Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
EKKI hefur enn tekist að ljúka við
að smala í Mýrdal. Óvenju mikið
hefur rignt og oft verið þoka þann-
ig að ekki hefur verið unnt að ljúka
smölun. Eftir að snerist til norðan-
áttar skín sólin og vonast bændur
því til að hægt verði að ljúka smöl-
un á næstu dögum. Enda fer hver
að verða síðastur að koma hrút-
lömbum í sláturhús.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Pálmi Andrésson í Kerlingardal bendir á hóp af fé sem er að sleppa frá smölunum.
Seinni göngur óvenju seinar
Fagridalur
AÐ undanförnu hefur Almenna
umhverfisþjónustan ehf. unnið við
að steypa þekju á stóru bryggj-
una í Grundarfirði þar sem
bryggjan hefur verið lengd um
100 metra.
Þekjan er 4.050 fermetrar á
flatarmáli.
Verklok eru fyrirhuguð fyrir
næstu mánaðamót.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Starfsmenn Umhverfisþjónustunnar að steypa einn flekann. Búið er að steypa 27 fleka af 32.
Steypuframkvæmdir
Grundarfjörður
Í BLÍÐUNNI í haust hefur Vega-
gerðin látið endurbyggja um þriggja
og hálfs km veg á Útnesvegi undir
Jökli. Nýi kaflinn byrjar við Gufu-
skála og er meðfram gamla flugvell-
inum suður fyrir Bekkjahraun á
Gufuskálamóðum. Þessi vegalagning
er áfangi að því að gerður verði veg-
ur með bundnu slitlagi um Þjóðgarð-
inn Snæfellsjökul, en sunnan við
þjóðgarðinn endar vegur með
bundnu slitlagi við Háahraun í Dag-
verðarárlandi.
Verktakafyrirtækið Stafnafell ehf.
úr Staðarsveit er verktaki. Vega-
gerðinni er nú að mestu lokið. Búið
er að leggja fyrra lagið eða umferð-
ina af klæðningu á veginn. Verktak-
inn vinnur nú að frágangi á vegkönt-
um og umhverfi.
Á um hundrað metra kafla þarf að
setja grjótvörn við veginn til að verj-
ast ágangi Móðulæksins þegar hann
fer í ham. Lækurinn rennur þar
stundum meðfram veginum. Flestir
sem fara Útnesveg verða lítið varir
við þetta vatnsfall. Sjá aðeins nokk-
uð áberandi þurran farveg. Það kem-
ur samt fyrir nokkrum sinnum á
hverju sumri þegar rignir á Jökulinn
og jafnframt eru hlýindi að kolmó-
rautt jökulfljót byltist fram um far-
veginn. Nú fyrir nokkrum dögum
gerði Móðulækurinn sér lítið fyrir og
rauf veginn sem er á þessum slóðum
og liggur af Útnesvegi út á Öndverð-
arnes.
Vegagerðin hefur tekið upp þann
góða sið að setja upp upplýsinga-
skilti fyrir vegfarendur við vega-
framkvæmdir. Þar er upplýst um
lengd vegar, framkvæmdatíma,
verktaka o.fl.
Morgunblaðð/Hrefna Magnúsdóttir
Upplýsingaskilti Vegagerðarinnar við Útnesveginn.
Vegur um
Gufuskála-
móður
Hellissandur
HAGRÆÐING og breytingar á
áherslum í rekstri hjá Marel leiða
til fækkunar um 70 starfa hjá fé-
laginu. Fækkunin er að mestu er-
lendis en störfum fækkar um 15 á
Íslandi. Eftir þessar breytingar
verða starfsmenn samstæðunnar
um 750, þar af 270 hér á landi.
Í fréttatilkynningu frá Marel
kemur fram að félagið hafi á und-
anförnum árum vaxið ört og rekst-
urinn náð því umfangi sem nauð-
synlegt er til að félagið sé
samkeppnisfært á alþjóðamarkaði.
Í kjölfar þessarar uppbyggingar,
sem náði hámarki með opnun
nýrra höfuðstöðva félagsins í sum-
ar, hafi stjórn félagsins ákveðið að
leggja áherslu á að nýta árangur
og vöxt síðustu ára til að auka hag-
ræði og tryggja meiri arðsemi í
rekstri, en leggja minni áherslu á
vöxt.
Hörður Arnarson, forstjóri Mar-
els, segir hagræðingaraðgerðirnar
nokkuð umfangsmiklar, enda sé
verið að endurskipuleggja áherslur
innan allrar samsteypunnar. Hann
segir að nýtt húsnæði Marels í
Garðabæ skapi mikla möguleika
fyrir aukna framleiðslugetu og
framleiðni í rekstri og geri Marel
jafnframt kleift að flytja hluta
þeirrar framleiðslu sem áður fór
fram erlendis til Íslands. Stjórn
Marels hf. hafi m.a. ákveðið að
flytja frá Þýskalandi til Íslands
framleiðslueiningu sem framleitt
hefur skurðarvélar og tengdan
búnað. Af því hljótist töluverður
sparnaður. Hagstætt skattaum-
hverfi á Íslandi hafi einnig mikil
áhrif á ákvörðun Marels að flytja
starfsemi hingað til lands.
Lakari afkoma en
gert var ráð fyrir
Gert er ráð fyrir að jákvæð áhrif
af flutningunum og þeim aðgerðum
sem nú er gripið til komi fram í af-
komu félagsins á næsta ári. Segir í
tilkynningunni að þau eigi að
tryggja að Marel nái þeim arðsem-
ismarkmiðum sem félagið hefur
sett sér. „Vegna efnahagslægðar
víða á mörkuðum félagsins á síðari
hluta þessa árs og kostnaðar vegna
flutninga, er gert ráð fyrir að af-
koma þriðja ársfjórðungs og ársins
í heild verði nokkuð lakari en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Á síðastliðn-
um 3 árum hefur meðalvöxtur í
starfsemi Marels verið 27% á ári
en á næstu misserum munu vaxt-
armarkmið víkja fyrir arðsemis-
markmiðum og verður lögð höfuð-
áhersla á að ná sem mestri
hagræðingu í rekstri félagsins. Er
því miðað við að vöxtur félagsins
verði um 10% árlega. Þessi
áherslubreyting mun einnig hafa í
för með sér að fjárfestingaþörf fé-
lagsins minnkar til muna ásamt því
að auðvelda stýringu á veltufjár-
munum,“ segir jafnframt í tilkynn-
ingunni.
Marel flytur starf-
semi til Íslands
Hagræðing innan fyrirtækisins leiðir
til fækkunar um 70 starfa
ÞRÓUNIN á erlendum
hlutabréfamörkuðum
verður almennt jákvæð
á komandi árum en
heppilegast er fyrir fjár-
festa að líta á einstök
fyrirtæki þegar þeir
huga að fjárfestingum
frekar en ákveðnar at-
vinnugreinar. Þetta kom
fram í máli Mikael
Randel, yfirmanns
stjóðastýringar hjá
verðbréfafyrirtækinu
Carnegie, á fundi á veg-
um Verðbréfastofunnar
hf. á föstudag um er-
lenda hlutabréfamark-
aði.
Randel sagði að hjá
Carnegie væri lögð mikil
áhersla á það að skoða
vel stöðu þeirra fyrir-
tækja sem til greina
kemur að fjárfesta í. Í
því sambandi sé litið gaumgæfilega
á sjóðstreymi þeirra, væntanlegar
lífeyris- og eftirlaunagreiðslur og
stjórnunarhætti.
Varðandi lífeyrisgreiðslurnar
sagði hann að taka þyrfti tillit til
þess að fólk lifði almennt lengur nú
en fyrir nokkrum árum. Fyrirtækin
tækju ekki ávallt tilliti til þessa.
Auk þess misreiknuðu þau oft loka-
greiðslur starfsmanna sem lífeyr-
isgreiðslur tækju mið af. Þessi þátt-
ur í rekstri fyrirtækja gæti því oft
haft meiri áhrif á afkomu þeirra er
fram liðu stundir en áætlað hefði
verið. Fjárfestar ættu því að skoða
þessi mál vel
Um stjórnunarþátt fyrirtækja
sagði Randel að Carnegie fjárfesti
ekki í fyrirtækjum sem sinnti upp-
lýsingagjöf með ófullnægjandi
hætti. Carnegie hefði fyrir nokkru
selt allt það hlutafé sem það átti í
fyrirtækjum sem væru ekki með
þennan þátt starfseminnar í lagi.
Fram kom í máli Randel að
Carnegie hefði mikla trú á mörk-
uðunum í Austur-Evrópu. Þar hefði
margt jákvætt verið að gerast og
horfur væru góður.
Verðbréfastofan
selur sjóði Carnegie
Sjóðir Carnegie eru þeir sjóðir
sem Verðbréfastofan einbeitir sér
að því að selja, en Carnegie er með-
al stærstu verðbréfafyrirtækja
Norðurlanda og hefur starfsmenn í
höfuðborgum allra þeirra nema hér
á landi. Auk þess að selja fjárfest-
um sjóði Carnegie bendir Verð-
bréfastofan fyrirtækinu á viðskipta-
tækifæri hér á landi. Þá felur
samningur Verðbréfastofunnar og
Carnegie í sér að Verðbréfastofan
hefur aðgang að bankaþjónustu
Carnegie í Lúxemborg og jafnframt
að greiningardeild fyrirtækisins.
Mikael Randel segir að Carnegie fjárfesti ekki í
fyrirtækjum sem sinni upplýsingagjöf með
ófullnægjandi hætti.
Carnegie skoðar
fyrirtæki frekar
en atvinnugreinar
Morgunblaðið/Árni Sæberg