Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 23
SAUÐFJÁRSLÁTRUN gengur vel í
sláturhúsi Sláturfélags Austur-
lands á Breiðdalsvík. Slátrað verð-
ur um 15. þúsund fjár þar í haust af
svæðinu frá Hamarsfirði norður í
Helgustaðahrepp sem einu sinni
hét, en tilheyrir nú Fjarðabyggð.
Að sögn Stefáns Eðvalds Stef-
ánssonar sláturhússtjóra gengur
slátrun eftir áætlun en reiknað er
með að slátrun ljúki um 20. október
á Breiðdalsvík.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Slátrað á
Breiðdalsvík
Norður-Hérað
STARFSMANNAFÉLAG Akra-
ness hefur sent frá sér ályktun þar
sem mótmælt er launamisrétti sem
bitnar á þeim félagsmönnum sem
hafa lægstu laun.
Ályktun St. Ak. fer hér á eftir.
„Á undanförnum árum hefur farið
fram endurmat á störfum starfs-
manna Akranesbæjar samkvæmt
samningi til að ákvarða kaup og kjör.
Sérstök starfskjaranefnd hefur end-
urmetið störf og starfsmenn fengið
leiðréttingu kjara sinna í samræmi
við úrskurð starfskjaranefndar.
Okkur er fullkunnugt að bæði yfir-
menn hjá Akranesbæ jafnt sem póli-
tískt kjörnir fulltrúar hafa beitt sér
fyrir leiðréttingum á launum ákveð-
inna hópa og fárra útvalinna og
gengið hart fram í að gæta hags-
muna þeirra.
Þegar hins vegar kemur að þeim
sem óumdeilt hafa lökustu kjörin ber
nefndin fyrir sig að umrætt mats-
kerfi sé sprungið og mistök hafi ver-
ið gerð við ákvörðun launa á und-
anförnum þremur árum! Yfirmenn
og pólitískt kjörnir fulltrúar hurfu
þegar kom að þessum hópi. Fólk sem
hefur lægstu launin, vinnur erfið og
sérhæfð störf á Dvalarheimilinu
Höfða er sett til hliðar og því tjáð að
kerfið sé ekki marktækt og í raun
handónýtt og því ekkert fyrir þetta
fólk að sækja til nefndarinnar.
Við mótmælum þessu misrétti og
bendum á að hægt hefði verið að
bæta kjör margra úr þessum hópi
með þeirri kjarabót sem einstaka há-
launastarfsmaður fékk við endur-
mat. Við trúum því að jafnvel ónýtt
kerfi hljóti að geta nýst þeim sem
lökust hafa kjörin eins og þeim sem
mest bera úr býtum“
Laun þeirra
sem hafa lök-
ustu kjör
verði leiðrétt
Akranes
Rósar eðal línan
Dag, nætur, raka, maski,
nuddolíur og lotion.
Þumalína Skólavörðustíg 41
alltaf á sunnudögumFERÐALÖG