Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 7

Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 7 Ódýr og vandaður vetrarfatnaður 4.999kr Flauels- jakki 2.999kr Flauels- buxur 999kr Bolur 2.999kr Galla- buxur 1.999kr Velúr- buxur 1.999kr Velúr- peysa 3.999kr Úlpa 2.499kr Hermanna- buxur 1.999kr Peysa verð áður 5,999.- verð áður 3,999.- verð áður 5,999.- verð áður 2,999.- verð áður 2,999.-verð áður 1,299.- verð áður 3,999.- Tilboðið gildir 10.-13. okt. eða meðan birgðir endast. 4.999kr Flauels- buxur 2.999kr Peysa S O L I D ÍSLAND tekur fullan þátt í 82 af þeim 360 nefndum á vegum Evr- ópusambandsins sem það á rétt á að taka þátt, í 105 nefndum tekur Ísland einhvern þátt en alls engan í 161 nefnd. Heildarferðakostnaður vegna þessa nefndastarfs nam um 104 milljónum króna í fyrra. Þetta eru meðal atriða sem koma fram í greinargerð um þátt- töku Íslands í nefndum á vegum framkvæmdastjórnar ESB en til- gangurinn var að kanna þátttök- una og skilgreina hvað mætti betur fara. Sinna þarf nefndarstarfinu Í greinargerðinni segir að hér sé um að ræða framkvæmd á um- fangsmesta alþjóðasamningi sem Ísland á aðild að og það verði menn að hafa í huga þegar þeir líti á kostnaðinn. Þá er á það bent að fulltrúar einstakra EES/EFTA-ríkja í um- ræddum nefndum koma þar fram fyrir sína þjóð en ekki til þess að halda á lofti sameiginlegum mál- stað EES/EFTA-ríkjanna. „Í ljósi umræðna um að staða EES-samningsins sé að veikjast skýtur skökku við að Ísland nýti sér ekki þann rétt sem samning- urinn veitir til aðgangs að nefnd- arstarfi Evrópusambandins þar sem lagður er grunnur að löggjöf þess. Ef þeim nefndum sem Ísland hefur aðgang að er ekki sinnt kunna íslenskir hagsmunir að vera fyrir borð bornir jafnframt því sem það kann að veikja samninginn,“ segir í greinargerðinni. Þá er vakin athygli á því að mun líklegra sé að koma að athuga- semdum og hafa áhrif þegar mál er enn á undirbúningsstigi enda minnki aðgangur EFTA-ríkjanna því ofar sem í stjórnsýslu ESB er komið. Stjórnvöld hafi því aðeins tækifæri til að hafa áhrif á mótun Evrópureglna, sem Íslendingar eru skuldbundnir til að taka í lög, meðan þær séu í undirbúningi hjá framkvæmdastjórn ESB, þ.e. með því að taka þátt í starfi vinnuhópa eða sérfræðinganefnda. Í minnisblaði utanríkisráðherra til ríkisstjórnar er lagt til að ráðu- neytunum verði falið að endur- skoða þátttöku Íslands í nefndum ESB með það að markmiði að auka hana og og starfsemi sem henni tengist og kannað verði hvort ástæða sé til þess að stofna sér- stakan ferðasjóð í þeim tilgangi. Þátttaka Íslands í nefndum ESB Kostar um 104 milljónir NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna, eigendur Haffjarðar- ár, Veiðifélag Selár, Veiðifélag Vesturdalsár og Veiðifélag Hofs- ár hafa sent Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra bréf þar sem þeir óska eftir tölulegum upplýsingum um öll laxaseiði sem hafa verið flutt í sjókvía- stöðvar í Mjóafirði og Seyðisfirði seinustu tvö árin auk þess sem þeir lýsa áhyggjum sínum af því hvernig eftirliti með eldisstöðv- unum sé háttað. „Óskað er eftir skilmerkilegum upplýsingum um afdrif allra seið- anna, merkingarhlutfall og hvernig töluleg staða er nú. Jafn- framt er óskað eftir að fá afrit af gildandi rekstrarleyfum sem gef- in hafa verið út fyrir sjókvía- stöðvarnar ásamt nákvæmum upplýsingum um hvernig staðið er að eftirliti með þessum stöðv- um og lista yfir þær fiskeldis- stöðvar sem hafa nú rekstrar- leyfi. Lýst er áhyggjum yfir því hvernig eftirliti með starfsemi stöðvanna í Mjóafirði og Seyð- isfirði er háttað og að ekki komi fram reglulega upplýsingar er varða stöðu, vandamál og strok laxa sem geta haft áhrif á vist- kerfið,“ segir í bréfinu til land- búnaðarráðherra. Hagsmunaaðilar gagnrýna sjókvíaeldi á norskum laxi Óttast að eftirliti sé ábótavant alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.