Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 39
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 39
miklu meiri en upp voru taldir varð-
andi Óð. Einn áhættuþátturinn er sá
hvort Aron muni skila þeim góðu eig-
inleikum í ríkum mæli sem hann
sjálfur hefur heillað menn með. Lík-
urnar eru sjálfsagt góðar en langt í
frá 100%. En það sem er kannski
mikilvægast í þessu er að ákveðinn
hópur manna hrífst af hestinum og
hefur trú á að hann muni gera það
gott á hinni þyrnum stráðu braut
ræktunarstarfsins.
Númi kominn á beinu
brautina breiðu?
Annan hest má nefna til sögunnar,
Núma frá Þóroddsstöðum, sem er í
eigu hrossaræktarsamtaka. Saga
hans er nokkuð athyglisverð og
nokkuð öruggt má telja að hann verði
aldrei boðinn falur og því hægt að
leika sér með tölur um verðmæti
hans.
Strax fjögurra vetra má segja að
hann hafi slegið rækilega í gegn og
Sunnlendingar keypti hann ásamt
Eyfirðingum og Þingeyingum fyrir
einar sjö milljónir króna eða ríflega
það. Þótti mörgum verðið yfirgengi-
lega hátt og minna helst á „glæfra-
legt“ verðið á Orra frá Þúfu þegar
hann var jafngamall. Mátti glöggt
greina í þeirri umræðu ákveðna for-
dóma gagnvart Laugarvatnshross-
um. „Það mátti kaupa hestinn en
þetta þótti alltof hátt verð fyrir hest
af þessum meiði,“ virtist vera meg-
ininntakið hjá ýmsum er gagnrýndu.
Stjórnarmenn Hrossaræktarsam-
taka Suðurlands áttu oft í vök að verj-
ast vegna þessara kaupa og á tímabili
var ásókn í að koma hryssum undir
Núma mjög tempruð. Ekki bætti úr
skák að Númi lækkaði nokkuð í ein-
kunn árið eftir landsmót og var það
ekki til að lægja öldurnar. Í allri þess-
ari umræðu viðurkenndu allir að
Númi væri mjög góður hestur og vel
skapaður og svona með semingi
drógu úrtölumenn í land hægt og síg-
andi. Í vor komu síðan fram fyrstu
hrossin undan Núma og er þar fyrst
að nefna afkvæmasýningu nokkurra
hesta í Gunnarsholti í vor og þar á
meðal fjögur fjögurra vetra afkvæmi
Núma. Þau komu glettilega vel fyrir
og vafalítið hafa fáir glaðst eins mikið
og þeir eru höfðu frumkvæði að
kaupunum á Núma á sínum tíma. Síð-
ar stendur sonur hans Illingur frá
Tóftum efstur fjögurra vetra hesta á
landsmótinu. Núma vantaði aðeins
þrjú afkvæmi til að komast í hóp af-
kvæmahesta á landsmóti, þá aðeins
átta vetra gamall, og má gera ráð fyr-
ir honum sterkum á næsta landsmóti,
tvímælalaust fremsti kandídat í efsta
sæti stóðhesta með fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi. Ef Númi væri í einka-
eigu má ætla að hægt væri að gera
ýmsar rósir með hann á vettvangi
markaðshyggjunnar. Ósagt skal látið
hvort hér sé á ferðinni hestur sem
gæti fetað í fótspor Orra frá Þúfu en
vissulega væri hann efnilegur kandí-
dat í það. Staðreynd er sú að Númi er
í eigu hrossaræktarsamtaka og þau
hafa hingað til ekki sýnt neina til-
burði í þá átt að vera með einhverjar
fimiæfingar á velli markaðarins. En
hvað gæti markaðsvirði Núma verið í
dag?
Það eru auðvitað afkvæmin sem
öllu skipta í þessum leik og nú virðist
staðan mjög góð hjá Núma. Þetta er
gegnheill hestur án afgerandi galla
ogþótt hann fái aðeins 8,0 fyrir tölt
virðast afkvæmi hans gefa góð fyr-
irheit um betra tölt. Fótaburður er
nokkuð sem margir hafa haft áhyggj-
ur af þegar fjallað er um Núma því
hann er undan Svarti frá Unalæk,
sem var mjög tæpur á því sviði. Þetta
slapp fyrir horn hjá Núma sjálfum og
afkvæmi hans virðast hafa góða fót-
lyftu. Hér hefur verið skotið á 10
milljónir króna á Óð, Aron er yfir 40
milljónir með öllum þeim fyrirvörum
er að ofan getur. Ef reiknað er út frá
verði á folatollum fer Númi ekki hátt,
gæti verðið verið í 15 til 20 milljónum
króna. Ætla má að ef seldir yrðu hlut-
ir í Núma færi verðið verulega upp og
út frá því væru tölur upp á 40 til 50
milljónir ekki fjarri lagi.
Þyrnir og Keilir á svipuðu róli
Náfrændi Núma, Þyrnir frá Þór-
oddsstöðum, sem er tveimur árum
yngri, virðist einnig á góðu róli í al-
menningsálitinu þótt ekki hafi allt
gengið upp á landsmótinu eins og átti
að gera þar sem allt stefndi í að hann
yrði þar í harðri baráttu um efsta
sætið. Verður spennandi að sjá hvað
eigandi hans, Bjarni Þorkelsson, ger-
ir með klárinn. Stofnar hann hluta-
félag eins og mjög er í tísku og virðist
gefa vel í aðra hönd eða selur hann
klárinn í heilu lagi? Þriðji möguleik-
inn er svo sá að hann muni eiga hest-
inn og gera hann út sjálfur eins og
Gunnar Jóhannesson hefur gert frá
því hann keypti stóðhestinn Keili frá
Miðsitju og gengur vel. Það voru ein-
mitt þessir tveir hestar sem voru
kandídatar í efsta sæti sex vetra stóð-
hesta landsmótinu en sá síðarnefndi
hafði vinninginn sem kunnugt er.
Þarna eru tveir hestar sem ættu að
vera á svipuðu róli í verðmæti, ein-
kunnir þeirra í einstaklingsdómi
nokkuð svipaðar. Í beinni stað-
greiðslusölu mætti geta sér til um
söluverð upp á 15 til 20 milljónir en
mun hærra í hlutafélagssölu.
Að síðustu er hér þess að geta að
hér er verið setja upp nokkur dæmi
sem að hluta byggjast á staðreynd-
um. Svona geta menn leikið sér með
tölur og velt fyrir sér verðmæti bestu
stóðhestanna.Raunverulegt mark-
aðsverðmæti stóðhesta fæst að sjálf-
sögðu aldrei fyrr en tveir eða fleiri
aðilar setjast niður og semja um og
gera með sér kaup. Ljóst er þó að
bestu stóðhestar landsins leggja sig á
einhverja tugi milljóna og þeir eru
ekki margir sem komast í þann hóp.
Morgunblaðið/Vakri
Keilir frá Miðsitju hefur notið góðra vinsælda, aðeins byrjað að temja und-
an honum og hafa sjö afkvæmi skilað sér til dóms. Knapi Vignir Jónasson.
Morgunblaðið/Valdimar
Þyrnir frá Þóroddsstöðum er með góða stöðu í dag, hefur sannað sig vel í
einstaklingsdómi, og nú bíða menn spenntir eftir að afkvæmi hans fari að
láta að sér kveða. Knapi er Daníel Jónsson.