Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 31
40%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM
FRÁ FIMMTUDEGINUM 10. OKT. TIL LAUGARDAGSINS 12. OKT.
OPIÐ
mán.-fös. kl. 12-18
lau. kl. 10-16
HAUSTSPRENGJA
SUÐURLANDSBRAUT 54, sími 533 3109.
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
10
11
/
TA
K
T
ÍK
-
N
r.:
28
B
Þjóðarbókhlaða Hólmfríður Tóm-
asdóttir bókasafnsfræðingur kynnir
gamalt óútgefið íslenskt efni í fórum
einstaklinga í Kanada kl. 17–18.
Þar á meðal eru sýnishorn úr bréfum,
frásögn á íslensku sögð af manni af
þriðju kynslóð vesturfara og mynd-
band um 93 ára gamlan mann sem
ennþá fæst við matargerð á hefð-
bundnum íslenskum mat.
Hólmfríður mun einnig kynna gagna-
grunn sem efnið er skráð í.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7
Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir,
listfræðingur á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, heldur fyrirlestur kl.
17-18. Fyrirlesturinn nefnir hún
„Ljósmyndir af hugsunum -
súrrealisminn og endurfæðing ljós-
myndunar“ og er haldinn í tilefni af
ljósmyndasýningunni Þrá augans
sem nú stendur yfir í safninu.
Súfistinn, Laugavegi Bækurnar
sem mótuðu mig er yfirskrift dag-
skrár sem hefst kl. 20 á vegum Bóka-
kaffis Íslandsdeildar IBBY og SÍ-
UNG.
Steinunn Jóhannesdóttir og Ármann
Jakobsson spjalla við gesti um bækur
sem hafa lifað með þeim allt frá æsku.
Mótel Venus, Hafnarskógi, Borg-
arfirði Tríó Björns Thoroddsen held-
ur djasstónleika kl. 20.30. Tríóið
skipa, auk Björns, Jón Rafnsson,
bassi, og Dan Cassidy, fiðla. Sér-
stakur gestur Björns verður gít-
arleikarinn Gunnar Ringsted. Flutt
verður m.a. tónlist af nýjum geisla-
diski Björns, Jazz í Reykjavík.
Tónleikarnir marka upphaf á 36.
starfsári Tónlistarfélags Borg-
arfjarðar.
Í DAG
Í BORGARLEIKHÚSINU eru hafn-
ar æfingar á einleikjunum Herpingi
eftir Auði Haralds og Hinum full-
komna manni eftir Mikael Torfason.
Frumsýning, sem er á vegum
Draumasmiðjunnar, verður fimmtu-
daginn 24. október á 3. hæð leik-
hússins.
Herpingur fjallar um einstæða
konu sem er í tilvistarkreppu og
skoðar lífshlaup sitt yfir minning-
argreinum Morgunblaðsins og
kaffibollanum. Hún rifjar upp fyrr-
verandi elskhuga sína og veltir fyrir
sér göllum þeirra og kostum. Leik-
ari er Margrét Pétursdóttir. Andrea
Gylfadóttir hefur valið og flytur
tónlistina. Leikstjóri er Gunnar
Gunnsteinsson.
Hinn fullkomni maður fjallar um
mann sem er í áfengismeðferð, sem
hann fór í eingöngu til að bjarga
þriðja hjónabandinu. Hann er óvæg-
inn og ósáttur og hefur ótal skýr-
ingar á því hvers vegna svona er
komið fyrir honum.
Leikari er Gunnar Gunnsteinsson,
leikstjóri Hilmir Snær Guðnason.
Æfa tvo
einleiki
Morgunblaðið/Golli
Gunnar Gunnsteinsson og Margrét Pétursdóttur eru leikarar í einleikj-
unum. Andrea Gylfadóttir, t.v., sér um tónlistina.
Á BIÐSTOFU sálfræðings bíður
fólk. Á meðan sálfræðingurinn sinnir
einum af öðrum, birtast nýir sjúkling-
ar á biðstofunni og allir virðast tengj-
ast á einhvern hátt.
Á þeim stuttu 30 mínútum sem
leikritið varir er eðlilegt
að ekki takist að byggja
upp margar sterkar
persónur sem maður
veit hvað vilja. Hér eru
þær allar í ókunnu rými
sem segir ekkert um
þær, en það sést þó
glitta í persónueinkenni
undir umfangsmiklu yf-
irborðinu sem einkenn-
ir þetta fólk.
Persónurnar virðast
sem sagt allar lifa mjög
yfirborðskenndu lífi
samkvæmt samtölun-
um. Allt snýst um efn-
isleg gæði og þjónusta á
öllum sviðum er tekin
sem sjálfgefin. Það er sama hvernig
þau reyna að verða hamingjusöm,
þeim tekst það ekki. Kannski af því að
það er ekki hægt að fara til sálfræð-
ings og láta hann „lækna sig“, maður
verður „því miður“ sjálfur að horfast í
augu við sjálfan sig. Maður verður
sjálfur að reyna. En gera þau það?
Persónurnar sjást reyna að tjá sig
inni hjá sálfræðingnum, en koma ekki
upp einu orði, heldur stynja bara og
dæsa. Eða kannski er það það eina
sem okkur er sýnt? Okkar að velja.
Það er skemmtilegt að sjá hvernig
leikhúsfólk einsog Benedikt og Hraf-
hildur hafa strax gripið þennan
möguleika, að sýna eða sýna ekki,
sem kvikmyndaformið getur miklu
meira leikið sér með en leikhúsið.
Einungis ein persóna, símadaman,
tekur ráðin í sínar hendur. Sú sem
síst virðist hafa efni á því að kaupa sér
alla þá þjónustu sem í boði er, leysir
sinn sálræna vanda með því að gleðj-
ast yfir óvænt styttri vinnudegi og
njóta lífsins. Kannski ekki mjög raun-
hæft – en strax í áttina þó.
Leikararnir eru allir sannfærandi,
en skemmtilegust er Ólafía Hrönn í
hlutverki símadömunnar. Alltaf er
hún jafn yndisleg með þessa húmor-
ísku útgeislun sem færði kærkominn
léttleika og kímni yfir verkið sem
undirstrikuð var með tónlistinni sem
hún hlustaði á.
Sjónvarpið er greinilega að nota
aftur hugmyndina um að láta nokkra
höfunda spinna upp sögu sem gerist í
sama rýminu, líkt og gert var í fyrra
með nokkrum verkum
sem gerðust á ljós-
myndastofu.
Biðstofan er flott,
þótt hún gefi litla mögu-
leika á að segja eitthvað
um persónurnar. Og
segjast verður að undir
stjórn Ágústs Jakobs-
sonar er kvikmyndatak-
an mjög smekkleg, og
faglegri en nokkurn
tímann áður. Á lýsingin
þar kannski stærstan
þátt.
Annars finnst mér
undarlegt hversu tor-
skilin og jafnvel tilgerð-
arleg þessi tvö seinustu
sjónvarpsleikrit hafa verið, en 22.
september var sýnt verk eftir Ragnar
Bragason Allir hlutir fallegir. Þessi
hugmynd Hrafnhildar finnst mér t.d
mjög áhugaverð, og góður punktur í
algleymi neyslusamfélagsins, þar sem
allt gengur kaupum og sölum, og
fjórðungur Íslendinga notar tauga-
og geðlyf (það er ekki nema von að
allir þekkist á biðstofunni!) Þess
vegna hefði ég svo gjarna viljað sjá
auðskiljanlegra verk koma frá þess-
um hæfileikaríka höfundi, verk sem
sem flestir hefðu geta tengt við. Því ef
sjónvarpsleikritin eru ekki fyrir
áhorfendurna, fyrir hvern eru þau
þá?
Erum við að
reyna?
SJÓNVARPSMYND
Ríkissjónvarpið
Leikstjórn: Benedikt Erlingsson. Handrit:
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir.
Stjórn kvikmyndatöku: Ágúst Jak-
obsson. Förðun: Ragna Fossberg. Aðal-
hlutverk: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Hilmar Jónsson, Mar-
grét Helga Jóhannesdóttir, Steinn Ár-
mann Magnússon og Halla Vilhjálms-
dóttir. 30 mín. Labrador/RÚV 2002. Sýnt
í Sjónvarpinu 29. september 2002.
HVERNIG SEM VIÐ REYNUM
Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir
Hildur Loftsdóttir
Raven Gunnar – a
saga of thirteenth
century Iceland
er skáldsaga eftir
Terry G. Lacy. Höf-
undur færir les-
andann inn í lif-
andi heim drengs
á sögutímum 13.
aldar. Við fylgj-
umst með uppvexti hans, bardögum
og baráttu, ástum og vonbrigðum þar
sem deilur og eldgos á Íslandi skapa
bakgrunn. Hann lét eftir sig merki-
legan arf.
Fyrsta bók Terry G. Lacy hét Ring of
Seasons: Iceland – Its Culture and
History.
Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Nýút-
komin bók Terry G. Lacy veitir Íslend-
ingum nýja sýn á þetta mikilvæga
tímabil í sögu Íslands. Öðrum les-
endum opnar hún dyr inn í heim sem
gerir íslensku þjóðina einstaka í fjöl-
skyldu þjóða.“
Höfundur gefur sjálfur út en Há-
skólaútgáfan dreifir. Bókin er 295
bls. Verð: 2.450 kr.
Skáldsaga