Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 45
Árið 1994 hóf lítið fyrirtæki starf-
semi sína á Þórsgötu 24 í Reykjavík.
Fyrirtækið hafði verið draumur
manns sem áratuginn þar á undan
hafði helgað líf sitt rannsóknum á
svefni og að hjálpa fólki sem átti erf-
itt með svefn. Samhliða vinnu sinni
við geðdeild Landspítalans hafði
hann alið þennan draum. Á næstu ár-
um þar á eftir fór Helgi aldrei troðn-
ar slóðir. Helgi og Sigga höfðu kjark
til að setja allt sitt undir til þess að
draumurinn yrði að veruleika. Þetta
var mikil en vel úthugsuð áhætta
sem borið hefur ávöxt. Fyrir þeim
var vinnustaðurinn annað heimili og
samstarfsmenn fjölskyldumeðlimir.
Hugsunin var sú að með því að ráða
gott fólk mætti koma góðu til leiðar
og oft var það fólk sem starfsmenn
þekktu vel sem bætt var í hópinn.
Þegar Helgi lét af störfum sem
forstjóri Flögu, fyrir rétt um 14 mán-
uðum, hafði hann byggt upp sam-
hentan hóp fólks sem átti sér fáar
hliðstæður.
Helgi kenndi okkur trúmennsku,
gildi vináttu og heiðarleika auk þess
að fylgja eftir í hvívetna óbilandi trú
á framtíðarsýn okkar.
Hann var hugsjónamaður sem
ávallt hugsaði í almennum fremur en
sértækum lausnum og eitt af meg-
inmarkmiðum hans var að breiða út
boðskapinn um gildi svefnrannsókna
og stuðla að framgangi vísindarann-
sókna á því sviði.
Helgi á stóran hlut í hjarta okkar
allra og höggvið hefur verið skarð í
fjölskylduna í Flögu. Það eina sem
við getum sagt og gert á þessari
stundu er að heita því að halda
ótrauð áfram að gera draum hans að
veruleika með þeim eldmóði og heið-
arleika sem hann kenndi okkur.
Elsku Sigga og ástvinir allir; inni-
legar samúðarkveðjur. Minningin
um góðan vin lifir með okkur öllum.
Starfsfólk Flögu.
Það er með söknuð og sorg í
hjarta, að ég, börnin mín og fjöl-
skyldur kveðjum vin okkar, sóma-
manninn Helga Kristbjarnarson
lækni.
Vináttan við foreldra hans, Guð-
björgu og Kristbjörn lækni, hefur
staðið í meira en 65 ár. Mat ég þau
mikils og oft bjargaði Kristbjörn lífi
minna nánustu. Við höfum átt marg-
ar gleði- og ánægjustundir með fjöl-
skyldunni og Helga hef ég þekkt frá
vöggu eins og systurnar Fanneyju
og Höllu.
Skemmtilegt var að koma á heim-
ilið til Siggu og Helga og barna
þeirra Birnu, Tryggva, Höllu og
Kristbjarnar. Þar var gleðin og
söngurinn í fyrirrúmi.
Fallegri kveðju get ég ekki hugsað
mér en er systkinin fjögur sungu
sálmana við útför ömmu Dúddu
(Guðbjargar) og Birna söng einsöng.
Gaman var að vera viðstödd á
árshátíð Samtaka iðnaðarins, þegar
Sigga og Helgi tóku á móti viður-
kenningu fyrir ástfóstrið sitt, fyrir-
tækið Flögu, sem hann með dugnaði
sínum, þolinmæði, elju og kjarki átti
heiðurinn af.
Ég og fjölskylda mín erum honum
óendanlega þakklát fyrir hjálp, hlýju
og vináttu á sorgarstundu.
Við hugsum til ástríkrar eigin-
konu, sem stóð eins og klettur við
hlið hans í blíðu og stríðu, og barna
hans fjögurra, tengdabarna, ljós-
geislanna fjögurra, systranna Fann-
eyjar og Höllu og ástvina allra.
Hugur okkar er hjá ykkur í ykkar
miklu sorg og sára söknuði.
Megi algóður Guð og ljúfar end-
urminningar gefa ykkur styrk.
Við kveðjum Helga vin okkar sem
öllum vildi hjálpa og leggja lið.
Guð veri með þér, elsku Sigga
mín, og fjölskyldunni allri.
Ykkar
Ingileif Bryndís
Hallgrímsdóttir (Inga).
Með Helga Kristbjarnarsyni
lækni er genginn langt fyrir aldur
fram kær æskuvinur. Þótt leiðir hafi
ekki legið mikið saman á seinni árum
bar engan skugga á æskuvináttuna.
Við áttum okkar síðasta samtal í vor
við undirbúning 35 ára stúdentsaf-
mælis okkar. Það var ekki langt sam-
tal, en nú þegar Helgi er látinn mun
það ekki líða mér úr minni. Haustið
1960 lágu saman leiðir tveggja hópa í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar, ann-
ars úr Æfingadeild Kennaraskólans
þaðan sem Helgi kom og hins úr
Austurbæjarskólanum. Nokkrir
komu einnig í bekkinn okkar annars
staðar frá. Stór hluti þessa unga
fólks fylgdist að alla leið út mennta-
skólaárin og bast miklum vináttu-
böndum. Fljótlega þróuðust málin
þannig, að heimili Helga hjá foreldr-
um hans, þeim Kristbirni Tryggva-
syni barnalækni og Guðbjörgu
Helgadóttur Bergs, sem nú er nýlát-
in, varð einn helsti samkomustaður
okkar félaganna. Þau Guðbjörg og
Kristbjörn voru einstaklega gestris-
in og vinsamleg vinum barna sinna
þannig, að það leiddi af sjálfu sér, að
við sóttumst eftir að hittast hjá
Helga.
Helgi var góður námsmaður, og
sérstaklega lágu raun- og náttúru-
greinar vel fyrir honum. Það kom því
engum á óvart, að hugur hans skyldi
stefna til náms í læknisfræði. Það
verða aðrir betri til að rekja feril
Helga á því sviði, en ég ætla að leyfa
mér að fullyrða, að Helgi mun verða
talinn með merkustu frumkvöðlum í
nýsköpun íslensks atvinnulífs á síð-
ari tímum. Fyrirtæki hans Flaga,
þar sem þau hjónin Sigga og Helgi
störfuðu lengst af saman, hefur vaxið
hratt og dafnað og er eitt merkasta
fyrirtæki á sínu sviði í heiminum.
Helgi var félagslyndur og vinsæll
meðal skólasystkina sinna, og kusum
við bekkjarfélagar hans hann sem
bekkjarráðsmann okkar í Mennta-
skólanum í Reykjavík. Hefur það
komið í hans hlut að kalla saman
hópinn á hátíðarstundum. Á þessari
kveðjustundu veit ég, að ég tala fyrir
munn okkar allra félaganna í 6. bekk
T árið 1967, þegar ég kveð góðan
dreng og vin hinstu kveðju. Fyrir til-
viljun vildi svo til, að báðir synir mín-
ir hafa unnið hjá eða fyrir Flögu.
Mátu þeir alla tíð þau hjónin Helga
og Siggu mjög mikils. Biðjum við
fjölskylda mín Siggu og börnum
þeirra Helga allrar blessunar og
huggunar í sorginni.
Eiríkur Bjarnason.
Enn þynnast raðir þeirra lækna
sem brautskráðust úr læknadeild
1975. Rúmu ári eftir að annar góður
drengur úr okkar hópi var kvaddur
sjáum við á eftir Helga Kristbjarn-
arsyni, sérstæðum karakter, íhugul-
um gáfumanni, manni fárra orða og
framkvæmda, mikils krafts og hug-
sjóna. Orð ná ekki að lýsa því sem á
hugann sækir þegar vinur fellur frá
langt fyrir aldur fram. Kannski fer
ekki illa á því, tilfinningum þarf ekki
ætíð að finna stað í orðum, þær eru
eigi að síður á sínum stað.
Í læknaskólanum töldum við okk-
ur skylt að bæta heiminn og frelsa
samhliða snúnu námi. Fram komu
hugsjónir og lífsgildi sem og ekki
hafa glatast eftir áratugi. Þarna
komu ýmsir eiginleikar Helga vel í
ljós. Hann lét okkur hina oft um að
bölsótast og fara mikinn í orðum og
æði, hann gekk hins vegar fram og
lét hjólin snúast, gerði eitthvað.
Þetta fylgdi honum alla tíð. Sjálfsagt
hefur ýmsa langað til að læra söng
hjá Göggu Lund. Helgi lét verða af
því. Í menntaskóla samdi hann nýja
kennslubók í málfræði af því honum
fannst hin afspyrnuleiðinleg, sat ekki
við kvart og kvein eins og hinir.
Seinna fannst Helga að upplýsingar
sem þjóð hans hefði um lyf, ábend-
ingar þeirra, og aukaverkanir væru
af skornum skammti. Út kom Ís-
lenska lyfjabókin sem margir kannst
við.
Helgi var leiðtogi, maður hug-
sjóna og verka, slíkt fer ekki alltaf
saman. Hann var frumkvöðull sem
fór síðar eigin leiðir, einbeittur,
ákveðinn, tvímælalítið frekur og
stundum ósveigjanlegur. Hann
stofnaði fyrirtækið Flögu á sviði
tækninýjunga í læknisfræði og hefur
það notið víðtækrar viðurkenningar
og virðingar. Fyrir það hefur Helgi
komið sér fyrir á spjöldum sögunnar.
Helgi var maður fjölskyldu sinnar.
Hann og Sigga voru eitt, þar sem
annað fór var hitt skammt undan. Í
þeirri samheldni ólu þau upp börnin
sín fjögur, og samheldnin er nú
þeirra styrkur. Verk Helga munu
lifa hann, en ekki síst er það minn-
ingin um góðan dreng sem eftir situr.
Ég votta Siggu og börnunum djúpa
samúð. Skaði okkar sem eftir sitjum
er sár, þeirra enn sárari.
Sigurður Guðmundsson.
Góður og elskulegur vinur er
genginn. Helgi Kristbjarnarson var
hæglátur maður og hógvær, íhugull
og rannsakandi, en gat þó verið
fylginn sér og ótrauður baráttumað-
ur réttlætis. Þetta allt og góðar gáfur
hans, hjálpsemi og hjartahlýja gerði
hann að góðum lækni. Hann hafði
óvenju ríka þörf til að skoða alla hluti
niður í kjölinn og hafði þá sérstaka
unun af flóknum fyrirbrigðum, hvort
sem þau leyndust í mannslíkamanum
eða úti í himingeimnum. Það kom
flestum á óvart – og líklega ekki síst
honum sjálfum – að eðlislæg forvitn-
in skyldi leiða til þess að hann stofn-
aði og rak síðan árum saman stórt og
glæsilegt fyrirtæki. Saga Flögu er
ekki aðeins glæsilegur minnisvarði
um líf og starf Helga sjálfs, heldur og
ekki síður um þá samstöðu og ein-
drægni sem ríkti í allri fjölskyldu
hans við gerð þess ævintýris.
Sól stattu kyrr! Þó að kalli þig sær
til hvílu – ég elska þig heitar.
Þú blindar mín augu, en þú ert mér svo kær
og eins hvort þú skín eða bæn minni neitar.
Ég sæki þér nær, þótt þú færir þig fjær –
þótt þú fallir í djúpið mitt hjarta til geisl-
anna leitar!
(Sig. Sig. frá Arnarholti.)
Það er sárt að fá ekki að sjá hann
framar, en þá er þess að minnast
hversu ljúft það var að eiga samleið
með Helga og Siggu og börnunum.
Þeirri samleið er alls ekki lokið.
Selma og Árni Tómas.
Afburða vísindamaður, sannur
mannúðarsinni, sá er síst skyldi, hef-
ur kvatt.
Í okkar hóp var hann margra
manna maki að vitsmunum og vilja
til skilnings og umbóta. Skar sig úr
lágkúru og grámyglu „conformism-
ans“.
Frumlegur í bestu merkingu. Tók
ekkert fyrir gefið. Hugsaði öðruvísi
en aðrir og nálgaðist verkefnin á per-
sónulegan hátt. Leit á hvern sjúk-
ling, hverja þjakaða mannssál „ex-
istentielt“ í upprunalegu, heim-
spekilegu merkingunni. Af ein-
lægum áhuga og virðingu fyrir
einstaklingnum, innri manninum.
Við fræðileg vinnubrögð og fram-
setningu veitti hann mér ómetanleg-
ar leiðbeiningar. Þrátt fyrir hina
miklu vísindalegu færni og innsæis-
hæfni hans – eða kannski einmitt
hennar vegna, var Helgi, taugalífeðl-
isfræðingurinn, andlega skyldari Bill
Wilson og Ronald Laing en höfund-
um nútíma greiningakerfa og tékk-
lista geðfræðanna.
Gott var að kynnast manni eins og
Helga Kristbjarnarsyni. Fráfall
hans harma ég mjög.
Magnús Skúlason.
Helgi, minn trausti vinur, er dáinn
og veröld mín er fátækari. Það var
gott að vita af honum. Helgi var góð-
ur hlustandi, skarpgreindur og ráð
hans einföld og vel ígrunduð. Hann
leysti oft úr vandræðum mínum og
einnig vina minna sem ég bað hann
fyrir. Það get ég aldrei þakkað hon-
um sem skyldi. Helgi kenndi mér þá
lífsspeki að trúa því, að allt fari vel.
Hefur mér reynst þetta ráð farsælt
og auðvelt að fylgja.
Helgi var mannvinur og mikill
hugsjónamaður alla tíð, en lét aldrei
þar við sitja að hugsa bara, heldur
hafði hann hugrekki til að fram-
kvæma. Hann áorkaði miklu á stuttri
ævi og þar má ekki gleyma hlut
Siggu, hans góðu konu, sem aldrei
dró úr honum heldur hvatti hann og
vann ávallt þétt við hlið hans. Sigga
og börnin þeirra, þau Birna, Tryggvi,
Halla, Kiddi og afastrákarnir voru
honum allt. Nú hafa þau misst svo
mikið og er hugur minn hjá þeim sem
og systrum Helga þeim Fanneyju og
Höllu. Bið ég góðan Guð að gefa
þeim styrk í þessari miklu sorg.
Guð blessi minningu Helga Krist-
bjarnarsonar.
Sigríður Hanna Jóhannesdóttir.
Við félagarnir fimm ásamt Helga
Kristbjarnarsyni sameinuðumst sak-
ir áhuga okka á mannrækt og al-
menningsfræðslu. Skömmu eftir að
við komum heim frá námi erlendis
stóðum við fyrir pistlum í Vikunni
þar sem við svöruðum spurningum
lesenda um ýmis mál tengd heil-
brigði og sjúkdómum. Reyndar
höfðu lesendur minni áhuga á okkur
en við á þeim og fór svo að við skrif-
uðum flestallar spurningarnar sjálfir
og svöruðum síðan sjálfum okkur.
Ritnefndarfundir urðu tilefni langra
umræðna um sjúkdóma og almanna-
heill í gamni og alvöru. Þarna naut
Helgi sín vel með sinni hæglátu at-
hygli og þeim hæfileika að greina
hismið frá kjarnanum.
Þessi skrif lognuðust út af eins og
mörg önnur mannanna verk en við
héldum áfram að halda hópinn. Sam-
skipti hópsins risu hæst í endurtekn-
um árshátíðum eða kvöldverðum
sem minntu einna helst á matarboðið
hennar Babette í sögu Karenar Blix-
en. Sá gleðskapur varð fljótlega að
leikhúsi fáránleikans þar sem menn
létu í ræðum gamminn geisa á hátíð-
legan hátt um allt og ekki neitt. Um-
gjörðin var glæsileg en innihaldið
eins og skopstæling á svo mörgu í því
samfélagi sem við eitt sinn gagn-
rýndum hvað mest. Þessar samkom-
ur voru eins og vin í þeirri eyðimörk
sýndarmennsku sem einkennir oft á
tíðum samtímann.
Þarna naut Helgi sín ákaflega vel.
Sérstæð greind, húmanískur mann-
skilningur og lúmskur og kaldrana-
legur húmor einkenndi ræður hans
og uppákomur sem lifa í minningu
okkar allra. Samkomur Vikuklúbbs-
ins munu aldrei verða sér líkar að
Helga gengnum. Nú er söngur villi-
andarinnar endanlega þagnaður.
Við vottum Siggu og börnum
þeirra djúpa samúð okkar.
Vikuklúbburinn,
Gestur, Jóhann, Leifur,
Óttar, Sigurður.
Við kynntumst Helga og fjöl-
skyldu hans fyrir rúmum tveimur
áratugum þegar þau komu heim á
Miklubrautina frá námi í Svíþjóð. Þá
vorum við nýflutt í húsið, ásamt fjór-
um börnum okkar, en þar bjuggu
einnig fleiri úr fjölskyldu hans.
Krakkarnir í húsinu höfðu lagt undir
sig garðinn og þar var oft líf og fjör.
Með komu þeirra hjóna bættust fjög-
ur börn í hópinn sem ekki lágu á liði
sínu að lífga upp á húsið. Með okkur
og börnunum tókust góð kynni, mikil
samheldni ríkti og oft var glatt á
hjalla.
Fljótlega kom í ljós að fjölskyldan
var öllum þeim eiginleikum búin sem
prýtt geta góða fjölskyldu og það fór
ekki fram hjá neinum að Helgi og
Sigga voru góðir foreldrar og öðrum
góð fyrirmynd, svo samstiga í öllu að
ætíð kom í hugann nafn beggja þeg-
ar annað var nefnt. Veislur voru tíðar
í húsinu enda tilefnin næg, afmæli,
fermingar og útskriftarveislur, og
var fjölskyldan einstaklega gestrisin
og góð heim að sækja. Sterkar hefðir
ríktu á gamalgrónu heimilinu og
gamlárskvöldin eru eftirminnileg.
Því gafst oft tími til samræðna og
duldist engum að hugmyndir Helga
um allt sem sneri að framförum í
læknisfræði voru vel ígrundaðar og
nýstárlegar enda kom í ljós að hann
var langt á undan sinni samtíð, einn
af fremstu vísindamönnum í fræðun-
um, frumkvöðull í eðli sínu. Helgi
gerði skýran mun á aðalatriðum og
aukaatriðum og nýtti sér tölvu-
tæknina til að koma hugmyndum
sínum í framkvæmd hratt og örugg-
lega. Hann hafði einstakt lag á að fá
fólk til að vinna með sér og kom það
vel í ljós í samvinnu okkar við gerð
og útgáfu Íslensku lyfjabókarinnar
sem markaði tímamót í upplýsingum
um lyf til almennings. Helgi var
greiðvikinn og óspar á þekkingu
sína. Því var gott að leita til hans
bæði sem nágranna og læknis. Fyrir
það viljum við þakka og vottum
Siggu, börnunum og fjölskyldunni
allri okkar dýpstu samúð.
Bessi, Una og börn.
Ég hitti Helga fyrst þegar ég var
nýkomin til starfa á Landspítalan-
um. Hann stóð í dyrunum á skrif-
stofu minni einn daginn, hæglátur og
prúður, og spurði hvort ég gæti gert
sér smávægilegan persónulegan
greiða. Tók fram að ég fengi ekkert
að launum nema vináttu sína. Síðan
eru liðin rúm 20 ár. Að leiðarlokum
vil ég þakka honum þessa vináttu
sem aldrei bar skugga á, vináttu sem
hefur verið mér verðmætari en lýst
verður með orðum.
Við komum hér á kveðjustund
að kistu þinni, bróðir,
að hafa við þig hinzta fund
og horfa á gengnar slóðir.
Og ógn oss vekja örlög hörð,
er ennþá koma í hópinn skörð,
og barn sitt faðmi byrgir jörð,
vor bleika, trygga móðir.
En minning þín er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri.
Með hverju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
Ef lífsins gáta á lausnir til,
þær ljóma bak við dauðans þil.
Og því er gröfin þeim í vil,
sem þráðu útsýn stærri.
(M.Á.)
Elsku Sigga mín. Á slíkum stund-
um eru orð lítils megnug. Við Viggó
sendum þér og fjölskyldunni okkar
innilegustu samúðarkveðjur og óskir
um styrk og huggun á erfiðri stund.
Hulda Lilliendahl.
Það er vont þegar vinir manns
deyja. Við slíka sorgarfregn verður
manni ljóst að líklega skiptir sam-
ferðafólk manns í lífinu meira máli
en það hvert verið er að stefna
hverju sinni.
Að vera samferða Helga Krist-
bjarnarsyni voru forréttindi. Hann
var einn af þessum mönnum sem
maður þekkti frá fyrstu tíð enda þótt
leiðir okkar lægju ekki saman fyrir
alvöru nema síðustu tvo áratugi.
Leyndardómar svefns og eðli svefn-
truflana voru sá vettvangur sem
leiddi okkur sitt úr hverri áttinni til
gefandi rannsóknarvinnu og ekki
síður hvetjandi umhverfis þar sem
Helgi var miðpunkturinn – stöðugt
með nýjar og spennandi hugmyndir.
Skortur á nauðsynlegum rannsókn-
artækjum stoppaði hann ekki í að
fullnægja meðfæddri forvitni að
komast til botns í rannsóknarverk-
efnum. Helgi hannaði og smíðaði ein-
faldlega þau tæki sem vantaði. Fyr-
irtækið Flaga varð að veruleika – í
dag leiðandi og ótvírætt hið stærsta
á sínu sviði í heiminum. Líklega er
aðeins fáum ljóst í okkar litla landi
hvílíkt stórvirki sköpun Flögu var –
alla tíð nátengd nafni Helga – eins og
viðbrögð frá vísindamönnum víða um
heim bera með sér við ótímabært
fráfall hans.
Við minnumst Helga þó fyrst og
fremst sem ljúflings í miðju sam-
hentrar fjölskyldu með Siggu sér við
hlið. Vinar, sem alltaf var til staðar,
tilbúinn að hlusta og ráðleggja.
Bryndís og Þórarinn.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 45
Helgi Kristbjarnarson læknir
var stór frumkvöðull sem vann
hörðum höndum að stofnun há-
tæknifyrirtækisins Flögu með
Siggu frænku og krökkunum.
Mikill missir er að Helga, bæði á
starfsvettvangi og í fjölskyldunni,
en hann hefur líka skilið eftir sig
svo ótal margt sem ber vott um
framsýni hans og drifkraft, mann-
gæsku og gáfur. Megi minning
Helga Kristbjarnarsonar lifa.
Steingerður, Ásgeir,
Hildur og Pétur.
„Skoðaðu hug þinn vel, þegar
þú ert glaður, og þú munt sjá, að
aðeins það, sem valdið hefur
hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna
þess, sem var gleði þín.“
(Kahlil Gibran.)
Elskulegi Helgi, okkar bestu
þakkir fyrir þína hlýju og vináttu.
Í hjörtum okkar þú stóran sess
átt.
Starfsmannafélag Flögu.
HINSTA KVEÐJA