Morgunblaðið - 10.10.2002, Side 64
64 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
HK. DV
Kvikmyndir.com Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
AL PACINO • ROBIN WILLIAMS •
HILARY SWANK
HJ. MBL
Kvikmyndir.is
H.O.J. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 8.
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís
leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni
bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV
„Íslenskt meistaraverk..“ SFS Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
30.000 áhorfendur
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
með enskum texta.
SV Mbl
SG. DV ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12.
MBL
Sýnd kl. 10.15. B.i. 14.
„Þetta er fyrsta flokks
hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið.
GH Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
HL. MBL
SG. DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Vit 435
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd kl. 3.40, 5.45 8 og 10.15. Vit 433FORSÝNING KL. 8. B.i. 16 ára. Vit 453
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429
Frábær fjölskyldumynd
frá Disney um
grallarann Max
Keeblesem gerir
allt vitlaust í
skólanum sínum!
Tímamótaverk í íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís leiða
eftirminnilegan leikarahóp
sem á þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV
„Íslenskt meistaraverk..“ SFS Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 441.
30.000 áhorfendur
FORSÝNING
RÍÓ tríóið steig fram fyrir skjöldu
um miðjan sjöunda áratuginn en
fyrsta platan kom út á því herrans
blómaári 1967. Fljótlega eftir það
og í raun allar götur síðan hefur
tríóið verið ein allra ástælasta
hljómsveit landsins og hjálpaði þar
til í upphafi tilkoma Sjónvarpsins
hvar Ríómenn voru aufúsugestir,
heljarmikil hljómplötuútgáfa og svo
að sjálfsögðu taumlaus spila- og
leikgleði.
Það kann að hljóma ótrúlega, en
þetta er í fyrsta sinn sem farið er
rækilega í sögu Ríó tríósins. Tvö-
faldi hljómdiskurinn Það skánar
ekki úr þessu spannar allan feril
sveitarinnar frá ’67 til þessa dags
og inniheldur fimmtíu lög. Meðlimir
tríósins höfðu hönd í bagga með
efnisval og verða þarna jafnt sígild-
ar perlur sem sjaldheyrðir gull-
molar.
Helgi Pétursson og Ólafur Þórð-
arson skipa tríóið ásamt Ágústi
Atlasyni og fræddu þeir ungan
blaðamanninn um lífsspeki tríósins
og þær fyrirætlanir sem framundan
eru en m.a. munu þeir halda tón-
leika í Salnum, Kópavogi, á morgun
og á laugardag.
Dálítill hausverkur
„Það er vel að þessu staðið,“ segir
Óli en það er tónlistardeild Norður-
ljósa sem stendur að útgáfunni.
„Allir textarnir eru þarna, það er
fullt af myndum og svo skrifar Jón-
atan Garðarson mjög greinargott
yfirlit um feril sveitarinnar.“
Helgi segir það hafa komið á
óvart hversu mikið af lögum hafi
verið til en þeir félagar þurftu að
velja úr tæplega 200 laga safni.
„Það rifjaðist upp fyrir okkur að
eitt árið tókum við upp fjórar plöt-
ur. Á tímabili vorum við mjög af-
kastamiklir. Þannig að þetta var dá-
lítill hausverkur að velja þarna úr.“
Hann segir að þeir hafi viljað
nota tækifærið með þessu safni og
koma lögum á framfæri sem heyrst
hafa síður.
„Við sátum frammi fyrir því að
eiga mikið af þekktum lögum og
það var spurning hvernig við ættum
að raða þessu saman. Það kom út
safnplata í kringum ’84 en við átt-
um engan þátt í að velja á hana.
Þarna verða lög sem duttu upp fyr-
ir á sínum tíma en okkur hefur allt-
af langað til að fólk heyri þau.“
Þeir félagar segja í framhaldinu
söguna af „Ljótu plötunni“, plötu
sem þeir gáfu út sjálfir árið 1985.
„Þar er fullt af góðu efni sem hef-
ur aldrei heyrst því hún seldist ekki
neitt,“ útskýrir Helgi. „Plötuna
prýða sérkennilegar teikningar eft-
ir Baltasar en einhverra hluta
vegna hreyfðist hún ekkert. Við
köllum hana alltaf „Ljótu plötuna“
okkar á milli.“
Ríó Tríóið hefur ávallt lagt sig
eftir nokkuð fjölbreyttri tónlist.
Mótmælasöngvar, þjóð- og alþýðu-
lög, gáskafull skemmtilög, ljúfur
djass og sveitatónlist. Seinna áttu
þeir eftir að reyna sig við írska tón-
list og jafnvel hefðbundið rokk og
popp.
„Ríóið hefur aldrei hætt,“ stað-
hæfir Ólafur eða Óli Þórðar eins og
hann er jafnan þekktur. „Við höfum
tekið okkur mislöng hlé en ef okkur
þykir tilefni til förum við í gang.“
Jónas frá Raufarhöfn
Textar Jónasar Friðriks Guðna-
sonar hafa löngum fylgt tríóinu og
ef það er hægt að tala um fjórða
tríómeðliminn þá er það sannarlega
hann. Jónas býr á Raufarhöfn en
ætlar að gera sér ferð í bæinn
vegna uppákomu félaga sinna, sem
þeir Helgi og Ólafur segja fáheyrt.
Jónas uni sér það vel á Raufarhöfn
að þaðan fari hann helst aldrei.
„Við skárum okkur kannski dálít-
ið út vegna þessara vönduðu texta
hans Jónasar,“ segir Helgi. „Við
lögðum t.d. áherslu á satíruna, að
gera góðlátlegt grín að öllu saman.
En það kemur okkur á óvart hvað
fólk kann þessa texta vel, kann
heilu bálkana betur en við. Ég held
að fólk skynji hversu mikla áherslu
við leggjum á það að textarnir séu
vandaðir. Þetta kann stundum að
hljóma einfalt en það er meira en að
segja það.“
Þeir segjast alla tíð hafa lagt ríka
áherslu á skemmtunina.
„Við höfum alltaf fyrst og fremst
verið skemmtikraftar,“ segir Helgi.
„Þegar við vorum að byrja vorum
við umkringdir hljómsveitum sem
fluttu tónlist sem gerði helst þær
kröfur að fólk settist niður og hlust-
aði. Við vorum aldrei mikið fyrir
það og vorum alltaf að spá í leiðir til
að fá fólk til að syngja með og taka
þátt í þessu með okkur.“
Tímabilið 1970–1973 var mjög
gjöfult hjá þeim Ríómönnum. Þá
voru þeir með eigin skemmtiþætti í
sjónvarpi, spiluðu um allar jarðir og
gáfu út fjölda platna.
„Síðan koma tímabil eins og ’84–
’85 þar sem við vorum beðnir um að
spila í gamla Broadway,“ segir
Helgi. „Þetta áttu að vera tvær
helgar en það endaði með því að við
spiluðum frá október og fram í júní
næsta ár. Þetta urðu 70 sýningar!“
Oft þegar hljómsveitir koma sam-
an eftir langt hlé, eins og nú verður
gert, virðist bálið blossa upp á nýjan
leik og menn leggja í tónlistarlegan
víking enn og aftur. Hvað með Ríó?
„Við verðum bara að sjá til,“ seg-
ir Óli. „Nú tökum við þessa tónleika
og þá er bara að sjá hvernig okkur
á eftir að líða með þetta. Við gerum
engar fyrirfram áætlanir.“
Tónleikarnir hefjast báðir kl.
20.30 og hyggjast þeir félagar
renna sér í gegnum 30 lög eða svo.
Með þeim leika þeir Björn Thorodd-
sen og Gunnar Þórðarson
Það er engin
leið að hætta
Morgunblaðið/Kristinn
Ríó tríó í fullu fjöri ásamt hjálparkokkum.
Það geta allir landsmenn sungið eitt Ríó
tríó-lag eða tvö. Nú geta þeir reynt sig við
þau fimmtíu en ferilsplatan Það skánar
ekki úr þessu kemur í búðir á næstunni.
Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við 2⁄3
hluta tríósins vegna þessa og tónleika
sem verða á morgun og hinn daginn.
Ríó tríóið fagnar nýrri ferilsplötu með tvennum tónleikum
arnart@mbl.is
STUTTMYNDAKEPPNIN Nike
Young Directors Award var haldin í
annað sinn í ár og fór verðlauna-
athöfn fram í Lundúnum á þriðju-
dagskvöldið. Ungir íslenskir kvik-
myndagerðarmenn voru meðal
keppenda í þetta skipti og hlutu þeir
Þórhallur Sævarsson leikstjóri og
Baldur Eyþórsson kvikmyndatöku-
maður áhorfendaverðlaun fyrir
stuttmynd sína The Fan og silfur-
verðlaun frá dómnefnd. Fyrstu verð-
laun hlutu David Storr fyrir mynd
sína Every Night I go Running og
þriðju verðlaun hlutu Anastasia Ki-
rillova og James Cox fyrir mynd sína
Emulsion.
Keppnin hefur fengið mikið umtal
í Bretlandi og víðar og er þegar á
öðru ári talin athyglisverðasta stutt-
myndasamkeppnin þar í landi. Í
keppnina bárust rúmlega fjögur
hundruð handrit og var aðstandend-
um þriggja mynda – þ. á m. Þórhalli
og Baldri – afhent ein milljón króna
til að vinna að gerð myndanna.
Þórhallur og Baldur unnu hand-
ritið í sameiningu en þeir hafa báðir
komið nálægt kvik-
mynda- og auglýsinga-
gerð á Íslandi. Baldur
Eyþórsson lagði stund á
kvikmyndagerðarnám við
The Internatonal Film
School í London þaðan
sem hann útskrifaðist ár-
ið 2000. Hljómsveitin
Úlpa á tónlistina sem
hljómar undir stuttmynd-
inni íslensku.
Stuttmyndirnar þrjár,
sem kepptu til lokaverð-
launa, voru allar sýndar á
Netinu. Þannig fékk al-
menningur tækifæri til að
sjá myndirnar og gefa álit
sitt.
Verðlaunaafhendingin
fór fram í National Film
Theatre og voru allar
myndirnar sem kepptu til
verðlauna sýndar á breið-
tjaldi. Hægt er að sjá stuttmyndirn-
ar á netinu en vefslóðin er http://
www.britshorts.com/nike.
Á sigurpalli alþjóðlegrar
stuttmyndakeppni
Tveir ungir íslenskir kvikmyndagerðarmenn heiðraðir
Lundúnum. Morgunblaðið.
Þórhallur Sævarsson og Baldur Eyþórsson,
til hægri, með verðlaunin, ásamt leikurum
stuttmyndarinnar.