Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isGuðmundur ráðinn landsliðsþjálfari
í frjálsum íþróttum/B1
Vigdís segist verða betri í
markinu með aldrinum/B2
12 SÍÐUR56 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
MARKAÐSVIRÐI eignarhlutar rík-
isins í Landsbanka Íslands hf. hefur
aukist um rúma 16 milljarða kr. frá
því að stofnað var hlutafélag um
rekstur bankans í september árið
1997, samkvæmt útreikningum
Landsbréfa.
Tilkynnt var um sölu á 45,8% hlut
ríkisins í Landsbankanum til Sam-
son eignarhaldsfélags ehf. sl. laug-
ardag og nemur söluverðmæti hlut-
arins um 12,3 milljörðum kr. að
núvirði. Þegar hlutafélag um Lands-
bankann var stofnað 1997 var hlutafé
bankans í upphafi 5,5 milljarðar kr.
Fyrsta sala ríkissjóðs á hlut hans í
bankanum fór fram í desember 1999
og nam söluandvirðið rúmum 3,2
milljörðum kr. Önnur sala fór fram í
júní á þessu ári þegar 20% hlutur
ríkisins var seldur og nam söluand-
virðið tæpum 4,8 milljörðum. Séu
þessar fyrri sölur ríkissjóðs í bank-
anum færðar til verðlags í dag og
nýjustu sölunni bætt við, nemur
samanlagt söluandvirði hlutabréfa
ríkissjóðs í Landsbankanum frá upp-
hafi tæpum 20,9 milljörðum kr.
Eftir söluna til Samson er eftir-
standandi hlutur ríkissjóðs í Lands-
bankanum 2,5% og er verðmæti þess
hlutar tæplega 670 millj. kr. miðað
við gengið 3,91. Skv. þessum for-
sendum nemur verðmætaaukning
hlutar ríkisins í bankanum frá stofn-
un hlutafélagsins rúmum 16 millj-
örðum kr. og er þá ekki tekið tillit til
arðgreiðslna sem ríkið hefur notið af
eign sinni í bankanum á þessu tíma-
bili.
Hlutafélagavæðing Landsbankans
Verðmætaaukning
ríkisins 16 milljarðar
DANÍEL S. Lárusson,
starfsmaður á skrif-
stofu Morgunblaðsins,
andaðist á sjúkrahúsi í
Búdapest aðfaranótt
mánudags eftir
skamma sjúkdóms-
legu. Hann var 54 ára
að aldri.
Daníel fæddist á
Akranesi 22. desember
1947, sonur hjónanna
Lárusar Þjóðbjörns-
sonar, húsasmíða-
meistara á Akranesi,
og konu hans, Mar-
grétar Jóhannsdóttur, og var Daníel
næstyngstur sjö systkina.
Daníel lauk prófi sem rafeinda-
virki frá Iðnskólanum í Reykjavík
árið 1970 en hóf strax að námi loknu
störf hjá IBM á Íslandi þar sem hann
starfaði sem yfirmaður fyrirtækja-
þjónustu um skeið en síðar sem kerf-
isfræðingur og sölu-
maður.
Hann réðst til Morg-
unblaðsins l. mars 1985
og bætti þá við sig
rekstrar- og viðskipta-
námi hjá Endurmennt-
unarstofnun HÍ. Hann
veitti forstöðu bók-
haldsdeild blaðsins til
dauðadags. Daníel var
mikill útivistarmaður,
félagi í Útivist og vann
mikið að uppbyggingu á
aðstöðu félagsins í
Þórsmörk og víðar.
Eftirlifandi kona Daníels er
Dóróthea Magnúsdóttir og hann læt-
ur eftir sig tvær uppkomnar dætur,
Árnýju og Brynju. Morgunblaðið
þakkar Daníel Lárussyni farsæl
störf fyrir fyrirtækið og sendir
Dórótheu, dætrum og aðstandend-
um öllum innilegar samúðarkveðjur.
Andlát
DANÍEL S.
LÁRUSSON
ÆTTINGJAR farþeganna sem fór-
ust þegar flugvélin TF-GTI fórst í
Skerjafirði 7. ágúst árið 2000 eða lét-
ust af völdum flugslyssins, hafa höfð-
að mál fyrir bandarískum dómstólum
gegn Ísleifi Ottesen og Þorleifi Júl-
íussyni og fyrirtækjum í eigu þeirra í
Bandaríkjunum og fleirum sem komu
að ferli flugvélarinnar þar í landi.
Að sögn Jóns Ólafs Skarphéðins-
sonar, föðurs eins þeirra sem létust,
hefur lögfræðistofa í Jackson í Miss-
issippi tekið að sér málareksturinn
upp á hlut í hugsanlegum skaðabót-
um en ættingjarnir munu engan
kostnað bera. Lagatæknilegar
ástæður valdi því að ættingjar flug-
mannsins taki ekki þátt í málshöfð-
uninni.
Jón tekur skýrt fram að af hálfu
ættingjanna snúist málshöfðunin
ekki um skaðabætur. Þeir vilji ein-
faldlega leiða í ljós hvort refsivert at-
hæfi hafi átt sér stað í Bandaríkjun-
um varðandi feril flugvélarinnar og
hreyfilinn sem var í henni þegar hún
hrapaði í Skerjafjörðinn. Jón bendir
á að Ísleifur hafi keypt vélina á upp-
boði í Bandaríkjunum, látið setja
hana saman eða sett hana saman
sjálfur. Jules Aircraft-viðhaldsstöðin
í El Paso sem sé í eigu Þorleifs Júl-
íussonar, hafi síðan veitt henni svo-
nefnda ársskoðun og þar með vottað
lofthæfi vélarinnar en Þorleifur hafi
a.m.k. um tíma verið viðskiptafélagi
Ísleifs. Hann hafi auk þess útbúið
nýjar dagbækur sem fylgdu vélinni
ekki þegar hún var keypt á uppboð-
inu.
Aðspurður segir Jón að lögfræði-
stofan hafi boðist til að taka að sér
málið eftir að ættingjarnir kynntu
það fyrir fulltrúum stofunnar. Ætt-
ingjarnir hafi orðið að leita til banda-
rískra lögfræðinga enda beinist málið
gegn fyrirtækjum í eigu Ísleifs og
Þorleifs í Texas og Nýju-Mexíkó og
snúist um atvik sem áttu sér stað þar
en ekki á Íslandi. Þeir Ísleifur og Þor-
leifur hafi farið fram á að málið yrði
flutt hér á landi en því hafi verið hafn-
að.
Stefnurnar voru birtar í sumar, áð-
ur en tvö ár voru liðin frá slysinu en
að sögn Jóns rennur þá út frestur til
að höfða mál af þessu tagi.
Ættingjar fórnarlamba flugslyssins í Skerjafirði
Mál höfðað í
Bandaríkjunum
ÞEGAR kuldaboli kemur í bæ-
inn getur verið ágætt að vera úr
bronsi en ekki af holdi og blóði.
Ekki er þörf á að búast húfu eða
þykkri úlpu heldur nægja
adamsklæðin fullkomlega.
Það er því engin þörf á að
vorkenna „grey styttunum“ eins
og Spilverk þjóðanna gerði einu
sinni. Jafnvel þótt enginn nenni
að horfa á þær.
Ekki þarf
að vor-
kenna
styttunum
Morgunblaðið/RAX
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s
Investors Service hefur hækkað
lánshæfismat skuldabréfa og banka-
innstæðna í erlendri mynt vegna
skuldbindinga Íslands í Aaa sem er
hæsta einkunn sem gefin er. Ísland
hafði áður einkunnina Aa3. Jafn-
framt hefur einkunn Ástralíu og
Nýja-Sjálands verið hækkuð úr Aa2
í Aaa. Breytingin er niðurstaða af
endurmati á lánshæfi ríkjanna í
framhaldi af breytingu á aðferða-
fræði hjá Moody’s sem gerð var árið
2001. Skuldabréf í erlendri mynt
sem eru gefin út eða með ábyrgð
stjórnvalda á Íslandi, Nýja-Sjálandi
og í Ástralíu fá nú sama mat og gild-
ir um innlendar skuldbindingar
ríkjanna, það er Aaa.
Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabanka Íslands setur lánshæf-
iseinkunn ríkis þak á lánshæfi inn-
lendra aðila vegna skuldbindinga
þeirra í erlendri mynt. Með henni er
lagt mat á hversu mikil hætta sé á að
ríkisvaldið stöðvi greiðslur vegna af-
borgana á erlendum skuldum til að
koma í veg fyrir að gjaldeyrisvara-
sjóðir þverri. Í frétt Moody’s segir
að fyrirtækið telji sífellt minnkandi
líkur á að stjórnvöld í þróuðum iðn-
ríkjum, eins og þeim sem fengu láns-
hæfismatið hækkað í gær, myndu
beita greiðslustöðvunum sem stjórn-
tæki. Stjórnarhættir í ríkjunum á
síðastliðnum áratug hefðu ennfrem-
ur sýnt fram á að þverrandi líkur
væru á að ríkissjóðir þar tækju á sig
alla ábyrgð vegna erlendra skuld-
bindinga annarra opinberra aðila eða
einkaaðila. Ennfremur segir í til-
kynningu frá Moody’s að vegna þess
Moody’s hækkar lánshæfis-
mat Íslands upp í efsta flokk
að í ríkjunum væri fylgt sveigjan-
legri gengisstefnu væru minni líkur
á að þau yrðu fyrir barðinu á gjald-
eyriskreppum sem gætu verið fylgi-
fiskar fastgengisstefnu.
Í hálffimm-fréttum Búnaðarbank-
ans segir að áhrif þessa nýja mats
Moody’s hljóti að teljast jákvæð fyrir
íslenska hagkerfið og hagstjórn und-
anfarinna ára. „Hækkun lánshæfis
ríkisins þýðir að lánskjör erlendis
batna og líklegt er að það eigi við um
alla erlenda lántöku, ekki bara lán-
töku ríkisins.“