Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241 Fax 5 444 211 Netf.: netsalan@itn.is
Opið mán. - fös. kl. 10:00 - 18:00, lau. 10:00 - 12:00
OVERLAND og LIMITED
2003 ÁRG. ER KOMIN
JEEP GRAND CHEROKEE
NETSALAN
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, segir að sam-
kvæmt upplýsingum frá öryggis-
fulltrúa Knattspyrnusambands
Skotlands séu um 2.000 Skotar
væntanlegir til landsins vegna
landsleiksins, en heimilt sé að
hleypa 7.000 manns í stúkur
Laugardalsvallarins. Samið hafi
verið um milli knattspyrnu-
sambanda þjóðanna, sem séu í
riðlinum, að aðkomulið gæti feng-
ið að lágmarki 10% aðgöngumiða
á hverjum leik, en KSÍ hafi komið
til móts við óskir Skota og fái
þeir um 1.500 miða á leikinn, þ.e.
1.400 vegna stuðningsmanna og
um 100 vegna sérstakra gesta
Knattspyrnusambands Skotlands.
Þá hafi um 70 skoskir fjölmiðla-
menn boðað komu sína.
Ljóst er að fjöldi Skota kemur
til landsins án þess að eiga mögu-
leika á að komast á völlinn. Geir
segir að það ætti ekki að skapa
vandamál, því gera megi því
ÚTLIT er fyrir að um 2.000 til
2.500 Skotar komi til landsins
vegna landsleiks Íslands og Skot-
lands í undankeppni Evr-
ópukeppni landsliða, sem verður
á Laugardalsvelli á laugardag, en
leiknum verður m.a. sjónvarpað
beint til Skotlands og Þýskalands.
Allt gistirými á höfuðborgarsvæð-
inu er fullt og er gert ráð fyrir
að Skotar skilji eftir að minnsta
kosti 60 milljónir króna í landinu.
Mikill viðbúnaður er vegna
komu Skotanna til landsins og
vinna Knattspyrnusamband Ís-
lands og lögreglan í Reykjavík
saman að öryggismálum eins og
venja er við svona aðstæður. Geir
Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
segir að mikill viðbúnaður sé í
gangi vegna öryggisgæslu á vell-
inum sem og fyrir og eftir leik.
Aldrei hafi fleiri útlendingar
komið til landsins vegna knatt-
spyrnuleiks, en aldrei hafi verið
leiðindi í kringum skoska knatt-
spyrnuáhugamenn og engin
ástæða sé til að ætla að þeir
bregði út af vananum. Hins vegar
verði að gera ákveðnar ráðstaf-
anir og vegna fjöldans verði öfl-
ugri löggæsla í borginni og á
vellinum en vegna knattspyrnu-
leikja til þessa.
Jóhann Kristinsson vallarstjóri
segir að hann verði með um 90
starfsmenn á Laugardalsvellinum
á laugardag, en á uppseldum bik-
arúrslitaleik væri gert ráð fyrir
um 40 manns. Auk þess verði
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir að miðalausir
komist inn á svæðið. Hins vegar
væri ekki sérstaklega gert ráð
fyrir óþægindum vegna skosku
gestanna því Skotar séu þekktir
fyrir að koma vel fram.
skóna að þeir fylgist með leiknum
í beinni útsendingu sjónvarps og
komi til landsins vegna þess að
þeir vilji vera í stemmningunni.
Mikill áhugi er á leiknum og er
þýska sjónvarpsstöðin ARD t.d.
að setja upp myndver á Laug-
ardalsvelli, en Þjóðverjar eru í
riðli með Íslendingum og Skotum
og verður leikurinn sýndur í
beinni útsendingu í Þýskalandi.
Leikurinn verður einnig í beinni
útsendingu hjá Sjónvarpinu og í
Skotlandi auk þess sem Euro-
sport sýnir frá honum. „Það er
ekki oft sem leikir okkar fara
beint á markað í Þýskalandi,“
segir Geir og bætir við að skosku
gestirnir eigi örugglega eftir að
setja mikinn svip á Reykjavík á
morgun og laugardag og efla
verslun og viðskipti.
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir að allt gistirými í
Reykjavík og nágrenni sé yf-
irfullt nú í vikulok, m.a. vegna
komu um 2.000 til 2.500 Skota.
Hún segir að Skotarnir hafi
örugglega góð áhrif á verslun og
viðskipti og þeir skilji eftir í
landinu um 60 milljónir króna að
lágmarki vegna vallarmiða, gist-
ingar og fæðis fyrir utan
skemmtanir og kostnað sem þeim
fylgi.
Mikill viðbúnaður vegna leiks Íslands og Skotlands í undankeppni EM
Ekki und-
ir 60 millj-
ónum
króna frá
Skotum
Morgunblaðið/Golli
Þýska sjónvarpsstöðin ARD er að setja upp myndver á Laugardalsvelli vegna Evrópuleiks Íslands og Skotlands.
HJÁLMAR Árnason
alþingismaður hefur
verið valinn til að taka
sæti í 20 manna vinnu-
hópi í Evrópu, sem
hefur það hlutverk að
leggja fram mótaðar
tillögur um vetnisvæð-
ingu Evrópu.
Í vinnuhópnum eiga
m.a. sæti stjórnarfor-
menn og forstjórar
stærri fyrirtækja í
samgöngum og orku-
málum í Evrópu s.s.
Renault, Benz, Shell
og Norsk Hydro og er
Hjálmar eini stjórn-
málamaðurinn í hópn-
um. Ákvörðun um skipun vinnu-
hópsins var tekin af tveimur
yfirmönnum innan framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, sem
fara með orkumál og samgöngumál
í framkvæmdastjórninni.
Tillögurnar lagðar fyrir
Evrópuþingið og einstök ríki
,,Hlutverk vinnuhópsins er að
móta tillögur á næstu mánuðum
um aðgerðir til þess að vetnisvæða
Evrópu. Tillögurnar verða síðan
lagðar fram innan einstakra landa
og á Evrópuþinginu,“ segir Hjálm-
ar í samtali við Morgunblaðið.
Hjálmar er þeirrar skoðunar að
hann hafi verið beðinn um að taka
sæti í vinnuhópnum vegna þess
starfs sem unnið hefur
verið hér á landi að
undanförnu að vetnis-
málum, og vakið hefur
mikla athygli í öðrum
löndum. ,,Við höfum
tekið ákveðna forystu
Íslendingar á þessu
sviði. Orkunefnd Evr-
ópuþingsins kom hing-
að fyrir ári til þess að
kynna sér þessi mál
og hingað hafa komið
80 til 90 fjölmiðla-
menn. Ég hygg að
þarna sé um óbein
áhrif að ræða af því
sem við höfum verið
að gera hér á Íslandi,
sem smitar til Evrópu,“ segir
Hjálmar.
Eiga að skila tillögum sínum
innan sex mánaða
Fulltrúar í vinnuhópnum tilnefna
einnig hver um sig sérstaka aðstoð-
armenn vegna verkefnisins. Hjálm-
ar tilnefndi Jón Björn Skúlason,
framkvæmdastjóra Íslenskrar Ný-
Orku ehf., sem aðstoðarmann af
sinni hálfu. Vinnuhópurinn kemur
svo saman á morgun til síns fyrsta
fundar í Brussel.
,,Á fimmtudaginn förum við á
okkar fyrsta fund þar sem farið
verður yfir vinnuplanið en nefnd-
inni er ætlað að skila beinum til-
lögum innan sex mánaða um hvern-
ig skynsamlegt sé að vetnisvæða
Evrópu sem hraðast,“ segir Hjálm-
ar.
Vinnan hér á landi er farin
að smita út frá sér
,,Þetta er mjög skemmtilegt
verkefni og ég hlakka mjög til að
glíma við þetta. Mér finnst mjög
ánægjulegt að finna hvernig það
starf sem unnið hefur verið að hér
á landi á síðustu árum er farið að
smita skemmtilega út frá sér. Við
buðum Ísland fram sem tilrauna-
vettvang á sviði vetnisvæðingar og
ég lít svo á að sú ákvörðun að bjóða
okkur þátttöku í þessum vinnuhópi
sé í rauninni viðurkenning á því,“
segir hann.
Hjálmar gerir sér vonir um að
vinnuhópurinn muni leggja fram
beinharðar tillögur um hvernig og
hvenær ráðast eigi í það verkefni
að vetnisvæða Evrópu. Hann telur
einnig að sú ákvörðun að setja
þessa vinnu af stað og ætla henni
svona skamman tíma sýni að menn
vilji flýta þróun þessara mála og
hún verði einnig lyftistöng fyrir
alla þróun á þessu sviði.
,,Ég trúi því einnig að þar sem
við höfum boðið Ísland sem til-
raunavettvang fyrir hina nýju
tækni þá verði þetta til þess að við
fáum enn meiri tækni hingað en
strax á næsta ári fer að verða sýni-
leg sú undirbúningsvinna sem unn-
in hefur verið að undanförnu.“
Falið að móta tillögur um
vetnisvæðingu Evrópu
Hjálmar
Árnason
Hjálmar Árnason valinn í 20 manna vinnuhóp á vegum
yfirmanna í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur
ákveðið að höfðu samráði við dóms-
málaráðherra að fela lögreglustjór-
anum í Kópavogi daglega stjórn um-
ferðardeildar ríkislögreglustjórans,
að því er fram kemur á lögregluvefn-
um. Ríkislögreglustjóri fer áfram
með yfirstjórn deildarinnar og hefur
eftirlit með verkefninu. Um tilrauna-
verkefni er að ræða frá 1. nóvember
2002 til 1. júní 2003. Áhersla er lögð á
aukið umferðareftirlit á höfuðborg-
arsvæðinu auk eftirlits sem umferð-
ardeildin hefur sinnt á þjóðvegum
landsins í nánu samstarfi við lög-
reglustjórana og samkvæmt sam-
starfssamningi ríkislögreglustjóra
og vegamálastjóra um umferðareft-
irlit frá 12. desember 2000. Eins og
verið hefur er gert ráð fyrir að um-
ferðardeildin sinni óskum um sér-
stakt umferðareftirlit frá lögreglu-
embættunum í tengslum við stærri
lögregluverkefni eða skipulagt sam-
starf lögregluliða úr fleiri en einu
umdæmi. Lögreglumenn deildarinn-
ar sinna eingöngu umferðarmálum.
Markmiðið með umræddri ráð-
stöfun er að auka samstarf lögreglu-
stjóranna á höfuðborgarsvæðinu í
umferðarmálum, sem leiða á til meiri
löggæslu þar og á þjóðvegunum.
Rekstur umferðardeildarinnar mun
sem fyrr vera á kostnað ríkislög-
reglustjórans og Vegagerðarinnar.
Þjóðvegaeftirlit á landsvísu var
endurvakið af dómsmálaráðherra og
ríkislögreglustjóra árið 1998 eftir
þriggja ára hlé.
Umferðardeild ríkislögreglustjóra
er skipuð sjö lögreglumönnum, auk
þess sem ein stöðuheimild er nýtt til
sumarafleysinga. Umferðardeildin
starfar m.a. með Vegagerðinni við
þjóðvegaeftirlit um land allt.
Umferðardeild
ríkislögreglustjóra
Lögreglan í
Kópavogi tek-
ur við dag-
legri stjórn