Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 65

Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 65 ORRI Harðarson á langantónlistarferil að baki þóttungur sé. Hann kom fyrst fram opinberlega ellefu ára að aldri, árið 1984, og átti eftir að vera í forvígi Skagabylgjunnar svoköll- uðu; er hann stóð í framlínu sveita eins og Óþekkt andlit og Bróðir Darwins þar sem réttir dagsins voru gáfumannapopp í anda breskra sveita eins og The Smiths og Sundays. Eftir að hafa dvalið í Danaríki um skeið gaf hann svo út sólóplötu undir nafninu Drög að heimkomu árið 1993. Var henni fá- dæma vel tekið og þykir mikið gæðaverk. Tveimur árum síðar kom svo Stóri draumurinn út en fljótlega eftir það dró Orri sig út úr sviðsljósinu og kaus að vinna að tónlist á bak við tjöldin. Hefur hann lagt hönd á plóg við vinnu ýmissa platna en einnig hefur hann komið að ritstörfum og hefur m.a. skrifað tónlistargagnrýni fyrir Morgun- blaðið. Allt fyrir daufblinda Tildrög þess að Orri ákvað að vinna þessa nýju plötu eru þau að kona frá Daufblindrafélaginu setti sig í samband við hann og furðaði sig á því að hann hefði ekki gefið neitt út í langan tíma. „Hún skrifaði mér formlegt bréf og spurði hvort ég væri ekki til í að gera sólóplötu sem þau myndu kosta og gefa út,“ segir Orri. „Hagnaðurinn myndi þá renna all- ur til þeirra og þeirra mála. Ég gat ekki sagt nei við þessu. Ég játa það að þetta hefur kveikt aðeins í mér og ég ætla að fylgja þessari plötu eftir. En það verður svo að koma í ljós hvað ég geri eftir það.“ – Og þetta er þriðja sólóplatan? „Ja … já, þriðja útgefna. Annars er þetta fjórða. Ég gerði plötu ’99 sem ég kláraði og henti svo!“ – Eru einhverjir með þér á nýju plötunni? „Þetta er eiginlega sólóplata með stóru S-i. Ég spila þetta meira og minna sjálfur. Biggi Baldurs trommar fimm lög en ég spila rest. Svo koma tvær söngkonur lítillega við sögu.“ Angurværð – Hvernig plata er þetta? „Þetta er melankólía – hægt og tregablandið eins og flest mín verk hafa verið. Angurværðin einkennir þetta.“ – Hvað hefur þú verið að stússa eftir Stóra drauminn? „Eftir þá plötu ákvað ég að minn sess innan tónlistarbransans væri annar en að vera einherji í aðalhlutverki. Ég fór að upplifa það að ég kunni betur við mig inni í hljóð- veri en uppi á sviði. Þannig að ég fór að vinna fyrir aðra – við upptökur og slíkt – og dró mig smám saman í hlé.“ – En nú ert þú með plötu – og bók? „Já, Ormstunga mun gefa út þýðingu mína á sjálfsævisögu knatt- spyrnugoðsagnarinnar George Best. Ég er sennilega eini Íslending- urinn sem verður með plötu og bók í ár (hlær).“ Orri mun kynna plöt- una nýju á Kringlu- kránni í kvöld kl. 22.00. Á morgun spilar hann svo í heima- bænum Akranesi, og verða tónleik- arnir haldnir í Bíóhöllinni kl. 21. Nýr draumur Það er langt um liðið síðan Orri Harðarson spretti úr spori á út- gáfumarkaði, heil sjö ár. Nú er hann klár með sína þriðju skífu, sem kallast Tár, og upplýsti hann Arnar Eggert Thoroddsen um söguna á bak við hana og sitt- hvað fleira um leið. Orri Harðarson heldur hljómleika vegna nýrrar plötu arnart@mbl.is Orri Harðarson fer nú fram fyrir tjöldin á nýjan leik eftir sjö ára hlé. MBL M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E „Þetta er fyrsta flokks hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið. HANN VAR HIÐ FULLKOMNA VOPN ÞAR TIL HANN VARÐ SKOTMARKIÐ GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is SG. DV Frábær fjölskyldumynd frá Disney um grallarann Max Keeblesem gerir allt vitlaust í skólanum sínum! Sýnd kl. 4 og 6. Vit 441. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Vit 427Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Vit 444 MBL Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 10.15 B.i. 14 ára. Vit 427 AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14 ára. Vit 444 Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 8. 1/2 Kvikmyndir.is  MBL Kvikmyndir.is Roger Ebert  DV  Kvikmyndir.com 1/2 SK.RadioX Sýnd kl. 10.30. B.i. 12 ára. Vit 427 KEFLAVÍK Sýnd kl. 3.45 og 6. Ísl tal. Vit 429 Sýnd kl. 4. Enskt tal. Vit 430. 1/2 Kvikmyndir.is HL. MBL Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 433 AKUREYRI Sýnd kl. 6. B.i. 12 ára. Vit 435 Síðustu sýningar AL PACINO ROBIN WILLIAMS HILARY SWANK E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Sýnd í lúxussal kl. 5.30 og 10.30. B. i. 16. Vit 445 HJ Mbl 1/2HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Vit 435. Frábær fjölskyldumynd frá Disney um grallarann Max Keeblesem gerir allt vitlaust í skólanum sínum! Sýnd kl. 10. Vit 433 Sýnd kl. 6. Vit 441 AKUREYRI Sýnd kl. 8. Vit 433 KEFLAVÍK CLOCKSTOPPERS 1/2 HK. DV  Kvikmyndir.com 1/2 HK. DV  Kvikmyndir.com  Ó.H.T. Rás2 1/2 SV. MBL 1/2 Kvikmyndir.is  Ó.H.T. Rás2 1/2 SV. MBL Síðustu s ýningar 30.000 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.