Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Allt fyrir
námsmenn!
Láttu
Íslandsb
anka
sjá um
fjármáli
n.
www.isb.is
Sími 588 1200
FYRIRTÆKI í eigu íslenskra aðila
hefur keypt flak Guðrúnar Gísladótt-
ur KE sem liggur á hafsbotni
skammt frá Lofoten í Noregi. Sig-
mar Björnsson, útgerðarmaður hjá
Festi hf., vildi ekki gefa upp söluverð
flaksins en sagði að íslenskir björg-
unaraðilar ættu fyrirtækið. Salan fór
fram á þriðjudag. Ásbjörn Helgi
Árnason, framkvæmdastjóri Festar
hf., sagði í gær að niðurstaðan væri
viðunandi fyrir alla aðila.
Guðrún Gísladóttir KE sökk 19.
júní sl. og liggur nú á 40 metra dýpi.
Um borð í skipinu voru um 300 tonn
af olíu og tæplega 900 tonn af frystri
síld. Skipið var á leið til löndunar í
Leknesi á Lofoten og átti um þrjár
sjómílur ófarnar þegar það steytti á
skeri í sundinu Nappstraumen við
Lófóteyjar í Norður-Noregi og sökk
nokkrum dögum síðar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hyggjast nýir eigendur
skipsins ná því á flot og er stefnt að
því að björgunaraðgerðir hefjist
strax í næstu viku. Norska umhverf-
isráðuneytið úrskurðaði fyrir
skömmu að olían um borð skuli fjar-
lægð eigi síðar en 15. október næst-
komandi og að flakið skuli fjarlægt
af hafsbotni fyrir 1. maí á næsta ári.
Hinir nýju eigendur munu hafa rætt
við norsk yfirvöld og norska meng-
unarvarnareftirlitið um fyrirhugað-
ar björgunaraðgerðir og verða þær
gerðar í samvinnu við þessa aðila,
ásamt heimamönnum í Lofoten. M.a.
er gert ráð fyrir að norskir kafarar
taki þátt í aðgerðunum.
Flak Guðrúnar
Gísladóttur selt
SÝSLUMAÐURINN á Keflavíkur-
flugvelli hefur gert 31 starfsmanni í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar að greiða
sekt vegna brota á tollalögum en fólk-
ið keypti í óleyfi tollfrjálsan varning á
fríhafnarsvæði flugstöðvarinnar og
kom honum með einum eða öðrum
hætti út úr stöðinni.
Sektirnar eru flestar lægri en
10.000 krónur en 10 sektir eru á bilinu
10–20.000 krónur. Að sögn Sævars
Lýðssonar fulltrúa eiga aðeins þrír
eftir að greiða sektirnar. Upphaflega
voru 57 kærur gefnar út en 26 voru
felldar niður. Lögregla fékk veður af
háttsemi starfsmannanna þegar þeir
keyptu varning á útsölu í sportvöru-
búð í flugstöðinni. Í kjölfarið var leit-
að í skápum þeirra og fannst þá ýmiss
konar varningur frá mismunandi
verslunum. Í flestum tilfellum hafði
starfsfólkið komið vörunum á far-
þega, vini og vandamenn sem fóru
með hann út af tollfrjálsa svæðinu.
Fólkið starfar flest hjá Fríhöfninni.
Sektar 31
starfsmann
í Leifsstöð
HLUTFALLSLEGT verðlag vöru-
pakka með mat, drykkjarvörum og
tóbaki, sem kostar að meðaltali 100
evrur í 15 ríkjum Evrópusambands-
ins, er 154 evrur á Íslandi, eða 54%
hærra, samkvæmt nýjasta frétta-
bréfi Eurostat, opinberri tölfræði-
stofnun Evrópusambandsins.
66% hærra verð
á brauði og kornvöru
Matvæli eru að meðaltali 48% dýr-
ari hér, miðað við meðaltalsverð
ríkja ESB. Könnunin var gerð vorið
2001 og náði til 31 lands, það er 15
ríkja ESB, 13 landa sem sótt hafa
um aðild og Íslands, Noregs og
Sviss. Svo dæmi séu tekin er verð á
brauði og kornvöru 66% hærra en
meðaltalsverð innan ESB, 53%
hærra á kjöti, 3% hærra á fiski, 41%
hærra á mjólk, osti og eggjum, 50%
hærra á olíum og fitu, 38% hærra á
ávöxtum, 70% hærra á grænmeti
(þegar könnunin var gerð vorið
2001).
Matvörur á Íslandi
mælast 48% dýrari
Verð á matvælum/25
Könnun Eurostat á matvælaverði í 31 landi
STEFNT er að því að hefja eldi á
þorskseiðum í Vestmannaeyjum á
næsta ári og er fyrirhugað að fram-
leiðslan verði orðin um 8 milljónir
seiða eftir fimm ár. Undirbúningur
að stofnun seiðaeldisstöðvarinnar
hefur staðið í nær tvö ár og var stofn-
að sérstakt félag, Þorskur á þurru
landi ehf., til að standa að eldinu.
Eygló Þ. Harðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Þorsks á þurru landi,
segir að með þorskseiðaeldi sé kom-
in forsenda fyrir uppbyggingu ann-
ars stigs þorskeldis í Vestmannaeyj-
um, svokallaðs unglingaeldis þar
sem þorskseiðin eru alin upp í slepp-
anlega stærð í sjókvíar, allt frá 5 til
400 grömm. Hún segir að þessar
tvær stöðvar geti beint skapað allt að
því 30 ný störf en óbeint allt að því
fimm eða tífalt fleiri störf.
Kvíaeldi hentar ekki
Áætluð ársvelta fyrirtækjanna
myndi verða 800 til 1.200 milljónir
króna og er þá ónefndur hugsanleg-
ur stuðningur við ýmiss konar rann-
sókna- og þróunarverkefni. Eygló
segir að vegna umhverfisaðstæðna
við Vestmannaeyjar sé ólíklegt að
hægt verði að stunda þar kvíaeldi í
stórum stíl með núverandi tækni.
Hins vegar séu þar kjöraðstæður
fyrir þorskseiðaeldi þegar litið er til
umhverfisaðstæðna, landfræðilegrar
staðsetningar, sem og hæfni, vilja og
þekkingar í bæjarfélaginu.
Skapar
allt að 30
ný störf
Stefnt að þorskseiða-
eldi í Vestmannaeyjum
Þorskseiðaeldi/C16
HAUSTMÁNUÐUR er hálfnaður og
styttist óðum í fyrsta vetrardag sem
er 26. október. Skógarþrösturinn sá
arna hefur ekki þurft að kvarta und-
an köldu hausti í höfuðborginni en
býr sig undir veturinn með því að
safna forða úr berjum reyniviðarins.
Maðkar og flugur eru líka vinsæl
fæða hjá þrestinum en framboð á
slíku góðgæti fer nú heldur minnk-
andi. Þegar vetrarhörkur leggjast
yfir eru þrestirnir fljótir að venjast
matargjöfum fólks.
Morgunblaðið/Ómar
Býr sig undir
veturinn
UPP hefur komið bráðsmitandi
veirusýking á öldrunarheimilinu
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði
og eru aðgerðir hafnar af hálfu land-
læknisembættisins.
Á milli 50 og 60 manns hafa sýkst af
svokallaðri Calici-veiru sem veldur
hita, uppgangi, niðurgangi og bein-
verkjum. Bæði vistmenn og starfsfólk
hafa veikst en ekki er þó um hættu-
lega sýkingu að ræða, heldur aðallega
hvimleiða.
Veikir í 1–3 daga og jafna
sig af sjálfsdáðum
Guðrún Sigmundsdóttir, smitsjúk-
dómalæknir hjá landlæknisembætt-
inu, segir að veiran sé vel þekkt og
hafi skapað vandræði á fjölmennum
stöðum, s.s. á hótelum og skemmti-
ferðaskipum. Þeir sem sýkjast eru
veikir í 1–3 daga og jafna sig af sjálfs-
dáðum.
Ekki hefur verið þörf á sjúkrahús-
innlögnum vegna sýkinganna á öldr-
unardeildunum í Hafnarfirði og
Reykjavík, en lögð er áhersla á að fyr-
irbyggja útbreiðslu smitsins með því
að einangra sjúklinga inni á herbergj-
um og einangra deildir sömuleiðis.
Bráðsmitandi veiru-
sýking á Hrafnistu
TÍMI haustlaukanna hefur staðið
yfir að undanförnu og þeirra bíður
vetrarlöng dvöl áður en þeir skjóta
upp litríkum kollum sínum í vor.
Vandfundinn er einkagarður án
haustlauka og Reykjavíkurborg
passar upp á skreytingarnar hvað
opinbera staði snertir. Benedikt
Jónsson og Hrafnhildur Magn-
úsdóttir hjá garðyrkjudeild Reykja-
víkurborgar voru nýlega að setja
niður haustlauka við Spöngina í
Grafarvogi, þótt halda mætti við
fyrstu sýn að þau væru að taka upp
kartöflur í miðju íbúðarhverfi.Morgunblaðið/Kristinn
Niður með
haustlaukana
FJÖLDI skemmtistaða í
Reykjavík hefur ríflega tvö-
faldast á tíu árum. Borgin sjálf
er talin vera „inn“ eða í tísku
fyrir líflegt skemmtanalíf en
erfiðara virðist að greina hvaða
staðir njóta hylli á hverjum
tíma og hvers vegna. Í borginni
eru nú 74 skemmtistaðir af
ýmsum gerðum, einkum í mið-
borginni en úthverfabörum
hefur einnig fjölgað.
Skemmti-
staðir tvöfalt
fleiri en fyrir
10 árum
Fjölskrúðugt…/C8