Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 42

Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 42
UMRÆÐAN 42 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVERNIG reiðir þeim af sem hlotið hafa varanlega fötlun af völd- um geðsjúkdóms? Hvernig líður þeim í þjóðfélaginu okkar og hver hugsar um þá? Þetta er spurning sem alltaf kemur upp annað slagið og einkennist umræðan oft af úr- ræðaleysi og ringulreið. Það er stundum pottur brotinn í þjónustu við þessa einstaklinga og fyrir því geta verið margar ástæður. Oft er um hróplegt vanmat að ræða á því hversu sjálfbjarga geðsjúkur ein- staklingur er og skapast það af van- mati á þeirri fötlun sem geðsjúkdóm- ur getur valdið. Eru það lífsgæði að búa í eigin húsnæði ef getan til að sinna athöfnum daglegs lífs er nán- ast engin? Bjóðum við einstaklingi í hjólastól upp á það að búa í íbúð þar sem þröskuldar eru inn í hvert her- bergi? Það má samt alls ekki útiloka að þessir einstaklingar geti búið ein- ir en það þarf að tryggja þeim nauð- synlega þjónustu heim og byggja fyrir þá brú til þess stuðnings sem þeir þurfa meðan þeir búa einir eða í litlum búsetueiningum með öðrum geðfötluðum einstaklingum. Grund- völlur þess að viðkomandi ráði við þess háttar búsetu er að viðeigandi lyfjameðferð sé til staðar og henni fylgt eftir. Ef misbrestur er á lyfja- meðferð er yfirleitt þörf á langtíma stuðningi og endurhæfingu/hæfingu á sjúkradeild. Geðsjúkdómar eru í eðli sínu þannig að slæm geðræn ein- kenni hverfa ekki á einum degi nái þau að blómstra. Það er þessi tími sem geðsjúkur einstaklingur hefur oft ekki innsæi í að þörf sé fyrir og niðurskurður í heilbrigðiskerfi og hraði þjónustunnar hentar þessum sjúklingahópi mjög illa og bitnar oft hart á honum. Stór hluti geðfatlaðra einstaklinga vinnur vel í sínum mál- um í baráttunni við sjúkdóminn og leitast við að lifa góðu lífi og til þess getur viðkomandi fengið stuðning frá starfsfólki heilbrigðisþjónust- unnar og félagsþjónustunnar í land- inu. Þessi þjónusta getur verið margþætt og einstaklingsbundin, allt frá þjónustu í nokkra klukkutíma á dag og upp í sólarhringsþjónustu og sennilega er þörfin fyrir sólar- hringsþjónustu mjög vanmetin. Það er svo von mín að umræða um mál- efni geðsjúkra í fjölmiðlum verði á jákvæðum nótum þannig að fordóm- ar minnki gagnvart geðsjúkum í þjóðfélaginu. Geðsjúkir eru upp til hópa gott fólk sem gerir litlar kröfur til samfélagsins og þurfa á stuðningi og samborgara sinna að halda. Lífsgæði geðfatlaðra einstaklinga Eftir Ingibjörgu Hrönn Ingimarsdóttur Höfundur er geðhjúkrunarfræð- ingur og forstöðumaður búsetuþjón- ustu fyrir geðfatlaða hjá Fé- lagsþjónustunni í Reykjavík. „Ef mis- brestur er á lyfjameðferð er yfirleitt þörf á lang- tíma stuðningi og end- urhæfingu/hæfingu á sjúkradeild.“ ÁRIÐ 1995 tók stjórn Um- hyggju, félags til stuðnings lang- veikum börnum, þá ákvörðun að leita eftir því að félagið yrði að regnhlífarsamtökum fyrir foreldra- félög langveikra barna. Árangurinn af þeirri vinnu er að í dag eru að- ildarfélög Umhyggju þrettán tals- ins og fleiri foreldrahópar hafa áhuga á þátttöku. En í allri þeirri vinnu kom í ljós hvað ástandið var slæmt í hópi langveikra barna. For- eldrar voru almennt illa upplýstir um réttindi sín og barna sinna, mikill munur var t.d. á réttindum langveikra barna og fatlaðra barna. Síðan þá hefur umræðan um ein- hvers konar þjónustumiðstöð farið ört vaxandi. Á síðustu árum hefur ástandið sem betur fer tekið tals- verðum breytingum. En betur má ef duga skal. Það er mikið áfall fyrir fjölskyldu þegar barn greinist með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm. Oft á tíðum er óljóst hvað er framundan og of- an á áhyggjur af heilsufari barnsins bætast oft áhyggjur af fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar. Mikilvægt er fyrir fjölskylduna að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um ýmis réttindamál og stuðning á þessum erfiðu tímum. Rannsókn Huldu S. Guðmundsdóttur sálfræðings, frá árinu 1999, leiddi í ljós að veruleg- ur hluti foreldra langveikra barna telur þörf á aukinni þjónustu á þessu sviði. Af þessum sökum vinn- ur Umhyggja að undirbúningi á opnun þjónustumiðstöðvar fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Í stórum dráttum má skipta starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar í fjóra þætti: Daglegan rekstur Umhyggju, rekstur Styrktarsjóðs Umhyggju, þjónustu við aðildar- félög og aðstoð við aðstandendur langveikra barna. Helstu áherslur í starfi Um- hyggju eru: Bætt umönnun og aðbúnaður langveikra barna, bæði innan sjúkrahúsanna og úti í samfélaginu, að félagsleg réttindi séu tryggð og mannréttindi langveikra barna séu virt með hliðsjón af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að upplýsa stjórnvöld, skóla og almenning um hina ýmsu sjúkdóma sem hrjá langveik börn. Að veita foreldrafélögunum stuðning í störfum þeirra. Hlutverk styrktarsjóðsins er að styrkja fjölskyldur langveikra barna sem orðið hafa fyrir veruleg- um fjárhagsörðugleikum vegna veikindanna. Á þessu þriðja starfs- ári sjóðsins sést að þörfin er mikil. Stór hluti foreldra langveikra barna á í gífurlegum fjárhagserf- iðleikum. Aðildarfélög Umhyggju eru þrettán talsins. Félögin starfa að málefnum barna með mismunandi sjúkdóma og eru mjög ólík að stærð, en flest þeirra eiga það sam- merkt að hafa ekki bolmagn til að reka eigin skrifstofu. Þjónustumið- stöðin gæti að verulegu leyti komið til móts við grunnþarfir félaganna með því að veita þeim aðgang að skrifstofu og fundaraðstöðu. Gera má ráð fyrir að slík samvinna efli enn betur starf félaganna í ýmsum málum, s.s. réttindamálum, fjáröfl- unum og ekki síst í fræðslu- og kynningarmálum. Þjónusta við aðstandendur lang- veikra barna mun skipa stóran sess í væntanlegri þjónustumiðstöð. Það má reikna með að þjónustumiðstöð- in haldi utan um heildstæðar upp- lýsingar um sem flesta þætti sem varða langveik börn og fjölskyldur þeirra. Þangað geti fólk leitað og fengið margs konar fræðslu og stuðning, auk þess sem það fái að- stoð við að átta sig á þeim rétt- indum sem þeim standa til boða í tengslum við veikindi barnanna. Við sem höfum starfað í grasrótinni teljum að sálfélagslegur stuðningur og ráðgjöf við fjölskyldur lang- veikra barna geti haft mikið for- varnargildi. Erfiðleikar í fjölskyld- um sumra hópa langveikra barna geta verið mjög fjölþættir og mikl- ir. Þetta mun verða mikilvægur þáttur í starfsemi þjónustumið- stöðvar, þar sem ljóst er að þörfin er til staðar. Foreldrar langveikra barna hafa oft á tíðum litla orku til að leita réttar síns á þessum fyrstu og erfiðu tímum eftir greiningu barnsins. Starfsemi þjónustumið- stöðvar þarf að vera lifandi og í sí- felldri endurskoðun með það fyrir augum að veita bestu mögulegu þjónustu á hverjum tíma. Rekstur fullkominnar þjónustumiðstöðvar er mjög dýr og Umhyggja getur ekki staðið undir slíkum rekstri án fjármagns frá utanaðkomandi að- ilum. Þjónustusetur líknarfélaga í Há- túni 10 rekur ekki ósvipaða þjón- ustumiðstöð og hér hefur verið lýst. Þar inni eru nokkur félög fullorð- inna sjúklinga og er Þjónustusetrið á fjárlögum frá Alþingi til að standa straum af húsnæðismálum og fleiru. Umhyggja hefur sent heilbrigðisráðherra ýtarlega grein- argerð um þjónustumiðstöð um málefni langveikra barna og bíður nú svars. Eitt af aðildarfélögum Umhyggju er Foreldrafélag geðsjúkra barna og unglinga. Í dag er geðvernd- ardagurinn og er það einlæg von okkar allra, hvort sem börnin okk- ar eru haldin geðrænum sjúkdóm- um eða öðrum alvarlegum og lang- vinnum sjúkdómum, að stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum lang- veikra barna sem boðuð var í febr- úar 2000 verði framfylgt. Þar segir: „Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar „Í fremstu röð á nýrri öld“ frá 28. maí 1999 segir að ráðist skuli í aðgerðir til að bæta þjónustu við sjúk börn og ung- menni. Í því skyni og í samræmi við ályktun Alþingis um stefnumót- un í málefnum langveikra barna, sem samþykkt var hinn 2. júní 1998, mun ríkisstjórnin á kjörtíma- bilinu stuðla að samræmdun og heildstæðum aðgerðum á sviði heil- brigðis- og tryggingarmála, menntamála, félagsmála og fjár- mála á þeim sviðum sem varða langveik börn og ungmenni.“ Hvers vegna þjónustu- miðstöð um málefni langveikra barna? Eftir Rögnu K. Marinósdóttur „Þjónusta við aðstand- endur lang- veikra barna mun skipa stóran sess í vænt- anlegri þjónustumið- stöð.“ Höfundur er formaður Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum. EINS og mörgum er kunnugt rek- ur Rauði kross Íslands þrjú athvörf fyrir geðfatlaða. Eitt þeirra er Vin í Reykjavík. Innan Vinjar fer fram ýmiskonar starfsemi til að létta gestum at- hvarfsins lífið. Þar á meðal er rekstur ferðafélags sem kallað er Ferðafélagið Víðsýn. Aðild að því geta átt gestir athvarfs- ins, launaðir starfsmenn og sjálfboða- liðar sem starfa í athvarfinu. Félagar greiða árgjald, sem nú er 1.000 kr., og öðlast ýmis ferðafríðindi í staðinn. Miðað er við að farin sé utanlands- ferð annað hvert ár, en hitt árið löng ferð innanlands. Þegar talað er um langar ferðir er átt við allt að fimm daga, þar eð heilsa margra þátttak- enda leyfir ekki lengri ferðalög. Félagið hefur notið dyggs stuðn- ings Bílaleigu Akureyrar og ferða- þjónustu Guðmundar Jónassonar í innanlandsferðum. Í ár var farið í þrjá daga norður í Húnavatnssýslu með þrettán manns, þar sem rauðakrossdeildirnar á hverjum stað tóku á móti hópnum. Sögðu þátttakendur að hvarvetna hefði verið tekið á móti þeim af hlý- hug og virðingu. Hinn 5.–9. september fór tuttugu manna hópur til Edinborgar og tók undirritaður þátt í þeirri ferð, sem var reyndar hans fyrsta utanlands- ferð. Í Edinborg komum við í tvö at- hvörf sem voru að mörgu leyti ólík því sem við þekkjum. Í vesturhluta borgarinnar er rekin stór stofnun sem heitir latneska nafninu Pen- umbra, sem þýðir „Út úr skuggan- um“. Þar fara starfsmenn út til skjól- stæðinga, en þeir koma ekki til stofnunarinnar. Það kom í hlut und- irritaðs að kynna félagið. Einkum var áhugi á að vita hvernig ferðin hefði verið fjármögnuð. Þeirra fólk hefði í mesta lagi efni á dagsferðum. Ég rakti að við fengjum styrk frá ís- lenska Öryrkjabandalaginu og Reykjavíkurborg og hefðum haldið bingó með veglegum vinningum frá ýmsum fyrirtækjum. Svo nefndi ég það sem þeim þótti merkilegast, Pokasjóð verslunarinnar á Íslandi, en úr honum hefðum við fengið 200.000 kr. Í Edinborg eru burðarpokar gefn- ir og fjúka um götur. Þótti forráða- mönnum Penumbra mjög athyglis- vert að á Íslandi seldi verslunin burðarpoka og rynni hluti andvirðis þeirra til styrkveitinga til umhverfis-, menningar- og líknarmála. Í október er fyrirhuguð tuttugu manna ferð til Akureyrar til að halda upp á alþjóðlega geðheilbrigðisdag- inn 10. október með félögum okkar í Laut, athvarfinu á Akureyri. Það verður seint nógsamlega áréttað hve mikilvæg þessi starfsemi RKÍ er. Hún sparar líka þjóðfélaginu stórfé, en það sem mestu máli skiptir; hún bætir heilsu gestanna og veitir þeim mikla lífsfyllingu. Heilsulindin Víðsýn Eftir Garðar Sölva Helgason „Það verður seint nóg- samlega áréttað hve mikilvæg þessi starfsemi RKÍ er.“ Höfundur er gjaldkeri ferðafélags- ins Víðsýnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.