Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 31

Morgunblaðið - 22.10.2002, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 31 ingaferli í gangi,“ sagði Björgólfur Thor. „Í breytingaferli skiptir miklu máli að fólk geti verið snöggt að meta aðstæður hverju sinni og snöggt að taka ákvarðanir og fylgja þeim eftir. Það hefur ekki verið mikið um þessa eig- inleika í ríkisfyrirtækjum, hvar sem er í heim- inum. En þegar kjölfestufjárfestir er innan- borðs og um er að ræða almennings- hlutafélag, þá er hægt að taka þessa punkta upp miklu fastar, þannig að fólk geti verið fljótt að greina hlutina, tækifærin og gallana, og fljótt að taka ákvarðanir og fylgja þeim eft- ir. Við teljum að það verði miklar breytingar hér á landi. Við lítum svo á að við séum að taka þátt í þeim og viljum eiga stóran hlut í breytingaferlinu.“ Gunnar Viðar, forstöðumaður lögfræði- deildar Landsbanka Íslands, segir að breska fjármálaeftirlitinu, Financial Services Auth- ority, verði tilkynnt um breytta eignaraðild að Landsbanka Íslands. Hann segir að slík til- kynning sé nauðsynleg vegna eignaraðildar Landsbankans að breska bankanum Her- itable Bank. Landsbankinn eignaðist 70% hlut í Her- itable Bank í Lundúnum árið 2000 og jók hlut sinn í tæp 95% snemma á þessu ári. kaupa bankann. Endanlegt verð væri mun hærra en félagið hefði haft í huga í fyrstu og hefði félagið teygt sig til hins ýtrasta til að koma til móts við ríkið. Engu að síður ættu báðir aðilar að geta verið sáttir við niðurstöð- una. Það hefði hins vegar einnig verið nið- urstaða á ströngu samningaferli. Núvirt með- algengi hlutabréfa Landsbankans í viðskipt- um Samsonar og ríkisins er 3,91. Skilyrði um ábyrgðarhlutverk Björgólfur Thor greindi frá því á blaða- mannafundinum að taka hefði þurft á mörg- um þáttum í samningaviðræðum Samsonar og framkvæmdanefndar um einkavæðingu, s.s. verðinu, en ríkið hefði einnig sett félaginu ákveðin skilyrði. „Við þurfum að skuldbinda okkur um ákveðna hluti sem er óvenjulegt í svona kaupsamningum, en þeir þættir eru ekki óeðlilegir. Þeir eru þess eðlis að okkar ábyrgðarhlutverk er neglt niður og við höfum fullan hug á því að sinna því hlutverki. Við höfum því sætt okkur við þetta.“ Björgólfur Thor sagðist ekki telja rétt að nefna á þessu stigi hvaða skilyrði þetta væru, áður en lokasamningur um söluna hefði verið frágenginn og undirritaður.„Það er breyt- n gæti tekið þátt í útrás íslenskra Kaupin hefðu verið ákaflega arð- bankann og hefðu skilað sér vel. dæmi um hvað bankinn gæti gert, ugsanlega fyrirmynd að því sem di. Kaupin á Heritable væru skýrt sóknartækifæri sem hefðu verið mson mundi hafa áhuga á að leita kum. ur Guðmundsson sagði mikilvægt ugsanlegar breytingar á starfsemi kans yrðu kynntar í samráði við bankans. ir aðilar geta verið sáttir um hvers vegna afhendingu hluta- ins í Landsbankanum yrði skipt í nars vegar 33,3% í kjölfar undirrit- samnings, og hins vegar 12,5% að agði Björgólfur Thor að um væri að greiðslur. Þetta sé niðurstaðan af mjög ströngu samningaferli við ís- ð. upverðið sagði hann að Samson ð til móts við ríkið. Gengi hluta- dsbankans á markaði hefði verið ar félagið hefði óskað eftir að fá að að Landsbankinn verði áfram banki allra landsmanna Morgunblaðið/Kristinn rsteinsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson, eigendur Samsonar eignarhaldsfélags. öllum ljóst. Ríkisstjórnin ákvað að klára þetta fyrir lok kjörtímabilsins. En ég tel að þetta sé lágt verð fyrir Landsbankann ef maður horfir til þess hversu gríðarlega verðmæt og mikilvæg þessi stofnun er og hversu sterka stöðu hún hefur. Ég er hins vegar ekki að segja að þetta sé óeðlilegt verð miðað við markaðinn í dag. Þó hefði maður kannski haldið að svona afgerandi ráðandi hlutur væri verð- lagður eitthvað meira yfir gangandi mark- aðsverði hvers tíma en þetta. Þetta er satt best að segja mjög lítið álag frá verði á stök- um bréfum á eftirmarkaði. Það er því ekki hægt að segja að nýir eigendur séu að borga mikið fyrir að fá forræði bankans í sínar hendur á einu bretti,“ sagði Steingrímur. Sala til hinna pólitísku ráðamanna Sverrir Hermannsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, sagðist ekki treysta sér til að dæma um hvort verðið á hlutabréfunum í Landsbankanum væri eðlilegt. Hann sagð- ist þó telja það nokkuð lágt. „Alvörumálið í sambandi við sölu þessa fyrirtækis er að selja það ekki dreift. Því var lofað í upphafi og það hefði aldrei verið unnið að neinni einkavæðingu ef þau loforð hefðu ekki verið skýr og ákveðin af hálfu stjórnvalda. Þetta er svo svikið og það liggur núna fyrir hvers vegna það er svikið. Það er gert vegna þess að það á að ráðstafa þessum fyrirtækjum til hinna pólitísku ráðamanna. Ég hef ekkert nema gott um þessa menn að segja sem eru að kaupa. Ég hef ekkert út á þá að setja, en öll aðferðafræðin og vinnu- brögðin eru gagnrýnisverð. Það nægir að nefna hvernig staðið var að því að jafna met- in með því að skáka VÍS yfir á annan væng- inn svo að hann fengi aðeins betri bita með Búnaðarbankanum. Þetta blasir við öllum.“ þætti mönnum alveg nóg að setja einn stór- an banka í sölu í einu en ekki tvo. Pólitíska nytsemin af því liggur í augum uppi og það hef ég kallað helmingaskipti.“ Steingrímur sagði þessa aðferðafræði mjög sérkennilega og gagnrýnisverða. Hann sagðist líka telja einkennilegt að þegar samstilltur hópur í Búnaðarbankanum ætti orðið fjórðung í bankanum væri ekki talað við hann um sölu. „Það alvarlegasta í þessu er það sem blas- ir við að getur gerst í framhaldinu, en það er að á grunni þessarar aðferðafræði fáum við vaxandi fákeppni, að maður segi ekki einok- un, í fjármálaþjónustu í landinu. Það er hætta á að þetta verði enn eitt svið viðskipta á Íslandi sem verði markað af fákeppni og blokkamyndun. Ég hélt að mönnum þætti nóg um þá svo mjög umtöluðu fákeppni sem hér ríkir á sviði matvælaverslunar, sam- gangna, flutningastarfsemi, olíudreifingar, vátryggingastarfsemi o.s.frv. Ég hef talið að menn ættu að stíga varlega til jarðar og auka ekki á fákeppnina.“ Steingrímur sagðist ekki telja að verðið á Landsbankanum væri úrslitaatriðið, en það væri þó ljóst að tíminn til að selja núna væri ekki sérstaklega hagstæður. Bankarnir væru núna á frekar lágu verði. „Tíminn til að selja er valinn á pólitískum en ekki við- skiptalegum forsendum. Það held ég að sé jóslega njóta velvildar annars okksins. Það blasir því við að á a og verið er að selja Landsbank- um sem njóta vildar og tengsla við álfstæðisflokksins er verið að láta ankann af hendi til manna sem slega njóta vildar forystu Fram- kksins. Þetta eru ekki heppilegar ið að flytja ríkiseignir út á mark- er augljóst að það er ekki nóg að magn til að hreppa heppilega bita kisins. Það þurfa líka að vera fyrir tísk tengsl. Þessar blokkir, sem ndast í kringum stjórnarflokkana, litísku skjóli að halda.“ Kemur ekki á óvart ímur J. Sigfússon, formaður yfingarinnar, sagði að þessi nið- arðandi sölu bankanna kæmi sér rt. „Þegar ríkisstjórnin sneri við g kastaði frá sér öllum hugmynd- eifða eignaraðild og kúventi eina n í sambandi við aðferðafræðina an náttúrulega tekin. Svo bætist sérkennilega aðferð að spyrða u beggja bankanna. Ég hef ekki einustu efnahagsleg eða markaðs- rir því. Við venjulegar aðstæður litísk sjónar- ndi við söluna FORSVARSMENN fjárfest- ingarfélagsins Kaldbaks hf. höfðu í gær ekki fengið neina tilkynningu um þá ákvörðun einkavæðingarnefndar að ganga til viðræðna við Kald- bak og S-hópinn svonefnda um mögulega sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands. Eirík- ur S. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Kaldbaks, segist eingöngu hafa heyrt fjölmiðla greina frá því undanfarna tvo daga að það ætti að taka upp viðræður við þá. ,,Ef við verðum kallaðir á fund, þá munum við mæta,“ sagði hann. ,,Við munum nátt- úrlega fara yfir þessa stöðu. Við höfum lýst því yfir áður að við forgangsröðum og höfðum meiri áhuga á Landsbank- anum en Búnaðarbankanum en það má þó ekki túlka sem svo að við höfum engan áhuga á Búnaðarbankanum. En því er ekki að leyna að það hefur margt breyst frá því í upphafi. Það er kominn aðili sem ýmist segist vera hópur eða ekki hópur og hefur 25% í bank- anum. Það er atriði sem við þurfum að skoða betur,“ segir Eiríkur. Ekki verið rætt um samstarf á milli hópanna Hann var spurður hvort samstarf á milli hópanna tveggja sem einkavæðing- arnefnd hyggst taka upp við- ræður við kæmi til greina. ,,Það hefur ekki verið rætt. Við erum í þessum viðræðum á okkar forsendum og án teng- ingar við þá,“ svaraði Eiríkur. FORSVARSMENN S-hópsins svonefnda búa sig nú undir viðræður við einkavæðing- arnefnd um möguleg kaup á hlutabréfum ríkisins í Bún- aðarbankanum. Eins og greint var frá í blaðinu sl. sunnudag hefur verið ákveðið, í kjölfar sam- komulags við Samson ehf. um sölu hlutabréfa í Landsbank- anum, að halda áfram söluferli vegna hlutabréfa ríkisins í Búnaðarbankanum. Voru vald- ir tveir hópar fjárfesta til frekari viðræðna, annars vegar Kaldbakur hf. og hins vegar S-hópurinn svonefndi, þ.e. Eignarhaldsfélagið Andvaka, Eignarhaldsfélagið Sam- vinnutryggingar, Fiskiðjan Skagfirðingur hf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Ker hf., Samskip hf. og Samvinnulíf- eyrissjóðurinn. Hljóta formlega séð að velja annan hvorn aðilann til viðræðna Þórólfur Gíslason, kaup- félagsstjóri og einn forsvars- manna S-hópsins, sagðist í gær lítið hafa um niðurstöðu einkavæðingarnefndar að segja og kvaðst ekki hafa fengið upplýsingar frá einka- væðingarnefnd um hvernig viðræðunum yrði hagað á næstunni. Hann sagði að menn myndu nú búa sig undir við- ræðurnar sem framundan væru. Þórólfur var spurður hvort samstarf milli hópanna tveggja kæmi til greina og sagði hann að það hefði ekkert verið rætt. ,,Við höfum bara litið svo á að formlega séð hlyti einkavæð- ingarnefndin að velja annan hvorn aðilann til viðræðna þegar könnun hefði farið fram,“ sagði hann. HELGA Jónsdóttir, formaður Starfsmannafélags Lands- banka Íslands, sagðist vera ánægð með að sölu Lands- bankans væri lokið og kvaðst vona að salan færði bankanum og starfsmönnum hans ný tækifæri til sóknar. „Við verðum bara að vona að þessi sala feli í sér tækifæri fyrir okkur öll. Við starfsmenn Landsbankans vorum held ég orðnir dálítið þreyttir á því að vera til sölu þannig að við er- um fegnir að þessu ferli er lokið. Við óttumst vissulega samdrátt, en ég leyfi mér að trúa því að óreyndu að nýir eigendur muni halda starfsemi bankans áfram af fullum krafti. Ég hef ekki hitt þá ennþá.“ Helga sagði að starfs- mönnum Landsbankans hefði fækkað hægt og sígandi á síð- ustu árum. Ástæðan væri breyting á útibúum og aukin tæknivæðing. Unnið hefði ver- ið að hagræðingu innan bank- ans allt frá árinu 1993. „Ég held að margir séu fegnir að þessu sé lokið og við getum haldið ótrauð áfram. Við getum þá setið við sama borð og Íslandsbanki,“ sagði Helga. „ÞAÐ hefur fengist ákveðin nið- urstaða í þessum viðræðum. Við höfum áframhaldandi áhuga á því að vinna að því að hámarka vöxt og viðgang bankans,“ sagði Þórður Magnússon sem hefur verið í forsvari hóps fjárfesta sem lýstu áhuga á kaupum í rík- isviðskiptabönkunum. Einkavæðingarnefnd hefur hins vegar valið tvo aðra hópa fjárfesta til frekari viðræðna um sölu á hlutafé ríkisins í Bún- aðarbankanum þ.e. Kaldbak hf. og hins vegar S-hópinn svo- nefnda, sem samanstendur af Eignarhaldsfélaginu Andvöku, Eignarhaldsfélaginu Sam- vinnutryggingum, Fiskiðjunni Skagfirðingi hf., Kaupfélagi Skagfirðinga svf., Keri hf., Sam- skipum hf. og Samvinnulífeyr- issjóðnum. Þórður segir Búnaðarbank- ann vera vel rekið og gott fyr- irtæki og leggur áherslu á að horft verði til hagsmuna við- skiptavina, starfsmanna og ann- arra hluthafa í einkavæðing- arferlinu. „Hagnaður og umsvif bank- ans hafa vaxið mjög mikið und- anfarin ár. Hann hefur á að skipa frábæru starfsfólki, sem skiptir miklu máli að halda utan um. Það skiptir öllu máli í þessu einkavæðingarferli að halda vel utan um og horfa til hagsmuna viðskiptavina, starfsmanna og annarra hluthafa bankans,“ sagði Þórður Magnússon. Þórður Magnússon Höfum áfram áhuga á að hámarka vöxt bankans Eiríkur S. Jóhannsson Það hefur margt breyst Formaður Starfsmannafélags Landsbanka Gott að sölunni er lokið Þórólfur Gíslason Búa sig undir viðræður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.