Morgunblaðið - 13.10.2002, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 17
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
D
ub
lin
Ekki
missa
af
37.995kr.
42.120kr.
25. október - 3 nætur
Sta›grei›sluver› frá
á mann í tvíb‡li
á hótel Ormond Quay
6. desember - 2 nætur
Sta›grei›sluver› frá
á mann í tvíb‡li
á hótel Paramount
Innifalilð: Flug, flugvallarskattar,
gisting með morgunverði
og íslensk fararstjórn.
ÉG HEF áður vikið að um-ferðarmannvirkjum ogstundum undarlegrihönnun þeirra á þessumvettvangi. Líkt og svo
ótalmargir Íslendingar verð ég að
eyða töluverðum tíma í bíl í hverri
viku og þess vegna eru þessi mál
mér hugleikin. Ég ætla því að leyfa
mér að að víkja aftur að þessu hér.
Ég heyrði nefnilega í útvarps-
fréttum að það stæði til að setja
hringtorg á Reykjanesbrautina í
Hafnarfirði í
stað þess að
byggja dýrari
og afkastameiri
umferðarmann-
virki. Þetta eru
dapurlegar
fréttir. Hringtorg geta auðvitað átt
við á stöku stað, ef þau eru höfð
nægilega stór og greinilega gefið til
kynna hve margar akreinar þau
eru. En að ætla að koma slíku fyrir
á einni helstu samgönguæð á suð-
vesturhorni landsins lýsir að mínu
mati umtalsverðum dómgreindar-
skorti, en þó öllu fremur virðingar-
leysi.
Kannski má rekja hugsanagang-
inn sem að baki býr til almenns við-
horfs okkar til umferðar. Það virðist
afar tvíbent, svo ekki sé meira sagt.
Öll viljum við komast leiðar okkar
sem hraðast, en á hinn bóginn finnst
okkur eitthvað neikvætt og and-
styggilegt við bílaumferð. Að ekki
sé talað um þann voðalega vágest
einkabílismann, sem svo er nefndur
og við berum víst flestöll með okkur
eins og hroðalegan og smitandi
sjúkdóm. Það er engu líkara en við
skömmumst okkar fyrir að eiga alla
þessa bíla og nota þá jafnmikið og
raun ber vitni. Það er ef til vill af
þessum ástæðum sem við lítum ekki
á umferð og umferðaræðar sem
sjálfsagðan og í raun jákvæðan hlut,
þar sem allir hagnast á því að allt
gangi snurðulaust fyrir sig. Þar sem
stöðugt flæði er eftirsóknarvert.
Hér er umferðin allt í senn,
hnefaleikahringur, kappakstur á
símaklefum og útrás fyrir almennt
ergelsi og vanlíðan. Það vitum við
öll og tökum sérstaklega mikið eftir
því ef við erum nýkomin að utan og
höfum ekið um slóðir þar sem um-
ferðin er tekin alvarlega. En af
hverju stafar þessi vanþroski?
Það læra börnin sem fyrir þeim
er haft. Þetta á við í umferðinni líkt
og flestu öðru. Þeir sem vinna við
umferðarmannvirkin, hönnun
þeirra, byggingu og viðgerðir ættu
að sýna okkur vegfarendum gott
fordæmi með því að hanna haganleg
mannvirki sem hefðu það augljósa
markmið að greiða fyrir umferð í
stað þess að flækja hana og stuðla
að sífelldum hraðabreytingum. Það
gera þeir ekki.
Þeir ættu að gæta þess vandlega
þegar loka þarf götum eða akrein-
um að kynna slíkt í tíma og benda á
aðrar leiðir. Þegar um miklar um-
ferðaræðar er að ræða, ætti
að taka sérstakt tillit til
þess og gera ráðstafanir
sem taka mið af því. Þetta
gera þeir ekki heldur nema
í lofsverðum undantekn-
ingartilfellum allra síðustu
misserin.
Þvert á móti opinbera
þeir eigin virðingarleysi
með því að búa til fáránleg
og órökrétt umferðar-
mannvirki og með því að
skella upp merkjum um
viðhaldslokanir beint fyrir
aftan vinnuvélarnar, svo
ökumönnum gefst ekkert
færi á að velja sér aðrar
leiðir.
Það er staðreynd að
helstu umferðaræðar á höf-
uðborgarsvæðinu gegna
núorðið sama hlutverki og
hraðbrautir í erlendum borgum.
Það er hins vegar langur vegur frá
því að þær sjálfar og gatnamót sem
þær liggja um taki mið af þessu.
Ugglaust er ódýrast að skella
bara hringtorgum niður út um allt
til að fækka slysum og búa til
himneskan stundarfrið á helstu
vígaslóðum íslenskrar borgarum-
ferðar, en er ekki vænlegra að taka
mið af veruleikanum sem við blasir
og sýna þessum hálfvöxnu hrað-
brautum þá virðingu sem þeim ber?
Væntanlega yrði það einnig vegfar-
endum sjálfum hvatning til að nálg-
ast umferðina af meiri virðingu,
með þeirri aðgát og tillitssemi sem
því fylgir.
Hringtorg hins himneska friðar
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ mánud. 7. okt. 23 pör.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Magnús Oddsson – Friðrik Hermannss. 292
Hörður Davíðsson – Einar Einarsson 262
Sigtryggur Ellertsson – Þórður Árnas. 259
Árangur A-V
Sæmundur Björnss. – Óliver Kristóf. 265
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 256
Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 231
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 10. október. 25 pör. Með-
alskor 312 stig.
Árangur N-S
Eysteinn Einarsson – Kristján Ólafss. 373
Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 371
Júlíus Guðm. – Hannes Ingibergss. 347
Árangur A-V
Björn E. Pétursson – Hilmar Ólafsson 376
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 359
Elín Jónsdóttir – Soffía Theódórsdóttir 343
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Hreyfils
Eiður Th. Gunnlaugsson og Jón
Ingþórsson tryggðu sér sigur í
hausttvímenningnum með mjög góðri
skor síðasta kvöldið. Skorin var 281
og fyrir áttu þeir 235 þannig að sam-
tals unnu þeir með 516 stigum. Fyr-
irkomulagið var þannig að spilað var í
þrjú kvöld og tvö bestu látin gilda.
Næstu pör:
Sigurjón Tryggvas. – Hjálmar Pálss. 507
Skafti Björnss. – Jón Sigtryggss. 501
Gísli Tryggvason – Heimir Tryggvason 495
Daníel Halldórss. – Guðlaugur Sveinss. 476
Birgir Kjartanss. – Árni Kristjánss. 476
Alls tóku 23 pör þátt í mótinu.
Íslandsmótið í einmenn-
ingi um aðra helgi
Íslandsmótið í einmenningi verður
spilað 18.–19. okt. í Síðumúla 37.
Spilamennska hefst kl. 19.00 föstudag
og lýkur um kl. 19.00 á laugardag.
Keppnisstjórar eru Sveinn Rúnar og
Björgvin Már. Allir spila sama kerfið
þ.e. einfalt Standard-kerfi og er hægt
að nálgast það á skrifstofunni eða fá
það sent í tölvupósti. Keppnisgjald er
kr. 2.500. Núverandi Íslandsmeistari í
einmenningi er Vilhjálmur Sigurðs-
son jr.
Skráning í s. 587 9360 eða
www.bridge.is.