Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 41 Spennandi haustlitir: PURPLE RAIN Haust- og vetrarlitirnir 2002-2003 Hönnun Fred Farrugia Heimsæktu www.lancome.com PANTIÐ TÍMA Í FRÍA FÖRÐUN OG RÁÐGJÖF. Veglegir kaupaukar Snyrtifræðingur verður í versluninni fimmtudaginn 10. og föstudaginn 11. október og gefur góð ráð varðandi förðun og notkun snyrtivara. Mjódd, sími 557 3390. Nánari upplýsingar og pantanir í Hlíðasmára 15, Kópavogi, í síma 585 4100 og urvalutsyn.is Ferðaáv ísun Mastercard g i ld i r 5 .000 Úrvals-Bændaferð/Aðventuferð til Trier í Þýskalandi 24. nóv. til 1. des. 2002 ÚRVALSBÆNDAFERÐIR ERU FYRIR ALLA LANDSMENN EIGUM SÆTI LAUS Í ÞESSA FRÁBÆRU AÐVENTUFERÐ Innifalið er allt eftirfarandi: Fyrir utan íslenska fararstjórn eru innifaldir á fjögurra stjörnu lúxus hóteli ríkulegir morgunverðir (hlaðborð) auk aksturs og flugvallarskatta. Skoðunarleiðangur um bæinn. Fjórir kvöldverðir með fararstjóra á margvíslegum veitingastöðum m.a. skoðunarferð til Bernkastel og Enkirch sem endar hjá vínbónda með tilheyrandi vínsmökkun og kvöldmat, hrein veisla. Verð í tvíbýli kr. 79.000 Aukagjald fyrir einbýli kr. 17.000 Fararstjórinn Friðrik G. Friðriksson (Frissi) „ÞÚ ERT nú geðveikur og átt eftir að drepa einhvern.“ Eftir að maður með geðsjúkdóm varð manni að bana fyrir skömmu hefur umræðan farið mörg ár aftur í tímann hvað varðar fordóma og stimplun vegna geðsjúkdóma. Þessi setning sem sögð var við einn af fastagestum Vinjar í síðustu viku segir sína sögu og lýsir vel því við- horfi að geðsjúkdómur og persóna sé eitt og hið sama. Vin er athvarf fyrir geðfatlaða í Reykjavík sem Rauði kross Íslands rekur og þangað koma um 30 manns á dag. Markmiðið er að draga úr fé- lagslegri einangrun, endurinnlögn- um á geðdeildir svo og vekja athygli á högum geðfatlaðra. Á þeim tæpu 10 árum sem Vin hefur verið starfrækt hefur þeim sem eiga við alvarlega geðfötlun og vímefnavandamál að stríða stöðugt farið fjölgandi. Orsakir þess eru fjölþættar eins og fram hef- ur komið í greinum aðstandenda á undanförnum vikum, en það er ljóst að þessi hópur fær ekki þá þjónustu sem hann á rétt á skv. lögum. Síðast- liðin ár hafa fleiri heimilislausir kom- ið í Vin og fjárhagsaðstæður margra gesta eru mjög bágbornar. Eins og fram hefur komið hjá lögreglunni rekur hún nokkurskonar „næturgist- ingu“ og koma sumir næturgestir hennar í Vin yfir daginn, fá að borða, þiggja bað- og þvottaaðstöðu. Hefur það verið starfsfólki undrunarefni hve lélega heilbrigðisþjónustu – ef einhverja – þessir einstaklingar hafa fengið, jafnvel þegar þeir hafa verið sem verst haldnir af sínum geðsjúk- dómi og líkamlega mjög illa á sig komnir. Talað hefur verið um „tikk- andi tímasprengjur“ í fjölmiðlum. Þá er verið að tala um marga einstak- linga, sem jafnvel eru sviptir sjálf- ræði með dómi og eru taldir sjálfum sér og öðrum hættulegir en enginn ber ábyrgð á að sinna. Þegar starfs- fólk í Vin hefur reynt að fá inni fyrir suma af þessum einstaklingum hefur viðkvæðið oft verið að þeir hafi enn ekki gert neitt alvarlegt af sér svo hægt sé að loka þá inni. Er hægt að lýsa yfir öðru eins stefnuleysi í þess- um efnum? Hversu margar nefndir á að stofna til að funda og gera drög að geðheilbrigðismálum? Það er nú viðurkennt að þeir sem þjást af geðröskunum og aðstand- endur þeirra eigi að fá góða meðferð og eftirfylgni. Að stuðla að forvörn- um og geðrækt er viðurkennt um all- an heim sem grundvöllur heilbrigðis almennt. Endurhæfing er forvörn sem allir eiga að hafa aðgang að og fræðsla og samvinna er þar lykilat- riði. Fjölmiðlar hafa líka ábyrgð í þess- um efnum, sársaukinn sem geðsjúk- dómum fylgir er nægur fyrir sjúka og aðstandendur. Hugsunarlaus um- fjöllun sem eykur á fordóma og stimplun er óþarfi. Fundir og nefndir en engin stefnumótun! Eftir Guðbjörgu Sveinsdóttur og Björgu Haraldsdóttur „Endurhæfing er forvörn sem allir eiga að hafa aðgang að …“. Guðbjörg er geðhjúkrunarfræð- ingur og forstöðumaður Vinjar. Björg er geðsjúkraliði og verk- efnastjóri í Vin. Björg Haraldsdóttir Guðbjörg Sveinsdóttir TILLAGA okkar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stórlækkun fasteignaskatta á eldri borgara og öryrkja sem við lögðum fram 5. september sl. var aftur til umræðu á fundi borgarstjórnar mánuði síðar eða 3. október sl. í tengslum við til- lögu F-listans um hækkun skatt- leysismarka. Eins og borgarbúum er væntanlega kunnugt var tillaga okkar felld með öllum atkvæðum R- listans en fulltrúi F-listans sat hjá. Enn urðum við vitni að málefnafá- tækt fulltrúa þessara lista. Við hlýddum á þá rökstyðja afstöðu sína og afstöðuleysi sem ég hirði ekki lengur að elta ólar við. Nið- urstaðan er skýr. Þessir fulltrúar sem iðulega telja sig bera hag þeirra sem minna mega sín helst fyrir brjósti komu í veg fyrir að dregið yrði úr álögum á eldri borg- ara og öryrkja með því að lækka fasteignagjöld þeirra enn frekar. Lækkun fasteignagjalda hefur verið eitt af baráttumálum samtaka aldr- aðra en viðbrögðin í þessu máli er algjör þögn. Það mætti heyra saumnál detta. Já, hún er skrýtin þessi pólitík. Fasteignaskatt- ar ekki lækkaðir Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur Höfundur er borgarfulltrúi. „Lækkun fasteigna- gjalda hefur verið eitt af baráttu- málum samtaka aldr- aðra en viðbrögðin í þessu máli er algjör þögn.“ Íris andlitslínan frá WELEDA. Engin aukaefni. Hentar öllum húðgerðum Þumalína Skólavörðustíg 41 Alltaf á þriðjudögum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.