Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 18

Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ afmælisafsláttur -25% af Zeiss kontaktlinsum -25% af nýjum sjónglerjum OPTICAL STUDIO SMÁRALIND SIMI 528 8500 PX LE T U R V A L • 102 10. TIL 13. OKTÓBER MIKIÐ hefur áunnist í málefnum fatlaðra á þeim aldarfjórðungi sem Þroskahjálp á Suðurnesjum (ÞS) hefur verið starfandi. Félagið var stofnað 10. október 1977 og er því 25 ára í dag en haldið verður upp á af- mælið næstkomandi sunnudag. Eitt af baráttumálum félagsins á afmælisárinu er að komið verði á fót einni sérdeild fyrir alla grunnskóla Reykjanesbæjar. Stjórn ÞS sendi frá sér ályktun þess efnis á aðalfundi í vor en áður hafði sérkennslufulltrúi Skólamálaskrifstofu Reykjanesbæj- ar borið þessa hugmynd sína undir stjórnina. Starfsemin vatt upp á sig Að sögn Gísla Jóhannssonar fram- kvæmdastjóra er þetta til marks um ákveðinn viðsnúning í starfsemi fé- lagsins. „Félagið hefur alltaf þurft að berjast fyrir því að fá þjónustu en nú hefur verið leitað til félagsins með hugmynd að bættri þjónustu. Þessi þróun er mjög ánægjuleg,“ sagði Gísli í samtali við Morgunblaðið. Þroskahjálp á Suðurnesjum var stofnað af foreldrum sex fatlaðra barna sem allir höfðu brennandi áhuga á því að bæta úr þeim erfiðu skilyrðum sem börn þeirra bjuggu við á Suðurnesjum. Öll þurftu þau að aka börnum sínum til Reykjavíkur til að sækja þjónustu og voru flest í félagsskap þar sem hét Foreldra- félag barna með sérþarfir. Þótt í upphafi hafi verið ákveðið að félagið myndi ekki standa í rekstri kom fljótlega í ljós að hjá því yrði ekki komist, lítil þjónusta á svæðinu knúði á um það. „Leikfangasafn ÞS var fyrsti reksturinn sem félagið fór út í. Það var myndarlegur stuðningur Kiwan- ismanna sem varð þess valdandi að safnið var sett á laggirnar og Kiw- anismenn hafa stutt mjög dyggilega við bakið á félaginu allar götur síðan, ásamt mörgum öðrum félagasam- tökum, einstaklingum og fyrirtækj- um. Eftir að leikfangasafnið tók til starfa 1979 tók eiginlega hvert verk- efnið við á fætur öðru og starfsemin vatt heldur betur upp á sig. Næsta verkefni var sjúkraþjálfun, en þá þjónustu þurftu börnin að sækja til Reykjavíkur. Þegar ÞS var komið með þessa tvo rekstrarþætti í leigu- húsnæði á tveimur stöðum fóru menn að velta fyrir sér hvort félagið þyrfti ekki að eignast eigið húsnæði utan um starfsemina,“ sagði Gísli um fyrstu uppvaxtarár félagsins. Frá ríki yfir til sveitarfélaga? Hús ÞS að Suðurvöllum 9 var formlega tekið í notkun á vormán- uðum 1982 og rúmum tveimur árum síðar var risið annað við hliðina. Báð- um húsum Þroskahjálpar var við vígslu þess síðara gefið sameiginlega nafnið Ragnarssel í minningu eins af skjólstæðingum félagsins, Ragnars Ingiþórssonar, sem lést 10. október 1983. Margir sjálfboðaliðar komu að verkinu ásamt stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum en félagið hef- ur alla tíð notið mikillar velvildar al- mennings. Sú þjónusta sem Þroskahjálp á Suðurnesjum veitir fötluðum og for- eldrum þeirra er margþætt og að sögn Gísla hefur mikil orka og tími farið í reksturinn, sem oft og tíðum hefur verið þungur í vöfum. „Við er- um með dagvistun, leikfangasafn, foreldraráðgjöf, sjúkraþjálfun og ýmiss konar félagastarfsemi. Auk þess rekum við vinnustað fyrir fatl- aða, Dósasel, sem er aðalfjáröflunar- lind félagins. Þetta 25 ára tímabil í sögu félagsins hefur verið tími mik- illa framkvæmda og rekstrar. Rauði þráðurinn í öllu þessu hefur þó alltaf verið vinna í þágu fatlaðra undir kjörorðinu Þjónusta fyrir fatlaða – okkar skylda. Það sem við viljum sjá gerast er að málefni fatlaðra flytjist úr höndum ríkisins yfir til sveitarfé- laga og nægilegt fjármagn fylgi flutningnum til að tryggja lög- bundna þjónustu. Þetta hefur verið í umræðunni frá árinu 1994 og nú átta árum síðar hefur enn ekkert gerst.“ Afmælishátíð Þroskahjálpar á Suðurnesjum. fer fram í Stapa nk. sunnudag kl. 14 til 16 og eru velunn- arar félagsins hvattir til að taka þátt í afmælisgleðinni. Meðal annars verður gullmerki félagsins afhent, en það er veitt einstaklingum fyrir fórnfúst og gott starf í þágu félags- ins. Starfsemi Þroskahjálpar á Suðurnesjum hefur vaxið stöðugt og fagnar nú aldarfjórðungsafmæli Morgunblaðið/Svanhildur Börnin á Ragnarsseli voru úti að leika sér í góða veðrinu í gærdag en gáfu sér þó tíma til að stilla upp fyrir myndatöku. Þau eru, í efri röð frá vinstri: Bjarni Valur, Ari Ægis, Bergur, Thelma Rut og Adam. Og í neðri röð eru: Eygló, Ari Páll, Svanfríður, Ásdís og Ástvaldur. Vilja eina sérdeild fyrir alla skólana Suðurnes STEFÁN Karl Stefánsson leikari mætti í sal Grunnskóla Grindavíkur til að flytja erindi um einelti. For- eldrafélagið fékk Stefán til að koma og aldrei fyrr hefur annar eins fjöldi komið til að hlýða á erindi á vegum Foreldrafélags Grunnskóla Grinda- víkur. Húsfyllir var, um 230 manns, en í skólanum eru 430 nemendur alls. „Við hringdum í hann og vorum að hugsa um fund jafnvel eftir áramót en þar sem hann gat hitt okkur núna með nánast engum fyrirvara stukk- um við á hann. Það sem Stefán er að gera vekur athygli og hann er að vinna frábært starf eins og sést á mætingunni hér í kvöld,“ sagði Þor- steinn G. Kristjánsson, formaður Foreldrafélagsins. Stefán vék í byrjun aðeins að ótrú- legum samningi fyrirtækja við sam- tök sem hann ásamt öðrum er að koma á laggirnar. Þessi samningur er við Vífilfell, Búnaðarbankann o.fl. og gerir samtökunum, Regnboga- börnum, fært að starfa til langs tíma. Samtökin verða formlega stofnuð 17. október næstkomandi. Fram kom í máli Stefáns að fyr- irlestrarnir hans eru orðnir yfir 400, á fjórum árum. Á fundunum kemur aldrei það sama fram enda notar Stefán ekki tölvur, myndbönd eða aðra miðla heldur biður hann fólk um að nota eyrun og líkti fundum sínum við miðilsfundi. Þagnir kæmu, hann dytti út og svo framvegis. „Ég vil hafa þetta létt og skemmtilegt við hliðina á alvörunni,“ sagði Stefán. Það má til sanns vegar færa að fólk hafi bæði hlegið og grátið á þessum fundi enda Stefán laginn við að halda athyglinni og fá fólk til að hugsa. Svartsýnn í dag Stefán sagði frá því hve mikilvægt það er að þekkja börnin okkar og vita hvernig þeim líður. „Ég hef horft á börn sem eru dáin! Ég hef verið kall- aður 52 sinnum til vegna sjálfsvígs- tilrauna barna. Það er fullt af 6 ára börnum sem vilja deyja og jafnvel í leikskólunum líka. Við vinnum of mikið og eyðum ekki nægjanlegum tíma í börnin. Ég er svartsýnn. Svona er þetta í dag,“ sagði Stefán. Þá velti hann upp atriðum eins og netnotkun barna og þeim punkti hverjir fylgdust með börnunum? Hvað með tölvuleikina og innihald þeirra? sagði Stefán. Í spjalli við blaðamann vildi Stefán koma á framfæri þakklæti til þjóð- arinnar fyrir góðar móttökur, hlýhug og hvatningu sem hann hefur orðið var við. „Það er mikið að gerast í þessum málum, verið að opna heima- síðu, opnaður verður reikningur fyr- ir almenn framlög og í raun mikil- vægt að við leggjum öll hönd á plóginn í þessu mikilvæga málefni,“ sagði hann. Stefán Karl Stefánsson með fyrirlestur um einelti í grunnskólanum Metaðsókn hjá foreldrafélagi Grindavík Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Húsfyllir var á erindi Stefáns Karls Stefánssonar um einelti í skólanum. ROLLING Stones-kvöld verður á Vitanum í Sandgerði nk. laugardag. Hljómsveit Péturs Kristjánssonar heldur uppi stemningunni með því að leika öll gömlu og góðu Stones- lögin og Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður segir sögu hljómsveitar- innar. Húsið verður opnað klukkan 22 fyrir þá sem ekki eru í mat og dagskráin hefst klukkan 22.30. Rolling Stones- kvöld á Vitanum Sandgerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.