Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Keflvíkingar verða meistarar / B4 Tökum yfirlýsingar Skota ekki alvarlega / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í Morgunblaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið „Sjónvarps- dagskráin“ frá Sonet ehf. Blaðinu verður dreift um allt land.  Faglegt samstarf heldur áfram / C1  Góðir starfsmenn skapa góðan vinnustað / C4  Hagsmunaárekstrar í fjölþættri… / C6  Fjölskrúðugt skemmtanalíf / C8  11 þúsund tonnum meiri þorskafli en… / C12  Þorskseiðaeldi hefst í Vestmannaeyjum / C16 Sérblöð í dag www.mb l . i s ÚTLIT er fyrir að a.m.k. 40% fleiri japanskir ferðamenn komi hingað til lands á þessu ári en í fyrra. Eyþór Eyjólfsson, sem rekur fyrirtækið Viking, sem er umboðsaðili fyrir Flugleiðir í Japan, gerir ráð fyrir um 40% aukningu og jafnvel enn meiri. Fyrirtækið Viking var stofnað í mars á síðasta ári, Eyþór á 60% í fyrirtæk- inu og Flugleiðir 40%. Áður var um- boðssalan í höndum japansks at- hafnamanns. Mjög mikilvægir ferðamenn Eyþór segir að Japanar séu mjög mikilvægir ferðamenn. Langflestar þjóðir ferðist aðallega á sumrin, en Japanar komi hingað á öllum tímum ársins. Þá dvelji þeir lengur á landinu en margir aðrir ferðamenn, kaupi mikið af minjagripum og gisti á hót- elum, en margir Evrópubúar gisti mikið í tjöldum. „Ég tel ekki fjarri lagi að meðal-Japani eyði um 9–10 sinnum meira en meðal-Þjóðverji og því er mikilvægt að aðilar í ferðaþjón- ustu hér heima geri sér grein fyrir því hvað þetta er gífurlega mikilvæg- ur hópur,“ segir Eyþór. Hann segir að margt við Ísland heilli Japani, t.d. norðurljósin og heitu hverirnir. Þá sé Ísland mjög framandi land. „Margt af þessu fólki sem kemur til Íslands hefur farið til allra helstu landa heims og margir eru að leita að nýjum áfangastöðum.“ 16–17 milljónir Japana fari til útlanda á hverju ári. Eyþór segir einnig að frá því að íslenskt sendiráð var opnað í Japan síðasta haust, hafi sendiherr- ann verið mjög duglegur við að koma Íslandi á framfæri í fjölmiðlum. Þá hafi einnig mikið fé verið lagt í mark- aðsstarf, t.d. hafi japönskum ferða- heildsölum verið boðið til landsins. Eyþór segir að nú komi 2.500– 2.700 japanskir ferðamenn árlega til Íslands á vegum Viking. Hann vonist til að eftir þrjú ár verði þessi tala komin upp í 10.000. Hann segir að í dag séu þó ekki nógu margir jap- önskumælandi leiðsögumenn á Ís- landi og hvetur því fólk til að læra japönsku. Þá þurfi einnig að byggja upp glæsileg hótel á landsbyggðinni þar sem Japanar vilji dvelja á góðum hótelum. Ferðamönnum gæti fjölgað um 40% Mikill áhugi fyrir Íslandsferðum í Japan VÖRÐUR – fulltrúaráð sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík samþykkti í gær tillögu stjórnar á almennum fulltrúaráðsfundi að haldið verði sameiginlegt prófkjör fyrir bæði kjördæmin við val frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykja- víkurkjördæmunum fyrir alþingis- kosningarnar næsta vor. Fjöl- menni var á fundinum og var tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, að sögn Mar- geirs Péturssonar, formanns stjórnar Varðar. Skv. tillögunni fer sameiginlegt prófkjör í báðum Reykjavíkurkjör- dæmunum fram dagana 22. og 23. nóvember næstkomandi. Frambjóðendur í 1. og 2. sæti skipi 1. sæti hvors lista Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum meðlimum sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri síðari prófkjörsdaginn og ennfremur þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík 10. maí 2002 og undirritað hafa inn- tökubeiðni í sjálfstæðisfélag í borginni fyrir lok kjörfundar. Verði niðurstaða í sameiginlegu prófkjöri Reykjavíkurkjördæm- anna bindandi samkvæmt taln- ingareglum skal kjörnefnd gera tillögu til fulltrúaráðsfundar í Reykjavík um að frambjóðendur skipi sæti á framboðslistum Reykjavíkurkjördæma þannig að þeir tveir frambjóðendur sem verða í fyrsta og öðru sæti í próf- kjöri skipi fyrsta sæti hvors lista. Þeir sem hljóta þriðja og fjórða sæti verði í öðru sæti hvors lista og þannig koll af kolli. Draga skal um á hvorum framboðslistanum þeim sem hlotið hefur fyrsta sætið skuli skipað og ræður það fram- haldsröðun. Á kjörskrá eru nú um 16.000 flokksbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík. Síðast fór fram próf- kjör fyrir alþingiskosningar hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík haustið 1994 og fyrir borgarstjórn- arkosningar haustið 1997. Fundur Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Samþykkt að halda sameiginlegt prófkjör Morgunblaðið/Kristinn Fjölmenni var á fundi Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gær. Fyrir miðri mynd má sjá Margeir Pétursson, formann stjórnar Varðar, og Loft Má Sigurðsson, formann Sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi. HAFIN er vinna við niðurrif gamla Ullarhússins svonefnda í Að- alstræti 4 í Reykjavík, en borg- aryfirvöld hafa samþykkt að fjar- lægja húsið vegna áætlana um uppbyggingu á svæðinu við Að- alstræti. Í húsinu í Aðalstræti 4, sem stendur við hlið gamla Morg- unblaðshússins, var Tryggvi Ófeigsson með sinn rekstur á sín- um tíma. Húsið gekk lengi undir nafninu Ullarhúsið og þar var einnig rekin ísbúð um árabil. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for- maður skipulags- og bygging- arnefndar Reykjavíkur, segir að fyrir liggi beiðni um nýbyggingu á þessum stað. ,,Húsið var ekki til mikillar prýði þarna í götumynd- inni,“ segir hún. Morgunblaðið/Kristinn Verið er að rífa gamla Ullarhúsið við Aðalstræti 4. Ullarhúsið við Aðalstræti rifið MEÐ úrskurði Héraðsdóms Reykja- víkur í gær var tekin til greina krafa um að fyrirtækið Markaðstorg ehf. sem hefur umsjón með rekstri Kola- portsins verði borið út úr Tollhúsinu við Tryggvagötu. Í úrskurðinum kemur fram að fyr- irtækið hefur ekki greitt leigu skv. samningi sem gerður var við Þróun- arfélag miðborgarinnar í mars 2001. 12. júní sl. krafðist Þróunarfélagið að fyrirtækið greiddi fyrir leigu vegna apríl, maí og júní sl. auk „eldri eft- irstöðva“. Fyrir hönd Markaðstorgs var því mótmælt að Þróunarfélagið gæti krafist útburðar þar sem félag- ið væri ekki eigandi húsnæðisins. Á það féllst Páll Þorsteinsson héraðs- dómari ekki og tók útburðarkröfu Þróunarfélagsins til greina. Guð- mundur G. Kristinsson, stjórnarfor- maður Markaðstorgsins ehf., sagði í gær að ekki yrði truflun á starfsemi Kolaportsins vegna úrskurðarins. Verið væri að ræða við Þróunar- félagiðs usm sættir. Markaðs- torg verði borið út úr Tollhúsinu Á ekki að trufla rekstur Kolaportsins GENGI bréfa deCODE hefur lækk- að um fjórðung það sem af er þessari viku og var lokagildið í gær 1,67 Bandaríkjadalir. Þetta er tæplega 9% lækkun frá fyrra degi, en lægst fóru bréfin í 1,60 Bandaríkjadali í síðasta mánuði. Sérfræðingur í greiningu fyrirtækja hjá Raymond James & Associates sagði í gær að lyfjafyrirtækið Merck, sem de- CODE gerði samning við, kynni að þurfa að senda frá sér afkomuvið- vörun í byrjun desember, en fyrir- tækið mótmælti því í gær. DeCODE hefur lækkað um fjórðung í vikunni ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.