún fagurbókmenntir, listilega vel skrifuð örlagasaga. Þar gerir hann grein fyrir þeim jarðvegi sem hann óx úr, bregður birtu á persónur sem stóðu honum nærri og eru hver ann- arri ólíkar og á viðburði sem virðast hversdagslegir en ristu þó djúpt í geði þeirra sem hlut áttu að máli. Í eðli hans sjálfs var að finna allar þær andstæður sem bókin lýsir, ættanna kynlegt bland. Hann var skorinorður og skjótur til svars, gat verið hvass í tilsvörum og ummælum, en einnig tilfinninganæmur, hlýlegur og greið- vikinn. Hann var mælskumaður og gat tekið hátíðlega til orða þegar við átti, en fyrirleit innantómt orðagjálf- ur. Við Skorri höfðum lengi skrif- stofur vegg í vegg. Marga skemmti- lega samverustund á ég að þakka, yf- ir bókunum eða á kaffistofunni. Þar fengu aðrir ríkulega að njóta af óþrjótandi brunni hans af vísum og sögum, en samræðurnar gátu líka snúist um alvarleg efni, úr sögu eða samtíma. Hann hafði lifandi áhuga og ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og sögu, ekki síst stjórnmálasögu lið- innar aldar. Um 1980 hóf lítill hópur háskóla- manna – margir úr hugvísindum, flestir af æskuskeiði – iðkun leikfimi og körfubolta undir leiðsögn Valdi- mars Örnólfssonar. Skorri var tryggur þátttakandi meðan heilsa leyfði. Aldrei hefur þessi flokkur verið líklegur til sýningarhalds eða keppni, en þar hefur fléttast saman holl hreyfing og góður og gaman- samur félagsskapur. Skorri bar þess nokkur merki í körfuboltanum að hann hafði ekki vanist knattleikjum í bernsku, en lék samt með af lifandi áhuga, og allir fögnuðu þegar hann skoraði, jafnvel í fyrsta sinn sem það bar við, þótt hann hefði þá í hita leiksins ruglast á því í hvora körfuna bæri að stefna boltanum. En Valdi- mar kom okkur öllum til nokkurs þroska. Í leikfimisalnum munum við hugsa með gleði og þakklæti til fé- laga okkar þegar við setjumst niður og gerum hina vandasömu æfingu, Skorris speciale. Vésteinn Ólason. Það var haustið 1968 sem Sveinn Skorri Höskuldsson tók til starfa sem lektor í íslenskum nútímabók- menntum við Háskóla Íslands og ég varð nemandi hans. Hann gekk hröðum skrefum inn í stofuna í Árnagarði, grannur sem teinungur, hárið mikið og dökkt. Glóð í augum. Málfar hans hátíðlegt. Hann var nokkuð framandlegur á þessari stundu enda nýkominn heim frá Sví- þjóð þar sem hann hafði gegnt stöðu sendikennara við háskólann í Upp- sölum um sex ára skeið. Áður hafði hann dvalist í Winnipeg þar sem sálufélagi hans, Gestur Pálsson, hafði verið ritstjóri Heimskringlu í eina tíð. Við nemendurnir vissum að hann hafði ritað mikið verk um ævi og verk Gests, sem hafði verið gefið út þremur árum fyrr. Það heyrðist hvíslað að þessum tveimur mönnum svipaði saman í sjón og raun. Báðir höfðu þeir heillast af raunsæisstefn- unni sem Brandes boðaði þar sem rithöfundar skyldu fjalla um vanda- mál samtímans og líta á sig sem lækna þjóðfélagsmeina. Sveinn Skorri hafði kynnt sér rannsóknir í kvennafræðum í Upp- sölum hjá Karin Westman Berg en hún var frumkvöðull í þeim fræðum á Norðurlöndum. Í hönd fóru nýir tímar og rannsóknir á kvenlýsingum í bókmenntum urðu einn þáttur kvennabaráttunnar. Markmið þeirra rannsókna var einmitt lækning sam- félagsmeina, kvennakúgunar. Það fór því vel á því að Sveinn Skorri varð leiðbeinandi minn þegar ég skrifaði lokaritgerð mína til BA- prófs um lýsingu Sölku Völku í skáldverki Laxness. Þar mættist áhugi okkar á félagslegu raunsæi og kvenlýsingum. Í Skírni 1972 birtist grein eftir Svein Skorra, „Í leit að kvenmynd eilífðarinnar“, en þar fjallar hann um kvenlýsingar Hall- dórs Laxness. Þar stendur m.a.: „Þessi áhugi á hlutskipti kvenna í skáldskap hefur raunar haldizt í hendur við vaxandi skilning á gildi þjóðfélagsfræðilegrar könnunar bókmennta.“ Hann leggur áherslu á að hvert skáldverk sé meira en speg- ilmynd samfélagsins sem það er sprottið úr. Kristileg tvíhyggja hafi mótað hefðina í kvenlýsingum vest- urlandabókmennta. Að mati Sveins Skorra rís Snæfríður Íslandssól hæst í verkum Laxness. „Þessi kona, sem við fáum að fylgjast með og sjá þroskast frá draumlyndri smámey til kaldrifjaðrar stjórnmálakonu, val- kyrju, sem fer þeysireið á svörtum hestum og stendur yfir höfuðsvörð- um ástmanna sinna og andstæðinga, er einhver margbrotnust og ægifeg- urst mannlýsing íslenzkra bók- mennta.“ Svo fór að Sveinn Skorri varð að- alkennari minn á kandidatsstigi, leiðbeinandi og mikill áhrifavaldur. Kennslan fór fram á skrifstofu hans í Árnagarði. Hann sat við skrifborðið, stundum svolítið utan við sig eins og hann hefði verið djúpt sokkinn í rannsóknir sínar þegar tími átti að hefjast, en við settumst við lítið fund- arborð. Í tímum var andrúmsloftið afslappað þegar farið var í einstök verk eða gefið yfirlit um höfunda- verk. Hann lagði áherslu á yfirgrips- mikinn lestur. Sem leiðbeinandi lagði Sveinn Skorri mikinn þunga á að vitna ávallt í frumheimildir og of- urkapp á vandaðan frágang eins og heimildaskrá. Sjálfur var hann iðinn fræðimaður og ástríðufullur ná- kvæmnismaður. Sveinn Skorri hvatti mig til að kynna mér kvennarannsóknir hjá Karin Westman Berg við undirbún- ing lokaritgerðar. Í Uppsölum dvaldist ég eitt misseri og kynntist náið þeirri merku konu. Ég á einnig honum að þakka að ritgerð mín, Kvenlýsingar í sex Reykjavíkur- skáldsögum, var gefin út hjá Rann- sóknastofnun í bókmenntafræði 1979. Síðar átti hann eftir að fá mig til að kenna tímabundið kvennabók- menntir við háskólann. Þannig hvatti hann nemendur sína, studdi við bak- ið á þeim og mótaði æviferil þeirra að vissu marki. Raunsæisskeið 19. aldar stóð næst hug og hjarta Sveins Skorra eins og áður hefur verið vikið að. Sú ástríða leiddi hann að hinum þingeyska fé- lagsmálafrömuði Benedikt á Auðn- um. Í formála að miklu ritverki um hann sem út kom 1993 gerir Sveinn Skorri grein fyrir því hvers vegna hann valdi þetta viðfangsefni. Þar segir hann m.a.: „Þriggja ára var ég fluttur úr Þingeyjarþingi suður í Skorradal. Faðir minn saknaði átt- haga sinna alla ævi og í orðum hans ljómuðu þessar byggðir og mannlíf þeirra í heiðri birtu – í senn glötuð Paradís og Fyrirheitna landið. Eftir nokkurt sálufélag við Bene- dikt og samherja hans í tvo áratugi skil ég söknuð föður míns betur. Ekki valdi ég þó líf Benedikts og æviverk af þeim sökum né heldur því að ég ætti með honum einn dropa af sameiginlegu blóði, heldur … vegna tengsla hans við það skeið norrænna bókmennta á síðari tímum sem enn er í mínum hug hin sanna gullöld – raunsæisskeiðið með Brandes, Ibsen og Strindberg.“ Lífsbók Sveins Skorra Höskulds- sonar prófessors er lokið. Ég minn- ist míns ágæta læriföður með þakk- læti og söknuði. Við Gunnar vottum Vigdísi og börnum þeirra dýpstu samúð. Gerður Steinþórsdóttir. Nú er minn gamli góði vinur og bekkjarbróðir allur. Ég minnist Skorra fyrst, er við – í góðum hópi nýnema – hófum nám við Menntaskólann á Akureyri haustið 1944. Hann var aðkomupiltur – sunnan úr Skorradal í Borgarfirði – svipmikill og greindarlegur. Við lentum saman í bekk. Hann vakti fljótt aðdáun mína fyrir góða kunn- áttu í íslensku og hann gat jafnan svarað, þegar við hin stóðum á gati. Frábær frammistaða hans jók metn- að minn og varð mér hvatning til að bæta mína kunnáttu. Skorri var prýðis námsmaður og tók hluta framhaldsdeildar MA utanskóla. Engum sem til þekkti kom á óvart er hann eftir stúdentspróf haslaði sér völl á sviði íslenskra fræða. Skorri setti svip á umhverfi sitt og ætíð var hann hress í góðra vina hópi. Þó tel ég að honum hafi verið lítt að skapi að bera tilfinningar sín- ar á torg, en engum sem les hans snilldarlega skrifuðu bók „Svipþing“ getur dulist, að þar ritar tilfinninga- ríkur maður, með næman skilning á blæbrigðum mannlegra örlaga og næmt auga fyrir fegurð náttúrunn- ar. Ég hef átt góðar stundir á heimili þeirra ágætu hjóna Skorra og Vig- dísar, en ástir þeirra vöknuðu þegar á menntaskólaárunum. Ég er þakklát fyrir vináttu hans og tryggð við mig og ég veit að ég tala fyrir mun okkar bekkjarsystk- inanna, þegar ég segi að við munum öll sakna hans og sendum Vigdísi og fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Vilhelmína Þorvaldsdóttir. „Ég var kominn á þau mót æsku og unglingsára að ég var orðinn óhæfur til að sjá hið mikla í hinu smáa,“ segir Sveinn Skorri á einum stað um sjálfan sig í hinni frábæru minningabók Svipþingi. Þessi frum- lega skilgreining á gelgjuskeiði lýsir Sveini Skorra ákaflega vel. Þessi orð fá líka aðra merkingu þegar maður hugsar til baka til bók- menntakennslu Sveins Skorra. Minnisstæðastur er nefnilega ein- mitt hæfileiki hans til þess að greina hið mikla í hinu smáa. Ég býst við að kennslufræðingar myndu segja að hann hafi fyrst og fremst lagt áherslu á uppgötvunarnám, að varpa fram ýmsum hugmyndum og mögu- leikum og láta nemendurna sjálfa svo spreyta sig. Skorri naut sín best í litlum hópi, og í fámennum kúrsum á kandidatsstigi var hann í essinu sínu. Það var gaman að lesa með honum bókmenntir, því hann hafði frábært næmi á hvar feitt var á stykkinu og var að auki sérlega víðsýnn og for- dómalaus. Í óformlegu og óhátíðlegu spjalli um ljóð átti hann engan sinn líka. Þar naut sín til fulls hæfni hans til þess að greina hið mikla í hinu smáa. Við gamlir nemendur Skorra viss- um vel hvað hann var snjall penni, hafði óviðjafnanleg tök á íslensku máli og fór þó ekki troðnar slóðir. Hið besta sem hann hefur skrifað um bókmenntir vottar ekki bara um næmleika hans á bókmenntir heldur kom hann hugsunum sínum frá sér í skýran, skilmerkilegan en jafnframt póetískan búning. „Hið óljóst sagða er hið óljóst hugsaða,“ var oft við- kvæði hans þegar bókmenntaskrif bar á góma. Ég hafði margoft hvatt hann til þess að skrifa meira og því fögnuðum við honum vel þegar hann birtist eitt sinn með frumsamið bók- arhandrit á kontórum Máls og menningar. Hann kynnti okkur bókina sem neftóbaksskrif um afa sína og ömm- ur, sem dró úr okkur sem snöggvast, en sannarlega birti yfir aftur um leið og við fórum að lesa þessar listilega skrifuðu og skemmtilegu minningar þar sem Sveinn Skorri stígur fram sem fullskapaður höfundur framúr- skarandi sagnaþátta af besta tagi. Það er varla mánuður síðan Sveinn Skorri heimsótti okkur á for- laginu síðast, glaðbeittur í fasi og bú- inn að ná sínum fyrri þrótti, að því er virtist. Það var hugur í Skorra og við ákváðum að stefna að því að gefa út fyrra bindi ævisögu Gunnars Gunn- arssonar á næsta ári, verk sem hann hafði unnið að áratugum saman. Óskandi væri að þessar grundvall- arrannsóknir á einum helsta höfundi þjóðarinnar, sem Skorri vann að af alkunnri natni, komi fyrr en seinna fyrir augu lesenda í einhverri mynd. Við Halla og samstarfsmenn hjá Máli og menningu þökkum Sveini Skorra samfylgdina og sendum Vig- dísi og öllum ástvinum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Páll Valsson. Daginn sem Sveinn Skorri var jarðaður var mér gengið í átt að mið- bænum er orkaði sem fyrr á öll skiln- ingarvit, með litum sínum, hljóðum og lyktum. Allt var með venjulegum brag, í vestri Kastalinn og Sæti Arthúrs austan megin, en niðri í Meadows sleikti fólk haustsólskinið. Skyndilega hófust einkennilega þýð- ir hljómar út úr borgargnýnum, veikir í fyrstu en mögnuðust eftir því sem lengra dró inn í garðinn og allt í einu gekk ég fram á sitjandi mann við gangstíginn; með hárflóka niður herðar, grásprengdan, fúlskeggjað- ur og í svörtum lörfum. Maður þessi hefur ábyggilega verið á sjötugs- aldri, rokkari úr öðrum tíma, en lék furðufimlega á fagurskreytta hörpu þótt gróffingraður væri. Ertu frá himnum? spurði kona á leið fram hjá. Nei, en ég er að reyna afla farareyris þangað, var svarið. Í húfu við hlið hans lágu nokkrir aurar. Ekki ætla ég að líkja Sveini Skorra við aldurhniginn rokkara í Edinborg, en andstæður mannlífsins eru hinar sömu hvert sem litið er; kannski aldrei meiri en þegar við stöldrum við og íhugum endalok, því þótt okkur sé gjarnt að lýsa andláti sem fullkomnun, árangursríkum endi, þá er svo sjaldnast. Einhverju er oftast ólokið, hringurinn fylltur til hálfs eða að þremur fjórðu, þegar allt kemur til alls. Sveinn Skorri var raunhyggju- maður sem helst vildi tala um róm- antíska ljóðlist. Þar byrjaði þetta allt, sagði hann á góðum stundum, þar gerðist allt og hvað skyldi nútím- inn vera annað en veikt bergmál þrátt fyrir hroka sinn og nýjunga- girni? Öðrum þræði vísindaleg stað- festa, en á hinn bóginn rómantísk, næstum trúarleg auðmýkt gagnvart skáldskap, sem aftur blandaðist kaldhæðinni vissu um fánýti mann- legra skrifa. Sveinn Skorri var um þetta dæmigerður 20. aldar maður. Sjálfur velti hann andstæðum bók- menntasögunnar fyrir sér árum saman, var manna fróðastur um fag- urbókmenntir og jós af örlæti af fróðleik sínum, alltaf reiðubúinn að hlúa að frumlegum hugmyndum, – vitandi samt að engin hugsun er ný undir sólinni, eða heldur, að allt er í senn nýtt og gamalt, eftir sjónar- horni hverju sinni. Ekki að hann hafi haft mörg orð um slíkt, meðan á kennslu stóð, því góður kennari veitir nemanda sínum frelsi til að uppgötva hugsun sína í öllu sem áður hefur verið hugsað. Fyrir það votta ég Sveini Skorra þakklæti mitt. Hann kunni að vekja áhuga á fræðum sínum, gjöfulli flest- um, mikill raconteur og fagurkeri eins og bækur hans vitna um. Einhvern veginn finnst mér sem spenna sú er við í fátækt okkar nefn- um Rómantík og Raunsæi hafi alla tíð fylgt og mótað sýn Sveins Skorra, gert hann að skáldfræðimanni er vissi að þótt ritstörf séu takmörk- unum háð þá eru þau nauðsynleg hverri menningu, að skynsemi og ímyndunarafl eru andstæður í orði en ekki í verki. Sveinn Skorri átti mikið verkefni óunnið þegar hann féll frá; ævisögu stórskálds sem einnig glímdi við andstæður í leit að niðurstöðu sem ef til vill er hvergi að finna. Mér finnst það við hæfi: að deyja frá óloknu verki. Ævi eins slitnar og tendrast í öðrum ævum; í spurn en ekki upphrópun. Vertu sæll, gamli meistari, og komi Alvaldið þér á óvart hinum megin. Vigdísi og fjölskyldu flyt ég okkar innilegustu samúðaróskir. Matthías Viðar Sæmundsson. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Sveini Skorra Höskulds- syni á námsárum mínum í íslensku við Háskóla Íslands. Þar jós hann úr viskubrunni sínum um bókmenntir 20. aldar og kveikti í okkur yrðling- unum fræðabál. Talaði um sín persónulegu kynni af mörgum skáldum, sagði sögur og ræddi um kveðskapinn af þekkingu eins og honum einum var lagið. Benti okkur fákunnandi stúdentunum á grænu augun hans Davíðs, dýrslegar tilfinningar og dandíisma, svo nokk- uð sé nefnt. Að hlýða á fyrirlestra hans var allt í senn, unun, upplifun og uppfræðsla. Að orðum hans búum við öll sem notið höfum handleiðslu hans um heim bókmenntanna, hvort heldur er gegnum fyrirlestra, út- varpserindi, greinar eða bækur. Við störf mín fyrir Stofnun Gunn- ars Gunnarssonar hef ég oft leitað til míns gamla lærimeistara og aldrei komið að tómum kofum. Þekking hans ótakmörkuð og minnið óskeik- ult. Það var ekki í eðli Sveins Skorra að ráðast á garðinn þar sem hann var lægstur. Ævistarf hans er meðal annars bundið í stórvirki eins og ævi- sögu Gests Pálssonar og Benedikts á Auðnum. Það verk sem hann ætlaði sér að ljúka þegar hann sjötugur var hættur að kenna var ævisaga Gunn- ars Gunnarssonar. Að því verki hafði hann unnið lengi. Heimildirnar orðn- ir margir hillumetrar og búið að fara víða um lönd til að kanna gögn og staðhætti. Enginn flumbrugangur við fræðistörfin frekar en vanalega. Heildarmyndin varð að vera skýr áður en farið væri að huga að útgáfu. Höfundarverk Sveins Skorra hefði fullkomnast með ævisögu stór- skáldsins. Því miður skar sláttumað- urinn slóttugi á taumana áður en honum auðnaðist að ljúka sögunni um austfirska sveitadrenginn sem fann draumum sínum farveg í frægð- arheimi bókmenntanna. En þing- eyski Borgfirðingurinn á einnig ófá spor í þeim heimi. Verk hans standa sem minnisvarðar um fræðimann sem hafði skáldlegt innsæi og vann verk sín í þaula. Fræðaseiður Sveins Skorra mun seint gleymast og kyn- slóðirnar leita í verk hans til að auka visku sína. Hvíl í friði, fræðakappi. Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.