Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S AMSON eignarhaldsfélag stefnir að því að efla þjónustu Lands- banka Íslands og fjölga viðskipta- vinum bankans, jafnt hér á landi sem erlendis. Fram kom á blaðamannafundi sem eigend- ur Samsonar eignarhaldsfélags efndu til í gær að þeir eigi ekki von á því að starfsfólki Landsbankans eða útibúum verði fækkað í kjölfar kaupa félagsins á 45,8% hlut ríkisins í bankanum. Umtalsverð hagræðing hafi átt sér stað hjá bankanum á undanförnum árum og möguleikunum til að gera meira í þeim efn- um hafi fækkað. Þá kom fram að kaup Lands- bankans á Heritable-bankanum í London hafi að mati Samsonar tekist vel og séu hugsan- lega dæmi um það sem koma skal. Að því er stefnt að áreiðanleikakannanir vegna samkomulags Samsonar eignarhalds- félags og framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu verði lokið á næstu vikum og að skrifað verði undir samning um kaup Samsonar á hlutabréfum ríkisins í Landsbankanum í des- embermánuði nk. Í framhaldinu mun Samson eignarhaldsfélag óska eftir að haldinn verði hluthafafundur þar sem ný stjórn verður kjörin og því verði lokið fyrir áramót. Samson eignarhaldsfélag og framkvæmda- nefnd um einkavæðingu náðu samkomulagi síðastliðinn laugardag um kaup félagsins á 45,8% hlut ríkisins í Landsbankanum og er söluverðið rúmir 12,3 milljarðar króna. Samson eignarhaldsfélag ehf. er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar. Frá því var greint á blaða- mannafundinum að skipting eigendanna þriggja á Samson eignarhaldsfélagi verður þannig að Björgólfur Thor mun eiga um 50%, Björgólfur Guðmundsson um 30% og Magnús Þorsteinsson um 20%. on, að hann fyrirtækja. bær fyrir b Þau væru d og væru hu koma skyld dæmi um nýtt og Sam að fleiri slík Björgólfu að allar hu Landsbank starfsfólk b Báði Spurður bréfa ríkisi tvennt, ann unar kaups ári liðnu, sa ræða háar löngu og m lenska ríkið Um kau hefði komið bréfa Land um 3,5 þega Björgólfur Thor sagði að þeir þrír sem standi að Samson eignarhaldsfélagi séu ákaf- lega stoltir og ánægðir með að hafa verið valdir í það hlutverk að kaupa mestan hluta ríkisins í Landsbankanum. Þeir geri sér ljóst að þessu fylgi mikil ábyrgð. Framundan séu spennandi tímar við það verkefni að fjölga viðskiptavinum bankans og þróa og bæta þjónustu hans. Landsbankinn hafi verið banki allra landsmanna til þessa og hann verði það áfram um ókomin ár. Það sé verkefni Sam- sonar að tryggja að svo verði. „Það er okkur mikið tilhlökkunarefni að nýta reynslu okkar og þekkingu á Íslandi til að styrkja og efla Landsbanka Íslands og gera honum betur kleift að takast á við þá umbrotatíma sem eru í vændum í fjármálalífinu hér á landi og á heimsmarkaði,“ sagði Björgólfur Thor. Áhugi fyrir fleiri sóknarfærum Fram kom í máli Magnúsar Þorsteinssonar að umtalsverð hagræðing hafi orðið hjá Landsbankanum á undanförnum árum. Hann sagði að möguleikum til að gera meira í þeim efnum fari fækkandi. Það sé hins vegar ekki lögmál að í hagræðingu felist endilega fækk- un útibúa eða fækkun á fólki. Sókn sé yfirleitt besta vörnin og því eigi hann ekki von á því að starfsfólki eða útibúum verði fækkað. Björg- ólfur Thor sagði að ýmis sóknartækifæri væru til staðar, með því að efla þjónustuna og fjölga viðskiptavinunum, hérlendis og erlend- is. Áður en hægt verði að greina nánar frá hvernig að þessu verði staðið þurfi hins vegar fyrst að ljúka samningum við ríkið og fá hluta- bréfin í bankanum afhent. Að því loknu verði rætt við stjórnendur bankans og áætlanir Samsonar verði síðan lagðar fram. Björgólfur Thor sagði að Landsbankinn hefði sýnt það með kaupum á Heritable-bankanum í Lond- Samson eignarhaldsfélag ætlar að tryggja a Ný stjórn verður kjörin fyrir áramót Magnús Þor F ORYSTUMENN stjórnarand- stöðunnar gagnrýna harðlega hvernig stjórnvöld standa að sölu á hlut ríkisins í Lands- banka og Búnaðarbanka. Þeir fullyrða að pólitísk tengsl kaupenda við stjórnarflokkanna ráði miklu um söluna. Einnig gagnrýna þeir að hlutur ríkisins skuli ekki vera seldur til margra aðila og minna í því sambandi á yfirlýsingar for- sætisráðherra um dreifða eignaraðild. Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar, sagði að Samfylkingin fylgdi tveimur meginreglum þegar kæmi að sölu ríkiseigna sem væru í samkeppnis- rekstri. Í fyrsta lagi þyrfti að tryggja vel- ferð starfsfólks. Æskilegt væri að hafa sam- ráð við starfsfólk og að fyrir lægju skuldbindingar af hálfu nýrra eigenda um að ekki yrði gengið á þess hlut. Í öðru lagi vildi Samfylkingin stuðla að dreifðri eign- araðild að bönkunum líkt og forsætisráð- herra hefði lýst yfir árið 1998 að bæri að gera. Hann hefði á þeim tíma lýst yfir að há- markseignaraðild að bönkum ætti að vera 3–8%, en síðan hefði hann skipt um skoðun. Samfylkingin ekki á móti sölu „Við erum ekki í grundvallaratriðum á móti því að bankarnir séu seldir að þessum skilyrðum uppfylltum. Við horfum til yfir- lýsinga hinna nýju forráðamanna bankans um að þeir vilji auka arðsemi, sem er auðvit- að fullkomlega eðlilegt sjónarmið að hálfu manna sem eru að fjárfesta. En við veltum fyrir okkur hvernig aukinni arðsemi verði náð. Við teljum ákaflega óheppilegt ef það verður gert t.d. með því að leggja niður útibú og ennfremur lítum við svo á að það komi ekki til greina með því að hækka þjón- ustugjöld.“ sem auglj stjórnarflo sama tíma ann mönnu forystu Sjá Búnaðarba jafnaugljós sóknarflok aðferðir vi aðinn. Það eiga fjárm úr góssi rík hendi pólit eru að myn þurfa á pól Steingrí Vinstrihrey urstaða va ekki á óva blaðinu og um um dre ferðina enn var stefna við þessi saman sölu heyrt ein e leg rök fyr Össur sagði að við þau umskipti sem væru að verða á fjármagnsmarkaði legði Samfylkingin áherslu á að leikreglur væru fyrir hendi og að þær væru skýrar og gagn- sæjar. „Þessar reglur þurfa að vernda neyt- andann. Við í Samfylkingunni lítum á okkur sem verndara neytandans í þessu máli,“ sagði Össur og bætti við að Landsbankinn hefði getað farið í verri hendur en til Björg- ólfsfeðga. „Hvað verðið áhrærir þá kann vel að vera að það sé í lægri kantinum, en ég geri ekki athugasemdir við þetta verð og horfi þá m.a. til þess að verð á bönkum á al- þjóðlegum markaði hefur verið að lækka og fer líklega lækkandi. Ég tel einnig jákvætt að endurgjaldið fyrir bankann er greitt í er- lendri mynt sem nýtt er til þess að borga niður erlendar skuldir og þar með að draga úr vaxtagjöldum okkar.“ Össur sagðist hins vegar vera undrandi á því hvernig standa ætti að sölu á Búnaðar- bankanum. „Ég taldi að við værum komnir í 21. öldina og hér væru uppi ný sjónarmið í viðskiptum. Á sama tíma og tilkynnt er um sölu Björgólfsfeðga á Landsbanka er til- kynnt um sölu á Búnaðarbanka. Þar er byrjað á því að slá út af borðinu þróttmikla athafnamenn í Gildingarhópnum, sem hafa náð 18–19% hlut í bankanum. Hins vegar er gengið til samninga við tvær samsteypur Segja pól mið ráðan SALA LANDSBANKANS Það eru að sjálfsögðu meirihátt-ar tíðindi, að samningar hafaverið gerðir um sölu á þorra hlutabréfa ríkisins í Landsbanka Ís- lands. Hér er um að ræða elzta banka landsmanna, sem lengst af var jafnframt stærsti banki landsins. Landsbankinn hefur í yfir 100 ára sögu sinni haft gífurlega þýðingu fyrir atvinnulíf Íslendinga. Á síðustu áratugum eru dæmi um að bankinn hafi beinlínis haldið atvinnulífinu gangandi við erfiðar aðstæður á með- an beðið var ákvarðana í sumum til- vikum ráðvilltra ríkisstjórna. Það er því ekki lítil ákvörðun að selja Landsbankann. Engu að síður var það rétt ákvörðun hjá ríkis- stjórninni að hefja einkavæðingu fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins fyrir nokkrum árum. Tímarnir hafa breytzt og ríkisrekin fyrirtæki á þessu sviði eins og svo mörgum öðr- um eiga ekki lengur við. Frá því að einkavæðing ríkisbank- anna komst á dagskrá hefur Morgun- blaðið lýst stuðningi við þá stefnu. En sú grundvallarákvörðun að selja fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins er eitt. Annað mál er með hvaða hætti það er gert. Í umræðum um þessi mál síðustu fjögur ár hefur Morgunblaðið ítrekað lýst þeirri skoðun, að Alþingi hefði átt að setja löggjöf, sem tryggði dreifða eignar- aðild að fjármálastofnunum. Til þeirrar afstöðu liggja fyrst og fremst almenn þjóðfélagsleg sjónarmið. Það er ekki farsælt í okkar fámenna sam- félagi að eignir, völd og áhrif færist á of fáar hendur. Þetta hefur því miður verið að gerast í of ríkum mæli á nokkrum undanförnum árum. Einu gildir til hverra þátta atvinnulífsins er litið. Þróunin er alls staðar á sama veg. Þegar íslenzka ríkið seldi í upphafi hlut af Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins var því lýst yfir í söluskilmál- um, að stefnt væri að dreifðri eign- araðild. Stjórnarflokkarnir hafa hins vegar smátt og smátt horfið frá þeirri stefnu, í fyrsta lagi á þeim for- sendum, að löggjöf, sem takmarkaði eignaraðild að bönkum, mundi ekki halda á eftirmarkaði og í öðru lagi, að slík löggjöf gengi gegn þeim reglum, sem um þetta gilda innan Evrópusambandsins. Talsmenn stjórnarflokkanna hafa ekki verið einir um að lýsa efasemdum um þá stefnu. Í upphafi þessara umræðna, fyrir nokkrum árum, mátti heyra slíkar efasemdir á einstökum tals- mönnum Samfylkingarinnar. Stjórnmálamennirnir hafa hins vegar ekki sett fram sterk efnisleg rök gegn dreifðri eignaraðild að fjár- málafyrirtækjum. Þeir hafa ekki sýnt fram á, að löggjöf í fjölmörgum öðrum ríkjum, sem sett hafa tak- markanir á eignaraðild að fjármála- fyrirtækjum eða á atkvæðisrétt ein- stakra hluthafa í slíkum fyrirtækj- um, hafi reynzt gagnlaus. Hins vegar hefur Kaupþing banki hf. látið taka saman skýrslu til stuðnings því sjón- armiði, að löggjöf um dreifða eign- araðild sé óframkvæmanleg. Niður- stöður þeirrar skýrslu má hins vegar túlka á ýmsa vegu. Þegar verulegar breytingar urðu á eignaraðild að Íslandsbanka fyrir skömmu var það yfirlýst markmið forráðamanna bankans að stuðla að sem dreifðastri eignaraðild að bank- anum. Það sýnir að forystumenn bankans hafa talið það æskilegt markmið frá sjónarhóli bankans. Stuðningur Morgunblaðsins við einkavæðingu ríkisbankanna er af- dráttarlaus en blaðið telur að það hafi verið rangt að selja einum aðila svo stóran hlut í Landsbanka Ís- lands, sem samningar hafa nú verið gerðir um. Það hefur ekkert með að gera hver sá aðili er. Raunar má færa rök að því, að úr því ríkisstjórnin á annað borð ákvað að selja einum aðila svo stóran hlut í Landsbanka Íslands sem um er að ræða, eða tæplega helming hlutafjár í bankanum, sé það jákvætt að nýr aðili í viðskiptalífi okkar, Samson ehf., komi þar við sögu. Það er betra að viðskiptablokk- irnar, sem eru að verða allsráðandi í íslenzku viðskiptalífi, séu fleiri en færri og með öflugri þátttöku Björg- ólfs Guðmundssonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar Þorsteinssonar fjölgar þeim aðilum, sem hafa mikil áhrif í viðskiptalífinu. Eins og mál hafa þróazt með sölu Landsbankans kemur engum á óvart að ákvörðun hafi verið tekin um við- ræður af hálfu einkavæðingarnefnd- ar við tvo hópa fyrirtækja, sem áður tilheyrðu samvinnuhreyfingunni að verulegu leyti, vegna fyrirhugaðrar sölu Búnaðarbankans. Yfirgnæfandi líkur eru á því að þær viðræður leiði til þess að annar hvor hópurinn eða þeir báðir með einhverjum hætti kaupi ráðandi hlut í þeim banka. Æskilegt hefði verið að þessi mál hefðu þróazt á annan veg og að miklu fleiri aðilar hefðu komið að kaupum á þessum tveimur bönkum. Hins vegar er ljóst, að valdið til þessara ákvarð- ana er í höndum meirihluta Alþingis og ríkisstjórnar og þessir aðilar hafa tekið sínar ákvarðanir. Ólíklegt er hins vegar að með sölu á hlut ríkisins í bönkunum tveimur sé komið að einhverjum lokapunkti í endurskipulagningu íslenzka fjár- málakerfisins. Íslandsbanki hefur stærðar sinnar vegna náð ákveðnu forskoti á önnur fjármálafyrirtæki og getur m.a. sótt ódýrara fjármagn út á markaðinn. Gera má ráð fyrir, að önnur fjármálafyrirtæki leitist við að jafna þá stöðu og skapa sér sterk- ari samkeppnisstöðu gagnvart Ís- landsbanka en þau hafa nú. Þess vegna má telja líklegt að sala á hlut ríkisins í bönkunum tveimur sé upp- hafið að enn frekari breytingum á ís- lenzkum fjármálamarkaði, sem m.a. getur komið fram í auknum umsvif- um þessara fyrirtækja í öðrum lönd- um. Umsvif Kaupþings banka eru orðin töluverð á íslenzkan mælikvarða á al- þjóðavettvangi og Landsbanki Ís- lands hefur verið að færa út kvíarnar að þessu leyti. Almennt er það jákvætt að við- skiptablokkirnar í íslenzku atvinnu- lífi láti reyna á krafta sína í alþjóð- legu viðskiptalífi, því að augljóst er að hið íslenzka umhverfi er orðið of lítið fyrir sumar þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.