Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EIN AF hverjum þremur konum og einn af hverjum átta körlum eiga á hættu að fá beinþynningu einhvern tíman á ævinni og mörg beinbrot má rekja til þessa. ,,Erfðirnar skipta að minnsta kosti 70% máli, svo hin 30% eru lifnaðarhættir, þ.e. léleg næring, hreyfing og mataræði. Þetta skiptir allt máli. Konur eru í meiri áhættu, en þriðja hver kona og áttundi hver karl eiga á hættu að fá beinþynn- ingu. Beintapið er hvað mest fyrsta áratuginn eftir tíðarhvörf hjá konum en karlar fá beinþynn- ingu síðar á ævinni,“ segir Hall- dóra Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri Beinverndar. Beinþynning eykur hættuna á beinbrotum og er einkennalaus þar til greining liggur fyrir. Af- leiðingar geta verið slæmar fyrir einstaklinga, en afleiðingar eru einnig miklar fyrir atvinnulífið og heilbrigðiskerfið. Til að draga úr áhættu á bein- þynningu segir Halldóra að lík- amleg hreyfing skipti miklu máli ásamt ráðlögðum dagskammti af kalki og d-vítamín er einnig góð forvörn gegn beinþynningu. Beinvernd var stofnuð fyrir fimm árum og hefur frá stofnun einbeitt sér að fjölbreyttu fræðslu- og forvarnastarfi. Átak hafið Nýlega var farið af stað með átak til greiningar á beinþynn- ingu og gefst nú starfsfóki fyr- irtækja og stofnana kostur á að fara í beinþéttnimælingu á vinnu- stöðum. Einstaklingum gefst einnig kostur á að fara í bein- þéttnimælingu hjá Lyfju, en ná- kvæmari mælingar fara fram á Landspítalanum – háskólasjúkra- húsi í Fossvogi og á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Beinþéttnimælingin tekur stutta stund og segir til um ástand beina og hvort að þörf sé á frekari aðgerðum. Ef ein- staklingur greinist með beinþynn- ingu er honum vísað til frekari beinþéttnirannsókna. Átakið hófst formlega með athöfn í gær, mánudag, en verslunin Penninn- Eymundsson í Smáralind er með- al fyrstu fyrirtækja sem bauð starfsfólki sínu upp á beinþéttni- mælingu. Átak til greiningar á beinþynningu Morgunblaðið/Jim Smart Halldóra Björnsdóttir framkvæmir beinþéttnimælingu á starfsmanni Pennans-Eymundssonar. Mælingar hafnar á vinnustöðum víða um land ÞAÐ er auðvitað mjög jákvætt að Baugur er tilbúinn að sýna hvernig álagningu fyrirtæksins er háttað. En þetta er aðeins eitt lítið brot í miklu stærri mynd. Við þurfum einnig að skoða verð á innlendri framleiðslu og á innfluttum afurð- um og umhverfi innflutnings og verslunar hér á landi. Það þarf vandaða rannsókn á því hvers vegna matvælaverð hér er jafnhátt og raun ber vitni og hverju við þurfum að breyta svo íslenskir neytendur búi við sama eða svipað matvælaverð og nágrannalöndin. Þetta segir Rannveig Guð- mundsdóttir, Samfylkingunni, en hún var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um athugun á orsökum fyrir háu matvælaverði á Íslandi samanborið við önnur Norðurlönd og ríki Evrópusam- bandsins. Umræðan komin á villigötur Rannveig segir að sér finnist það einnig jákvætt að Baugur hafi lýst því yfir að hann ætli að gera eigin verðkönnun og að fyrirtækið hygg- ist skoða matarverð hjá sér í sam- anburði við aðra. Þróun umræð- unnar sé hins vegar á villigötum. Hún hafi fyrst og fremst snúist um smásöluverslunina en þetta sé miklu stærra mál. „Þegar bent hefur verið á þá staðreynd að matvælaverð hefur lækkað mikið í löndum sem hafa gerst aðilar að Evrópusambandinu hefur forsætisráðherra sagt: við þurfum ekki að ganga í Evrópu- sambandið til þess að lækka mat- arverðið hjá okkur. Ég er alveg sammála því að við getum gert þetta sjálf þótt staðreyndin sé að meira að segja í dýrari löndum ESB er matarverð miklu lægra en hér. En þá verðum við líka að vita hvað þarf að gera og þá verður þetta loksins spurning um vilja.“ Rannveig segir að í framhaldi af mjög góðri umræðu um málið í þinginu hafi forsætisráðherra beint mjög spjótum sínum að Baugi eins og verslunarhættir Baugs ráði mestu eða öllu um svarið við þess- um spurningum. „Þá hefur Halldór Blöndal ráðist mjög að Samkeppn- isstofnun, sem er veigamikill aðili í að fylgjast með verðmyndun á Ís- landi. Þessu máli hefur því verið beint í farveg sem myndar aðeins hluta af þeim spurningum sem við verðum að svara. Góðu viðbrögðin eru aftur á móti þau að forsætis- ráðherra hefur, að vísu eftir nokkra umræðu í þinginu og í sam- félaginu, sagt að hann styðji mig í þessu máli og það sé rétt að skoða þessa þætti og hvað valdi háu mat- arverði á Íslandi.“ Rannveig Guðmundsdóttir Er lítið brot af stærri mynd JÓN GERALD Sullenberger, for- stjóri Nordica Inc. í Flórída, segist fagna því að Baugur ætli að lækka matvöruverð á Íslandi og að fyrir- tækið sé tilbúið að opna bækur sínar, eins og fram kom í samtali í Morg- unblaðinu á sunnudag. Hann skorar jafnframt á heildsala að opinbera þá afslætti frá listaverði sem þeir veita t.d. Bónusi. Hann vísar á hinn bóg- inn á bug fullyrðingum stjórnenda Baugs í viðtali í Morgunblaðinu að í umræddum verðútreikningi hafi ekki verið tekið tillit álagningar Nordica, flutningskostnaðar, vöru- gjalda, gengis og tolla. Skýrslan hjá Baugi löngu áður en til viðskiptabresta kom „Þessi umtalaða skýrsla var gerð í nóvember og desember í samvinnu við starfsmenn Baugs en markmiðið með henni var að sýna fram- kvæmdastjórn Baugs fram á þær tekjur og tekjumöguleika sem þessi beini innflutningur hafði fyrir fyr- irtækið. Það var aldrei ætlunin að þessi skýrsla færi í fjölmiðla en vegna mikillar umræðu um hátt vöruverð á Íslandi höfðu fjölmiðlar samband við mig og báðu um þessi gögn. Ég veitti þeim þau enda eru reikningar okkar auðvitað opinber gögn sem hægt er að nálgast hjá Tollstjóraembættinu. Flóknara er það nú ekki.“ Jón Gerald segist geta staðfest að Tryggvi Jónsson, forstjóri Baugs, og Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar- formaður Baugs, hafi fengið þessa skýrslu í hendur 1. febrúar á þessu ári og löngu áður en kom til við- skiptabrests á milli fyrirtækjanna. „Mér kemur auðvitað hreint ekki við hvaða tekjur Baugur hefur en þegar þeir eru farnir að segja ósatt og fjölmiðlar eru farnir að hafa sam- band við mig get ég ekki annað en brugðist við því.“ Jón Gerald segist vísa alfarið á bug staðhæfingu Árna Péturs þess efnis að Baugur hafi tapað á við- skiptunum við Nordica. „Í umræddri skýrslu kemur fram að tekjur Baugs af þessum viðskiptum hafi verið 125 milljónir árið 2001. Ég tek fram að Nordica sá um að þjóna fyrirtækjum Baugs og ákvarðanir um innkaup eða dreifingu á þeim vörum sem fluttar voru inn gegnum Nordica voru alfarið í höndum starfsmanna Baugs og þar af leiðandi tel ég mig ekki ábyrgan fyrir lagerstjórnun Að- fanga hverju sinni. Í sem stystu máli sagt sendu þeir pantanir og ég af- greiddi þær. Í sambandi við ummæli Jóhannesar Jónssonar í Ísland í bítið þá er það alrangt að Baugur hafi greitt fyrir vörur þrjá mánuði fram í tímann. Þessir umtöluðu ananans- gámar sem voru afgreiddir í ágúst og september eru enn ógreiddir og hafa verið sendir í innheimtu hjá lög- manni mínum á Íslandi.“ Vegna ummæla Árna Péturs um að ekki sé tekið tillit til tolla í títt- nefndum verðútreikningum tekur Jón fram að almennt leggist enginn tollur á matvöru frá Bandaríkjunum. „Það er tollur á aðra vöru en flestar tegundir matvöru. Og allar þurrvör- ur og niðursuðuvörur eru án tolla en það leggst hins vegar 10 króna vöru- gjald á kílóið af ávöxtum. Þarna er einfaldlega verið að reyna að snúa út úr.“ Jón segir að ef meðalálagning á vörum frá Aðföngum er 5%, eins og stjórnendur Baugs hafi staðfest, og álagning í Bónusi sé á bilinu 15 til 17%, eigi hinn umtalaði pakki af an- anas sem Aðföng greiða 80 krónur fyrir (cif-verð að viðbættu vöru- gjaldi) að kosta 84 frá Aðföngum til Bónuss og 112 krónur út úr Bónusi en ekki 159 krónur eins og ananas- inn kosti nú. „Ég tek fram að við seldum þeim þrjár tegundir af an- anas og ég tek hér mið af dýrustu tegundinni en sú ódýrasta kostar 10% minna en er samt seld á sama verði og sú dýrari. Ég get líka nefnt sem dæmi Del- Monte-pastasósu en dósin af henni kostar 82,68 krónur til Aðfanga. Of- an á bætist síðan 5% dreifikostnaður hjá Aðföngum þannig að sósan myndi kosta 86,82 aura til Bónuss. Ef við gefum okkur að álagningin hjá Bónusi sé 17% ætti pastadósin að kosta 116,30 krónur, segjum 117 krónur, en alls ekki 189 krónur. Ef þeir leggja ekki á vöruna veit ég satt að segja ekki hver gerir það því ekki kemur þessi álagning frá okkur,“ segir Jón Gerald. „Og mér finnst satt að segja eitt- hvað bogið við viðskiptasiðferði þeirra því þegar þeir leita réttar síns heitir það viðskiptasnilld en þegar ég leita réttar míns þá tala þeir um fjárkúgun.“ Jón Gerald Sullenberger, forstjóri Nordica Inc., um álagningu Baugs Mið tekið af öllum kostnaðarliðum í verðútreikningi FORSVARSMENN Baugs lýstu yf- ir í viðtali um matvöruverð og álagn- ingu í Morgunblaðinu um helgina að þeir væru til í að opna bækur fyr- irtækisins svo hægt yrði að ganga úr skugga um hver álagning fyrirtæk- isins væri. Aðspurður hvort sam- keppnisyfirvöld ætluðu að grípa þetta tækifæri og taka talsmenn Baugs á orðinu sagði Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður sam- keppnissviðs Samkeppnisstofnunar, að engin afstaða hefði verið tekin til þess. Það væri þó vel hugsanlegt og það gæti verið gagnlegt að gera það í samráði við þá. „Það ber þó að taka fram að við höfum alltaf haft óskoraðan aðgang að upplýsingum hjá Baugi. Við höf- um í áranna rás oft óskað eftir og ævinlega fengið þær upplýsingar sem við höfum talið okkur þurfa að fá í sambandi við ýmiss konar rann- sóknir. Það hafa aldrei verið neinir meinbugir á að fá þær,“ sagði Guð- mundur. Forstöðumaður hjá Samkeppnisstofnun Gögn Baugs hugs- anlega skoðuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.