Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf. Garðatorgi 3, 210 Garðabæ
Sími 565 6241 Fax 5 444 211 Netf.: netsalan@itn.is
Opið mán. - fös. kl. 10:00 - 18:00, lau. 10:00 - 12:00
OVERLAND og LIMITED
2003 ÁRG. ER KOMIN
JEEP GRAND CHEROKEE
NETSALAN
MEGN brunalykt er í tískuverslun-
inni Noa Noa á Laugavegi 42 og
verður hún lokuð um óákveðinn
tíma, að sögn Sverris Bergmann
Steinarssonar, eiganda hennar.
Hann var staddur í Lundúnum
þegar hann frétti fyrst af málinu og
átti ekki von á að sleppa eins vel og
raunin varð, enda bentu fyrstu frétt-
ir af málinu til þess að verslunin yrði
eldinum að bráð. Eiginkona hans fór
strax á vettvang og fylgdist með þró-
un mála um nóttina uns tekist hafði
að ráða niðurlögum eldsins. „Það er
eitthvað vatn í kjallaranum og verið
að meta skemmdir,“ segir Sverrir.
„Það er fyrst og fremst brunalykt
innandyra en það hefur ekki komið
neitt sót inn. Fyrstu fréttir sem ég
fékk af málinu voru þess eðlis að
maður bjóst við algjörri eyðilegg-
ingu. Miðað við stöðu mála held ég að
slökkviliðið hafi unnið þrekvirki.
Eldurinn teygði sig hingað yfir í hús-
ið, gluggakarmar eru sviðnir og
þetta stóð býsna tæpt.“
„Þetta stóð
býsna tæpt“
„ÉG hélt að þessu húsi yrði ekki
bjargað, en fyrir einskæran dugnað
slökkviliðsmanna var því bjargað –
það fer ekki á milli mála,“ segir
Svavar Júlíusson, eigandi Ecco-skó-
búðarinnar á Laugavegi 38.
Verslun hans slapp nánast
óskemmd að undanskildu vatnstjóni,
sem hann telur þó að hafi ekki alvar-
leg áhrif á reksturinn. „Við stefnum
að því að opna fyrir helgi.“ Um helm-
ingur skólagersins var fjarlægður til
að bjarga verðmætum og minnka
eldsmat í húsinu.
Svavar leynir ekki ánægju sinni
með slökkviliðsmennina sem börðust
við eldinn aðfaranótt sunnudagsins.
„Ég held að menn geti ekki verið
annað en ánægðir með slökkviliðs-
mennina eftir að hafa séð hvað þeir
gerðu hér um nóttina. Það er alveg
klárt mál,“ segir hann.
„Hélt að
þessu húsi
yrði ekki
bjargað“
LINDA Blöndal, sem bjó í risíbúð
á Laugavegi 40a, bjargaðist
naumlega úr eldsvoðanum með
því að stökkva fram af svölum í
tveggja metra hæð, fáklædd og
berfætt. Minnstu munaði að hún
lokaðist inni í brennandi húsinu,
en henni tókst að finna sér útleið
í tæka tíð. Svo virðist sem Linda
sé ein til frásagnar um hegðun
eldsvoðans í byrjun. Samkvæmt
frásögn hennar virðist eldurinn
hafa átt sér kröftugt upphaf í
porti vestan við húsið.
„Þar sem ég sat í herbergi
mínu og horfði á sjónvarpið varð
ég vör við bjarma utan frá sem
varpaði birtu inn í herbergið. Ég
leit út og sá þá að portið var
alelda. Á þremur sekúndum áttaði
ég mig á aðstæðum og greip
GSM-símann minn og úlpuna og
hringdi í 112 áður en ég hljóp
niður í íbúðina á neðri hæðinni til
að komast út. Þegar ég kom út á
stigagang tók á móti mér þykkur
og mikill svartur reykur. Þá
greip mig innilokunarkennd og
mér fannst ég ekki eiga neinnar
undankomu auðið. Ég hafði hins
vegar gleymt svölunum og fór
aftur inn í íbúðina, reyndar fyrir
heppni, því dyrnar höfðu skellst
að baki mér en fyrir tilviljun ekki
smollið í lás. Ég hljóp því út á
svalirnar, stökk út í myrkrið og
lenti á grindverki og hljóp eins og
fætur toguðu með eldinn að baki
mér. Ég mætti fljótlega slökkvi-
liðsmönnum og hjálpaði þeim að
átta sig á húsaskipan. Í framhald-
inu gerðist allt mjög hratt þangað
til tveir mjög almennilegir lög-
regluþjónar buðu mér að setjast
inn í lögreglubíl á Frakkastíg.“
Linda segir það hafa verið
slæmt að horfa upp á almenning,
sem var ágengur við lögreglu-
borðana ýmist í þeim tilgangi að
ná myndbandsupptökum af elds-
voðanum eða sjá ósköpin betur
með eigin augum. Segir hún að
áfallahjálp á vettvangi hafi enn-
fremur verið vanrækt af hálfu
lögreglu og slökkviliðsmanna, en
þegar aðgerðum hafi verið lokið
hafi allir verið einstaklega hjálp-
legir og viljað aðstoða á allan
hátt. Vill hún þakka þeim svo og
Rauða krossinum og öllum þeim
sem boðið hafa margvíslega að-
stoð.
Linda hefur búið í risíbúðinni
um tveggja mánaða skeið og býr
nú hjá móður sinni um stund-
arsakir. Hún leitaði sér aðhlynn-
ingar á Landspítalanum vegna
reykeitrunar en er orðin frísk.
Ung kona bjargaðist naumlega úr eldsvoðanum á Laugaveginum
Morgunblaðið/Golli
Linda fyrir framan svalirnar sem hún stökk fram af til að bjarga sér.
„Þykkur og
svartur reykur
tók á móti mér“
Í DAG mun Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins og lögreglan funda
með íbúum og verslunareigendum
í húsunum við Laugaveg sem urðu
eldinum að bráð á sunnudag.
Gangrýnt hefur verið að engin
áfallahjálp hafi verið í boði fyrir
íbúa sem komu fáklæddir út úr
íbúðum sínum. Tvær konur voru í
húsunum tveimur þegar eldurinn
kom upp, önnur þeirra fékk að
fara inn hjá nágranna en hin fékk
skjól í lögreglubíl.
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri
segir að þessi gagnrýni eigi fylli-
lega rétt á sér og nauðsynlegt sé
að fara betur yfir þennan hluta að-
gerðarinnar. „Ég átta mig ekki al-
veg á því hvers vegna þegar þetta
fór svona,“ segir Hrólfur. Sjúkra-
bílar og læknir hafi verið á vett-
vangi en þar sem aðaláherslan í
upphafi hafi verið lögð á að
tryggja að enginn væri inni í
brennandi húsunum og reyna að
slökkva eldinn hafi sjúkraflutn-
ingamennirnir, sem starfa einnig
sem slökkviliðsmenn, strax farið í
aðkallandi verkefni.
Verkaskipting óskýr
Hrólfur telur nauðsynlegt að
farið verði yfir verkaskiptingu
milli slökkviliðs og lögreglu, marg-
sinnis hafi verið bent á að hún
væri ekki nógu skýr. „Hlutverka-
og ábyrgðarskiptingin er ekki al-
veg nógu skýr. Þótt það hafi ekki
komið neitt niður á störfum á
vettvangi eru menn kannski ekki
alveg öruggir á því hver á að gera
hvað.“
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn segir aftur á móti að verka-
skipting milli lögreglu og slökkvi-
liðs sé skýr. „Slökkvilið fer með
stjórn á brunavettvangi, það er al-
veg skýrt í lögum. Við vinnum allt-
af saman á vettvangi og er ekkert
óskýrt með það. Ef það er eitthvað
sem þarf að leysa þá bara tala
menn sig saman um það og ganga
saman í verkið.“
Geir Jón segir að umræðan um
að áfallahjálp hafi ekki verið nægi-
lega vel sinnt hafi komið lögregl-
unni verulega á óvart. Tíminn sé
naumur og hver sekúnda dýrmæt.
Mikilvægast sé að tryggja að ekki
verði slys á fólki og reyna að koma
í veg að tjón verði á eigum fólks.
Hann segir að alltaf sé hægt að
gefa sér tíma síðar til að fara yfir
áfallið.
Lögreglumenn hafi boðið fólki
að setjast inn í bíla, fólk hafi farið
inn í næstu hús og veitingastaður í
nágrenninu hafi boðið upp á heitt
að drekka. „Þarna var unnið frá-
bært starf, ekki slys á einum ein-
asta manni og mér finnst stórkost-
legt í einum stærsta bruna sem
hefur orðið í íbúðarbyggð í
Reykjavík á síðustu áratugum.“
Telur að gagnrýni um að áfallahjálp hafi
verið ófullnægjandi hafi átt rétt á sér
Fundað með íbú-
um og verslunar-
eigendum í dag
„ÞETTA var okkar mannlega
hlið sem birtist þarna,“ segir
Rúnar Harðarson, þjónn á
veitingahúsinu Barnum,
Laugavegi 45.
Rúnar og þjónar af nálægum
veitingahúsum lögðu sitt af
mörkum í baráttunni við elds-
voðann og afleiðingar hans
með því að færa fólki hress-
ingu út á götu, jafnt slökkvi-
liðs- og lögreglumönnum sem
björgunarfólki og íbúum hinna
brennandi húsa. Rúnar bauð
líka upp á skipti- og salern-
isaðstöðu innandyra um leið og
hann bar heitt kaffi og kakó í
þá sem voru við störf úti við í
brunakulda. Hjálparstarfið
hafði sín áhrif á rekstur stað-
arins, en Rúnar segir fólkið úti
á götu hafa haft forgang þessa
nótt.
„Það var ofboðslega mikið að
gerast á þessum tíma. Slökkvi-
liðs- og lögreglumenn og aðrir
voru á þönum og allir önnum
kafnir. Ég hugsa að enginn
hafi haft tíma til að gera sér
grein fyrir umfangi málsins,“
segir hann en tekur fram að
allir hafi sinnt sínu mjög vel.
Þjónar
komu með
kaffi
og kakó
ÍBÚAR húsanna á Laugaveg-
inum, sem brunnu aðfaranótt
sunnudags, fengu áfallahjálp í
Hallgrímskirkju í gær milli
klukkan 13 og 15. Langflestir,
ef ekki allir íbúanna, 13 talsins,
voru í viðtölum við þrjá aðila,
sr. Sigurð Pálsson, sóknarprest
í Hallgrímskirkjuprestakalli,
djákna í áfallateymi Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss og full-
trúa Rauða krossins.
Sr. Sigurður segir fólkið ráð-
villt eftir atburði helgarinnar
og hafi áfallahjálpin beinst að
því að styðja það í að ná áttum á
ný og veita því fyrstu aðstoð
vegna nauðþurfta og annars.
Íbúunum stendur til boða
áframhaldandi hjálp vegna at-
burðanna sé þess óskað.
Íbúunum
veitt
áfallahjálp
♦ ♦ ♦