Morgunblaðið - 13.10.2002, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 49
Brósi, Caracter, Carmen, Cleo, Dúddi, Elegans, Hár- og snyrting, Hárný,
Hársaga, Höfuðlausnir, Jói og félagar, Medulla, Möggurnar, Salon Veh, Perma.
w w w. i n t e r c o i f f u r e . i s
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar með
ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Rekstur bónstöðvar Löðurs til leigu. Gott tækifæri fyrir duglega menn
sem vilja byrja eigin rekstur.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað. 4—6
störf.
Mjög þekkt veitingahús í miðbænum. Langt skemmtanaleyfi. Ársvelta
120 m. kr. Mikill og vaxandi hagnaður.
H-búðin Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.
Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Mjög
mikið að gera. Hentugt fyrir 3—4 starfsmenn.
Lítil en þekkt smurbrauðsstofa og veisluþjónusta með góð tæki og
mikla möguleika.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður.
Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt myndbandasjoppa í Breiðholti með
góða veltu. Gott tækifæri fyrir byrjendur sem eiga ekki mikla peninga.
Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu í matvöru óskar eftir samein-
ingu til að nýta góð tækifæri.
Þekkt íþróttavöruverslun. Ársvelta 25-30 m. kr. Auðveld kaup.
Lítil verslun og verkstæði með reiðtygi og aðrar hestavörur. Gott fyrir
laghentan hestamann.
Kaffi- og veitingahúsið Vivaldi, Borgarnesi. Ársvelta 20 m. kr. Rekstrar-
leiga kemur vel til greina.
Vel þekkt húsgagnaverslun. Eigin innflutningur. Ársvelta 24 m. kr. Mjög
hagstætt verð.
Gömul og þekkt sérverslun við Laugaveg með nærföt og náttföt. Góð
evrópsk umboð. Velta um 2—3 m. kr. á mánuði sem hægt er að marg-
falda. Ágætur hagnaður. Auðveld kaup.
Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130
m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð.
Traustur bifvélavirki óskast sem meðeigandi og framkvæmdastjóri að
alhliða bílaþjónustufyrirtæki á Selfossi. Gott húsnæði og vel tækjum
búið.
Rótgróin deild úr heildverslun með búsáhöld. Sala 10,2 m. kr. á ári,
framlegð 5 m. kr.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vinnuvélar, lyftara o.fl. Ársvelta
20-30 m. kr. Ágætur hagnaður.
Ein stærsta og besta myndbandasjoppa borgarinnar. Ársvelta 100 m.
kr. Mikill hagnaður, góð fjárfesting.
Rótgróið veitingahús við Bláa Lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin
húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.
Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala mælibúnaðar fyrir framleiðslu- og mat-
vælafyrirtæki. Framlegð 5 m. kr. á ári.
Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1-2
starfsmenn, sérstaklega smiði.
Stór krá í miðbænum. Ein stærsta krá borgarinnar.
Þekkt innrömmunarfyrirtæki með eigin innflutning. Ársvelta um 20 m.
kr. Meðeign eða sameining möguleg.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki
í svipaðri starfsemi.
Barnavöruverslun og heildverslun. Góð umboð. Ársvelta 25 m. kr.
Trésmiðja í nágrenni Reykjavíkur. Eigið húsnæði. Ágæt tæki.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir
dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 40-50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn.
Stór heildverslun með iðnaðarvélar. Ársvelta 200 m. kr.
Heildverslun með sælgæti. 60 m. kr. ársvelta. Föst viðskipti. Góður
hagnaður. Meðeign eða sameining möguleg.
Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning.
Vinnuvélaverkstæði í eigin húsnæði, vel staðsett. Ársvelta 35 m. kr.
Föst viðskipti við traust fyrirtæki. Hentugt fyrir tvo samhenta bifvéla-
virkja.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Afmælisþakkir
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim, sem
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum,
símtölum og heillaskeytum á 90 ára afmæli
mínu 19. september sl.
Kær kveðja,
Stefán Sigmundsson,
Kleppsvegi 62, Reykjavík.
Icelandair efnir til námskeiðs fyrir fólk sem vill takast
á við flugfælni. Slík námskeið eru yfirleitt haldin á
vegum flugfélaga í löndum í kringum okkur og hafa
flest svipaða uppbyggingu.
Kenndar verða aðferðir til að vinna bug á kvíða og
fælni og farið yfir þætti sem tengjast flugvélinni og
fluginu sjálfu.
Námskeiðinu lýkur með flugferð til eins af áfanga-
stöðum Icelandair í Evrópu.
Njótið þess að fljúga
Námskeiðið hefst
21. október n.k.
Skráning fer fram
í starfsþróunardeild
í símum: 50 50 173
50 50 193
Leiðbeinendur:
Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur
og Páll Stefánsson flugstjóri.
Verð: 30.000 kr. (allt innifalið).
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
19
05
4
1
0/
20
02
MAGNÚS Þ. Bernharðsson
verður frummælandi á hádeg-
israbbfundi Sagnfræðinga-
félags Íslands og Reykjavík-
urAkademíu mánudaginn 14.
október.
Yfirskrift fundarins er
„Hnattvæðing eða „islamsvæð-
ing“? Ástand og horfur í Mið-
Austurlöndum“. Magnús hefur
mikið rannsakað sögu þessa
heimshluta og er nú lektor í
miðausturlandafræðum og isl-
ömskum fræðum við Hofstra-
háskóla (NY). Fundurinn fer
fram í fundarsal Reykjavík-
urAkademíunnar á 4. hæð í JL-
húsinu á Hringbraut 121 og
hefst klukkan 12:05. Allir eru
velkomnir.
Magnús lauk BA-próf frá HÍ
(1990) með stjórnmálafræði
sem aðalgrein og guðfræði sem
aukagrein. Hann lauk meist-
aragráðu í trúarbragðafræðum
frá guðfræðideild Yale-háskóla
(1992) og stundaði síðan nám í
arabísku í Damaskus á Sýr-
landi (1992–93). Hann lauk
doktorsprófi frá sagnfræðideild
Yale-háskóla (1999). Um þessar
mundir vinnur hann að ritun
menningar- og stjórnmálasögu
Íraks 1941–1991 með sérstöku
tilliti til samskiptanna við
Bandaríkin og Bretland. Hann
hefur kennt við Hofstraháskól-
ann síðan 1999.
Hnattvæð-
ing eða
„islams-
væðing“?
ATVINNA mbl.is