Morgunblaðið - 13.10.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 13.10.2002, Síða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur lagt 15 milljónir króna til þróunar kennsluforrits, sem nú er í smíðum hér á landi og verður notað til að kenna íslensku á Netinu. Stefnt er að því að íslenskunámskeið verði komið á vefinn næsta haust og að í framtíð- inni geti nemendur og fræðimenn við erlenda háskóla, sem og aðrir sem vilja læra íslensku, tekið námskeið á Netinu, sem hægt verði að fá metin til eininga við aðra háskóla. Gerð forritsins er samvinnuverk- efni íslenskuskorar Háskóla Íslands, Stofnunar Sigurðar Nordal, Hugvís- indastofnunar og annarra aðila innan háskólans. Birna Arnbjörnsdóttir, lektor í enskuskor HÍ, sem stýrir verkefninu, segir að námskeiðið sé ætlað algjörum byrjendum í íslensku. Stefnt sé að því að setja það á Netið næsta haust og fyrst um sinn meðan verið er að þróa námskeiðið verði að- gangur að því ókeypis. Á annað þúsund nemendur að læra íslenskt nútímamál Birna segir að íslenskt nútímamál sé kennt við 30 háskóla um allan heim, alls séu á annað þúsund nemendur að læra íslensku. „Áhugi fyrir íslensku- námi er mjög mikill um allan heim. Hugmyndin er að þarna verði boðið upp á námskeið fyrir fólk sem hefur ekki aðgang að íslenskunámi nema hugsanlega á Netinu,“ segir Birna. Námskeiðið sem fyrst verði boðið upp á sé 5 Evrópueiningar, sem jafn- gildi 2,5 einingum við HÍ og 3 amer- ískum einingum. „Námskeiðið verður viðurkennt af háskólum um allan heim og þannig skipulagt að hægt verður að taka það hvar í heiminum sem er og fá einingarnar metnar við erlenda háskóla. Fyrst um sinn verð- ur námið sjálfsnám en síðar meir munu nemendur gera verkefni og fá þau leiðrétt af kennara.“ Birna segir að nú sé verið að hanna málfræðigrunn og í athugun sé að gera orðasafn líka. „Þá erum við að fara í stórt og mikið rannsóknarverk- efni með Finnum um hvernig kenna megi beygingamál á Netinu.“ ESB styrkir gerð íslensks kennsluforrits um 15 milljónir Hægt að læra íslensku á Netinu frá næsta hausti ENGAN sakaði en mikið tjón varð í eldsvoða í Njarðvík í gærmorgun, bæði af völdum elds og reyks. Til- kynnt var um eld í íbúðarhúsi við Hæðargötu í Njarðvík laust fyrir klukkan ellefu í gærmorgun. Þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á staðinn logaði mikill eldur í loftum og var aðkoman ljót, að sögn Sigmundar Eyþórssonar slökkviliðs- stjóra. Rúður sprungu í húsinu af völdum hitans. Íbúar hússins voru allir heima þegar eldurinn kom upp. Þeir náðu að bjarga sér út úr brennandi húsinu og varð ekki meint af. Tókst slökkvi- liðsmönnum að ráða niðurlögum eldsins með háþrýstingi á skammri stundu. Eldsupptök eru ókunn en rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík fer með rannsókn brunans. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Rúður sprungu í húsinu af völdum hitans. Lögreglan í Keflavík rannsakar eldsupptökin. Eldsvoði í íbúðar- húsi í Njarðvík SJÓPRÓF vegna atviksins er Aron ÞH sökk norður af Grímsey hinn 30. september sl. fóru fram hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Aron ÞH var á rækjuveiðum er hann sökk snemma morguns en fimm manna áhöfn skipsins var bjargað um borð í Sæþór EA. Allir fimm skipverjarnir voru yfirheyrðir í héraðsdómi, einnig fyrrverandi vélstjóri Arons. Ekki kom fram hjá skipverjum skýring á því hvað gæti hafa valdið því að sjór flæddi í vélarrúm og lest skipsins með fyrrgreindum af- leiðingum. Skipstjóri, vélavörður og matsveinn voru sofandi þennan morgun, yfirvélstjóri var í borð- salnum og stýrimaðurinn einn í brúnni. Gott veður var þegar óhappið varð og lítil hreyfing á skipinu. Fram kom í máli Harðar Alberts Harðarsonar yfirvélstjóra að menn hefðu átt í vandræðum með röra- lagnir um borð, sem hefðu verið að fara í sundur, og hefði verið unnið að endurnýjun þeirra. Einnig kom fram að mikil útleiðsla hefði verið í rafmagni frá því hann réð sig um borð fyrir um tveimur árum. Þá kom gat á vatnstank stjórnborðs- megin á síðasta ári vegna tæringar en gert var við tankinn um síðustu áramót. Sú viðgerð entist þó aðeins í um hálfan mánuð, að sögn Harðar vélstjóra. Hann sagðist hafa reynt að loka fyrir botnloka, eftir að sjór var kominn í vélarrúmið en ekki getað það þar sem sveif sem notuð er til verksins fannst ekki. Viðar Sigurðsson, stýrimaður sem var í brúnni, sagðist ekki hafa fengið neina viðvörun um að sjór væri í vélarrúmi. Hann sagðist hafa kíkt niður á millidekk, þar sem skipið hafi hagað sér eitthvað öðru- vísi um tíma en ekki orðið var við neitt óvenjulegt. Eftir að drapst á vél hefði hann litið í vélarrúm og lest og séð þar sjó. Hann vakti svo vélavörðinn og matsveininn en skipstjórinn vaknaði er drapst á vélum skipsins en þá var kominn mikill sjór í skipið og ljóst að sögn Viðars, að lekinn væri mikill. Helgi Eiríksson vélavörður var í sínum fyrsta túr á Aroni þegar skipið sökk og aðeins í sínum öðr- um túr á ferlinum. Hann sagðist aðspurður ekki hafa séð sveifina um borð sem notuð var til að loka fyrir botnloka. Jens Klein mat- sveinn var einnig í fyrsta túr sínum á Aroni. Ágúst H. Borgþórsson, fyrrver- andi vélstjóri, var spurður um tær- inguna í vatnstanknum og hann staðfesti að viðgerðin hefði ekki tekist sem skyldi og tankurinn ver- ið farinn að leka aftur um 10 dög- um síðar. Sjópróf vegna Arons ÞH sem sökk norður af Grímsey Leki í vélarrúm og lest óljós GEIR H. Haarde fjár- málaráðherra hefur tekið sæti í ráðgefandi stjórn nýrrar stofn- unar við Brandeis- háskóla í Bandaríkj- unum á sviði al- þjóðlegra efnahags- og fjármála. Stofnunin, sem kennd er við Barböru og Richard Rosenberg, hefur það hlutverk að rannsaka þróun á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sem og efnahags- framvindu bæði út frá fræðilegu og stefnu- mótandi sjónarhorni. Geir er fyrrum nemandi við Brandeis-háskóla. „Ég hef haldið ákveðinni tryggð við skólann og menn í hagfræðideildinni, sem hafa síðan ég var þarna, stækkað deild- ina mikið og búið til framhaldsskóla með áherslu á alþjóðleg efnahags- mál og viðskipti,“ segir Geir. „Ros- enberghjónin ákváðu svo að koma á fót nýrri stofnun innan þessara vé- banda og var þá leitað til mín og margra fleiri að taka þátt í því. Það er mér bæði heiður og ánægja,“ segir Geir en hann kom frá Banda- ríkjunum í gær af fyrsta fundi. Tók þátt í ráðstefnu um fjármögnun lífeyrismála Á föstudaginn var svo efnt til fjöl- mennrar ráðstefnu um fjármögnun lífeyrismála í al- þjóðlegu samhengi í tengslum við fyrsta fund stjórnarinnar. Aðalræðumaður á ráðstefnunni var Martin Feldstein, hagfræðingur við Harvard-háskóla og fyrrverandi efnahags- ráðgjafi forseta Bandaríkjanna. Geir H. Haarde var ræðu- maður í hádegisverði ráðstefnunnar og ræddi um lífeyrismál á Íslandi. Í ráðgefandi stjórn Rosenberg-stofnunarinnar sitja fjórtán manns víða að úr heim- inum, þeirra á meðal efnahags- málaráðherra og varaforsæt- isráðherra Búlgaríu og vara- fjármálaráðherra Kanada en einnig ýmsir úr hinum alþjóðlega viðskiptaheimi. Gott að hafa þessi tengsl Geir segir ánægjulegt að fá tæki- færi til að taka sæti í stjórn þess- arar stofnunar. „Það er líka gott að hafa þessi tengsl. Þarna kynnist maður fólki sem nálgast hlutina út frá öðrum sjónarhornum en maður er vanur og það er gott að hafa aðgang að ólíkum aðilum í sambandi við svona málefni,“ segir Geir. Geir H. Haarde í ráðgef- andi stjórn stofnunar við Brandeis-háskóla Geir H. Haarde BEIÐNUM um mataraðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar hefur á árinu fjölgað um 240 frá sama tíma í fyrra og beiðnunum fjölgar nú um 15% á mánuði. Þetta kom fram í er- indi sr. Þórhalls Heimissonar á árs- fundi Tryggingastofnunar. Fjallaði Þórhallur um fjölskylduna og velferð- arkerfið út frá reynslu sinni sem prestur í Hafnarfirði. Sagði hann fá- tækt því miður ríkja víða í samfélag- inu. Stéttaskipting verði til á milli barna, t.d. þeirra sem fara í tónlistar- skóla og sumarbúðir og hinna sem eiga foreldra sem ekki gætu borgað slíkt. „Á undanförnum árum hefur stór- lega færst í aukana hjálp kirkjunnar til að standa undir kostnaði við sum- arbúðir og félagsstarf barna, en einn- ig bókakaup og kaup á skóladóti. Það þurfa foreldrar að kaupa dýrum dóm- um hér á landi, öfugt við hin Norð- urlöndin. En verst af öllu þykir mér þegar konur með lítil börn á leikskóla- aldri knýja dyra hjá okkur prestunum undir lok mánaðarins, í leit að aðstoð, því að ekki er til matur á heimilinu handa börnunum. Og það gerist á Ís- landi í dag, árið 2002, í landi þar sem nægtaborðið svignar hjá svo mörg- um,“ sagði Þórhallur. Hann sagði Ís- lendinga hálfdrættinga í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir þegar metið er hve stór hluti þjóðarkökunn- ar rynni til málefna fjölskyldunnar. Beiðnum um aðstoð fjölgar um 15%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.