Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 1
237. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 10. OKTÓBER 2002
metra í Barcelona og olli þessi gíf-
urlegi vatnsflaumur því að fimm
neðanjarðarlestarstöðvar lokuðust
og vegir skemmdust víða. Þá fór
rafmagn af um 30 þúsund húsum í
borginni Tarragona. Svipað ástand
var sumstaðar í Suður-Frakklandi.
MIKLAR rigningar hafa leikið
menn grátt í norðausturhluta Spán-
ar undanfarna daga. Hafa vatna-
vextir valdið töfum á samgöngum á
láði og í lofti, s.s. í bænum Castell-
defels, skammt sunnan við Barce-
lona, eins og sjá má á myndinni
Yfirvöld í Barcelona hafa kallað
út slökkviliðsmenn og ýmsa aðra til
að aðstoða við hjálparstarf en eng-
ar fréttir hafa þó borist af mann-
skaða. Reiknast mönnum til að á
tólf klukkustundum hafi alls 114
lítrar af regni fallið á hvern fer-
Reuters
Gífurlegar rigningar í Barcelona
BANDARÍSKIR fjölmiðlar greindu
frá því í gær að leyniskytta sem vald-
ið hefur miklu uppnámi í úthverfum
og nágrannasveitum Washington-
borgar undanfarna daga hefði skilið
eftir skilaboð til lögreglunnar á Tar-
ot-spili eftir að hann skaut 13 ára
gamlan pilt á mánudagsmorgun í
Maryland-ríki. Drengurinn er enn í
lífshættu en leyniskyttan hefur nú
skotið sex til bana og þá er einn mað-
ur til viðbótar alvarlega særður.
Virðist sem maðurinn velji fórnar-
lömb sín algerlega af handahófi.
„Kæri lögreglumaður, ég er Guð,“
sagði á Tarot-spilinu, sem var hið
svokallaða dauðaspil en Tarot-spilin
nota menn, sem kunnugt er, til að
spá fyrir fólki.
Voru fréttir þessar hafðar eftir
ónafngreindum heimildarmönnum
innan lögreglunnar. Charles Moose,
lögreglustjóri í Montgomery-sýslu í
Maryland, fordæmdi hins vegar fjöl-
miðla og ýmsa fyrrverandi löggæslu-
menn í gær harðlega fyrir að spá og
spekúlera opinberlega um efnisatriði
þessa máls. „Það er næstum hægt að
kalla þetta afskipti [af rannsókn-
inni]. Við slíkt er ekki hægt að una,“
sagði Moose.
Skilaboðin frá leyniskyttunni eru
sögð hafa fundist um 150 metra frá
inngangi að skóla í Maryland, þar
sem 13 ára piltur var skotinn í
brjóstið sl. mánudag. Þar fundust
einnig byssukúluhylki og ýmislegt
annað sem benti til, að þaðan hefði
byssumaðurinn skotið af vopni sínu.
Maður handtekinn
í gærkvöldi
Yfirvöld hafa nú heitið um þrjú
hundruð þúsund dollurum í verð-
laun, eða rúmlega 26 milljónum ísl.
króna, til handa hverjum þeim sem
getur veitt mikilvægar upplýsingar
um leyniskyttuna.
Seint í gærkvöld var greint frá því
að maður hefði verið handtekinn í
Maryland, ekki fjarri einum þeirra
staða þar sem leyniskyttan drap
mann í síðustu viku. Ekki var þó ljóst
hvort tengsl væru á milli handtök-
unnar og leitarinnar að leyniskytt-
unni.
Sendi lögregl-
unni skilaboð
Washington. AFP, The Washington Post.
Fólk er/29
Leyniskyttu leitað í Bandaríkjunum
ANDERS Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur sem fer með
formennsku þetta misserið í ráð-
herraráði Evrópusambandsins
(ESB), sagði í gær að erfiðustu hjall-
arnir á leiðinni að því að hrinda
stækkun sambandsins til austurs í
framkvæmd væru ennþá framundan.
Er Danir tóku við ESB-formennsk-
unni í júlí sl. lýstu þeir því yfir að al-
gjörs forgangs nyti markmiðið um að
ljúka aðildarviðræðum við sem flest
umsóknarríki fyrir lok þessa árs. Var-
aði Rasmussen við því í gær að skyldu
Írar hafna staðfestingu Nizza-sátt-
málans svonefnda myndi það setja
stækkunaráformin í uppnám.
Framkvæmdastjórn ESB mælti
formlega með því í gær, að tíu ríki –
Eistland, Lettland, Litháen, Pólland,
Tékkland, Slóvakía, Ungverjaland,
Slóvenía, Kýpur og Malta – verði tek-
in ný inn í raðir sambandsins árið
2004 í sögulegri stækkun þess til aust-
urs. Leiðtogar ESB munu síðan taka
endanlega ákvörðun um hvaða ríki fá
formlegt boð um að ganga í sam-
bandið á fundi í Kaupmannahöfn dag-
ana 12.–13. desember.
Framkvæmdastjórnin kynnti í gær
árlega matsskýrslu sína á aðildar-
hæfni umsóknarríkjanna og komst að
þeirri niðurstöðu að tíu af þeim tólf
ríkjum sem nú hafa staðið í formleg-
um aðildarviðræðum í allt að fjögur ár
ættu að verða fær um að ljúka viðræð-
unum fyrir árslok og takast á við fulla
aðild að sambandinu árið 2004.
Írar ganga 19. október nk. öðru
sinni til þjóðaratkvæðagreiðslu um
staðfestingu Nizza-sáttmálans, en
hann er nýjasta uppfærslan á stofn-
sáttmála ESB og kveður m.a. á um
breytingar á stofnunum og ákvarð-
anatöku ESB sem nauðsynlegar eru
til að það geti tekið ný ríki inn í raðir
sínar. Öll hin 14 ESB-ríkin eru löngu
búin að staðfesta sáttmálann, en Írar
höfnuðu honum í atkvæðagreiðslu í
júní í fyrra.
„Það er ekki til nein „áætlun B“,“
sagði Rasmussen. En burtséð frá
hindruninni sem endurnýjað írskt
„nei“ myndi hafa í för með sér sagðist
Rasmussen bjartsýnn á að það gengi
eftir að hin 10 nefndu ríki fengju inn-
göngu í sambandið, eins og fram-
kvæmdastjórnin mælti með.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með inngöngu tíu ríkja
Varað við því að erfiðustu
hjallarnir séu framundan
Kaupmannahöfn, Brussel. AFP.
Áfangi/28
GREINT var frá því í gærkvöldi að
bandarískir hermenn í Kúveit hefðu
lent í skotbardaga en frekari upplýs-
ingar um atburðinn lágu ekki fyrir.
Ekki virtist þó hafa orðið mannfall.
Þá sögðu ættingjar tveggja manna,
sem réðust á bandaríska hermenn í
Kúveit í fyrradag, að þeir hefðu á
sínum tíma barist í Afganistan. Þar
hlutu þeir líklega þjálfun hjá al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökunum en
jafnframt er talið, að einhverjir ætt-
ingja þeirra séu í haldi Bandaríkja-
manna í Guantanamo á Kúbu.
Ónafngreindur heimildarmaður í
bandaríska varnarmálaráðuneytinu
sagði, að mennirnir hefðu sennilega
skipulagt árásina sjálfir og ekki væri
líklegt, að al-Qaeda hefði komið að
því.
Bandarísku hermennirnir voru við
æfingar á Failaka-eyju við Kúv-
eitströnd þegar mennirnir tveir
komu aðvífandi á pallbíl og hófu
skothríð á þá. Lét einn hermaður líf-
ið og annar særðist. Voru árásar-
mennirnir báðir skotnir.
Al-Zawahri á lífi?
Þá sögðu bandarískir embættis-
menn í gær að hljóðsnælda sem
fannst nýverið og var talin hafa að
geyma ávarp Aymans al-Zawahri,
hægri hönd Osamas bin Laden, væri
líklega nýleg, ekki eldri en frá því í
ágúst. Fram að þessu höfðu menn
hins vegar haldið að al-Zawahri hefði
fallið í loftárásum Bandaríkjamanna
á Afganistan á síðasta ári.
Líklega
þjálfaðir
hjá al-
Qaeda
Washington. AFP, AP.
Árás í Kúveit
styður Musharraf. Talið er að hvor-
ugur flokkanna fái meirihluta í
kosningunum í dag.
Bhutto, sem er í útlegð í London,
og tugum annarra andstæðinga
Musharrafs var meinað að gefa
kost á sér í kosningunum. Bhutto
skoraði í gær á Pakistana að koma
hernum frá völdum í kosningunum.
Öðrum útlægum stjórnarand-
stæðingi, Nawaz Sharif, sem Mus-
harraf steypti af stóli forsætisráð-
herra, var einnig bannað að snúa
aftur til Pakistans til ársins 2010.
Musharraf hefur lýst því yfir að
hann hyggist ekki láta af embætti
forseta fyrr en árið 2007.
STARFSMENN kjörstaðar í borg-
inni Karachi í Pakistan taka á móti
kjörgögnum en þingkosningar
verða haldnar í landinu í dag, þær
fyrstu frá valdaráni Pervez Mus-
harrafs, forseta herforingjastjórn-
arinnar, árið 1999.
Musharraf leysti upp þingið eftir
valdaránið 1999 en lofaði að end-
urreisa það, bæta stjórnkerfið og
koma á „raunverulegu lýðræði“.
Skoðanakannanir benda til þess
að lítill munur sé á fylgi tveggja
stærstu flokkanna, flokks Benazir
Bhutto, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og Pakistanska múslíma-
bandalagsins-Quaid (PML-Q), sem AP
Kosningar eftir
þriggja ára einræði ÞRÍR rússneskir geimfarar, sem nú
eru staddir í alþjóðlegu geimstöðinni
á brautu umhverfis jörðu, munu á
morgun, þegar gert er ráð fyrir að
beint samband náist við stöðina, fylla
út gögn vegna manntals sem nú er
verið að taka í Rússlandi, þess fyrsta
frá því Sovétríkin liðuðust í sundur.
Nota þeir kúlupenna, sem er þannig
úr garði gerður að hægt er að skrifa
með honum í þyngdarleysi geimsins.
Manntal
í geimnum
Moskvu. AFP.