Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ung tík af Shar pei-kyni, Blandon Von Hoytt Lóla, var valin besti hundur sýningar á alþjóðlegri sýn- ingu Hundaræktarfélags Íslands, sem haldin var í reiðhöll Gusts um síðustu helgi. „Hún er afar falleg, vel byggð og með glæsilegar hreyf- ingar,“ segir Carl Johan Adler- creutz, sem dæmdi í úrslitum um besta hund sýningar. Starfssystir hans, Diane T. Anderson frá Banda- ríkjunum, tekur undir það og bætir við að almennt hafi sér þótt hundar á sýningunni talsvert glæsilegri en hún átti von á. Bæði hafa Carl Johan og Diane dæmt áður á sýningum Hundarækt- arfélagsins og sögðust þau snortin yfir glæsileikanum og góðu and- rúmslofti. „Ég hef dæmt á hunda- sýningum um allan heim í marga áratugi, en ég fullyrði að íslenska sýningin er með þeim allra bestu í heiminum, þótt hún sé minni í snið- um en víðast annars staðar,“ segir Carl Johan. Diane kveðst nærri hafa brostið í grát þegar úrslit sýning- arinnar voru kunngerð. „Ég hef aldrei séð áhorfendur og aðra sýn- endur samfagna af þessari einlægni. Þegar sigurvegarar hlupu inn í sýn- ingarhring var leikin kraftmikil og falleg tónlist, sem jók enn frekar á tilfinningaflóðið, enda fékk ég gæsahúð og táraðist af hrifningu.“ Áhorfendur á sýningunni voru um 3.000 talsins og settu skemmtilegan svip á hana með öflugu lófataki og fagnaðarlátum. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir áhorfendur komið á sýningar Hundaræktarfélagsins. Carl Johan segist sjá miklar fram- farir í hundarækt á síðustu árum. Diane er honum sammála og kveðst einnig mjög ánægð með að Íslend- ingar virðist leggja mikinn metnað í að flytja aðeins til landsins hunda í mjög háum gæðaflokki. Pernilla Wistad, fyrrverandi heimsmeistari í keppni ungra sýn- enda, dæmdi um 40 börn og ung- linga í keppni um besta unga sýn- andann, en þar er keppt um færni í að sýna hund. Pernilla kom hingað til lands fyrir þremur árum í sömu erindagjörðum og segist sjá tals- verðar framfarir hjá unga fólkinu. „Þau hafa náð býsna góðum tökum á tæknilegu hliðinni og mættu nú fara að huga að því að móta per- sónulegan stíl sinn. Það sem þessi hópur hefur fram yfir aðra hópa ungra sýnenda sem ég hef kynnst, er samkennd og góður andi. Börnin samfagna þeim sem ná góðum ár- angri og þessi góði andi sem ríkir hjá þeim er gersemi sem ber að varðveita vel.“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Besti hundur sýningar var Shar pei-tíkin Blandon Von Hoytt Lóla. Hundar af þessu kyni hafa aldrei áður verið á sýningu hér á landi. Eigandi Lólu, Mailinn Sóler, er með henni á myndinni. Þessi boxer-hvolpur, sem ber nafnið Biting My Time at Faerdorn, var valinn besti hvolpur sýningar, en í þeim flokki keppa hvolpar á aldrinum 6–9 mánaða. Hann er hér með eiganda sínum, Þresti Ólafssyni. Keppt var um besta par sýningar, þar sem máli skiptir að hundar séu fallegir og svipmót þeirra líkt. Sigurvegarar að þessu sinni voru Siberian husky-tíkurnar Ankalyn Moonlightinthenight og Ankalyn Warmiceatnordwest. Anna F. Bianchi sýndi tíkurnar og með þeim er Diane T. Anderson, dómari frá Bandaríkjunum. Þórður Rafn Guðmundsson er stigahæsti ungi sýnandi árs- ins í flokki 10–13 ára. Hann er hér með Papillion-hundinum Ýrar Baron Katrovíusi. Besti ræktunarhópur sýningar var þessi hópur Bjarkeyjar boxer-hunda, sem Inga B. Gunnarsdóttir ræktaði. Hún er önnur frá hægri. Helga Dögg Snorradóttir var besti ungi sýnandinn í flokki 14–17 ára. Hún er stigahæsti ungi sýnandi ársins og mun á næsta ári keppa fyrir Íslands hönd á stærstu hundasýningu heims, Crufts í Bretlandi. Með henni á myndinni er Cavalier King Charles spaniel-hundurinn Gæða Jörfi, sem hún sýndi, og dómarinn frá Svíþjóð, Pernilla Wistad. Stigahæsti öldungur ársins var þessi standard poodle-tík, Bambalækjar-Hertha Athar, sem er átta ára gömul. Vikt- oría Jensdóttir sem sýndi hana er með henni á myndinni. Gunnarsholts-Baroness, tík af þýsku fjárhundakyni, var stigahæsti hundur ársins og stillir sér hér upp fyrir ljós- myndara ásamt eiganda sínum, Hjördísi H. Ágústsdóttur. Í afkvæmahópi sýnir ræktandi foreldri og fjögur afkvæmi. Amer- ískir cocker spaniel-hundar úr Æsku-ræktun Ástu Arnardóttur sigruðu að þessu sinni. Lengst til vinstri er faðirinn Jaclee About Tan Time, með Ástu Arnardóttur, og hægra megin við þau eru afkvæmi hundsins ásamt eigendum sínum. Hundafimi nýtur talsverðra vinsælda og á sýningunni sýndu nokkrir hundar færni sína á því sviði. Unglingadeild HRFÍ skipulagði þennan hluta sýningarinnar. Amerískur cocker spaniel, Jaclee About Tan Time, var besti öldungur sýningar, en í þeim flokki keppa hundar sem náð hafa sjö ára aldri. Hann er hér ásamt eiganda sínum, Ástu Arn- ardóttur, og dómaranum Carl Johan Adler- creutz frá Svíþjóð. Þorbjörg Ásta Leifsdóttir sigraði í keppni ungra sýnenda á aldrinum 10–13 ára og er hér með vinkonu sinni Leiru- Runu Gunn, sem er íslenskur fjárhundur. Glæsileg sýning á heims- mælikvarða Rífandi stemmning var á alþjóðlegri hundasýn- ingu um síðustu helgi. Brynja Tomer var í hópi um 3.000 áhorfenda sem fylgdust með fallegustu hundum landsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.