Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 24
NEYTENDUR
24 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
TILBOÐSDAGAR
Ármúla 21, 108 Reykjavík
Sími 533 2020 Fax 533 2022
www.vatnsvirkinn.is
FERBOX
HORN OG HURÐAR
EINNARHANDATÆKI
KLUDI - FELIU - HUBER
WC
INDUSA OG IFÖ
HANDLAUGAR
INDUSA OG IFÖ
HITASTILLITÆKI
HUBER - KLUDI - MORA
Sturtuhorn frá kr. 17.614
Sturtuhurðar frá kr. 13.334
Baðkarshurðar frá kr. 6,934
Handlaugatæki kr. 4.975
Eldhústæki frá kr. 6.046
Indusa með setu kr. 14.713
Ifö með setu kr. 23.601
Sturtutæki frá kr. 9.206
Baðtæki frá kr. 10.510
Á vegg frá kr. 2.221
Í borð frá kr. 7.048
ÍSLENDINGAR sem kjósa lífrænt
ræktaðar matvörur verða sífellt
fleiri. Nýleg umræða um kúariðu
og aðra dýrasjúkdóma varð m.a. til
þess að fleiri Evrópubúar fóru að
velja lífræn matvæli. Framboð
þeirra er orðið töluvert í stór-
mörkuðum hér á landi en verslanir
á borð við Yggdrasil og Heilsu-
húsið sérhæfa sig í sölu þeirra.
Yggdrasill selur lífræn matvæli
til stórverslana auk þess að vera
með smásöluverslun á Kárastíg 1.
Fyrirtækið varð til árið 1986 og
síðan þá hefur fjöldi þeirra sem
kjósa lífræna matvöru margfaldast
að sögn Hildar Guðmundsdóttur
verslunarstjóra. Það sama er uppi
á teningnum í Heilsuhúsinu.
„Markaðurinn var mjög lítill í
upphafi og óx mjög hægt,“ segir
Hildur. „En það er mun meiri
áhugi núna og markaðurinn vex
hraðar en áður.“ Heilsuhúsið hef-
ur selt lífrænt ræktaða vöru í 24
ár. „Þegar við opnuðum búðina
1979 niður á Skólavörðustíg, þá
fylltum við hana af lífrænt rækt-
aðri vöru en það var ekki nokkur
maður sem hafði áhuga á þessu,
þetta rann allt út á dagsetningu,“
segir Örn Svavarsson, eigandi
Heilsuhússins. „En það er allt ann-
að í dag.“
Hildur og Örn telja ýmsar skýr-
ingar liggja að baki aukinni neyslu
lífrænna matvæla. „Á síðasta ári
var vöxtur alls staðar í heiminum á
neyslu lífrænna matvæla,“ segir
Hildur, „kúariðan t.d. varð til þess
að Evrópubúar fóru meira að
hugsa um hvað þeir létu ofan í
sig.“ Þó að þessi vandamál hafi
ekki komið upp hér á landi skilaði
vakningin sér hingað, að sögn
Hildar. „Hér hefur neysla á lífrænt
ræktuðu smám saman verið að
aukast enda fólk alltaf að verða
meira meðvitað um heilsuna og
þetta er einn þáttur í því.“
Örn segir margt hafa gerst á
þeim tæpa aldarfjórðungi sem Ís-
lendingar hafa haft aðgang að
Heilsuhúsinu. „Mín skoðun er sú að
í dag er ekki eins mikið mál að
verða sér úti um allt sem hugurinn
girnist. En það er aukinn fjöldi
fólks sem er farinn að leggja
áherslu á önnur gildi en bara að
safna dóti, þar ber þó hæst að huga
að eigin heilsu.“ Örn segir að
margir séu tilbúnir að eyða háum
fjárhæðum í „ýmislegt prjál,“ eins
og hann sjálfur kemst að orði, „en
svo þegar kemur að eigin heilsu
förum við að meta hvort að gulræt-
urnar sem eru ræktaðar með skor-
dýraeitri séu ódýrari en þær líf-
rænt ræktuðu. En þetta er að
breytast.“
Þá segir Örn að sífellt fleiri geri
sér grein fyrir því að gæða- og
bragðmunur er á lífrænum vörum
og öðrum. „Það er greinilegur
munur á gæðum og stundum næst-
um eins og ekki sé um sömu vöru-
tegund að ræða. Þegar gæðin eru
orðin afgerandi þá lifir varan sínu
eigin lífi og þá gerir fólk ekki at-
hugasemd við þó verðið sé hærra.“
Þá segir Hildur að fólk með ým-
iskonar ofnæmi leiti eftir lífrænum
matvælum í auknum mæli. „Við
finnum mjög sterkt fyrir því að of-
næmi er að aukast. Margir finna
að þeir geta lagað ofnæmið með
því að breyta mataræðinu.“
Verð á lífrænum vörum hefur
verið í umræðunni en Hildur segir
sambærilega vöru frá sama fram-
leiðanda svipaða í verði á öllum
Norðurlöndunum. En lífrænt
ræktuð vara er hins vegar yfirleitt
dýrari en önnur og segir Örn ein-
falda ástæðu fyrir því. „Það er
miklu meiri handavinna í tengslum
við hana en í hefðbundinni rækt-
un.“ Vörur sem framleiddar eru
með hjálp skordýraeiturs og ann-
arra aukaefna eru seldar ódýrar
og að sögn Arnar einblína margir
á hvar verðið er lægst, t.d. kemur
það fram í verðkönnunum fjöl-
miðla. „Þetta leiðir til þess að þeir
sem kaupa inn vörur reyna að fá
þær sem ódýrastar, en hverjar eru
afleiðingarnar? Jú, við fáum ódýr-
ustu vöruna sem er ræktuð með
mesta áburðinum og eitrinu, að
sjálfsögðu á kostnað gæðanna.“
Örn segir ekki sanngjarnt að bera
saman vörur stórmarkaðanna og
smáverslananna í verðkönnunum
og segir t.d. þjónustu litlu versl-
ananna ekki koma þar fram, en
þjónusta og ráðgjöf fyrir við-
skiptavini Heilsuhússins er mikil.
Örn bendir einnig á að flutnings-
kostnaður sé mjög ár fyrir þá sem
kaupa lítið inn í einu. Ekki sé hægt
að setja kælivöru í safngám, þ.e.
með vörum frá öðrum, heldur
verði að taka heilan gám eða að
flytja með flugi og „það er skelfi-
lega dýrt,“ segir Örn.
Munur á þjónustu mikill
Hildur segir að þar sem Ygg-
drasill selji vörur í heildsölu til
stórmarkaða sé ekki um mikla
samkeppni við þá að ræða, enn
sem komið er. „Við erum ánægð
með að lífrænu vörunar eru komn-
ar inn í stórmarkaði og við-
skiptavinir geta þá gripið þær með
öðrum vörum þegar það verslar
inn,“ segir Rúnar Sigurkarlsson,
annar eigenda Yggdrasils. „Fólk
verslar kannski einu sinni í mánuði
vörur hjá okkur, sem ekki eru til í
stórmörkuðunum, en annars
versla þeir heilsuvörurnar þar.“
Örn segir samkeppnina við stór-
markaði gríðarlega. „Þeir selja
vöruna í krafti þess að þeir eru
með tiltölulega fátt starfsfólk og
geta þar af leiðandi boðið vöruna á
lægra verði. En munurinn á þjón-
ustunni er mjög mikill.“ Í sam-
keppninni segir Örn lítið annað að
gera en að hafa þjónustuna sem
allra besta. Þá býðst vara í Heilsu-
húsinu sem ekki býðst í stórmörk-
uðum og reyna þarf að selja betri
vöru. „En það er nokkuð óhjá-
kvæmilegt að gæði kosta pen-
inga,“ segir Örn.
Lífrænt ræktaðar matvörur verða stöðugt vinsælli á borðum Íslendinga
„Gæðin kosta peninga“
Morgunblaðið/Jim Smart
Sérverslanir bjóða meira úrval af lífrænt ræktuðum mat en stórmarkaðir
en samkeppnin eykst. Neytandinn verður að vega og meta kosti lífrænna
afurða því verðið er hærra en á hefðbundnum mat. Íslenskt lífrænt ræktað
grænmeti er meðal þess sem fæst í Heilsuhúsinu. Það má einnig fá í
Yggdrasil þar sem myndin er tekin.
Fyrir aldarfjórðungi
fóru lífrænt ræktaðar
vörur í stórum stíl
fram yfir síðasta sölu-
dag í verslunum, fáir
vissu hvað þar var á
ferð. Nú eru breyttir
tímar og fréttir af far-
öldrum dýrasjúkdóma
og vitneskja um að
breytt mataræði haldi
ofnæmi í skefjum hef-
ur m.a. orðið til þess
að sífellt fleiri neyta
lífrænnar matvöru.