Morgunblaðið - 10.10.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
FÍKNIEFNANEYSLA BubbaMorthens og Magnúsar Stef-
ánssonar fyrrum trommara í Utan-
garðsmönnun var rædd í viðtölum
við þá félaga í síðasta sunnudagsblaði
Morgunblaðsins. Víkverji var sér-
lega vel stemmdur þegar hann hóf
lesturinn, enda búinn að vera með
plötuna Geislavirka í botni í bílnum
upp á hvern dag síðasta mánuðinn.
Það er engin hófneysla að klára tíu
hasspípur á dag og drekka 12-18
bjóra, eins og það var hjá Magnúsi
þegar verst lét. Bubbi sagðist hafa
verið í daglegri fíkniefnaneyslu í 18
ár og þar af 7 ár í kókaíni. Það kom þó
Víkverja mest á óvart að Bubbi
skyldi fyrst hafa komið fram á tón-
leikum án fíkniefna fyrir aðeins sjö
árum, þ.e. árið 1995. Víkverji hélt að
Bubbi hefði hætt fyrr í dópinu en það
er greinilega einhver vitleysa.
Annars er fyrirhugað forvarnar-
átak Bubba og Essó, „Veldu rétt“
ágætt framtak og framhaldsskóla-
nemar velja vonandi líf án fíkniefna
eftir fund með honum. Hann ætti að
þekkja afleiðingarnar neyslunnar,
man ekki eftir heilu plötunum sem
hann gerði og missti síðan sjö af
hverjum tíu tónleikum í lúkurnar á
fíkniefnadjöflinum.
x x x
HANN sagði í viðtalinu að sjálfumhefði honum í æsku fundist lítið
koma til forvarnarfulltrúa sem aldrei
hefðu reykt eða drukkið. Víkverji rifj-
aði af þessu tilefni upp ræður forvarn-
arfulltrúa nokkurs sem kom í bekkinn
til hans fyrir um 20 árum. Hafði
fulltrúinn mörg orð um skaðsemi
reykinga og fannst Víkverja hann
bara býsna trúverðugur þótt aldrei
hefði viðkomandi reykt eina einustu
sígarettu. Fulltrúinn vissi ekki einu
sinni hvernig ætti að orða athöfnina
að sjúga reyk úr sígarettu, þ.e. að
„taka einn smók“. En hann vissi vel
hvaða áhrif tjaran úr sígarettunum
hafði á lungun og hvernig bifhárin
lamast þegar reykurinn fer ofan í þau.
Og það þarf víst ekki nema „einn
smók“ til að lama bifhárin ef Víkverji
man þetta rétt.
Bubbi talaði síðan um fíkniefna-
neyslu unglinga í dag og sagði að hún
kæmi þeim einum við. Þetta getur
Víkverji alls ekki fallist á. Kemur það
ekki foreldrum barns við ef það
„poppar“ um hverja helgi og veldur
þeim stöðugum áhyggjum svo þeir
kveljast í angist sinni? Víkverji er
þeirrar skoðunar að fíkniefnaneysla
fólks komi þvert á móti fjölmörgum
við. Ef neyslan hefur áhrif á aðra,
hlýtur hún að gera það. Ef Víkverji
kæmi t.d. að eiturlyfjaneytanda að
mölva framrúðuna á bílnum hjá sér,
væru yfirgnæfandi líkur á að viðkom-
andi væri að stela þessum fáu geisla-
diskum sem eru í bílnum til að skipta
þeim í dóp. Við þessar aðstæður er
neysla þjófsins ekkert einkamál hans.
Ekki heldur ef hann keyrði niður sak-
lausa vegfarendur á stolnum bíl, upp-
dópaður á flótta undan lögreglunni.
Þetta tengist kannski spurningunni
um hvort maður eigi sitt eigið líf og
megi ráðstafa því algjörlega að eigin
vild? Má maður dópa, djúsa, djamma
og slappa af og segja bara að það komi
engum við? Kemur það manni einum
við ef maður eyðileggur líf sitt? Það er
alþekkt að eiturlyfjaneytandi eyði-
leggur auðveldlega líf sinna nánustu
með neyslu sinni og háskalegu líferni
og neyslan er því varla neitt einkamál
hans. Allir hafa einhverja hagsmuni
af því að náunginn sé með réttu ráði.
Röng skilaboð
til foreldra
VEGNA greinar í Morg-
unblaðinu hinn 31 sept. sl.
þar sem fram kemur að
vímuefnaneysla unglinga
hafi minnkað frá 1998 vil
ég koma á framfæri eft-
irfarandi:
Ég dreg í efa rétta nið-
urstöðu kannana, sem
ávallt eru gerðar í 9.-10.
bekk grunnskóla, þar sem
vímuefnaneytendurnir
ljúka oft ekki grunnskóla
og eru þar með ekki til
staðar í bekkjunum þegar
könnun fer fram.
Ég þekki þetta dæmi
frá eigin heimili þar sem
unglingur lauk ekki
grunnskóla en var á þeim
tíma á meðferðarheimili
og með honum þar voru
nokkrir jafnaldrar hans.
Þessir unglingar voru
ekki til staðar til þess að
svara í könnun sem gerð
var í skólunum.
Ég held að sama eigi við
um kannanir í framhalds-
skólum. Neytendur vímu-
efna gefast oft upp í skól-
unum og taka þar af
leiðandi ekki þátt í könn-
unum sem gerðar eru þar.
Efla þarf stórlega
fræðslu til foreldra. For-
eldrarnir verða að vita um
skaðsemi hinna mismun-
andi eiturlyfja til þess að
geta rætt þessi mál við
börnin og þeir verða að
þekkja þau einkenni sem
koma fram ef barninu
dettur í hug að fara að
fikta með þessi efni.
Í dag er ég hrædd um
að unglingarnir séu oft
miklu fróðari en foreldr-
arnir um það sem viðkem-
ur fíkniefnamarkaðnum.
Skilaboðin sem foreldr-
arnir fá eru of mikið í þá
áttina að nánast allt sé í
góðu lagi, neyslan fari
minnkandi eða standi í
stað. Ég tel þetta því mið-
ur ekki rétt.
Ef könnun væri gerð
meðal eldri hóps, það er
yfir 18 ára aldri, kæmu
sennilega aðrar og verri
niðurstöður í ljós.
Við verðum að viður-
kenna vandann eins og
hann blasir við á hverjum
tíma. Í dag er hann ef til
vill mestur hjá þeim sem
komnir eru yfir grunn-
skólaaldur og yfir 18 ára
aldur og eru jafnvel orðnir
uppalendur ungra barna.
Könnun þarf að ná til
heimilanna í landinu og
jafnframt má ekki gleyma
því að neytendurnir eru
alls ekki alltaf til staðar til
þess að svara sjálfir.
Vímuefnavarnir verða að
beinast með einhverjum
hætti að þeim sem eldri
eru líka, því þar eru
vandamálin ef til vill mest.
Dagrún Sigurðardóttir.
Frumvarp
um einelti
FRUMVARP um bann við
einelti í skólum og á
vinnustöðum er búið að
liggja ofan í skúffu hjá
ráðherra frá miðju sumri
1991 og langar mig að vita
hvernig gangi að koma
þessu frumvarpi inn á
þing?
Eineltisþolandi.
Tapað/fundið
Silfurtóbaksdós
týndist við Leifsstöð
LÍTIL silfurtóbaksdós
merkt Sv.Sch.Th. týndist
við Leifsstöð mánudags-
kvöldið 30. september, lík-
lega á bílastæðinu. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 551-3167 og 478-
1133.
Motorola-sími
týndist
GRÁR Motorola Timeport
gsm-sími í svörtu leður-
hulstri týndist sl. mánu-
dag, líklega á Grafarvogs-
svæðinu. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 567-
5343.
Dýrahald
Tvær kisur
týndar
TVÆR kisur týndust
þriðjudaginn 7. október
en þær voru í pössun og
voru ekki vanar umhverf-
inu sem þær voru í. Þær
heita Litla, hún er þrílit,
svört og gul á bakinu og
hvít á hálsinum, og Birta,
hún er 6 mánaða, svört
með nokkur hvít hár á
hálsinum. Þeirra er sárt
saknað og fundarlaun eru
í boði fyrir þann sem finn-
ur þær. Uppl. í síma
567 4020 og 659 1770.
Díana Perla
er týnd
LÆÐA týndist þriðjudag-
inn 8. okt. Hún er svart-
bröndótt með hvítan háls
og smá hvítt við trýni.
Hún er ekki vön að vera
úti og gæti verið svolítið
hrædd. Hún er með rauða
ól en er ómerkt hún heitir
Díana Perla. Hennar er
mjög sárt saknað og biðj-
um við fólk sem býr í
Breiðholti og Árbæ sér-
staklega um að hafa aug-
un opin. Fundarlaun.
Upplýsingar í síma
696 1825 og 899 2067.
Kettlingur
fæst gefins
GULLFALLEGUR kett-
lingur (læða) fæst gefins á
gott heimili. Er fegurðar-
dís, svört með hvíta
sokka, kraga og hvítar
loppur. Upplýsingar gefur
Marta í síma: 820 2470.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 möguleikinn, 8 eldivið-
urinn, 9 borga, 10 keyra,
11 bætt, 13 stelur, 15
hestur, 18 frásögnin, 21
glöð, 22 seint, 23 afrakst-
ur, 24 óhugnanlegt.
LÓÐRÉTT:
2 heiðarleg, 3 starfs-
grein, 4 heldur, 5 gyðja, 6
bolli, 7 skordýr, 12 bors,
14 veina, 15 remma, 16
heiðursmerki, 17 rifa, 18
syllu, 19 botnfall, 20 ró.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 trýni, 4 gætur, 7 fauti, 8 tóman, 9 nói, 11 afar,
13 átta, 14 okann, 15 túlk, 17 agar, 20 áta, 22 kopar, 23
liðug, 24 nauts, 25 augun.
Lóðrétt: 1 tyfta, 2 ýsuna, 3 iðin, 4 geti, 5 tómat, 5 renna,
10 ólatt, 12 rok, 13 ána, 15 tækin, 16, loppu, 18 gðug, 19
ragan, 20 árós, 21 alda.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Shin-
ei Maru no. 81 og Dell-
ach koma í dag. Hoyo
Maru no 8, Goðafoss og
Arnarfell fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Er-
idan kom í gær, Brúar-
foss fór í gær.
Mannamót
Árskógar 4. Opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa, kl. 10–16
pútt. Sviðaveisla verður
11. okt. Danskennsla
byrjar 15. okt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl.
13 bókband, kl. 14–15
dans. Félagsvist á morg-
un kl. 13.30
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damoss.
Eldri borgarar Garða-
bæ og Bessastaða-
hreppi, föstudags-
samvera
(harmónikuball) ásamt
kirkjunni, föstud. 11.
okt. kl. 14–17 í safn-
aðarheimilinu Kirkju-
hvoli. Dansað, sungið,
gamanmál, vöfflukaffi.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9–
12 íkonagerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 13–16
spilað, kl. 9.30 dans-
kennsla. Kl. 10. 30
messa, umsjón sr.
Kristín Pálsdóttir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 10 leik-
fimi, hárgreiðslustofan
opin kl. 9–14, kl. 15.15
samkvæmisdansar.
Námskeið í postulíns-
málun byrjar 16. okt. Í
tilefni af 10 ára opnunar-
afmæli félagsmiðstöðv-
arinnar verður afmæl-
isfagnaður 18. okt.,
kvöldverður, skemmti-
atrið og fluttur annáll
stöðvarinnar í léttum
dúr. Tískusýning og
dans, Fimmtud. 10. okt,
kl. 13.30 verður tísku-
sýning í félagsmiðstöð-
inni, myndlistar-
hópurinn sýnir
vetrartískuna í kaffi-
tímanum verður kakó og
rjómaterta og kl. 15.15
byrjar kennsla í
samkvæmisdönsum
Sigvaldi Þorgilsson
kennir.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerð, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 13 föndur og
handavinna. Bingó kl. 15.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 13 búta-
saumur og málun, kl.
19.30 félagsvist á Álfta-
nesi.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Bingó og
glerskurður kl. 13. Rúta
í Borgarleikhúsið laug-
ardaginn 12. okt. kl. 19
frá Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ. Fimmtud.:
Brids kl. 13. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Brids-námskeið hefst kl.
19.30. Föstud.: Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Fræðslunefnd FEB
verður með fræðslu- og
kynningarferð á Reykja-
lund 16. okt. farið verður
frá Ásgarði, Glæsibæ, kl.
13. Þátttaka tilkynnist
skrifstofu FEB. Skrif-
stofa félagsins er flutt að
Faxafeni 12, s. 588 2111.
Félagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Fé-
lagið hefur opnað heima-
síðu www.feb.is. Uppl. á
skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund um-
sjón Lilja G. Hallgríms-
dóttir, djákni í Fella- og
Hólakirkju, frá hádegi
spilasalur og vinnustof-
ur opnar m.a. glermálun,
dans byrjar aftur 14.
okt., allir velkomnir,
engin skráningagjöld.
Myndlistarsýning
Brynju Þórsdóttur
stendur yfir. Allar uppl.
um starfsemina á staðn-
um og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 17.15
kínversk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 19 gömlu dansarnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Föstudaginn 11. okt. kl.
14 kemur Benedikt Dav-
íðsson, formaður Land-
sambands eldri borgara,
í heimsókn, hann ræðir
stöðu launamála og
hvaða kröfur sambandið
gerir til stjórnmála-
flokkanna fyrir næstu
kosningar. Kaffiveit-
ingar.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500 Þráinn.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga, kl.
14–15 jóga. Sviðaveisla
verður fimmtudaginn 10.
okt. og hefst kl. 18.
Harmónikkuleikur og
happdrætti. Uppl. í s.
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl.13–16
kóræfing og mósaik.
Haustbingó verður mið-
vikudaginn 16. okt. kl.
13.15. Vöfflur með rjóma
í kaffitímanum, allir vel-
komnir. Keramik-
námskeið byrjar föstu-
daginn 18. okt. kl. 13–16,
skráning í s. 562 7077.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og
spilað. Haustfagnaður
okkar verður föstudag-
inn 11. okt. kl. 18. Matur,
gleði, glens og gaman
allir velkomnir. Fé-
lagsmiðstöðin opin fyrir
alla aldurshópa.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 11.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 19.30
tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur kl. 17 í
umsjá Sveinbjargar
Arnmundsdóttur. Allar
konur velkomnar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45 spil hefst kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið 31. okt. að sjá Með
vífið í lúkunum. Skrán-
ing fyrir 14. okt. Nánar í
auglýsingum. Árlegur
haustfagnaður verður í
Glaðheimum, Vogum,
laugard. 12. okt. kl. 15.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fyrsta
fund vetrarins mánud.
14. okt. í safnaðarheim-
ilinu kl. 20. Vetrarstarfið
kynnt.
Aflagrandi 40. Hjúkr-
unarfræðingur til viðtals
í dag kl. 11–12. Fyrsta
opna hús vetrarins í
kvöld, húsið opnað kl.
19.30, félagsvist kl. 20,
frjáls spilamennska,
heitt á könnunni, allir
velkomnir.
Í dag er fimmtudagur 10. október,
283. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Drottinn mun frelsa mig
frá öllu illu og mig hólpinn leiða
inn í sitt himneska ríki. Honum sé
dýrð um aldir alda! Amen.
(Tím. 4, 18.)