Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 11
Málstofa
um aðild Íslands að Alþjóðahvalveiðiráðinu
í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
miðvikudaginn 23. október 2002 kl. 12.15-13.30
Málstofustjóri: Prófessor Eiríkur Tómasson,
forseti lagadeildar H.Í.
Málshefjendur: Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur
í utanríkisráðuneytinu og forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
Stefán Ásmundsson, þjóðréttarfræðingur
í sjávarútvegsráðuneytinu, aðalfulltrúi Íslands
í Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Eftir framsögu svara málshefjendur fyrirspurnum fundarmanna.
Hafréttarstofnun
Íslands
Lagadeild
Háskóla Íslands
FREYR Harðarson varði hinn 13.
júní síðastliðinn doktorsritgerð sína á
sviði vélaverkfræði við Konunglega
tækniháskólann í Stokkhólmi. Dokt-
orsritgerð Freys
nefnist Stability
analysis and
synthesis of stat-
ically balanced
walking for
quadruped rob-
ots. Andmælandi
var prófessor
Martin Buehler
við McGill Uni-
versity í Montréal, Kanada. Aðal-
leiðbeinandi Freys var prófessor Jan
Wikander við Mechatronics-svið véla-
verkfræðideildar við Konunglega
tækniháskólann en doktorsverkefnið
var unnið á vegum Centre for Auto-
nomous Systems við sama skóla.
Gangandi vélmenni geta í vissum
tilfellum verið hagkvæmari kostur en
hefðbundnari vélmenni sem nota hjól
eða belti. Kostirnir felast í að geta
valið hvar fæturnir eru settir niður,
að virk fjöðrun er innbyggð og að þau
geta hreyft sig í hvaða átt sem er.
Þessir kostir gera gangandi vélmenn-
um kleift að aðlagast mjög ójöfnu yf-
irborði og komast um þröng svæði.
Stýringar fyrir gangandi vélmenni
þurfa að taka tillit til mun fleiri þátta
til að meta stöðugleika vélmennisins
en fyrir vélmenni á hjólum. Stöð-
ugleiki gangandi vélmenna er háður
því hversu margir fætur eru á jörðu
hverju sinni, hvar fæturnir eru miðað
við þyngdarpunkt vélmennisins og í
hvaða tímaröð fótunum er lyft og þeir
settir niður.
Doktorsritgerðin setur fram nýjan
mælikvarða á stöðugleika gangandi
vélmenna og sýnir hvernig má not-
færa sér hann til að ná fram stöð-
ugum gangi. Mælikvarðinn er leiddur
út frá kraftmiðju gagnkrafta fyrir
hvern fót og er notaður til þess að
setja skorður á hvernig vélmennið má
hreyfa sig. Aðferð er kynnt sem notar
mælikvarðann til að ákvarða hvernig
vélmennið á að hliðra eigin þyngd til
þess að halda sér stöðugu. Aðferðin
leysir samtímis tvö vandamál, annars
vegar hvernig á að ákvarða stöðugan
feril fyrir vélmennið og hins vegar
hvernig á að dreifa þeim krafti sem
verkar á vélmennið (t.d. eigin þyngd)
til þeirra fóta sem styðja vélmennið.
Tilraunir voru framkvæmdar með
ferfætta vélmenninu WARP1 sem
var hannað og byggt í sambandi við
verkefnið. Tilraunir sýna að aðferðin
gerir vélmenninu kleift að ganga full-
komlega stöðugt á láréttu og hallandi
yfirborði.
Freyr er fæddur 1971. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1991, og CS-prófi í véla-
verkfræði frá Háskóla Íslands 1995.
Foreldrar Freys eru Hörður Al-
freðsson læknir og Jóna Margrét
Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Sambýliskona Freys er Eliisa Kal-
oinen verkfræðingur og eru þau bú-
sett í Espoo, Finnlandi.
Doktor
í vélaverk-
fræði
UPPLÝSINGA- og baráttufundur
gegn virkjanaáformum yfirvalda á
hálendi Íslands var haldinn síðast-
liðinn laugardag á efri hæð Grand-
rokks á Smiðjustíg.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir fjallaði
í erindi á fundinum um gróðurfar á
áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar
á hálendinu og uppblásturshættu
út frá fyrirhuguðu lóni þar. Þá
fjallaði hún um boðaðar mótvæg-
isaðgerðir.
Fram kom í máli hennar að hún
telur að veruleg uppblásturshætta
sé út frá fyrirhuguðu lóni og að all-
ar spár um hvað gerist við strand-
lengjuna eftir að lónið sé komið
séu mjög mikill óvissu háðar.
„Ég tel að í matsskýrslunni hafi
þessi hætta verið vanmetin, meðal
annars vegna þess að þegar reikn-
að var út hversu mikið efni myndi
berast frá þessum gróðurvana
svæðum við ströndina og yfir gróin
svæði í kring hafi menn ekki tekið
með í reikninginn aftakaveður sem
þarna geta orðið,“ segir hún.
Þóra segir að í matsskýrslunni
sé miðað við það magn af efni sem
borist geti á milli samkvæmt upp-
lýsingum frá verðurgögnum á
tveggja ára tímabili. Hún bendir á
að engin aftakaveður hafi geisað á
umræddu mælingartímabili. Þá
hafi eingöngu verið miðað við upp-
blásturshættu í júní til ágúst. Þóra
telur að hætta á uppblæstri vari
mun lengra fram á haustin og því
sé mikilvægt að gera ráð fyrir því í
útreikningunum. Hún undirstrikar
í þessu sambandi að uppblástur
eigi sér ekki stað jafnt og þétt
heldur á einstökum árum þegar
allar aðstæður séu „hagstæðar“
með tilliti til veðra og vinda.
Þóra segir að þær mótvægisað-
gerðir sem rætt hafi verið um séu
illa skilgreindar og sumar óraun-
hæfar, að hennar mati. Hún segir
að þær eigi það sameiginlegt að
hafa ekki verið prófaðar og að ekki
hafi verið gerð hermilíkön af því
hvernig þær muni virka.
Sigrún Helgadóttir líffræðingur
fjallaði í erindi sínu um alþjóðlegar
skilgreiningar á friðlýstum svæð-
um og lagði þar mesta áherslu á
þjóðgarða. Hún studdist við skil-
greiningar Alþjóðanáttúruverndar-
samtakanna, IUCN, á þjóðgarði og
bar saman við þær hugmyndir sem
m.a. hafa verið ræddar hér á landi
í tengslum við stofnun þjóðgarðs
norðan Vatnajökuls.
Þjóðgarði ber samkvæmt alþjóð-
legri skilgreiningu að vera nátt-
úrulegt svæði og þar á að halda
landi í eins náttúrulegu horfi og
frekast er unnt, að sögn Sigrúnar.
Samkvæmt því á að koma í veg
fyrir nýtingu sem gengur gegn
markmiðum friðlýsingar, sem eru
fyrst og fremst að vernda náttúr-
una.
Sigrún segir að hugmyndir um
að virkja fyrst við Kárahnjúka og
friðlýsa síðan svæðið í kring sem
þjóðgarð gangi ekki upp sam-
kvæmt þessari skilgreiningu.
Upplýsinga- og baráttufundur á Grandrokk gegn virkjanaáformum
Telja að uppblásturshætta
frá lónum sé vanmetin
Morgunblaðið/Þorkell
Fjöldi manns leit við á Grandrokk á laugardag þar sem rætt var um áhrif virkjana á hálendi Íslands.
UM 15 prósent bankastarfsmanna
verða fyrir áreitni af einhverju tagi
í vinnunni, á borð við einelti, kyn-
ferðislega áreitni, hótanir og lík-
amlegt ofbeldi. Karlmenn eru um
14 prósent starfsmanna útibúa
bankanna og rúmlega annar hver
þeirra er yfirmaður en aðeins tí-
unda hver kona er í yfirmanns-
stöðu.
Þetta er meðal niðurstaðna könn-
unar á líðan, vinnuumhverfi og
heilsu starfsfólks í útibúum banka
og sparisjóða en það var Vinnueft-
irlitið í samvinnu við Samband ís-
lenskra bankamanna sem stóð að
henni en úrvinnsla var í höndum
Hildar Friðriksdóttur, Guðbjargar
Lindu Rafnsdóttur og Kristins
Tómassonar.
Úrtakið í könnuninni var allir úti-
bússtarfsmenn á landinu eða 1847
manns og var lagður fyrir þá
spurningalisti. 1475 manns svöruðu
eða um 80 prósent.
Niðurstöður könnunarinnar
sýndu að mikill meirihluti, eða um
85 prósent starfsmannanna, er oft
eða alltaf ánægður í vinnunni.
Flestum þeirra finnst auðvelt að
samræma vinnu og fjölskyldulíf og
finnst þeir njóta stuðnings eða
hjálpar þegar á þarf að halda.
Aftur á móti höfðu 15 prósent
starfsmannanna orðið fyrir ein-
hvers konar áreitni á vinnustað.
Flestir höfðu orðið fyrir einelti eða
átta prósent og voru gerendur þar í
flestum tilfellum samstarfsmenn og
yfirmenn. Fimm prósent höfðu orð-
ið fyrir hótunum en í þeim tilfellum
voru gerendur oftast viðskiptavinir
og yfirmenn.
Vinnuálagið töluvert
Tvö prósent höfðu orðið fyrir
kynferðislegri áreitni og var hlut-
fall gerenda svipað á milli sam-
starfsmanna, yfirmanna og við-
skiptavina. Þá hafði innan við hálft
prósent svarenda orðið fyrir lík-
amlegu ofbeldi.
Könnunin leiddi einnig í ljós að
starfsmenn útibúanna vinna undir
töluverðu álagi og sérstaklega virð-
ast álagstopparnir valda streitu.
Rúmlega 90 prósent starfsmann-
anna sögðu að vinnuálagið væri
nokkurt eða mikið og fjórir af
hverjum tíu sögðust oft eða alltaf
hafa of mikið að gera. Hjá 30 pró-
sentum starfsmannanna var álagið
það misjafnt að verkefnin hlóðust
upp. Stór hópur starfsmanna svar-
aði því til að það sem ylli mestri
streitu væri álag og útskýrðu menn
það á mismunandi hátt. Meðal ann-
ars sögðu þeir að álagið væri vegna
mannfæðar, mánaðamóta, skipu-
lagsleysis og áreitis á borð við sím-
hringingar.
Andleg og líkamleg líðan starfs-
fólksins var einnig könnuð og kom í
ljós að um 34 prósentum fannst
starfið andlega erfitt, 16 prósent
höfðu nýlega fundið fyrir mikilli
streitu og 15 prósent voru oft eða
alltaf andlega úrvinda eftir vinnu-
daginn. Hvað varðar líkamlegt álag
þá sögðust 8 prósent starfsmanna
vera oft eða alltaf líkamlega úr-
vinda eftir vinnudaginn og 10 pró-
sentum þótti starfið líkamlega erf-
itt.
Könnun gerð á líðan, vinnu og heilsu starfsfólks í útibúum banka og sparisjóða
Annar hver karlmaður yfirmaður
HREYFILLINN úr flugvélinni
TF-GTI, sem fórst á Skerjafirði
fyrir rúmum tveimur árum, var í
mars í fyrra seldur bandarísku fyr-
irtæki í Texas sem sérhæfir sig í
viðhaldi og endurbyggingu mótora
sömu tegundar, að sögn Hilmars
Foss, flugmanns, sem segir fyrir-
tækið hafa tjáð sér að mótorinn
hafi reynst úrbræddur og ónothæf-
ur.
Hilmar segir að staðhæft sé í
upplýsingum frá fyrirtækinu, sem
keypti hreyfilinn af Ísleifi Ottesen,
að hann hafi verið úrbræddur og
ekki snúist. Fékk það hreyfilinn af-
hentan í El Paso í Texas 22. mars í
fyrra, en hann hafi verið sendur
héðan í gámi til Bandaríkjanna í
lok janúar eða byrjun febrúar 2001
ásamt sundurtekinni flugvél Ísleifs,
TF-GTR, sem magalenti á Reykja-
víkurflugvelli.
Hilmar segir að kaupandinn segi
jafnframt að þegar í ljós kom að
áföst upplýsingaplata á mótornum
hafi reynst vera af öðrum mótor, og
það frábrugðnum, hafi í raun ekk-
ert verið vitað um smíði og sögu
mótorsins. Hann hafi því ekki verið
nothæfur sem flughreyfill lengur.
„Þeir héldu sig vera að kaupa
epli en fengu í raun appelsínu,“
segir Hilmar Foss og bætir við að
sveifarásnum hafi verið hent en
aðra hluti af honum hafi verið hægt
að nota með lögmætum hætti.
Hilmar, sem aðstoðað hefur að-
standendur þeirra sem fórust með
flugvélinni, segir að raðnúmer á
kveikjum sem fylgdu mótornum
komi heim og saman við raðnúmer
af mótornum sem skráð séu í
skýrslu Rannsóknarnefndar flug-
slysa um Skerjafjarðarslysið.
Viðhaldsfyrirtæki sem keypti hreyfil TF-GTI fleygði honum
Segir hreyfilinn hafa
verið úrbræddan