Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 57 MJÓLKURSKÁKMÓTIÐ hófst á Selfossi á þriðjudag. Keppt er í tveimur tíu manna flokkum. Meist- araflokkurinn er afar sterkur stór- meistaraflokkur, en áskorendaflokk- urinn var hugsaður til þess að gefa efnilegum skákmönnum kost á að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Úrslit fyrstu umferðar í meistara- flokki: Nikolic – Hannes Hlífar 1:0 Tregubov – Helgi Ólafsson ½–½ Oral – Sokolov 0:1 Bragi Þorfinnsson – McShane 0:1 Hracek – Stefán Kristjánsson 0:1 Hannes Hlífar vill líklega gleyma viðureign sinni sem allra fyrst. Nik- olic hélt honum í herkví mestalla skákina, þar til hann réðist að lokum til atlögu án þess að Hannes gæti komið nokkrum vörnum við. Helgi Ólafsson tefldi vel gegn Tregubov, þótt honum tækist ekki að skapa sér vinningsfæri. Oral lék skákinni snar- lega af sér í tímahraki gegn Sokolov, en McShane sigraði Braga nokkuð örugglega. Skák umferðarinnar var hins vegar tvímælalaust Hracek – Stefán, þar sem Stefán sigraði á eft- irminnilegan hátt. Í áskorendaflokki urðu úrslit þessi: Páll Agnar – Guðmundur Kjart- ansson 1–0 Pedersen – Lenka Ptacnikova 1–0 Jón V. Gunnarss. – Sigurður P. Steindórss. ½–½ Votava – Ágúst S. Karlsson ½–½ Þorsteinn Þorsteinss. – Flovin Naes 0–1 Ágúst Sindri sýnir enn á ný, að hann er til alls líklegur og gerði jafn- tefli við tékkneska stórmeistarann Jan Votava (2.518). Einna mesta at- hygli í þessari umferð vöktu þó lok skákarinnar á milli Jóns Viktors og Sigurðar Páls þar sem sá síðarnefndi átti rakta vinningsleið þegar jafntefli var samið. Mjólkurmótið er skipulagt af Hróknum og er eitt athyglisverðasta skákmót síðari ára hér á landi. Hins vegar er fulllangt gengið þegar því er haldið fram hvað eftir annað í auglýsingum um mótið, að þetta sé sterkasta skákmót hér á landi frá 1991. Þótt erfitt sé að bera saman skákstig á milli áratuga, þá er enginn vafi á því, að Reykjavíkur- skákmótið 1994 var sterkara. Teflt er daglega á mótinu og hefj- ast umferðir á virkum dögum klukk- an 17, en kl. 14 um helgar. Teflt er á Hótel Selfossi og aðstæður á skák- stað eru hreint til fyrirmyndar. Það ætti því ekki að væsa um áhorfendur og ef framhald mótsins verður í lík- ingu við fyrstu umferðina þá er það vel þess virði að leggja leið sína á skákstað. Kramnik leikur sér að Fritz Kramnik sigraði í þriðju skákinni í einvíginu gegn Deep Fritz í Barein. Staðan er nú 2½–½ Kramnik í vil. Taflmennska Kramnik er afar sann- færandi og miðað við gang mála í fyrstu þremur skákunum er vafamál hvort Fritz eigi eftir að vinna eina einustu skák í einvíginu. Tefldar verða átta skákir. Skák frá Mjólkurskákmótinu Stefán Kristjánsson tefldi bráð- skemmtilega skák í fyrstu umferð Mjólkurskákmótsins. Andstæðingur hans var tékkneski stórmeistarinn Zbynek Hracek (2.607). Dirfska Stefáns sló ofurstórmeistarann út af laginu og hann vissi greinilega ekki sitt rjúkandi ráð gegn ágengri tafl- mennsku Stefáns. Hvítt: Hracek Svart: Stefán Kristjánsson Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Dg4 Kf8 Uppáhaldsleikur Stefáns. Algengt er að leika 7. – Dc7 eða 7. – 0-0 í stöð- unni. 8. Bd2 b6 9. Rh3 -- Önnur leið er hér 9. dxc5 (9. Rf3) 9. – bxc5 10. Rf3 c4 11. Rd4 Rbc6 12. Rxc6 Rxc6 13. Dg3 Db6 14. Bc1 Bd7 15. a4 h6 16. Be2 Kg8 17. Bh5 Dc7 18. f4 Re7 19. Ba3 Rf5 20. Df2 g6 21. Bg4 Bxa4 22. Bxf5 gxf5 23. Bd6 Db6 24. Bc5 Dc6 25. Bxa7, jafntefli (Hannes Hlífar Stefánsson – Ívantsjúk, Evr- ópumóti í Leon 2001). 9. … Ba6 10. Bxa6 Rxa6 11. 0–0 – Nýr leikur. Þekkt er 11. De2 Rb8 12. 0–0 Rbc6 13. Be3 cxd4 14. cxd4 Ra5 15. Rf4 Hc8 16. Rh5 Dc7 17. Bd2 Rc4 18. Be1 o.s.frv. (Wernert- Nothnagel, Þýskalandi 2001). 11. … Hc8 12. Rf4 cxd4 13. cxd4 Rf5 Stefán hefur ekki áhuga á að drepa peðið á c2 og opna þannig sóknarleið fyrir hvít eftir c-línunni. 14. c3 Hc4 15. Df3 h5 16. h3 g6 17. g4? – Tékkneski stórmeistarinn flýtir sér of mikið. Eftir 17. Hfb1, t.d. 17. – Kg7 18. a4 Dc7 19. Re2 Kh7 20. Bg5, ásamt 21. Bf6 er svarta staðan held- ur óskemmtileg. 17. – hxg4 18. hxg4 Dh4! Svona tækifæri lætur Stefán ekki ganga sér úr greipum. Skyndilega er hvítur varnarlaus! 19. Dg2 Rc5! (Sjá stöðumynd) Glæsilega leikið hjá Stefáni og stöðumyndin er skemmtileg. Báðir riddarar svarts eru í uppnámi. 20. dxc5 g5 21. cxb6 – Eða 21. Rh5 Hxg4 22. Rg3 Rxg3 23. fxg3 Hxg3 og svartur vinnur. 21. … axb6 22. Dh3? – Eftir 22. f3 gxf4 23. Hfc1 Rg3 24. Be1 d4 25. Bxg3 fxg3 26. cxd4 Dg5! 27. He1 (27. Hxc4 De3+ 28. Kf1 Hh1+ 29. Dxh1 Df2+ mát) 27. … Df4 28. Db2 (28. He4 Hc1+ 29. Hxc1 (29. He1 Dxd4+ 30. Kf1 Hh1+ 31. Ke2 (31. Dxh1 Df2+ mát) 31. … Hc2+ mát) 29. … Dxc1+ 30. Df1 Hh1+ 31. Kxh1 Dxf1+ mát) 28. … Dh6 29. Dg2 Hc2 30. Dxc2 Dh1+ mát. Vænlegasta leiðin fyrir hvítan hefði hins vegar verið 22. Rxe6+ fxe6 23. f3. 22. … Dxh3 23. Rxh3 Hxg4+ 24. Kh2 Rh4 25. f3 – Eða 25. Bxg5 Rf3+ 26. Kh1 Hxh3+ mát. 25. … Hg2+ 26. Kh1 Hxd2 og hvítur gafst upp, því að hann á peði minna og gjörtapað tafl. Skásta leiðin er líklega 27. Rf2 Rxf3+ 28. Kg2 Rxe5 o.s.frv. Stefán sigraði stór- meistarann Hracek SKÁK Selfoss MJÓLKURSKÁKMÓTIÐ 8.–16. október 2002 Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Vanir og óvanir hjá Bridsfélaginu Munin Nú er vetrarstarfið byrjað af full- um krafti og fyrsta móti haustsins lauk 3. okt. en það var þriggja kvölda hausttvímenningur þar sem aðeins giltu tvö stigahæstu kvöld hvers pars. Næstu tvo fimmtudaga, 10. og 17. okt., verða kvöld sérstaklega ætluð byrjendum og þeim sem eru skemmra komnir í keppnisbrids. Hinn 10. okt. verður tvímenningur þar sem vanir og óvanir spila saman í pörum. 17. okt. verður sveitakeppni þar sem einnig verða vanir og óvanir saman í pörum. Allir sem hafa áhuga á að læra brids, eða kunna það (bara óvanir keppnisbrids), eru hvattir til að koma. Ef einhvern vantar meðspil- ara er minnsta mál að bjarga því. Hægt er að skrá sig hjá Þresti Þorlákssyni í síma: 421-7772 og 848- 9578 eða Heiðari Sigurjónssyni í síma: 423-7771. Einnig má skrá sig við mætingu, en þó er betra að hringja fyrst. Spilað verður alla fimmtudaga í vetur og hefst spila- mennska kl. 19.30. Það er alltaf heitt á könnunni og eru allir hvattir til að mæta, bridsspilarar sem aðrir áhugamenn. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson DILBERT mbl.is Kringlan 4-12, sími 568 6211. Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420. 8.990 Svartir Einnig glæsilegt úrval af Falleg og vönduð stígvél 8.990 Svartir 9.990 Svartir 4.990 Svartir 7.990 Svartir/Brúnir 4.990 Svartir/Brúnir 4.490 Svartir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.