Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 25
Heimsmeistarinn!
blandarinn,
sá öflugasti og
ímynd þess besta!
Fæst í ýmsum litum. Verð
frá kr. 11.970 stgr.
Gullverðlaunahafar íslenska
landsliðsins í matreiðslu
nota eingöngu KitchenAid
blandara og hrærivélar.
Gerðu líka kröfur
- veldu KitchenAid!
sérsniðin innheimtulausn
Gefnir ver›a út 12 flokkar flar sem lánstími er 2–6
mánu›ir. Fyrsti útgáfudagur ver›ur 28. október
2002. Heildarnafnver› útgefinna flokka ræ›st af
marka›sa›stæ›um. Stær› flokkanna ver›ur á
bilinu 100.000.000-2.000.000.000 ÍSK.
Sparisjó›abanki Íslands hf.,
kt. 681086-1379, Rau›arárstíg 27, 105 Reykjavík.
Kauphöll Íslands hefur samflykkt a› taka útgefna
víxla á skrá 29. október 2002, enda uppfylli fleir
skilyr›i skráningar. Útgáfa hvers flokks ver›ur
tilkynnt í Kauphöllinni hverju sinni.
Ávöxtunarkrafa ákvar›ast af marka›sa›stæ›um á
fyrsta söludegi.
Víxlarnir eru seldir gegn sta›grei›slu í 10.000.000
og 50.000.000 kr. einingum.
Sparisjó›abanki Íslands hf.,
kt. 681086-1379, Rau›arárstíg 27, 105 Reykjavík.
Nafnverð útgáfu og lánstími:
Útgefandi:
Skráningardagur í Kauphöll Íslands:
Ávöxtunarkrafa á söludegi:
Skilmálar:
Umsjón með skráningu:
Skráning bankavíxla í Kauphöll Íslands
Skráningarl‡sing og önnur gögn var›andi ofangreinda flingvíxla liggja frammi hjá
Sparisjó›abanka Íslands hf., Rau›arárstíg 27, 105 Reykjavík.
Sími 540 4000, myndsendir 540 4181.
Auk fless er hægt a› nálgast uppl‡singar á heimasí›u bankans, www.icebank.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PB
1
91
20
10
/2
00
2
ARNE Jacobsen telst efalítið til at-
hyglisverðustu hönnuða og arkitekta
síðustu aldar. Sem einn frumkvöðla
norrænu stefnunnar hafði hönnun
hans afgerandi áhrif á nútímamenn-
ingu og þó að byggingarnar séu
minna þekktar á alþjóðavettvangi en
húsgögnin og iðnhönnunin teljast þær
ekki síður mikilvægur hluti arfleifðar
Jacobsen.
Listasafn Reykjavíkur á Kjarvals-
stöðum hýsir þessa dagana sýningu
tileinkaða Jacobsen – Hönnun í
hundrað ár – en öld er nú liðin frá
fæðingu meistarans. Á sýningunni má
sjá húsgögn og húsbúnað Jacobsen,
stóla, borð, ljós, blöndunartæki og
borðbúnað, auk vefnaðarvöru og ljós-
mynda sem gefa nokkra mynd af fjöl-
breytilegri hönnun Jacobsen.
Margir muna Jacobsen eru Íslend-
ingum vel kunnir því þeir eru fáir sem
ekki kannast við mjúkar, flæðandi út-
línur hægindastólana eggsins og
svansins, eða samfellt form stólsetu
og baks í léttri og nútímalegri hönnun
maursins eða sjöunnar, enda teljast
stólar þessir efalítið til þekktustu
verka Jacobsen. Sjálfur lét hann þau
orð falla um hönnun maursins að sér
hefði orðið „ljóst að fólk þurfti nýja
gerð af stól í eldhúskrókinn sem er að
finna í flestum nýjum húsum, lítinn,
léttan og ódýran.“
Stór hópur Íslendinga hefur lagt
leið sína á Kjarvalsstaði til að skoða
verk hönnuðarins, en að sögn for-
svarsmanna Kjarvalsstaða hefur að-
sókn að sýningunni verið með ein-
dæmum. Talar það ekki bara sínu
máli um vinsældir góðrar hönnunar
hér á landi, heldur ekki síst um vin-
sældir Jacobsens sjálfs. Formræn
fágun, léttleiki og sparleg efnisnotk-
un hans gera munina ekki síður nú-
tímalega ásýndum í dag en er þeir
fyrst litu dagsins ljós fyrir fjörutíu–
fimmtíu árum.
Jacobsen var hins vegar ekki bara
hönnuður húsgagna og húsbúnaðar,
heldur ekki síður framsækin arkitekt
er hannaði íbúðarhús, ráðhús, skóla,
leikhús og hótel í anda módernismans
og þennan þátt í starfi hönnuðarins
vantar alfarið á sýninguna. Auknar
upplýsingar, myndir, teikningar og
líkön af byggingum hans hefðu óneit-
anlega líka aukið fræðslugildið til
muna og vannýtt bakrými sýningar-
salarins hefði vel rúmað slíka viðbót.
Ítarlegri upplýsingar um þá muni
sem sýning hefur að geyma hefðu
einnig verið kærkomin viðbót, því þó
þær upplýsingar sem til staðar eru
séu skýrlega fram settar, hefði aukin
fróðleikur einungis verið af hinu góða.
Þó þau verk Jacobsens sem hér hafa
verið valin til sýningar séu flestum vel
kunn, eru þeir efalítið færri sem
þekkja uppruna þeirra og sögu.
Hversu margir vita til að mynda af
hverju hinn þrífætti maur varð síðar
fjórfættur?
Arne Jacobsen var óneitanlega
hæfileikaríkur og afkastamikill hönn-
uður. Eftir hann liggja hátt í 350 verk
og hefði því efalítið verið vandalaust
að fjölga mununum, auk þess sem
óumdeilanlegar vinsældir kalla tví-
mælalaust á aukna fræðslu og útskýr-
ingar. Sýning á verkum Arnes Jacob-
sens á ekki að vekja þá tilfinningu
með sýningargestum að þeir hafi
gengið inn í húsgagnaverslun.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur
Kjarvalsstaðir
Sýningin er opin daglega frá kl. 10–17,
nema miðvikudaga er opið frá kl. 10–18.
Henni lýkur 17. nóvember nk.
ARNE JACOBSEN
HÖNNUN Í HUNDRAÐ ÁR
Hönnun í hálfa öld
Anna Sigríður Einarsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Egg Halldórs Laxness er meðal þeirra muna sem finna má á sýningunni.
DANSKI djassfiðluleikarinn
Kristian Jörgensen staldrar við á
Kaffi Reykjavík, í kvöld á leið sinni
vestur um haf og
hefur leik kl. 21.
Kristian hefur
leikið víða, bæði
í Danmörku og
annars staðar.
Hann hefur leik-
ið mikið með
Jacob Fischer
sem lék með
Birni Thorodd-
sen á Jazzhátíð Reykjavíkur í byrj-
un þessa mánaðar en þá mundaði
Dan Cassidy fiðluna.
Kristian Jörgensen er á leið til
Bandaríkjanna með þeim Birni
Thoroddsen og Jóni Rafnssyni og
heldur þar tónleika á morgun. Þeir
léku saman á Listahátíð fyrr á
árinu og í framhaldi af því gerðu
þeir geisladiskinn Jazz í Reykjavík
sem er nýútkominn og var m.a.
kynntur á nýafstaðinni Jazzhátíð
Reykjavíkur.
Verð aðgöngumiða er 1.500 kr.
Kristian
Jörgensen
staldrar við
í Reykjavík
Kristian Jörgensen
Birtubrigði dag-
anna er eftir
Hannes Pét-
ursson.
Í káputexta
segir m.a.: „Í
þessari bók birtir
Hannes Pét-
ursson safn per-
sónulegra hug-
leiðinga og minningamynda. Á
snjallan hátt og í hnitmiðuðu formi
setur hann fram sjónarmið sem
varða skáldskap, íslenska tungu,
trú, þjóðlíf og margt fleira.
Útgefandi er Bókaútgáfan Katla-
gil. Háskólaútgáfan annast dreif-
ingu. Bókin er 120 bls. Verð: 2.980
kr.
Hugleiðingar