Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 23

Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 23 RÁÐAMENN í Evrópusambandinu, sem og í hinum væntanlegu nýju að- ildarríkjum þess um austanverða álf- una, vörpuðu í gær öndinni léttar eft- ir að kjósendur á Írlandi samþykktu um helgina með öruggum meirihluta hinn svokallaða Nizza-sáttmála, sem er nýjasta uppfærslan á stofnsátt- mála ESB og kveður m.a. á um breyt- ingar á stofnunum og ákvarðanatöku sambandsins sem nauðsynlegar eru fyrir stækkun þess til austurs. Þetta var í annað sinn sem Írar gengu að kjörborðinu um sáttmál- ann, en það olli miklu uppnámi er þeir felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var í júní í fyrra. Þá mætti aðeins rétt rúmur þriðjungur kjós- enda á kjörstað og 54% þeirra greiddu atkvæði á móti staðfestingu sáttmálans. Nú um helgina, er at- kvæði voru greidd öðru sinni, var kjörsóknin öllu betri – um 49% – og um 63% þeirra sem mættu á kjörstað lýstu fylgi sínu við sáttmálann. Írland var hið eina 15 aðildarríkja ESB þar sem þjóðaratkvæðagreiðsla þurfti að fara fram til fullgildingar sáttmálan- um; öll hin 14 voru búin að staðfesta hann og því má segja að áformin um að taka 10 ný ríki inn í sambandið ár- ið 2004 hafi staðið og fallið með út- komunni úr þessari þjóðaratkvæða- greiðslu á Írlandi. „Sögulegur dagur“ Í þetta sinn lagði írska stjórnin, undir forystu Bertie Ahern forsætis- ráðherra, mikla áherzlu á það í að- draganda atkvæðagreiðslunnar, að þjóðin segði „já“. Eftir að úrslitin voru ljós á sunnudag sagði Ahern að um væri að ræða „sögulegan dag í tengslum okkar við bandalagsríkin í Evrópu“. „Írskir kjósendur hefðu ekki getað blygðunarlaust snúið baki við þeim hópi lítilla ríkja, sem þeir deila ekki aðeins sameiginlegri evrópskri arf- leifð með, heldur einnig reynslunni og minningunum um langa sögu yf- irráða og kúgunar af hálfu stærri ríkja,“ skrifaði dagblaðið The Irish Independent í leiðara. „Nú getum við ótrauðir haldið áfram stækkunaráformunum án frekari hindrana,“ sagði Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar ESB, en hann hafði varað við því að höfnuðu Írar sáttmálanum jafngilti það „stórslysi“ fyrir sambandið. Ánægja í væntan- legum aðildarríkjum Fréttum af niðurstöðum kosning- anna var fagnað í væntanlegum, nýj- um aðildarríkjum Evrópusambands- ins: „Þessi niðurstaða er tilefni til fögn- uðar í okkar ranni, þar sem hún sýnir að engin innri vandamál geta nú yf- irskyggt hið stórfenglega verkefni sem stækkun Evrópusambandsins er,“ sagði Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands. Reuters Kátt var á hjalla hjá stuðningsfólki staðfestingar Nizza-sáttmálans í Dyflinnarkastala á sunnudagskvöld. Kjósendur á Írlandi staðfesta Nizza-sáttmálann Öndinni varpað léttara innan ESB Dyflinni. Associated Press. LOFORÐ stjórnmálamanna í öðr- um löndum eru yfirleitt þess efnis að vandi á sviði efnahags- eða fé- lagsmála verði leystur með sam- ræmdum og þaulhugsuðum aðgerð- um. Í Tyrklandi nota félagar þeirra aðrar aðferðir til að höfða til kjós- enda. Þannig heita frambjóðendur í þingkosningunum í næsta mánuði því m.a. að leggja niður rangstöðu í knattspyrnu og að gera alla að milljarðamæringum. „Þegar við náum völdum ætlum við okkur að leggja af rangstöðu- regluna í fótbolta,“ hefur tyrkn- eska dagblaðið Milliyet eftir Besim Tibuk, formanni Frjálsynda lýð- ræðisflokksins. Tyrkir eru ákaflega áhugasamir um fótbolta svo ekki sé meira sagt og ekki hefur ágætur árangur tyrkneska landsliðs á HM í sumar orðið til að fæla alþýðu manna frá þeirri skemmtun, sem leikurinn er. Aðrir frambjóðendur vísa raunar í málflutningi sínum til efnahags- kreppunnar, sem er ein sú versta í manna minnum. En það er gert með heldur óvenjulegum hætti. Tansu Ciller, leiðtogi Sannleiks- stígsins, sem er mið- og hægriflokk- ur, lýsir því t.a.m. yfir að gríðarleg- ur auður bíði almennings nái flokk- ur hennar völdum í Tyrklandi. „Sigrum við verður minnst hundrað milljarðamæringa að finna í hverju íbúðarhverfi,“ hefur Milliyet eftir henni. Cem Uzan, nýliði í pólitíkinni í Tyrklandi og leiðtogi Æskuflokks- ins, hefur hins vegar efst á stefnu- skrá sinni að öllum verði fenginn skiki lands. Þannig vill hann bregð- ast við hruni gjaldmiðilsins og þverrandi fjölskyldutekjum. „Við munum láta hverja fjölskyldu í landinu fá 200 fermetra spildu,“ hefur hann sagt á fjölmörgum kosningafundum að undanförnu. Nýleg könnun leiðir í ljós að eng- in stétt manna nýtur minna álits í Tyrklandi en stjórnmálamenn. Það sama gildir um flokka þeirra; engin samtök eða stofnanir njóta minni tiltrúar. Nýjustu kannanir gefa til kynna að hófsamur íslamskur flokkur fari með sigur af hólmi í þingkosningunum 3. nóvember. Rangstöðuna burt og auðlegð handa öllum Tyrkneskir stjórnmálamenn methafar í kosn- ingaloforðum Ankara. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.