Morgunblaðið - 13.10.2002, Page 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MARIELIS Seyler er fædd í Aust-
urríki árið 1942. Hún lærði ljósmynd-
un í Vín á sjötta áratugnum og um
áratug síðar teikningu og málun,
einnig í Vín. Hún vann sem ljósmynd-
ari og sýndi verk sín í ýmsum lönd-
um, rak Gallery Onnasch og Gallery
Gmurzynska í Köln á áttunda ára-
tugnum og Gallery Curtze og Gallery
Lang fram á níunda áratuginn. Hún
hefur stjórnað upptökum á sjón-
varpsþáttum og enn fremur lært for-
vörslu í fimm ár. Á níunda áratugn-
um tók hún aftur til við listræna
vinnu sína eftir nokkurt hlé og hefur
síðan sýnt myndir sínar víða um
heim.
Myndaserían sem Marielis Seyler
sýnir í Listasalnum Man nefnist Still-
ness, eða Kyrrð, og eru allar mynd-
irnar teknar hér á landi í fyrrasumar.
Sýningin á að fara víðar og gefin hef-
ur verið út bók með sama nafni sem
einnig má skoða á sýningunni. Í bók-
inni fylgja textar myndunum þar sem
fram kemur ljóðræn upplifun lista-
konunnar á íslensku landslagi. Einn
sá fyrsti leggur línurnar fyrir ætlun-
arverk hennar, – í minni þýðingu þar
sem ekki var boðið upp á neitt slíkt á
sýningunni: Við stefnum á landvinn-
inga/ með viðkæmu andliti þínu/ og
hvítu, flæðandi efni. Marielis leggur
sem sagt land undir fót með einfalda
hugmynd í farteskinu, hún myndar
ljóshærða stúlku í hvítum kjól/efni
með ógnarlöngum slóða, helst í gróð-
ursnauðu hrauni eða sandi. Myndirn-
ar eru svart/hvítar og grófkornóttar.
Framsetning þeirra gefur til kynna
að hún hafi málverk í huga, þær eru
límdar á striga sem strekktur er á
blindramma og eru áritaðar. Mann-
eskjan ein og lítil í hrjóstrugu lands-
lagi minnir á rómantísk málverk
nítjándu aldar. Hér er manneskjan
þó ekki borin ofurliði heldur heillast
hún af krafti náttúrunnar og er þetta
greinilegt í myndatextum þeim sem
eru í bókinni en fylgja ekki mynd-
unum á sýningunni. Textar eins og:
Litlar stúlkur særa varirnar/á odd-
hvössum gljáandi steinum/aftur og
aftur/aftur og aftur/þar til vorvindar/
gleypa í sig sætt munnvatnið – hér í
lauslegri þýðingu – birta áhorfand-
anum óvænta leiftursýn inn í heim
myndanna, gera hann að þátttakanda
á mun sterkari hátt en myndunum
tekst einum og sér. Myndirnar
standa að vísu líka sem sjálfstæð
verk en mér er spurn því þessi þáttur
var látinn liggja milli hluta við fram-
setningu verkanna í sýningarsal,
þegar hann er óaðskiljanlegur þáttur
verkanna í bókarformi.
Í heild er myndröðin vel unnin og
vandlega hugsuð, myndrænir mögu-
leikar þessa einfalda efniviðar eru vel
nýttir og framsetning myndanna,
samspil þeirra og stærð vinna öll með
efninu. Marielis tekst í myndum sín-
um að snerta þær taugar sem eru í
okkur flestum, taugar okkar Íslend-
inga til grjóts og steina, hún birtir
manneskju í landslagi á ljóðrænan og
fallegan hátt. Svona einföld hugmynd
fellur auðveldlega um sjálfa sig ef
ekki er vel unnið úr henni, breytist í
auglýsingu fyrir skyr, handunnið ís-
lenskt hör eða eitthvert símafyrir-
tækið. Hér gerist þetta ekki, lista-
konunni tekst að halda myndum
sínum ferskum og ósnortnum; mynd-
bygging, áferð og grafískir eiginleik-
ar gera það að verkum að þær standa
fyllilega fyrir sínu.
MYNDLIST
Listasalurinn Man
Til 14. október. Sýningin er opin daglega
á verslunartíma og á sunnudögum frá kl.
14 til 18.
LJÓSMYNDIR, MARIELIS SEYLER
Landvinningar með
viðkvæmu andliti
Ragna Sigurðardóttir
Eitt af verkum Marielis Seyler.
TÓNVERK Atla Heim-
is Sveinssonar, Tíminn
og vatnið, við ljóð
Steins Steinarr, sem
nýlega var gefið út á
geisladiski í Þýska-
landi, hefur fengið
einkar góða dóma í
þýska blaðinu Neue
MusikZeitung og raun-
ar hæstu mögulega
einkunn.
„TÖFRAR þessa
skáldskapar eru ein-
stakir og þessum töfr-
um ljóðlistarinnar er
reynt að koma til skila
í tónlistinni og það
tekst æ betur eftir því
sem á verkið líður.“
Þannig verður smám saman til,
segir í dómnum, úr samspili söngv-
anna/ljóðanna 23 og hinna 22 hljóð-
færa heildstæður og æðri tón-
heimur sem sé einna
fegurstur í lokaþætt-
inum, Fljótandi vatni.
Þá segir að Atli
Heimir – sem m.a. hafi
numið hjá Günter
Raphael, B.A. Zimmer-
mann og G.M. Koenig
– kunni þá list að ná
fram hámarkslitadýrð
og margbreytileika í
samspili kammersveit-
arinnar, kórsins og
einsöngvaranna.
Í dóminum segir
einnig að stjórnand-
anum, Paul Zukofsky,
takist að leiða Kamm-
ersveitina í „ótrúlegar
hæðir“ sem krefjist jafnframt ýtr-
ustu tækni af sveitinni. Uppfærsla
verksins sé hreint frábær og í raun
lifandi dæmi um uppfærslu nútíma-
tónverks eins og hún gerist best.
Tíminn og vatnið
fær lof í Þýskalandi
Atli Heimir
Sveinsson
LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur ætlar
næstu þrjá mánuði að bjóða lands-
mönnum að sjá einþáttungaröð í
Kaffileikhúsinu. Verkefnið hefur
hlotið nafnið Þetta mánaðarlega, en
ný sýning verður sett upp í hverj-
um mánuði og eingöngu verða tvær
sýningar á hverju verki.
Sýningar októbermánaðar verða
annaðkvöld og þriðjudagskvöld kl.
20. Að þessu sinni verða sýndir
fimm einþáttungar: Fram og aftur
– um ástina og Ég elska þessa
þögn, eftir Fríðu B. Andersen, Þú
segir ekki eftir Hrefnu Friðriks-
dóttur, Í húsinu eftir Sigrúnu Ósk-
arsdóttur og Sambekkingar eftir
Þórunni Guðmundsdóttur, en Þór-
unn samdi söngleikinn Kolrössu
sem Hugleikur sýndi í Tjarnarbíói
síðasta vetur.
Einþáttungarnir koma allir úr
smiðju Hugleikara, en hópurinn
setur aðeins upp frumsamið efni.
Leikstjórn er sömuleiðis í höndum
félagsmanna, en undanfarin ár hef-
ur hópur Hugleikara sótt námskeið
í leikstjórn í Leiklistarskóla Banda-
lags íslenskra leikfélaga sem starf-
ar í Svarfaðardal á hverju sumri.
Miðasala er í síma 551-9030.
Hugleikararnir Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Þórunn Harðardóttir í
einþáttungnum Þú segir ekki sem er eftir Hrefnu Friðriksdóttur.
Einþáttungaröð Hug-
leikara í Kaffileikhúsinu