Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 25
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 25 HLUTFALLSLEGT verðlag vöru- pakka með mat, drykkjarvörum og tóbaki, sem kostar að meðaltali 100 evrur í 15 ríkjum Evrópusambands- ins, er 154 evrur á Íslandi, eða 54% hærra, samkvæmt nýjasta frétta- bréfi Eurostat, opinberri tölfræði- stofnun Evrópusambandsins. Mat- væli eru að meðaltali 48% dýrari hér, miðað við meðaltalsverð ríkja ESB. Upplýsingarnar eru unnar upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands og systurstofnunum hennar í tölvísind- um í löndunum sem könnunin nær til. Könnunin var gerð vorið 2001 og nær til matvæla, drykkjarvara og tóbaks, sem fyrr er getið. Borið var saman verð á 550 sambærilegum vöruteg- undum í 31 landi, það er 15 ríkjum Evrópusambandsins, 13 löndum sem sótt hafa um aðild að ESB og Íslandi, Noregi og Sviss. Brauð og kornmeti 66% hærra Verð á matvælum er 48% hærra á Íslandi en meðaltal ríkja ESB. Sund- urliðað er verð á brauði og kornvöru 66% hærra, 53% hærra á kjöti, 3% hærra á fiski, 41% hærra á mjólk, osti og eggjum, 50% á olíum og fitu, 38% hærra á ávöxtum, 70% hærra á grænmeti (þegar könnunin var gerð vorið 2001), 62% hærra á sykri, sultu, hunangi, súkkulaði og konfekti, 32% hærra á unninni matvöru, 36% hærra á kaffi, tei og kakói, 62% hærra á sódavatni, gosi og safa úr ávöxtum og grænmeti, 135% hærra á áfengi og 39% hærra á tóbaki. Löndunum er skipt í hópa eftir því hversu hlutfallslegt verðlag er mikið yfir meðaltalsverði ríkja ESB. Í hópi I eru lönd þar sem verð er að minnsta kosti 30% hærra, það er Noregur, Ís- land, Sviss og Danmörk, þar sem matarpakki með fyrrgreindum vörum kostar 172 evrur í Noregi, 154 á Íslandi, 136 í Sviss og 131 í Dan- mörku, það er 72%, 54%, 36% og 31% meira en meðaltalsverð ríkja ESB. Á það er bent í fréttabréfinu að út- reikningum á hlutfallslegu verðlagi sé strangt til tekið ekki ætlað að skipa löndum í röð og best fari á því að bera saman verðlag landa sem lenda í sama hópi. Í hópi II, þar sem verðlag er 10– 30% hærra en meðalverð ríkja ESB, eru Svíþjóð, Finnland, Bretland og Írland. „Landbúnaðarvörurnar skera sig ekki úr“ Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtaka Ís- lands, segir eðlilegast að við berum okkur saman við Norðurlöndin. Óraunhæft sé til að mynda með öllu að gera sér vonir um lægra verð hér en í Danmörku. Þar ráði meðal ann- ars smæð markaðarins og fjarlægðir. „Einnig má benda á strangari reglur um framleiðsluhætti. Hér er til dæm- is alveg bannað að blanda fúkkalyfj- um í fóður, en slíkt er víða gert til þess að örva vöxt og draga úr van- höldum. Ég held hins vegar að ekki sé almennur vilji til þess að taka upp slíkar framleiðsluaðferðir hér, en þá verða menn líka að viðurkenna að gæðin og öryggið kosta peninga,“ segir hann. Sigurgeir bendir á að verð á mat- vöru almennt sé 15,6% hærra hér á landi en í Danmörku og að teknu til- liti til mismunandi virðisaukaskatts sé það 26% hærra. „Ég vek athygli á að í þessari könnun skera íslenskar búvörur sig ekki úr öðrum matvör- um, sem er athyglisvert í ljósi um- ræðna um þátt landbúnaðarvara í háu verðlagi á mat hérlendis. Skýr- inganna verður því að leita annars staðar og gott ef til stendur að gera úttekt á þessum málum,“ segir hann. Rannveig Guðmundsdóttir var fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um athugun á orsök- um hás matvælaverðs á Íslandi í samanburði við önnur Norðurlönd og ríki ESB í upphafi þings og lagði fram upplýsingar um þróun mat- vöruverðs á Norðurlöndum 1990– 2000. Þar kemur fram, samkvæmt niðurstöðum norsku hagstofunnar, að matvælaverð hér árið 2000 hafi verið 69% hærra en meðaltalsverð ríkja ESB. Rósmundur Guðnason, deildar- stjóri vísitöludeildar Hagstofu Ís- lands, segir samantekt Eurostat og upplýsingar í fyrrgreindri þings- ályktunartillögu hvorar tveggju byggðar á gögnum sem stuðst er við í alþjóðlegum verðsamanburði. Ann- ars vegar sé um að ræða verðupplýs- ingar vorið 2001, hins vegar fram- reikninga norsku hagstofunnar á verðlagsvísitölu frá 1998 fyrir árin 1999 og 2000. Verð á matvælum 48% hærra hér en í ESB-ríkjum Morgunblaðið/Kristinn Talsvert hefur verið rætt um verð á búvörum að undanförnu. J. GUÐMUNDSSON ehf. hefur byrjað innflutning á úða sem fjar- lægir harpix af föt- um og höndum. Var- an nefnist Remover Spray og segir Guð- mundur úðann fjar- lægja harpix, sem hann kallar „versta óvin húsvarðarins“, auðveldlega. „Einn- ig má nota Remover Spray gegn förum eftir límband á húð, sem íþróttamenn og sjúklingar þurfa til dæmis að glíma við,“ segir hann. Remover Spray er einvörðungu selt í verslunum Lyfju, að hans sögn. NÝTT Úði sem fjar- lægir harpix sími 555 7080 R Ú N A www.dalecarnegie.is Næsta DC námskeið hefst 16. október. Þar lærir þú meðal annars að: Trúa á sjálfan þig og hæfileika þína Setja þér raunhæf markmið og ná þeim Þora að standa fyrir framan hóp og tala Selja hugmyndir þínar Þora að taka erfiðar ákvarðanir Minnka streitu, kvíða og áhyggjur Skapa jafnvægi milli starfs og einkalífs Ná betri árangri á fundum þú...Vilt Kynningarfundur í sal ÍSÍ, (v/Laugardalshöllina), í kvöld kl. 20:30. ...fyllast sjálfstrausti? öðlast hugsun sigurvegarans? eflast við hverja raun? að draumar þínir rætist? ... ... ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.