Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Menn velta því nú fyrir sér hvort þessu langa pólitíska hjónabandi sé haldið saman með gömlu góðu steinaldaraðferðinni. Makamissir við andlát og skilnað Sorgarferlið og tilfinningar MARGIR þurfa aðtakast á viðmakamissi á lífs- leiðinni, en algengast er að það verði vegna skiln- aðar eða andláts. Maka- missir reynir oftast mjög á þolrif þeirra sem fyrir verða og í mörgum tilvik- um nær fólk varla utanum vandann. Á döfinni er fyr- irlestur Elísabetar Bertu Bjarnadóttur, félagsfræð- ings hjá Fjölskylduþjón- ustu kirkjunnar, og svar- aði hún nokkrum spurn- ingum Morgunblaðsins, bæði um fyrirlesturinn og starfsemi Fjölskylduþjón- ustu kirkjunnar. Hvað heitir fyrirlestur- inn sem þú ætlar að flytja, hvar verður hann haldinn og hvenær? „Fyrirlesturinn heitir „Maka- missir við andlát og skilnað“. Hann verður í Fossvogskirkju klukkan 20 til 22 fimmtudaginn 24. október á degi Sameinuðu þjóðanna. Vonandi verður ekki búið að blása til nýs stríðs á þess- um táknræna degi.“ Segðu okkur eitthvað frá efni fyrirlestursins og hvernig þú byggir hann upp. „Ég lýsi sorgarferlinu, hvaða tilfinningum má búast við og hvernig hjálp er góð. Ég legg áherslu á það sem sameinar okk- ur manneskjurnar og er okkur sameiginlegt þegar við verðum fyrir andlegum áföllum. Ég legg líka áherslu á að engir tveir ein- staklingar eru eins og við megum ekki ganga of langt í að alhæfa um sorgina, hvernig hún birtist eða hversu lengi. Ennfremur vara ég við öllum samanburði og karpi um hvort sé erfiðara að missa maka við andlát eða skilnað eins og stundum heyrist. Það er ekki viðeigandi. Fagfólk og að- standendur eiga að hlúa að hverri fjölskyldu fyrir sig miðað við heildarsýn á aðstæður viðkom- andi.“ Er þetta einhvers konar for- varnarfyrirlestur, eða er hann fyrir þá sem lent hafa í umrædd- um missi? „Hann er tvímælalaust fyrir þá sem hafa lent í makamissi og eiga um sárt að binda af þeim sökum.“ Hvað er mikil þörf fyrir efni af þessu tagi? „Það er mikil þörf, því fólki er oft hættara við að bera sig saman en standa saman. Það er grátlegt að heyra stundum fagfólk og stjórnmálamenn etja saman hóp- um sem búa við skort af ein- hverju tagi og slá því föstu hvor hópurinn má sín minna eins og gerðist í síðustu viku þegar það heyrðist að þeir sem aðeins meira mættu sín fengju hjálp úr vel- ferðarkerfinu þannig að þeir sem minnst mættu sín fengju ekki nóg. Í stað þess ber okkur að við- urkenna að við Íslendingar veit- um ekki nóg til velferðarkerfisins hvorki hins félagslega né heilbrigðiskerfisins. Þetta minnir á hringl í búrlyklum á óðalssetri. Fyrir utan standa skjálfandi hendur með tóma askana og þetta endar með jafnfráleitum lausnum og að hækka leiguna hjá hluta leigj- enda í félagslega kerfinu til að lækka hjá hinum. Hópar sem hvorugur hefur efni á að borga leigu því framfærslan er of lítil. Í hjóna- og fjölskyldumeðferðinni birtist þetta í vaxandi mæli í fólki á eins konar meðferðarflækingi. Margir hafa leitað víða áður en þeir hringja á Fjölskylduþjón- ustuna og ná í eitt og upp í þrjú viðtöl áður en þeim var vísað ann- að. Það er sárt að segja t.d. alla sína sólarsögu af erfiðum maka- missi og þurfa svo að fara annað og byrja aftur.“ Segðu okkur eitthvað frá Fjöl- skylduþjónustu kirkjunnar, hlut- verki hennar o.þ.h. „Fjölskylduþjónusta kirkjunn- ar er eins og nafnið bendir til rekin af kirkjunni til að mæta brýnni þörf í samfélaginu fyrir opið ódýrt aðgengi að hjóna- og fjölskyldumeðferð, jafnt við dauðsföll, yfirvofandi skilnaði eða samskiptaörðugleika. Viðtalið kostar 2.500 krónur. Helst vildum við geta veitt þau endurgjalds- laust. Hlutverk okkar er að taka viðtöl við hjón og sambýlisfólk sem prestar beina hingað þegar ljóst er að það þarf sérhæfðari þjónustu eða eftirfylgd í sorg. Margir prestanna bæði á sjúkra- húsunum og stærri sóknum hafa líka fleiri skjólstæðinga en þeir geta fylgt eftir einir. Við bjóðum velkomin hjón og sambúðarfólk af öllum stigum þjóðfélagsins og frá öllum trúarbrögðum þótt þjónustan sé niðurgreidd af þjóð- kirkjunni. Hingað leita múslimar og fólk utan kirkjunnar jafnt sem innan.“ Er mikið leitað til ykkar hjá Fjölskyldu- þjónustunni? „Já, það er mikið leitað til okkar. Við sinnum 200 til 250 fjölskyldum á ári. Við reynum að taka á móti öllum sem leita til okkar, en stundum getur mynd- ast biðlisti. Við vildum gjarnan hafa meiri mannafla heldur en raunin er en til þess þarf meira fjármagn. Ég geri mér þó grein fyrir því að ekki er til nægur pen- ingur til að veita öllum hópum allt sem þeir þurfa.“ Elísabet Berta Bjarnadóttir  Elísabet Berta Bjarnadóttir er fædd 6. júní 1950 á Svarfhóli í Stafholtstungum í Borgarfirði. Lauk námi í félagsráðgjöf í Staf- angri í Noregi árið 1983. Hún hefur síðan sérhæft sig í ein- staklings- hjóna- og fjölskyldu- meðferð og handleiðslu við fag- fólk í heilbrigðis- og kirkju- geiranum. Elísabet hefur m.a. starfað með fjölskyldum alkóhól- ista hjá SÁÁ, við geðdeild Land- spítalans, Æfingadeild Kenn- araháskólans, Unglingaráðgjöf ríkisins og síðast Fjölskylduþjón- ustu kirkjunnar frá 1997. Eig- inmaður er Nikulás Þórðarson, framkvæmdastjóri Rækju og skeljar, en Elísabet á tvö börn, Svanborgu og Þóri, frá fyrra hjónabandi. …vara við öllum sam- anburði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.